Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 23

Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 ✝ Ísleifur Jóns-son vélaverk- fræðingur fæddist að Einlandi í Grindavík 22. maí 1927. Hann lést að Hrafnistu í Boða- þingi 23. maí 2017. Foreldrar hans voru Jón Þórarins- son, f. 5.3. 1864, d. 12.7. 1939, útvegs- bóndi á Einlandi í Grindavík, og Katrín Ísleifs- dóttir, f. 17.2. 1894, d. 9.3. 1972, húsmóðir. Ísleifur ólst upp í Þor- kötlustaðahverfinu í Grindavík ásamt systrum sínum Guðnýju Erlu, f. 1929 og Valgerði, f. 1935, d. 2010. Auk systkinanna átti faðir þeirra sex börn með fyrri eiginkonu sinni, Guðbjörgu Jónsdóttur, d. 1920: Margrét, f. 1891, d. 1967, Sigríður, f. 1895, d. 1957, Guðjón, f. 1896, d. 1980, Guðmundur, f. 1902, d. 1979, Jón, f. 1906, d. 1958, Guðbjörg, f. 1911, d. 1996. Ísleifur kvæntist 22.8. 1953 Ingigerði Högnadóttur, f. 6.6. 1922, d. 15.12. 1969, leir- og myndlistarkonu. Hún var dóttir Högna Guðnasonar, bónda í Lax- árdal í Gnúpverjahreppi, og Ólafar Jónsdóttur húsfreyju. Börn Ísleifs og Ingigerðar eru: Katrín, f. 1956, tölvunarfr. og ráðgjafi, maki Steve Everett, jarðfr.; Jón Högni, f. 1958, vél- virki og verslunarmaður, maki Sonja Vilhjálmsdóttir; Einar Bragi, f. 1961, vélfr.; Bergsteinn Reynir, f. 1964, öryggisráðgjafi, maki Arnhildur Guðmundsdóttir lögfr. Árið 1973 kvæntist Ísleifur seinni eiginkonu sinni, Birnu Kristjönu Bjarnadóttur, f. 27.7. 1935, d. 2004, húsmóður. Dóttir Birnu af fyrra hjónabandi og fósturdóttir Ísleifs er Hanna Margrét Otterstedt, f. 1955, tækniteiknari, maki Kristján Sveinsson trésmiður. Ísleifur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1949, fyrrihlutaprófi í verkfræði við Háskóla Íslands 1952 og M.Sc.-prófi í vélaverkfræði í Kaupmannahöfn 1955. Ísleifur var verkfræðingur hjá Vatns- og hitaveitu Reykja- víkur 1955, hjá Landssmiðjunni í Reykjavík 1955-56, stofnaði ásamt öðr- um, verkfræðistof- una Traust hf. 1956 og var verkfræðingur hjá Vermi sf. í Reykja- vík 1962-63. Ísleifur helgaði mestan hluta starfsævi sinnar jarðborunum víða um heim. Hann var verkfræðingur hjá jarðhitadeild Orkustofnunar 1956-61, deildarverkfræðingur hjá Jarðborunum ríkisins 1961- 69 og forstöðumaður Jarðbor- ana ríkisins 1964-88. Ísleifur vann mikið frumkvöðlastarf við borun eftir jarðgufu og heitu vatni víða um land til hitaveitu- væðingar landsins. Bortækni þess tíma var þróuð til olíu- borana og vann Ísleifur við að laga bortæknina að borun á há- hitasvæðum. Hann tók virkan þátt í að flytja íslenska þekkingu í gufuborunum til útlanda þegar hann tók að sér verkefni í El Salvador á vegum Sameinuðu þjóðanna 1968. Þar þróaði hann nýja tækni t.a. vekja óvirkar há- hitaborholur og fá þær t.a. gjósa, en sú tækni er notuð um allan heim fram til þessa dags. Ísleifur stjórnaði þá borun á tveimur fyrstu gufuholum í M- Ameríku. Hann skipulagði jarð- hitarannsóknir á vegum SÞ í Tyrklandi 1970, framkvæmda- stj. á vegum SÞ við jarðhitarann- sóknir í Kenía 1974-76 þ.s. hann stjórnaði borunum og mælingum á gufuholum fyrir fyrstu jarð- gufuvirkjun Afríku, vann fyrir SÞ í Hondúras 1979 og stjórnaði borunum í Sómalíu 1982-83. Þá var hann verkefnisstj. fyrir þró- unaráætlun SÞ (UNDP) og Al- þjóðabankann í jarðhitarann- sóknum og borunum í Djíbútí í NA-Afríku 1984-89 og hafði