Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Það er auðvitað
æskilegt að lögfræði-
menntað fólk tjái sig
um álitaefni sem upp
koma á vettvangi þjóð-
málanna, þar sem
reynir á lögskýringar
og hugsanlegt lögmæti
athafna stjórnvalda.
Þegar þessu er sinnt er
afar þýðingarmikið að
lögfræðingarnir rugli
ekki saman lögfræð-
inni sinni og þeim huglægu sjón-
armiðum sem þeir kunna að hafa til
þess máls sem til meðferðar er.
Að undanförnu hefur þjóðin orðið
vitni að ótrúlegum farsa í þjóðmála-
umræðum, þar sem lögfræðingar
hafa leikið aðalhlutverkið. Hér á ég
við umræðurnar um skipun 15 dóm-
ara að hinum nýja millidómstól,
Landsrétti. Ekki verður betur séð
en allmargir lögfræðingar hafi misst
sig í þessum umræðum og ruglað
bæði almenning og alþingismenn í
ríminu svo um munar. Lítum aðeins
nánar á málið.
Hér er verið að fást við verkefni
sem er einstakt að því leyti að skipa
skal í einu lagi 15 dómara til að taka
til starfa í hinum nýja dómstól. Um
þetta hafa verið sett sérstök laga-
ákvæði með ákvæðum
til bráðabirgða við lög
um dómstóla. Þar er
kveðið svo á að ráð-
herra skuli ekki skipa
dómarana sjálfur eins
og honum ber almennt
að gera við skipun í
dómaraembætti. Hann
á að gera tillögu til Al-
þingis um skipun í
þessi embætti og þá
hverja skipun fyrir sig.
Það er því Alþingi sem
skal taka ákvörðun um
skipun þessara dóm-
ara.
Í lögunum er kveðið svo á að
nefnd, sem starfar samkvæmt dóm-
stólalögum, skuli meta hæfni um-
sækjenda um embætti dómara við
Landsrétt í fyrsta sinn og láta ráð-
herra í té umsögn um umsækjendur
í samræmi við reglur sem um nefnd
þessa gilda. Skuli ráðherra vera
óheimilt að skipa í dómaraembætti
mann sem nefndin hefur ekki talið
hæfastan meðal umsækjenda, hvort
heldur einn eða samhliða öðrum.
Frá þessu megi þó víkja ef Alþingi
samþykkir tillögu ráðherra um
heimild til að skipa í embættið annan
nafngreindan umsækjanda sem full-
nægir að mati dómnefndar almenn-
um lagaskilyrðum til að hljóta skip-
un sem dómari.
Þessi lagatexti er vissulega svolít-
ið ruglingslegur vegna þess að ráð-
herra tekur ekki ákvörðunina um
hverja skipa skuli. Það gerir Alþingi.
Hins vegar er alveg ljóst að ráð-
herra á að gera tillögu til Alþingis
um dómaraefnin og er þá sérstak-
lega gert ráð fyrir að hann kunni að
gera tillögu um aðra en þá sem dóm-
nefndin hefur raðað í efstu sæti.
Nokkrir lögfræðingar hafa látið hafa
eftir sér að með þessu sé ráðherra
að brjóta gegn lögum!
Nú liggur fyrir að ráðherrann
gerði tillögu um fjóra sem ekki voru
meðal 15 efstu á lista dómnefndar-
innar. Í skýrslu hennar kom fram
með skýrum hætti að þessir um-
sækjendur voru taldir uppfylla al-
menn skilyrði til að hljóta skipun.
Þá koma einhverjir lögfræðing-
anna fram með þá kenningu að ráð-
herra þurfi að rökstyðja sérstaklega
frávik frá röðun nefndarinnar. Ráð-
herrann hafði að vísu gert þetta en
það var ljóslega umfram lagaskyldu
hans því að í skýrslu dómnefndar-
innar hafði verið fjallað um þessa
fjóra umsækjendur á nákvæmlega
sama hátt og fjallað hafði verið um
þá 15 sem nefndin setti efsta. Það
þurfti ekki frekari rökstuðning um
starfsferil þeirra og hæfni en þegar
lá fyrir um alla þessa umsækjendur.
