Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 22

Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 ✝ Sævar MárGarðarsson fæddist í Keflavík 28. mars 1964. Hann lést 24. maí 2017 á Landspít- alanum við Hring- braut. Foreldrar hans voru hjónin Garðar Már Vilhjálmsson, f. 26. ágúst 1935, d. 15. ágúst 1976, og Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, f. 7. sept- ember 1939. Sævar var yngstur systkina sinna, þau eru; Magnús Marel, f. 18. janúar 1958, d. 21. ena, f. 27. febrúar 1991, eigin- maður hennar er Ágúst Svavar Hrólfsson, f. 11. desember 1985. Börn þeirra eru Hrafnar Snær, f. 27. mars 2012, og Hrólfur Jó- hann, f. 27. júní 2015. Ágúst á fyrir soninn Einar Margeir, f. 11. júlí 2005. Sævar Már ólst upp í Keflavík. Þau Guðríður bjuggu í Reykja- vík frá árinu 1987 til ársins 1995 en þá fluttu þau aftur til Kefla- víkur og hefur Sævar Már búið þar síðan. Sævar Már var húsa- smiður að mennt og starfaði lengi af sinni starfsævi við þá iðn. Hann starfaði í rúman ára- tug í Húsasmiðjunni í Reykja- nesbæ. Þegar hann lést hafði hann hafið störf hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Útför Sævars Más fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 2. júní 2017, klukkan 13. desember 2016, Júl- íana Ragna, f. 23. febrúar 1960 og Guðbjörn, f. 16. apr- íl 1962. 20. desember giftist Sævar Már Guðríði Walder- haug, f. 8. mars 1964. Þau slitu sam- vistir snemma árs 2016. Börn þeirra eru 1) Jóhann, f. 18. maí 1987, sambýliskona hans er Sigríður Tinna Árnadóttir, f. 24. maí 1987. Sonur þeirra er Sævar Freyr, f. 8. janúar 2015. 2) Hel- Ég var svo heppin að eiga pabba eins og þeir gerðust bestir. Það eru forréttindi að pabbi minn hafi einnig verið besti vinur minn. Ég gat alltaf treyst á hann til að hlusta á mig og hjálpa mér. Ég gat alltaf treyst á faðmlög og kossa þegar ég þurfti á þeim að halda. Jafnframt stóð ég líka allt- af við bakið á honum og hann treysti alltaf á að ég væri til stað- ar þegar hann þurfti að létta ein- hverju af sér eða láta hjálpa sér með eitthvað sem hann var óör- uggur með. Ég er svo þakklát fyrir að hann hafi leitað til mín því hann stóð alltaf með mér eins og klettur. Ég fann alltaf fyrir því hversu heitt hann elskaði mig og hann var alltaf ófeiminn við að segja mér hversu stoltur hann væri af mér. Þau orð munu ávallt sitja föst í minningunni. Pabbi átti ótrúlega gott samband við eldri son minn Hrafnar þar sem ég var dugleg að koma reglulega til Keflavíkur þegar hann fæddist og þeir tveir smullu saman. Hjarta mitt er stútfullt af minn- ingum um þá. Ein ljúfasta minn- ing mín af þeim tveimur er þar sem ég horfi á þá hlæja og leika sér í heita pottinum á Faxabraut- inni. Þegar þeir voru báðir komn- ir með rúsínuputta og tásur og það var alltaf svo fyndið og gam- an. Pabbi gat endalaust leikið við Hrafnar og ég sá hversu dýr- mætur hann var fyrir honum. Hrafnar horfði svo upp til afa síns, afi vissi allt og gat allt. Hrafnar fékk að taka þátt í öllu sem pabbi dundaði sér við, til dæmis að slá blettinn, setja álegg á pizzu, baka skonsur, þrífa mót- orhjólið, sitja hjá honum í tölvu- leik eða að smíða eitthvað sniðugt í bílskúrnum. Það er ólýsanlega erfitt að reyna að útskýra fyrir syni mínum að afi sé nú orðinn að engli sem fylgist með honum frá himninum en ég mun gera allt sem ég get til að halda minning- unni um afa lifandi með því að