um- sjón með borunum á Asoreyjum 1993. Ísleifur tók virkan þátt í stofnun Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna 1978. Útför Ísleifs fer fram í Frí- kirkjunni Reykjavík í dag, 2. júní 2017, klukkan 13. Ísleifur Jónsson gengur er eins og tíminn skreppi saman þó að mörg ár hafi liðið án þess að við hittumst mikið. Hann pabbi hafði yndi af tímanum sem hann gat dvalið á Spáni og sér- staklega ef systur hans voru nærri. Ferðalög og búseta erlend- is eru stór hluti af lífshlaupi hans og árin okkar í Kenía fyrir löngu eru ógleymanleg. Hann skilur eft- ir sig mikið myndasafn sem við eigum áreiðanlega eftir að grúska í á komandi árum og verður gam- an að vita hvað leynist þar. En það sem stendur upp úr í samvistum okkar í þessari jarðvist er sú staðreynd að ef maður vill verða heill þarf að læra að þekkja og sættast við foreldra sína, að elska foreldra sína er líklega sú stærsta gjöf sem hægt er að gefa sjálfum sér. Því segi ég kæri vinur, við kveðjumst í bili en svo sjáumst við aftur. Þinn sonur, Bergsteinn. Hvernig kveður maður vin? Það er lítið um svör til að byrja með. Ég hef þekkt hann alla ævi og lengi vel var hann bara pabbi. Pabbi sem var alltaf að stússast eitthvað, mjög skemmtilegt í kringum hann og alltaf að segja sögur, og þar helst af sjálfum sér. Ég var ekki alltaf sáttur við ákvarðanir hans í lífinu og margar hverjar höfðu mikil áhrif á mig og mótuðu allt fram til unglingsára. En þannig er það með vini, þeir hafa áhrif á mann og lifa sínu lífi. Það sem er ljóslifandi í minning- unni er kærleikurinn sem hefur alltaf verið á milli okkar sama hvað á gekk. Ég hef stundum grínast með það að ég viti að Guð sé til því ég bað þess fyrir löngu að ég fengi að umgangast hann í einhver ár áður en hann félli frá. Svo æxluðust tímar á þann hátt að undanfarin 13 ár höfum við átt ótrúlega marg- ar ánægjulegar stundir saman. Þannig er vinátta, sama hvað á ✝ Margrét Eyj-ólfsdóttir fæddist í Reykjavík 21. mars 1924. Hún lést 17. maí 2017. Hún var dóttir hjónanna Kristínar Árnadóttur, frá Miðdalskoti í Laug- ardal, f. 3. nóv- ember 1899, d. 16. júní 1974, og Eyj- ólfs Brynjólfssonar, frá Miðhúsum í Biskupstungum, f. 25. júlí 1891, d. 5. september 1973. Þau bjuggu á Smyrilsvegi 28, Reykjavík. Margrét var fjórða í röð tíu systkina, þau eru: 1) Brynjólfur, f. 1919, d. 2006. 2) María, f. 1920, d. 1991. 3) Ásdís, f. 1921, d. 2011. 5) Guð- rún, f. 1925. 6) Ingvar, f. 1926, d. 1927. 7) Ingunn, f. 1928. 8) Tryggvi, f. 1930, d. 2010. 9) Har- aldur, f. 1931, d. 2016. 10) Matt- hías, f. 1934. Margrét giftist 3. nóvember f. 2012. c) Hrafnhildur Vala, f. 1977. Fyrri maki Ámundi Ámundason, f. 1975, barn Grím- ur Arnar, f. 2003. Maki Halldór Gunnlaugsson, f. 1976, börn þeirra, Andri Hrafn, f. 2015 og Kristín Eva, f. 2016 . 2) Hjördís, f. 1951, d. 2012, maki Kristján Ágústsson, f. 1951, börn þeirra: a) Stefán Örn, f.1978, maki Jóna Karen Sverrisdóttir, f. 1978. Börn þeirra: Sölvi, f. 2007, Styrmir, f. 2010 og Hjördís, f. 2014. b) Ragnhildur, f. 1981, maki Páll Ragnar Pálsson , f. 1980. Börn þeirra: Baldur, f. 2013 og Hulda, f. 2016. 