Síðan tefla lögfræðingarnir fram
tilvitnun í gamlan dóm um allt annað
en hér er fjallað um. Þar hafði ráð-
herra sjálfur skipað í viðkomandi
dómaraembætti. Og þó að atkvæði
dómaranna þriggja sem mynduðu
meirihlutann í því máli hafi verið
meira en lítið umdeilanlegt hefur
dómurinn ekkert að gera með
ákvörðun um skipan dómara í
Landsrétt nú.
Hinn einfaldi kjarni þessa máls er
sá að ráðherra gerði, svo sem lögin
gera ráð fyrir, tillögu til Alþingis um
15 dómara í Landsrétt. Þegar grein
þessi er skrifuð hefur málið ekki
verið afgreitt á þinginu. Það eru al-
þingismenn sem ákveða hverja skipa
skuli, en ekki ráðherrann. Þar getur
hver og einn alþingismaður auðvitað
greitt atkvæði gegn einstökum til-
lögum ráðherrans ef þingmaðurinn
vill. Ef niðurstaðan verður til dæmis
sú að ein eða fleiri tillaga ráðherra
verði felld ber ráðherra að gera nýja
tillögu um dómara í staðinn.
Það skiptir auðvitað engu máli, en
ég tek til gamans fram að ég hefði
ekki valið sömu dómaraefni og ráð-
herrann gerði í tillögunni til Al-
þingis. Huglæg sjónarmið um slíka
hluti eiga hins vegar engu máli að
skipta þegar metið er lögmæti
gjörða ráðherrans. Augljóst er að
hann fór í einu og öllu að lögum við
meðferð málsins.
Hitt er svo annað mál sem ég hef
reyndar fjallað um á öðrum vett-
vangi, að nauðsynlegt er að breyta
reglum dómstólalaga um skipun
dómara. Umræður um það eiga ekk-
ert erindi í málið nú.
Eftir stendur aðeins að hvetja nú
lögfræðinga í að missa sig ekki þeg-
ar þeir taka að tjá sig opinberlega
um lögfræðihlið mála í stjórnsýslu.
Og er þá sama hvort þeir eru for-
menn í félögum lögfræðinga, pró-
fessorar eða bara vinir umsækjenda
með brostnar vonir. Þetta fólk verð-
ur að skilja að það lækkar verðgildi
okkar fögru fræðigreinar með því að
missa sig svona í erli dagsins.
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson »Eftir stendur aðeins
að hvetja nú lög-
fræðinga í að missa sig
ekki þegar þeir taka að
tjá sig opinberlega um
lögfræðihlið mála í
stjórnsýslu. Og er þá
sama hvort þeir eru for-
menn í félögum lögfræð-
inga, prófessorar eða
bara vinir umsækjenda
með brostnar vonir.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Lögfræðingar á villigötum
Eftir mikilvæga
fundi í NATO og hópi
G7-ríkjaleiðtoga í síð-
ustu viku var Angela
Merkel Þýskalands-
kanslari sunnudaginn
28. maí í úthverfi
München í Bæjara-
landi og flutti bjór-
tjaldsræðu. Um 2.400
manns voru í kæfandi
hita tjaldsins og stór
hópur sem rúmaðist ekki inni stóð
utan dyra.
Fundinn átti upphaflega að halda
þriðjudaginn 23. maí. Honum var
frestað vegna hryðjuverksins í Man-
chester á Englandi kvöldið áður.
Þarna skyldi sýnd samstaða Mer-
kel, leiðtoga kristilegra demókrata
(CDU), og Horsts Seehofer, leið-
toga kristilegra sósíalista (CSU).
Þau hefðu grafið stríðsöxina og
gengju saman til baráttunnar vegna
þingkosninganna í september.
Bjórtjaldsfundir eru vinsælir í
Þýskalandi, ekki síst í Bæjaralandi.
Þar klæðast menn þjóðbúningum,
veifa fánum og lúðrasveitir leika.
Bjórinn flæðir og er borinn fram í
stórum könnum.
Þýskir stjórnmálamenn eru fræg-
ir fyrir langar ræður, Bierzelt-
Reden, á slíkum samkomum og
fundarmenn knýja þá áfram með
lófataki, hlátri eða bauli. Á ræðu-
púltinu á þessum fundi stóð: Klar
für unser land. Fundarmenn risu
hvað eftir annað upp og veifuðu
bláum spjöldum þar sem stóð: Klar
für Merkel!
Kosningabaráttan var að hefjast
og Merkel fagnaði eftir sigur CDU í
þrennum sambandslandskosningum
á árinu: í Saarlandi, Slesvík-
Holstein og Nordrhein-Westfalen.
Sambandslöndum þar sem síður en
svo er sjálfgefið að CDU vegni vel
og sé í stjórnarforystu.
Merkel hefur tekist að slá á vin-
sældir sem Martin Schulz, kansl-
araefni jafnaðarmanna (SPD), naut
eftir að samstarfsflokkur hennar til-
nefndi hann sem keppinaut hennar.
Schulz var forseti ESB-þingsins áð-
ur en hann sneri sér beint að þýsku
landsmálabaráttunni. Hann flaggar
Evrópumálum í von um slá um sig á
kostnað Merkel, hún sé einfaldlega
taglhnýtingur Bandaríkjamanna.
Með bjórtjaldsræðunni
sló Merkel Evrópu-
vopnið úr hendi Schulz.
Orð hennar vöktu
heimsathygli:
„Tíminn þegar við
gátum fyllilega treyst
á aðra er að nokkru lið-
inn, það hef ég reynt
undanfarna daga. Þess
vegna get ég aðeins
sagt: Við Evrópumenn
verðum hreinlega sjálf
að gæta okkar eigin ör-
laga.“ Hún sagði að
þetta gerðist ekki nema í vináttu við
Bandaríkjamenn og Breta en Þjóð-
verjar yrðu sem Evrópumenn að
berjast á eigin forsendum fyrir
framtíð sína, fyrir örlög sín.
Fundarmenn risu úr sætum og
dynjandi lófatak ríkti í eina mínútu í
tjaldinu.
Gabriel gerir betur
Jafnaðarmaðurinn Sigmar Gabr-
iel, varakanslari og utanríkisráð-
herra Þýskalands, lét sitt ekki eftir
liggja. Hann sagði mánudaginn 29.
maí og átti við Trump: „Hver sem
flýtir fyrir loftslagsbreytingum með
minni umhverfisvernd, sem eykur
vopnasölu til átakasvæða og sem vill
ekki leysa trúarleg átök á stjórn-
málavettvangi vegur að friði í Evr-
ópu. Stöndum við Evrópumenn ekki
af festu gegn þessu mun farandfólki
fjölga enn í Evrópu. Þeir sem hafa
ekki hafnað þessari stefnu Banda-
ríkjastjórnar eru einnig meðsekir.“
Í aðalfréttatíma þýsku sjónvarps-
stöðvarinnar ZDF mánudaginn 29.
maí sagði Gabriel að Trump hefði
talað niður til viðmælenda sinna í
fyrstu utanlandsferðinni og stjakað
við einum forsætisráðherranna á
NATO-fundinum auk þess sem
hann fjarlægðist „vestrænar hug-
myndir“, þar á meðal alþjóðalög.
„Bandarískir starfsbræður átta
sig greinilega ekki á því að þegar
þeir hverfa á brott koma aðrir, til
dæmis Kínverjar. Þeir eru með allt
önnur viðhorf,“ sagði utanríkis-
ráðherrann. Vegna alls þessa yrðu
Evrópumenn að „standa saman og
styrkjast“ og verja lýðræði, frjáls-
lyndi og hreinskilni. Þjóðverjar
ættu einnig að leggja meira af
mörkum til að þjóðir eins og Frakk-
ar og Ítalir bættu efnahag sinn.
„Mestu skiptir að við hættum að
gera lítið úr eða tala niður til ann-
arra,“ sagði Gabriel.
Óvildarmenn Donalds Trump,
einkum í Bandaríkjunum, töldu orð
Merkel sýna að Bandaríkjaforseti
hefði kallað yfir sig andúð meðal
evrópskra ráðamanna. Hann gæti
ekki fagnað fyrstu utanlandsför
sinni sem forseti og sagt hana ár-
angursríka.
Þriðjudaginn 30. maí birtist
Trump á Twitter og kvartaði undan
því að Þjóðverjar seldu meira til
Bandaríkjanna en þeir keyptu af
Bandaríkjamönnum og borguðu
ekki nógu mikið til NATO og sam-
eiginlegra varna. Á fundi með ríkis-
oddvitum NATO-ríkjanna í síðustu
viku kvartaði Trump undan „risa-
vöxnum skuldum“ 23 af 28 banda-
lagsríkjum og þetta væri ekki
„sanngjarnt gagnvart almenningi
og skattgreiðendum í Bandaríkj-
unum“.
Opinber orðaskipti af þessu tagi
milli æðstu manna Þýskalands og
Bandaríkjanna eru einsdæmi. Á
þessari stundu veit enginn hver
áhrifin verða á samskipti þjóðanna.
Í fréttum af ferð Trumps til Brussel
var sagt að hann hefði sagt Þjóð-
verja „vonda, verulega vonda“
vegna jákvæðs viðskiptajöfnuðar
þeirra gagnvart Bandaríkjunum.
Ekki bara til heimabrúks
Flutti Angela Merkel ræðu sína
eingöngu til heimabrúks? Taldi hún
að utan Þýskalands hefðu menn
ekki áhuga á því sem hún segði í
bjórtjaldi í úthverfi München? Hafi
hún haldið það kom annað í ljós.
Sigmar Gabriel segir í raun að svo
virðist sem Trump telji sér fært að
láta annarra þjóða menn sitja og
standa eins og honum sýnist – hann
ýti þeim til hliðar sem séu í vegi
hans og tali niður til þeirra sem séu
honum ósammála. Hann virði ekki
hugsjónir Vesturlanda og hunsi al-
þjóðalög. Þetta eru þung orð og
ásakanir.
Telji þýskir stjórnmálamenn
nauðsynlegt að tala á þennan veg
um Trump og stjórn hans til að
njóta trausts þýskra kjósenda er
það áhyggjuefni, róttækt andsvar
við stefnu Trumps um Bandaríkin í
fyrsta sæti.
Ekki eru aðeins þingkosningar í
Þýskalandi á næstu mánuðum. Í
næstu viku ganga Bretar til kosn-
inga sem boðaðar voru af Theresu
May forsætisráðherra til að treysta
samningsstöðu hennar við útgöngu
Breta úr ESB. Þremur dögum síð-
ar, 11. júní, er fyrri umferð frönsku
þingkosninganna. Emmanuel Macr-
on, nýr Frakklandsforseti, vonar að
kjósendur skapi meirihluta að baki
stefnu sinni sem miðar að því að efla
samstarf við Þjóðverja til að endur-
nýja og styrkja Evrópusambandið.
Hvernig sem kosningarnar fara í
Bretlandi halda Bretar áfram ferð
sinni úr ESB. Við brottför Breta
hverfur andstaða innan sambands-
ins við að varnarsamstarf ESB-
ríkjanna eflist, til verði ESB-herafli.
Stofnun hans hefur lengi verið á
dagskrá Þjóðverja. Þá yrði franski
kjarnorkuheraflinn hluti ESB-
varna. Sérfræðingar benda á að
Þjóðverjar sætti sig raunar illa við
að eiga öryggi sitt undir kjarnorku-
vopnum Frakka, sem kunni að of-
metnast. Þjóðverjar kjósi frekar
kjarnorku-regnhlíf Bandaríkja-
manna.
Áhrifin á N-Atlantshafi
Uppnám í sambandi Evrópu-
manna og Bandaríkjamanna í ör-
yggis- og varnarmálum er ekki nýtt.
Ávallt hefur þó tekist að jafna
ágreining hafi hann risið. Takist
leiðtogum stóru þjóðanna sem hlut
eiga að máli ekki að finna sameigin-
lega niðurstöðu er hætta á að upp úr
rakni.
Raunverulegur fleygur á Norður-
Atlantshafi skapar óþekkta stöðu
frá lokum síðari heimsstyrjaldar-
innar. Landfræðilegir hagsmunir
Íslendinga falla að hagsmunum
Breta og Bandaríkjamanna, Ísland
yrði auk þess stólpi í brú ESB út á
hafið.
Eftir Björn
Bjarnason
» Flutti Angela
Merkel ræðu sína
eingöngu til heima-
brúks? Taldi hún ekki
áhuga á því sem hún
segði í bjórtjaldi í
úthverfi München?
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Merkel og Trump valda uppnámi
AFP
Bjórtjaldsfundur Angela Merkel Þýskalandskanslari flutti ræðu á bjór-
tjaldsfundi í úthverfi München í Bæjaralandi hinn 28. maí síðastliðinn.