tala um hann og sýna honum allar myndirnar sem eru til af þeim saman að brasa eitthvað sniðugt. Pabbi var oftast hress og kát- ur. Tók hlutunum ekki of alvar- lega og gat snúið nánast öllu upp í grín. Þegar ég hugsa um pabba heyri ég innilega hláturinn hans, brandarana sem hann reitti af sér og innilegu faðmlögin sem ég fékk reglulega. Pabbi minn var ótrúlega duglegur að vinna og átti erfitt með að sitja og gera ekki neitt. Ef hann var ekki í vinnunni, að viðhalda einhverju í húsinu, þrífandi bílinn eða mót- orhjólið var hann úti í bílskúr að búa til fallega hluti. Hann bjó til svo fallega skrautmuni sem hon- um fannst svo gaman að gefa fólki. Pabbi var týpan sem þurfti alltaf að vera með einhver verk- efni til að dunda sér við og var alltaf tilbúinn til að hjálpa öllum sem þurftu á honum að halda. Mér finnst svo ótrúlega erfitt og ósanngjarnt að þurfa að kveðja pabba svona snemma á lífsleið- inni. Það sem hefði verið gott að hafa hann lengur hjá okkur eins og allir bjuggust við að mundi gerast. Þakklæti og kærleikur er það sem situr eftir í huga mínum og hjarta og ég er viss um að pabbi verndi mig og fylgi mér hvert sem ég fer. Helena. Ég get ekki lýst því með orð- um hversu erfitt er að sætta sig við að pabbi sé farinn frá okkur. Ekki hvarflaði að mér að síðasta spjallið okkar ætti eftir að vera fyrir utan Landspítalann. Ég er þakklátur fyrir það að hafa fengið að kveðja hann með kossi og faðmlagi. Pabbi minn var góður maður og var vel liðinn. Allir töluðu um hversu hress og skemmtilegur hann væri. Hann var alltaf hann sjálfur og var aldrei að reyna vera einhver annar en hann var. Hann var mjög montinn af börn- unum sínum og talaði oft um hversu stoltur hann væri af okk- ur systkinunum. Pabbi var þakk- látur fyrir lífið. Það var ómetanlegt að hafa hann til staðar þegar við Tinna keyptum nýja húsið okkar. Það fyrsta sem kom í hugann þegar eitthvað þurfti að gera eða lag- færa var „pabbi reddar þessu“. Hann hafði svo gaman af því að geta hjálpað til og hafði hann einnig endalausar hugmyndir um hvað væri hægt að gera og græja. Hann var mikill dundari og þótti fátt skemmtilegra en að vera úti í bílskúr að gera alls kon- ar hluti. Það eru munir eftir hann á næstum öllum heimilum fjöl- skyldu okkar og vina. Lestin sem hann smíðaði fyrir barnabörnin sín er algjört listaverk. Hann lagði alltaf svo mikinn metnað í það sem hann tók að sér og var hann ávallt mjög stoltur af því sem hann gerði. Áfallið við fréttirnar var gífur- legt enda var þetta svo óvænt. Þetta átti ekki að fara svona. Pabba verður sárt saknað en fal- legar og góðar minningar munu koma í stað sársaukans. Nú hvílir hann í friði í góðum höndum hjá bróður sínum og föður. Ég elska þig, pabbi minn, þinn Jóhann. 24. maí. Dagur sem átti að vera svo góður endaði á að vera sá allra versti. Sævar fór í aðgerð sem endaði ekki á þann veg sem við gerðum ráð fyrir. Hann kom til okkar Jóa kvöld- inu áður með afmælisgjöf handa okkur og fallegan blómvönd með rauðum rósum. Ekki óraði mig fyrir því að þetta yrði síðasta sinn sem ég sæi hann á lífi. Ég hefði knúsað hann aðeins fastar og sagt honum hvað mér þætti vænt um hann. Hvernig getur lífið verið svona ósanngjarnt? Við getum þó huggað okkur við það að hann hafi ekki vitað hversu veikur hann var í raun og veru. Ég kynntist Sævari fyrir 10 ár- um þegar við Jói fórum að vera saman. Hann var