3) Gyða, f. 1956, maki Guðmundur Inga- son, f. 1954, börn þeirra: a) Ingi Hrafn, f. 1982, maki Matthildur Ívarsdóttir, f. 1985, börn þeirra Guðmundur Árni, f. 2009 og Jón Ívar, f. 2010. b) Rannveig Hild- ur, f. 1990, c) Halldór Arnar, f. 1992. Ásamt húsmóðurstörfum vann Margét í mörg ár í versl- uninni Hamborg. Hún var virk í félagsstarfi eldri borgara og söng um tíma með Gerðubergs- kórnum. Útför Margrétar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 2. júní 2017, klukkan 11. 1945 Jóni Halldórs- syni, f. 7. október 1916, d. 10. júlí 1999. Foreldrar hans voru Halldór Jónsson, f. 4. mars 1885, d. 1. janúar 1950 og Guðrún Jónasdóttir, f. 9. júlí 1890, d. 7. febr- úar 1965. Dætur Margrétar og Jóns eru: 1) Kristín, f. 17. febrúar 1948, maki Grímur Valdimarsson, f. 20. mars 1949. Börn þeirra eru: a) Margrét, f. 1971, börn hennar og Harðar G. Kristinssonar, f. 1972 (skilin): Unnur María, f. 1993, barn hennar og Ingvars Ásbjörns- sonar, f. 1991, Almar Ari , f. 2015, Hilmar Þór, f. 1998 og Steinar Þór, f. 2002. b) Jón Þór, f. 1975, maki Sigríður Helga Stefánsdóttir, f. 1977, börn þeirra: Soffía Kristín, f. 2004, Birgir Þór, f. 2007, Eva Hrönn, Sagt er að hjónasvipur endur- spegli traust og vináttu á milli þeirra sem átt hafa langa og far- sæla samleið. Þannig var um hana Margréti tengdamóður mína og Jón eiginmann hennar sem lést fyrir 18 árum. Þau gengu æviveg- inn saman í takt þannig að eftir var tekið. Og nú þegar hún er einnig fallin frá kemur upp mynd- in af þeim saman, hjónasvipurinn, hlýjan og traustið sem ríkti jafnan á milli þeirra og þessir þræðir sem eru spunnir úr umburðarlyndi, fórnfýsi og velvilja. Fátækleg orð á blaði ná ekki að skilgreina þetta samband þeirra Margrétar og Jóns fremur en tilraunir manna í gegnum tíðina til að skilgreina ástina sem kemur engum að óvör- um þegar hún vitjar. Það var ekki lítið veganesti fyrir ungan mann á höttunum eftir einni af dætrum þeirra að fá að fylgjast með lífs- dansi þeirra Jóns og Margrétar úr nálægð. Allt sem þau hjón tóku sér fyrir hendur var gert af heilum hug enda heimili þeirra einstakt að myndarbrag og smekkvísi jafnt utan sem innan. Þau voru einnig langt á undan tímanum hvað varð- ar verkaskiptingu á heimilinu því þau gengu saman til allra verka þó að oft væri hún verkstjórinn. Aldrei mátti kasta til höndunum, hvort heldur var garður eða hús enda héldu þau Teigagerði 5 af miklum myndarskap. Það var oft sagt um frú Margréti að hún gæti boðið nöfnu sinni frá Amalíuborg í heimsókn hvenær sem væri, slík- ur gestur myndi finna sig vel í hí- býlum þeirra hjóna. Eftir að hún missti Jón sinn og hætti að vinna utan heimilisins komu skipulags- hæfileikar og útsjónarsemi Mar- grétar vel í ljós. Hún hélt hús og heimili áfram af miklum myndar- brag þar til heilsan fór að gefa sig og hún varð að leggjast inn á hjúkrunarheimili. Verst þótti henni, komin nálægt níræðu, þeg- ar læknar bönnuðu henni, og nú alfarið, að henda sér á hnén til að reyta arfa úr gróðurbeðum. Þau byggðu húsið sitt í hverf- inu sem í gríni var kallað Casa- blanka: Allir blankir og allt byggt úr kassafjölum. „Hvernig eigum við að geta byggt Margrét mín?“ átti Jón að hafa sagt við ástina sína. „Láttu mig hafa kaupið þitt og þá skal ég sjá um fjármálin.