Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 18

Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Löngu er orðiðljóst að alltof mikið vantar upp á að bygging á íbúðar- húsnæði í Reykjavík uppfylli þörfina. Þetta fram- kvæmdaleysi hefur áhrif á öllu höfuðborgarsvæðinu og víðar. Fólk á í vandræðum með að finna húsnæði hvort held- ur það vill kaupa eða leigja. Sér- staklega er erfitt fyrir þá, sem vilja eignast sína fyrstu íbúð, að stíga inn á hringekju fasteigna- markaðarins. Þá er leiguhúsnæði vandfundið og leigan há. Sá vandi endurspeglaðist í frétt í Morgunblaðinu í gær þar sem sagt var frá því að búast mætti við að leiguverð íbúðar- húsnæðis hækkaði enn frekar á næstunni og fylgdi fasteigna- verði. Í fréttinni var rætt við mann sem hafði verið sagt upp leigu- húsnæði og flutt í sendibíl af neyð. Hann lýsir ástandinu svo: „Ég veit um fólk sem er tilbúið að borga 200 þúsund á mánuði en hefur ekki fengið íbúðir. Það er lítið um íbúðir til leigu á því verði. Það er hins vegar verið að bjóða íbúðir á 250 þúsund. Þá er ekkert eftir til að lifa, enda lítið eftir af mánaðarlaunum hjá lægra settu fólki.“ Manninum stóð til boða að leigja sex fermetra herbergi í Breiðholti í Reykjavík á 40 þús- und krónur á mánuði: „Það var að vísu sturta en hún var í ólæstu herbergi og ætluð fimm manns. Elda- mennska og matseld var bönnuð í hús- næðinu. Þar var engin þvottaað- staða,“ sagði hann. Lýsing mannsins hljómar eins og hún sé frá annarri öld. Það er fráleitt að á okkar dögum skuli fólk hrekjast í vistarverur sem flestir myndu telja óíbúðar- hæfar, og ber því vitni hvað meirihlutanum í borgarstjórn hafa verið mislagðar hendur. Þróun byggðar í borginni hefur engan veginn haldið í við þörfina. Ef til vill var ekki hægt að sjá fyrir þá sprengingu sem orðið hefur í leigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna. En það var full- komlega fyrirsjáanlegt að eft- irspurn eftir húsnæði myndi aukast eftir því sem íbúum fjölg- aði og hefði verið brugðist við því væri vandinn nú mun viðráðan- legri. Afleiðing þessa óskiljanlega fyrirhyggjuleysis er sú að ungt fólk sér sér ekki fært að flytja úr húsum foreldranna og hinir tekjuminni vita ekki sitt rjúkandi ráð. Á meðan undirstrikar meiri- hlutinn í borginni sambandsleysi sitt við veruleikann með áform- um um að ausa 150 milljörðum króna í borgarlínu, sem hæglega gæti orðið óður til úrelts sam- göngumáta verði hún að veru- leika. Meirihlutinn í borg- inni hefur sýnt óskiljanlegt fyrir- hyggjuleysi í hús- næðismálum} Aðþrengdir borgarbúar Landsréttur varstofnaður með lokahnykk á Alþingi í gær. Allgóð sátt hefur ríkt um málið frá upphafi til enda, sem getur verið gott, en er engin trygging fyrir því að slík lagasetning sé betri og reynist farsælli en hin sem tekist er hart á um. Nokkuð upphleypt tal nokkurra þingmanna í gær breytir engu. Það tal náði varla máli en árétt- aði að hluti þingsins er fjarri því að valda sínu verkefni. Mætti hafa áhyggjur af hvernig færi ef stjórnarmeirihluti ylti á atbeina þeirra. Sigríður Andersen dóms- málaráðherra hélt á málinu af festu en sýndi um leið ríkan vilja til þess að tryggja að málefnaleg sjónarmið kæmust að. Þingmenn meirihlutans bentu sumir rétti- lega á að dómsmálaráðherrann einn bæri ábyrgð í málinu. Þetta liggur ljóst fyrir, en var þó nauð- synlegt að árétta því óþægilega stór hópur þingmanna var ófær um að skilja um hvað málið sner- ist. Sömu höfðu þó stór orð um það hversu mikið hneyksli væri hér á ferð. Erfitt var að átta sig á málatilbúnaði gagnrýnenda í þing- sal en hann virtist helst snúast um að ef umsagnarnefnd utan þings og ráðu- neytis hefði alls- herjarvald í málinu, þótt hún bæri enga ábyrgð og hefði mjög óljósa lýð- ræðislega tengingu, þá hefði óróleikadeildin blessað allt hljóðalaust! Tíma ráðherra var þröngur stakkur skorinn, því í lögum um Landsrétt er ákvarðað að dómarar hans skuli skipaðir 1. júní 2017 og dómararnir kjósa sér forseta 19 dögum síðar. Hjal í þingsal um að fresta málinu var því dapurlegt og kom á óvart að jafnvel ábyrgir flokkar skyldu fara niður á slíkt plan. Nokkrir þingmenn, þar á með- al Pawel Bartoszek og Þorsteinn Víglundsson, töldu réttilega óeðlilegt að þingmönnum skyldi blandað inn í málið með þessum hætti. Framganga einstakra þingmanna, einkum úr röðum Pírata, undirstrikaði það mál, en þó einkum það sjónarmið þing- mannanna að ábyrgð ráðherrans og þrígreining valdsins gerði málsmeðferðina óeðlilega. Krafist var rök- stuðnings um hvers vegna reynsla af dómstörfum skyldi vega þyngst við val á dómurum! } Góður áfangi, gölluð lög V erðbólga hér á landi hefur verið undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans í 40 mánuði. Langt undir því ef vísitala neyzluverðs væri reiknuð með sama hætti og víðast hvar í Evrópu. Til að mynda bæði á evru- svæðinu og í Bretlandi (sem skekkir allan samanburð). Það er án húsnæðiskostnaðar vegna eigin húsnæðis enda þar fyrst og fremst um fjárfestingu að ræða. Ef ekki væri fyrir þetta fyrirkomulag hefði til að mynda verið verðhjöðnun hér á landi síðustu tólf mánuði, sem aftur hefði væntanlega þýtt að stýrivextir Seðlabankans hefðu verið miklu lægri. Vandamálið þegar kemur að peningamálum Íslands er ekki krónan eins og sumir vilja meina, þar á meðal fjármálaráðherra landsins Benedikt Jóhannesson, heldur sú stofnanalega umgjörð sem henni hefur verið búin í gegnum áratugina og þær pólitísku ákvarðanir sem teknar hafa verið til þess að skapa þá umgjörð og hafa leitt af henni, eins og dr. Ólafur Margeirsson hagfræðingur hefur meðal annars bent á. Verðtryggingin er hluti af þessari umgjörð og dæmi um pólitíska ákvörðun sem tekin var vegna tíma- bundins vandamáls sem stjórnmálamenn höfðu skapað. Það er löngu tímabært að taka stofnanaumgjörð ís- lenzkra peningamála til algerrar endurskoðunar. Vonandi mun starfandi verkefnisstjórn um endurmat peninga- stefnu landsins koma með róttækar tillögur um það hvern- ig megi endurhanna umgjörðina í kringum krónuna þann- ig að umgjörðin stuðli ekki að umhverfi hárra vaxta og óstöðugleika. Sýnt hefur verið fram á það undanfarin ár að hægt er að stuðla að ágætu efnahagsástandi með krónuna að vopni en vegna umgjarðarinnar hefur árangurinn í þeim efnum verið talsvert minni en hann hefði getað verið. Hvort stjórnvöld eiga síðan eftir að taka á því vandamáli sem peningamálaumgjörðin hefur skapað er annað mál. Fjármálaráðherr- ann vill ekki aðeins krónuna feiga heldur hefur hann beinlínis lýst því yfir að hann sjái sér pólitískan hag í sterku gengi krónunnar. Þannig talaði hann fyrir því eins og svo oft áð- ur að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna í Víglínunni á Stöð 2 í marz og bætti síðan við: „En þegar gengið er orðið svona rosalega sterkt fáum við fleiri í lið með okkur.“ Vísaði hann þar ekki sízt til útgerðarmanna, sem lengi hafa lagzt gegn því að Ísland fari undir yfirstjórn Evrópu- sambandsins. Meginstefna Viðreisnar, flokks fjármálaráðherra, er innganga í Evrópusambandið og upptaka evru. Öll stefna flokksins tekur mið af þessu markmiði. Sú spurning hlýtur eðlilega að vakna hvort hægt sé að treysta ráðherra, sem sér sér pólitískan hag í óbreyttu ástandi, til þess að taka þátt í því að koma á nauðsynlegum og löngu tímabærum umbótum á umgjörð peningastefnu landsins? Sem myndi enn frekar varpa ljósi á þá staðreynd að krónan er ekki vandamálið. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Fjármálaráðherra og krónan STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Sex milljónir barna yngri enfimm ára deyja á hverjuári. Yfir 75 þúsund börnog ungmenni yngri en 20 ára eru myrt á ári hverju, árlega eru 40 milljónir stúlkna á aldr- inum 15-19 ára gefnar í hjóna- band, þar af eru 15 milljónir yngri en 15 ára og 16 milljónir stúlkna yngri en 19 ára fæða börn á hverju ári, þar af er ein milljón yngri en 15 ára. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barna- heilla – Save the Children sem nefnist Börn án bernsku (e. End of Childhood Re- port: Stolen Childhoods) sem kom út í gær, á alþjóðlegum degi barna. 700 milljón börn án bernsku Í skýrslunni eru nefndar ýms- ar ástæður fyrir því að börn fá ekki að njóta æsku sinnar og eru þær helstu vannæring, skortur á heilsuvernd, stríðsátök, ofbeldi og þrælkun. Þá eru giftingar á barns- aldri einnig nefndar og þunganir barnungra stúlkna. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að al- þjóðasamfélagið bregðist við. Ísland er í áttunda sæti listans. Noregur, Slóvenía og Finnland verma efstu sæti listans, en þar eru mestar líkur á að börn fái að njóta bernsku sinnar og Níger er hins vegar í botnsæti listans og þar á undan koma Ang- óla og Malí. Samkvæmt skýrslunni eru að minnsta kosti 700 milljónir barna í heiminum sem fá ekki að njóta bernskunnar af ýmsum ástæðum. Barnaþrælar og barnabrúðir „Allt of mörg börn í heim- inum búa við ömurlegar aðstæður; stríðsátök, eru barnaþrælar, barnabrúðir, þjást og deyja vegna sjúkdóma sem til er lækning við, eru vannærð og án menntunar,“ segir Erna Reynisdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla. „Þau eru svipt bernsku sinni og það er óásættanlegt að þau búi ekki við þau réttindi að fá að lifa við ör- yggi og fá að þroskast og leika sér. Þó svo að sumum sé hjálpað út úr aðstæðunum síðar á lífsleið- inni, fá þau aldrei bernsku sína aftur.“ Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að 263 milljónir barna ganga ekki í skóla, nærri 28 milljónir barna eru á flótta og vannæring hamlar vexti 156 millj- óna barna yngri en fimm ára. 185 milljónir barna eru í vinnuþrælkun, þar af eru 85 millj- ónir við hættuleg störf. 200 börn myrt daglega Erna segir að tölurnar, sem komi fram í skýrslunni séu slá- andi. „Sem dæmi má nefna að á hverjum degi eru meira en 200 börn myrt í heiminum. Flest í Suður-Ameríkuríkjunum Hond- úras, Venesúela og El Salvador þar sem ofbeldi hefur færst mjög í vöxt. Okkur fallast hendur við að heyra þessar tölur.“ Erna nefnir einnig þann gríð- arlega fjölda barna sem er á flótta í dag en samkvæmt skýrslunni eru þau um 28 milljónir. Barnaheill – Save the Child- ren standa nú fyrir undirskrifta- söfnun á alþjóðavísu þar sem þrýst er á ríkisstjórnir heimsins að fjárfesta í börnum og tryggja þeim réttindi sín. Undirskrifta- söfnunina er að finna á vefsíðu samtakanna. „Ég hvet alla til þess að skrifa undir þetta gríðarlega mik- ilvæga málefni,“ segir Erna. Þau munu aldrei fá bernsku sína aftur Ljósmynd/Finbarr O’Reill Börn Í Níger er bernsku barna mest ógnað samkvæmt skýrslu Barnaheilla. Tíu efstu sætin 1. Noregur 2. Slóvenía 3. Finnland 4. Holland 5. Svíþjóð 6. Portúgal 7. Írland 8. Ísland 9. Ítalía 10. Belgía, Kýpur, Þýskaland, Suður-Kórea Tíu neðstu sætin 163. Gínea 164. Síerra Leóne 165. Búrkína Fasó 166. Suður Súdan 167. Tjad 168. Sómalía 169. Mið-Afríkulýðveldið 170. Malí 171. Angóla 172. Níger Erna Reynisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.