hress, skemmti- legur og með mjög smitandi hlát- ur. Sævar var duglegur og fannst fátt skemmtilegra en að dunda sér inni í bílskúr við smíðar. Þau voru ófá skiptin sem hann kom og aðstoðaði okkur Jóa eftir að við keyptum húsið okkar. „Listi fyrir pabba“ hangir á ísskápnum en Jói mun sjá um að klára að haka í þann lista. Við verðum dugleg að segja nafna þínum sögur af þér og halda minningu þinni á lofti. Öll við færum, elsku vinur, ástar þökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta. guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín verður sárt saknað, elsku Sævar. Takk fyrir allt. Þín tengdadóttir, Tinna. Elsku Sævar minn. Ýmislegt og misgott hef ég brallað á lífs- leiðinni, en að setjast niður og skrifa þessi orð til þín er það erf- iðasta sem ég hef gert. Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar ég hitti þig fyrst fyrir sjö árum síðan. Þú tókst á móti mér ná- kvæmlega eins og þú gerðir alla tíð eftir það, með opnum örmum og bauðst mig velkominn með þinni einstöku hlýju og góð- mennsku sem mér hefur fundist einkenna þig allan þann tíma sem ég hef þekkt þig. „Sæll vinur minn“ og „þetta verður ekkert mál“ eru orð sem ég heyrði þig í ófá skiptin segja en það fyrsta sem kemur upp í kollinn á mér er smitandi hláturinn sem einkenndi þig þegar þér virkilega fannst eitthvað fyndið. Ósérhlífni og dugnaður kemur einnig sterkt upp í hugann þegar ég hugsa um þig og alltaf var hægt að leita til þín með einu símtali þegar upp kom vandamál í heimilisviðhald- inu og var það oftast afgreitt sím- leiðis. En að smíða var eitthvað sem ég þekkti alls ekki og hafði hvorki áhuga á né trú á sjálfum mér með áður en ég kynntist þér en í dag er þetta hlutur sem ég elska að gera og öll mín kunnátta í smíðinni er þér að þakka og ég mun búa að því um ókomna tíð. Þú hefur reynst mér svo vel, elsku tengdapabbi, og varst mér svo dýrmætur. Ég er óendanlega þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og fyrir tímann okkar saman, þó að hann hafi verið allt of stutt- ur. Ég vona svo innilega að þú sért á góðum stað núna. Vertu sæll elsku vinur minn. Ágúst Svavar. „Heyrðu Valsi, heldurðu að treflinum hafi ekki verið stolið af mér á leikvanginum! En þú getur fengið minn, þó svo að sá sem ég keypti handa þér hafi verið miklu flottari.“ Sævar frændi hafði fyrir skömmu farið á fótboltaleik í Leeds á Englandi og lofað að kaupa fyrir mig minjagrip, enda vorum við báðir einlægir aðdá- endur þessa fornfræga félags. Við skeggræddum lífið og tilveruna á ganginum í flugstöðinni, með við- eigandi mjaðmaskáskotum að hætti Hafnamanna. Við vorum yngstir fimmtán frændsystkina en ég eilítið eldri, svo munaði tæpum fjórum mán- uðum og árgangi að auki. Frænd- skapurinn leiddi okkur saman á unga aldri. Eitt sinn fórum við á reiðhjólunum suður í Hafnir, til ömmu og afa á Brautarhól. Þar beið okkar faðmlag og flatkökur að hætti húsfreyjunnar. Síðar meir nýttum við hvert tækifæri til þess að rifja upp taktana og svip- brigðin hennar ömmu. Alla jafnan var það þegar við hittumst ásamt fjölskyldum okkar og frændfólki í sveitasælunni hjá Busa og Önnu. Að tjalda var skemmtiatriði út af fyrir sig og ógleymanlegir frasar sem urðu til. Sævar var og liðtækur í veiði- félaginu Hafnamönnum, sem við frændurnir stofnuðum fyrir um aldarfjórðungi. Ófáar eru sögurn- ar af honum sem hægt er að tengja við harmakvein veiðifélag- anna, þegar bílskrjóðurinn sat ýmist fastur í vegslóða eða gír- stöngin var í lausu lofti í miðjum Norðurárdalnum. Svo ekki sé tal- að um að verða sjóveikur við ár- bakkann. En blíðlega brosið og fasið og þessi undurfögru stóru augu og svipbrigðin sem fylgdu, urðu oftar en ekki til þess að ar- mæða líðandi stundar varð að að- hlátursefni í veiðihúsinu síðar um kvöldið. Þeir bræður kunnu svo sannarlega að kitla hláturtauga- rnar í okkur hinum, með óviðjafn- anlegum og smitandi hláturrok- um, svo í tók í belginn. Efniviðurinn var ótæmandi. Það voru fleiri áhugamál sem áttu hug okkar Sævars í seinni tíð. Mótorfákarnir áttu sinn sess í tilverunni og fátt var yndislegra en að geysast um þjóðvegina á björtum sumardögum. Ég hélt mig við nærumhverfið en hann þeystist landshorna á milli. Það kom mér samt skemmtilega á óvart þegar hann sneri sér að golfinu og þar hefði ég viljað get- að gefið aðeins af mér á móti. Forgjöfin hefði sigið. Velvild og greiðvikni voru samt aðalsmerki Sævars. Mér fannst ljúft að leita til hans með verkefni og fá úrlausn mála undireins. Hann kunni sitt fag og aðstoðaði mig og mína undantekningarlaust af einlægni og lipurð. Börnin hans bera það með sér að vel hefur ver- ið að þeim hlúð og ljóst að eig- inleikar hafa erfst. Einstaklega vel gerðir einstaklingar sem nú sjá á bak ljúfum föður og vafalítið munu barnabörnin sjá afa sinn sem leiftrandi ljós á himnasæng almættisins. Fjölskyldunni allri sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Valur Ketilsson. Það eru bara nokkrir dagar síðan ég fékk þær mjög svo sorg- legu fréttir að sjúkdómurinn sem Sævar (Mári), mágur minn til 30 ára, var búinn að heyja hetjulega baráttu við í nokkra áratugi, væri að ágerast. Alltaf gerði ég mér vonir um að Sævar hefði fengið fullan bata, en sú varð ekki raun- in. Sjúkdómurinn hafði sigur að lokum. Aldrei heyrði ég Sævar kvarta í veikindum sínum, þvert á móti sýndi hann mikið æðruleysi og hugrekki. Sævar var í alla staði alveg einstakur maður, ákaflega góður vinur, einstaklega glaðlyndur, örlátur og hjálpsam- ur. Hann taldi þau ekki eftir sér ófá handtökin þegar hann hjálp- aði mér við eitt og annað. Skipti þá ekki máli hvort það var við að mála íbúðina mína eða pússa upp veröndina hjá mér uppi í sum- arbústað. Ófá voru þau skiptin sem hann passaði bílinn minn heima hjá sér og Guðríði systur í Keflavík meðan ég dvaldi erlend- is, og alltaf sá hann um að koma með bílinn upp í Leifsstöð þar sem hann beið mín á bílastæðinu við heimkomuna. Fyrir þessi við- vik og ótal önnur er ég ákaflega þakklátur. Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann átt sam- tal við Sævar án þess að hafa ekki brosað a.m.k. einu sinni meðan á samtalinu stóð, og oftar en ekki hlegið líka. Það var mjög grunnt á hlátrinum hjá Sævari og gat maður ekki annað en hlegið með honum. Þessi eiginleiki er því miður fátíður. Alltaf leið mér vel í návist Sævars, hvort sem var í heimahúsi, í vinnu, útilegum eða í veiðitúrum. Sævar var nýlega byrjaður að leika golf og var ég búinn að hlakka mikið til að spila við hann hring. Það stóð til allt sl. sumar en ekkert varð úr því. Ekki hefði mig órað fyrir því þá að við myndum ekki spila saman þetta sumar í staðinn. Sævar var mjög handlaginn og vandvirkur. Hann átti rennibekk og smíðaði m.a. ákaflega fallega penna úr harðviði. Gaf hann mér einn slík- an, mikinn kostagrip. Hann smíð- aði einnig fleiri hluti úr tré í bíl- skúrnum hjá sér. Allt ákaflega fallega gripi. Elsku Elsa. Það eru ótrúlegar raunir sem lagðar eru á þínar herðar. Aðeins er u.þ.b. hálft ár síðan þú misstir Magga son þinn og núna er Sævar líka fallinn frá. Báðir voru þeir á besta aldri þegar dauðinn knúði dyra og gerir það sorgina enn sárari. Elsku frændi og frænka, Jóhann og Helena, það er ákaf- lega sorglegt að missa föður sinn svona ungan. Ég veit að þið og börnin ykkar eigið bara góðar minningar um pabba ykkar og afa. Ykkur öllum, ásamt Lúllu og Bjössa, eftirlifandi systkinum Sævars, Guðríði systur, sem var gift Sævari í 30 ár, og öðrum ætt- ingjum og vinum Sævars, votta ég mína innilegustu samúð. Hvíl í friði, Mári minn, og takk fyrir allt. Guðni Walderhaug. Sævar Már Garðarsson, eða Mári eins og við kölluðum hann oftast, er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Hann var samferða- maður minn, og okkar fjölskyld- unnar, í rúma þrjá áratugi og mig langar til að minnast hans í örfá- um orðum og þakka honum sam- fylgdina. Hann var nátengdur fjölskyldunni og þá sérstaklega foreldrum mínum, lærði smíðar hjá pabba, tengdaföður sínum, en hann var giftur Guðríði systur minni þar til fyrir rúmu ári síðan en þá skildi leiðir eins og stund- um er óhjákvæmilegt. Sævar varð ungur fyrir þeirri erfiðu reynslu að greinast með krabbamein og þurfa að heyja nokkrar orrustur á þeim velli og á endanum varð hann undir í bar- áttunni sem hann háði af æðru- leysi. Hann var harðduglegur maður og ósérhlífinn, vinsæll hjá vinnu- veitendum sínum og gat sér gott orð hvar sem hann starfaði. Við áttum margar góðar stundir saman fjölskyldurnar í gegnum árin og skemmst er að minnast ferðalags okkar til Víet- nam um jól og áramót í hitteð- fyrra en það var eftirminnileg ferð og mun varðveitast í minn- ingunni um ókomna tíð. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Ég votta börnum hans, barna- börnum, móður og ástvinum öll- um nær og fjær innilega samúð og bið þeim blessunar um ókomin ár. Elsku Sævar, takk fyrir allt. Eygló. Sævar Már Garðarsson  Fleiri minningargreinar um Sævar Má Garðarsson bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ÓSKARSSON skipstjóri, Heiðarhrauni 33B, Grindavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi fimmtudaginn 25. maí. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 3. júní klukkan 13. Hrönn Águstsdóttir Ólafía Kristín Þorsteinsd. Jóhann B. Elíasson Salbjörg Júlía Þorsteinsd. Magnús Már Jakobsson Brynjar Davíð Þorsteinsson Natalie Anne Pearce barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR, Kirkjubæjarbraut 2, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 3. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbavörn í Vestmannaeyjum, s. 867-2218 /481-2573. Guðrún Sveinbjörnsdóttir Gunnlaugur Claessen Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir Sigurður V. Vignisson Egill Sveinbjörnsson Guðný Þórisdóttir Ásdís I. Sveinbjörnsdóttir Kristján Þ. Jakobsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG ARNGRÍMSDÓTTIR, Holtateigi 5, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð miðviku- daginn 24. maí verður jarðsungin frá Höfðakapellu á Akureyri þriðjudaginn 6. júní klukkan 13.30. Gunnar Kristinsson Gígja Gunnarsdóttir Ólafur Halldórsson Úlfar Gunnarsson Vilborg Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.