“ Eftir að vinnudegi lauk hjólaði járnsmiðurinn svo vestur af Grímsstaðaholti upp í smáíbúða- hverfi og byggði hús. Tók auka- vinnu þar að auki, fór í skiptivinnu og eftir nokkur ár var hægt að flytja inn. Það var merkilegt hve vel efnum búin Jón og Margrét voru. Alltaf rausnarleg, aldrei sparað í mat, alltaf farið í löng sumarleyfi. Fyrr á árum í bíllaus sumarfí með dæturnar þrjár í sér- saumuðu tjaldi þar sem eldað var á olíuprímus. Og þegar Teiga- gerðisdætur minntust þessara þriggja vikna tjaldfría brostu þær allan hringinn. Þetta var svo gam- an. Að leiðarlokum þakka ég Mar- gréti og þeim heiðurshjónum ein- staklega ánægjulega samfylgd, tryggð og hjálpsemi í gegnum tíð- ina. Það er rétt sem Jón minnti okkur oft á að það er ekkert jafn- mikilvægt í lífinu og að eiga gott samferðafólk. Hvíldu í friði. Grímur Þ. Valdimarsson. Fyrst þegar ég kynntist tengdamóður minni, Margréti Eyjólfsdóttur, fyrir um 43 árum þá fannst mér hún vera eins og bjartur orkusteinn, sem geislaði af orku, væntumþykju og um- hyggju fyrir öllum í kringum hana. Þessi orkubolti var gjarnan í eldhúsinu í Teigagerði 5 og miðl- aði þaðan meðlæti og mat til fjöl- skyldumeðlima og annarra gesta. Góður var kakóbollinn hennar, gerður úr ekta súkkulaði. Ekki voru kransakökurnar síðri. Hún hafði farið í húsmæðra- skóla og það sást á vinnubrögðum hennar við matreiðslu og heimilis- hald. Hún hafði mikið verkvit og var góð í því sem hún gerði, að halda heimilinu í góðu standi, hús- inu og garðinum. Þegar orkan minnkaði kom í ljós gimsteinninn sem hún var gerð úr. Sómakær, stefnuföst, vönduð, ljóðelsk, söng- elsk og dugleg kona, sem stóð vel á bak við manninn sinn, hann Jón, og stelpurnar sínar þrjár; Krist- ínu, Hjördísi og Gyðu, tengdasyn- ina, börn þeirra og barnabörn. Allir vildu fara til ömmu í Teiga- gerði. Þannig var hún einstök kona og ættmóðir. Hún hafði tíma og þolinmæði og hafði vakandi áhuga fyrir sínum nánustu. Jón Halldórsson var mikill sundmaður og hann náði að smita Möggu af sundlaugarástríðunni. Þau fóru gangandi nær daglega í Sundlaugarnar í Laugardal á ákveðnu tímabili. Eftir að Jón hvarf af braut, hélt Magga því áfram meðan heilsan leyfði. Þetta hefur vafalaust gert henni gott. Sé til eitthvert framhaldslíf eft- ir þetta líf, þá er ég viss um að hún er komin til móts við Jón og Hjör- dísi og eru þar fagnaðarfundir. Sambandi Möggu og Jóns má best lýsa með vísubroti úr kvæði Jón- asar Hallgrímssonar, Ferðalok : Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Mér telst til að afkomendur hennar séu í dag 27. Börn og barnabörnin erfa skapfestu henn- ar og gott skap og er það gott veganesti fyrir lífið. 93 æviár er ekki slæmt þegar á allt er litið. Flest árin voru góð, þótt síðustu tvö árin hafi verið erfið, og á starfsfólk Grundar bestu þakkir skildar fyrir góða umönnun síð- ustu misseri. Margrét var fædd árið 1924 í Reykjavík á Grímsstaðaholtinu. Í æsku leiddi hún kýrnar þrjár frá Fálkagötunni, nú Smyrilsvegi 28, á beitarhagana í mýrina, þar sem nú er Norræna húsið, og engjar voru þar sem nú er aðalbygging Háskóla Íslands. Þannig hefur Margrét upplifað miklar breyt- ingar í Reykjavík á sinni ævi. Það var talið mikið kraftaverk árið 1929, þegar faðir hennar, Eyjólf- ur Júlíus Brynjólfsson, flutti hús- ið sitt, einlyft timburhús með risi, á handvagni, spýtu fyrir spýtu, frá Túngötunni. Svipað krafta- verk átti sér stað um 1955, þegar Jón og Magga fóru að byggja í smáíbúðahverfinu, í Teigargerði 5, og steyptu þar hús, sem þótti langt upp í sveit. En kraftaverkið tókst og varð þeirra brautar- steinn og óðal. Af tíu systkinum á Smyrilsvegi eru nú aðeins þrjú eftir; Dúna, Inga og Matti. Ég samhryggist þeim við systurmissinn. Einnig öllum hinum, sem nú sakna góðr- ar konu, sem gerði alltaf allt sitt besta til að aðrir gætu haft það gott. Ég þakka henni jafnframt hlýhug og góðvild í minn garð, minna barna og barnabarna. Nú er sólarlag í lífi Margrétar Eyjólfsdóttur, og sól hennar sest. Eftir lifir björt mynd af góðri konu, í hugum okkar allra sem kynntust henni. Guðmundur Ingason. Núna þegar við kveðjum ömmu Möggu rifjast upp minningar sem hafa framkallað hlýju, bros og hlátur hjá okkur systkinunum. Minningarnar eru flestar úr Teigagerðinu þar sem eldhúsið var hjarta heimilisins. Þar var alltaf sælkeramatur á borðum, og ávallt nóg af öllu enda fór enginn svangur þaðan. Amma hafði ekki mikla trú á unnum matvörum, heldur fór í bakarí til að kaupa sérbakað brauð og í Náttúru- lækningabúðina til að kaupa hveitikím út á súrmjólkina. Hún kynnti okkur fyrir ýmsum sér- kennilegum matvælum, og mun- um við glöggt eftir því þegar hún gaf okkur kiwi í fyrsta sinn. Þessi súri ávöxtur var þá nýkominn til landsins, og fleiri nýstárlegir ávextir og grænmeti fylgdu, eins og granatepli og avókadó. Heilsan var alltaf í fyrirrúmi hjá ömmu og afa, þau fóru í sund daglega á meðan þau gátu og voru alltaf tilbúin til að taka okkur barna- börnin með. Laugardalslaugin var stór hluti af lífi ömmu og afa, þar sem þau kenndu okkur barna- börnunum öllum að synda. Amma var drottning í litlum líkama, enda grínaðist hún með það að hún væri nú bara jafnlöng og eitt málband. Amma fór aldrei út úr húsi ótilhöfð og kenndi okk- ur stúlkunum í fjölskyldunni slíkt hið sama. Amma og afi áttu fallegt og hlýlegt heimili og þreyttist amma seint á að breyta og bæta, kaupa ný húsgögn og gera fínt, enda fagurkeri fram í fingurgóma. Þolinmæði ömmu gagnvart okkur barnabörnunum var einstök, hún var alltaf tilbúin til að hlusta á okkur, tala við okkur, spila við okkur og sinna okkur á allan þann hátt sem við þurftum. Amma og afi voru einstaklega samstíga og ástfangin hjón. Það er ekki fyrr en maður verður eldri og fer að skilja ástina, að maður áttar sig á hversu mikið þau elsk- uðu hvort annað. Þau sinntu heim- ilinu saman, garðinum sínum, ferðuðust saman, og nutu nær- veru hvort annars. Elsku amma, nú ertu komin til afa og Hjördísar, þeirra sem þú saknaðir svo mikið. Við systkinin viljum þakka þér fyrir að vera svona stór hluti af lífinu okkar, elska okkur takmarkalaust og sinna okkur stöðugt af heilum huga. Við söknum þín af öllu hjarta, Margrét, Jón Þór og Hrafnhildur Vala. Elsku besta amma okkar. Eins sorgmædd og við erum yfir því að þú sért nú farin frá okkur vitum við að nú passa afi, Hjördís og systkini þín vel upp á þig. Betri ömmu og vin var ekki hægt að hugsa sér. Það var alltaf jafnnota- legt að kíkja á ykkur afa í Teiga- gerðinu, þar sem okkur leið alltaf eins og kóngafólki. Dekruð með hlaðborði af veitingum, heima- gerðu heitu súkkulaði og alltaf til ein eða tvær kökur í frystinum. Eftir matinn var okkur svo alltaf boðið að taka smá blund í sófan- um. Fjölskylduboðin voru alltaf haldin með pompi og prakt og þar blómstraðir þú í hlutverkinu sem gestgjafi og miðpunktur fjöl- skyldunnar. