Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 19

Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Það er auðvitað æskilegt að lögfræði- menntað fólk tjái sig um álitaefni sem upp koma á vettvangi þjóð- málanna, þar sem reynir á lögskýringar og hugsanlegt lögmæti athafna stjórnvalda. Þegar þessu er sinnt er afar þýðingarmikið að lögfræðingarnir rugli ekki saman lögfræð- inni sinni og þeim huglægu sjón- armiðum sem þeir kunna að hafa til þess máls sem til meðferðar er. Að undanförnu hefur þjóðin orðið vitni að ótrúlegum farsa í þjóðmála- umræðum, þar sem lögfræðingar hafa leikið aðalhlutverkið. Hér á ég við umræðurnar um skipun 15 dóm- ara að hinum nýja millidómstól, Landsrétti. Ekki verður betur séð en allmargir lögfræðingar hafi misst sig í þessum umræðum og ruglað bæði almenning og alþingismenn í ríminu svo um munar. Lítum aðeins nánar á málið. Hér er verið að fást við verkefni sem er einstakt að því leyti að skipa skal í einu lagi 15 dómara til að taka til starfa í hinum nýja dómstól. Um þetta hafa verið sett sérstök laga- ákvæði með ákvæðum til bráðabirgða við lög um dómstóla. Þar er kveðið svo á að ráð- herra skuli ekki skipa dómarana sjálfur eins og honum ber almennt að gera við skipun í dómaraembætti. Hann á að gera tillögu til Al- þingis um skipun í þessi embætti og þá hverja skipun fyrir sig. Það er því Alþingi sem skal taka ákvörðun um skipun þessara dóm- ara. Í lögunum er kveðið svo á að nefnd, sem starfar samkvæmt dóm- stólalögum, skuli meta hæfni um- sækjenda um embætti dómara við Landsrétt í fyrsta sinn og láta ráð- herra í té umsögn um umsækjendur í samræmi við reglur sem um nefnd þessa gilda. Skuli ráðherra vera óheimilt að skipa í dómaraembætti mann sem nefndin hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, hvort heldur einn eða samhliða öðrum. Frá þessu megi þó víkja ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda sem full- nægir að mati dómnefndar almenn- um lagaskilyrðum til að hljóta skip- un sem dómari. Þessi lagatexti er vissulega svolít- ið ruglingslegur vegna þess að ráð- herra tekur ekki ákvörðunina um hverja skipa skuli. Það gerir Alþingi. Hins vegar er alveg ljóst að ráð- herra á að gera tillögu til Alþingis um dómaraefnin og er þá sérstak- lega gert ráð fyrir að hann kunni að gera tillögu um aðra en þá sem dóm- nefndin hefur raðað í efstu sæti. Nokkrir lögfræðingar hafa látið hafa eftir sér að með þessu sé ráðherra að brjóta gegn lögum! Nú liggur fyrir að ráðherrann gerði tillögu um fjóra sem ekki voru meðal 15 efstu á lista dómnefndar- innar. Í skýrslu hennar kom fram með skýrum hætti að þessir um- sækjendur voru taldir uppfylla al- menn skilyrði til að hljóta skipun. Þá koma einhverjir lögfræðing- anna fram með þá kenningu að ráð- herra þurfi að rökstyðja sérstaklega frávik frá röðun nefndarinnar. Ráð- herrann hafði að vísu gert þetta en það var ljóslega umfram lagaskyldu hans því að í skýrslu dómnefndar- innar hafði verið fjallað um þessa fjóra umsækjendur á nákvæmlega sama hátt og fjallað hafði verið um þá 15 sem nefndin setti efsta. Það þurfti ekki frekari rökstuðning um starfsferil þeirra og hæfni en þegar lá fyrir um alla þessa umsækjendur. Síðan tefla lögfræðingarnir fram tilvitnun í gamlan dóm um allt annað en hér er fjallað um. Þar hafði ráð- herra sjálfur skipað í viðkomandi dómaraembætti. Og þó að atkvæði dómaranna þriggja sem mynduðu meirihlutann í því máli hafi verið meira en lítið umdeilanlegt hefur dómurinn ekkert að gera með ákvörðun um skipan dómara í Landsrétt nú. Hinn einfaldi kjarni þessa máls er sá að ráðherra gerði, svo sem lögin gera ráð fyrir, tillögu til Alþingis um 15 dómara í Landsrétt. Þegar grein þessi er skrifuð hefur málið ekki verið afgreitt á þinginu. Það eru al- þingismenn sem ákveða hverja skipa skuli, en ekki ráðherrann. Þar getur hver og einn alþingismaður auðvitað greitt atkvæði gegn einstökum til- lögum ráðherrans ef þingmaðurinn vill. Ef niðurstaðan verður til dæmis sú að ein eða fleiri tillaga ráðherra verði felld ber ráðherra að gera nýja tillögu um dómara í staðinn. Það skiptir auðvitað engu máli, en ég tek til gamans fram að ég hefði ekki valið sömu dómaraefni og ráð- herrann gerði í tillögunni til Al- þingis. Huglæg sjónarmið um slíka hluti eiga hins vegar engu máli að skipta þegar metið er lögmæti gjörða ráðherrans. Augljóst er að hann fór í einu og öllu að lögum við meðferð málsins. Hitt er svo annað mál sem ég hef reyndar fjallað um á öðrum vett- vangi, að nauðsynlegt er að breyta reglum dómstólalaga um skipun dómara. Umræður um það eiga ekk- ert erindi í málið nú. Eftir stendur aðeins að hvetja nú lögfræðinga í að missa sig ekki þeg- ar þeir taka að tjá sig opinberlega um lögfræðihlið mála í stjórnsýslu. Og er þá sama hvort þeir eru for- menn í félögum lögfræðinga, pró- fessorar eða bara vinir umsækjenda með brostnar vonir. Þetta fólk verð- ur að skilja að það lækkar verðgildi okkar fögru fræðigreinar með því að missa sig svona í erli dagsins. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Eftir stendur aðeins að hvetja nú lög- fræðinga í að missa sig ekki þegar þeir taka að tjá sig opinberlega um lögfræðihlið mála í stjórnsýslu. Og er þá sama hvort þeir eru for- menn í félögum lögfræð- inga, prófessorar eða bara vinir umsækjenda með brostnar vonir. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Lögfræðingar á villigötum Eftir mikilvæga fundi í NATO og hópi G7-ríkjaleiðtoga í síð- ustu viku var Angela Merkel Þýskalands- kanslari sunnudaginn 28. maí í úthverfi München í Bæjara- landi og flutti bjór- tjaldsræðu. Um 2.400 manns voru í kæfandi hita tjaldsins og stór hópur sem rúmaðist ekki inni stóð utan dyra. Fundinn átti upphaflega að halda þriðjudaginn 23. maí. Honum var frestað vegna hryðjuverksins í Man- chester á Englandi kvöldið áður. Þarna skyldi sýnd samstaða Mer- kel, leiðtoga kristilegra demókrata (CDU), og Horsts Seehofer, leið- toga kristilegra sósíalista (CSU). Þau hefðu grafið stríðsöxina og gengju saman til baráttunnar vegna þingkosninganna í september. Bjórtjaldsfundir eru vinsælir í Þýskalandi, ekki síst í Bæjaralandi. Þar klæðast menn þjóðbúningum, veifa fánum og lúðrasveitir leika. Bjórinn flæðir og er borinn fram í stórum könnum. Þýskir stjórnmálamenn eru fræg- ir fyrir langar ræður, Bierzelt- Reden, á slíkum samkomum og fundarmenn knýja þá áfram með lófataki, hlátri eða bauli. Á ræðu- púltinu á þessum fundi stóð: Klar für unser land. Fundarmenn risu hvað eftir annað upp og veifuðu bláum spjöldum þar sem stóð: Klar für Merkel! Kosningabaráttan var að hefjast og Merkel fagnaði eftir sigur CDU í þrennum sambandslandskosningum á árinu: í Saarlandi, Slesvík- Holstein og Nordrhein-Westfalen. Sambandslöndum þar sem síður en svo er sjálfgefið að CDU vegni vel og sé í stjórnarforystu. Merkel hefur tekist að slá á vin- sældir sem Martin Schulz, kansl- araefni jafnaðarmanna (SPD), naut eftir að samstarfsflokkur hennar til- nefndi hann sem keppinaut hennar. Schulz var forseti ESB-þingsins áð- ur en hann sneri sér beint að þýsku landsmálabaráttunni. Hann flaggar Evrópumálum í von um slá um sig á kostnað Merkel, hún sé einfaldlega taglhnýtingur Bandaríkjamanna. Með bjórtjaldsræðunni sló Merkel Evrópu- vopnið úr hendi Schulz. Orð hennar vöktu heimsathygli: „Tíminn þegar við gátum fyllilega treyst á aðra er að nokkru lið- inn, það hef ég reynt undanfarna daga. Þess vegna get ég aðeins sagt: Við Evrópumenn verðum hreinlega sjálf að gæta okkar eigin ör- laga.“ Hún sagði að þetta gerðist ekki nema í vináttu við Bandaríkjamenn og Breta en Þjóð- verjar yrðu sem Evrópumenn að berjast á eigin forsendum fyrir framtíð sína, fyrir örlög sín. Fundarmenn risu úr sætum og dynjandi lófatak ríkti í eina mínútu í tjaldinu. Gabriel gerir betur Jafnaðarmaðurinn Sigmar Gabr- iel, varakanslari og utanríkisráð- herra Þýskalands, lét sitt ekki eftir liggja. Hann sagði mánudaginn 29. maí og átti við Trump: „Hver sem flýtir fyrir loftslagsbreytingum með minni umhverfisvernd, sem eykur vopnasölu til átakasvæða og sem vill ekki leysa trúarleg átök á stjórn- málavettvangi vegur að friði í Evr- ópu. Stöndum við Evrópumenn ekki af festu gegn þessu mun farandfólki fjölga enn í Evrópu. Þeir sem hafa ekki hafnað þessari stefnu Banda- ríkjastjórnar eru einnig meðsekir.“ Í aðalfréttatíma þýsku sjónvarps- stöðvarinnar ZDF mánudaginn 29. maí sagði Gabriel að Trump hefði talað niður til viðmælenda sinna í fyrstu utanlandsferðinni og stjakað við einum forsætisráðherranna á NATO-fundinum auk þess sem hann fjarlægðist „vestrænar hug- myndir“, þar á meðal alþjóðalög. „Bandarískir starfsbræður átta sig greinilega ekki á því að þegar þeir hverfa á brott koma aðrir, til dæmis Kínverjar. Þeir eru með allt önnur viðhorf,“ sagði utanríkis- ráðherrann. Vegna alls þessa yrðu Evrópumenn að „standa saman og styrkjast“ og verja lýðræði, frjáls- lyndi og hreinskilni. Þjóðverjar ættu einnig að leggja meira af mörkum til að þjóðir eins og Frakk- ar og Ítalir bættu efnahag sinn. „Mestu skiptir að við hættum að gera lítið úr eða tala niður til ann- arra,“ sagði Gabriel. Óvildarmenn Donalds Trump, einkum í Bandaríkjunum, töldu orð Merkel sýna að Bandaríkjaforseti hefði kallað yfir sig andúð meðal evrópskra ráðamanna. Hann gæti ekki fagnað fyrstu utanlandsför sinni sem forseti og sagt hana ár- angursríka. Þriðjudaginn 30. maí birtist Trump á Twitter og kvartaði undan því að Þjóðverjar seldu meira til Bandaríkjanna en þeir keyptu af Bandaríkjamönnum og borguðu ekki nógu mikið til NATO og sam- eiginlegra varna. Á fundi með ríkis- oddvitum NATO-ríkjanna í síðustu viku kvartaði Trump undan „risa- vöxnum skuldum“ 23 af 28 banda- lagsríkjum og þetta væri ekki „sanngjarnt gagnvart almenningi og skattgreiðendum í Bandaríkj- unum“. Opinber orðaskipti af þessu tagi milli æðstu manna Þýskalands og Bandaríkjanna eru einsdæmi. Á þessari stundu veit enginn hver áhrifin verða á samskipti þjóðanna. Í fréttum af ferð Trumps til Brussel var sagt að hann hefði sagt Þjóð- verja „vonda, verulega vonda“ vegna jákvæðs viðskiptajöfnuðar þeirra gagnvart Bandaríkjunum. Ekki bara til heimabrúks Flutti Angela Merkel ræðu sína eingöngu til heimabrúks? Taldi hún að utan Þýskalands hefðu menn ekki áhuga á því sem hún segði í bjórtjaldi í úthverfi München? Hafi hún haldið það kom annað í ljós. Sigmar Gabriel segir í raun að svo virðist sem Trump telji sér fært að láta annarra þjóða menn sitja og standa eins og honum sýnist – hann ýti þeim til hliðar sem séu í vegi hans og tali niður til þeirra sem séu honum ósammála. Hann virði ekki hugsjónir Vesturlanda og hunsi al- þjóðalög. Þetta eru þung orð og ásakanir. Telji þýskir stjórnmálamenn nauðsynlegt að tala á þennan veg um Trump og stjórn hans til að njóta trausts þýskra kjósenda er það áhyggjuefni, róttækt andsvar við stefnu Trumps um Bandaríkin í fyrsta sæti. Ekki eru aðeins þingkosningar í Þýskalandi á næstu mánuðum. Í næstu viku ganga Bretar til kosn- inga sem boðaðar voru af Theresu May forsætisráðherra til að treysta samningsstöðu hennar við útgöngu Breta úr ESB. Þremur dögum síð- ar, 11. júní, er fyrri umferð frönsku þingkosninganna. Emmanuel Macr- on, nýr Frakklandsforseti, vonar að kjósendur skapi meirihluta að baki stefnu sinni sem miðar að því að efla samstarf við Þjóðverja til að endur- nýja og styrkja Evrópusambandið. Hvernig sem kosningarnar fara í Bretlandi halda Bretar áfram ferð sinni úr ESB. Við brottför Breta hverfur andstaða innan sambands- ins við að varnarsamstarf ESB- ríkjanna eflist, til verði ESB-herafli. Stofnun hans hefur lengi verið á dagskrá Þjóðverja. Þá yrði franski kjarnorkuheraflinn hluti ESB- varna. Sérfræðingar benda á að Þjóðverjar sætti sig raunar illa við að eiga öryggi sitt undir kjarnorku- vopnum Frakka, sem kunni að of- metnast. Þjóðverjar kjósi frekar kjarnorku-regnhlíf Bandaríkja- manna. Áhrifin á N-Atlantshafi Uppnám í sambandi Evrópu- manna og Bandaríkjamanna í ör- yggis- og varnarmálum er ekki nýtt. Ávallt hefur þó tekist að jafna ágreining hafi hann risið. Takist leiðtogum stóru þjóðanna sem hlut eiga að máli ekki að finna sameigin- lega niðurstöðu er hætta á að upp úr rakni. Raunverulegur fleygur á Norður- Atlantshafi skapar óþekkta stöðu frá lokum síðari heimsstyrjaldar- innar. Landfræðilegir hagsmunir Íslendinga falla að hagsmunum Breta og Bandaríkjamanna, Ísland yrði auk þess stólpi í brú ESB út á hafið. Eftir Björn Bjarnason » Flutti Angela Merkel ræðu sína eingöngu til heima- brúks? Taldi hún ekki áhuga á því sem hún segði í bjórtjaldi í úthverfi München? Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Merkel og Trump valda uppnámi AFP Bjórtjaldsfundur Angela Merkel Þýskalandskanslari flutti ræðu á bjór- tjaldsfundi í úthverfi München í Bæjaralandi hinn 28. maí síðastliðinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.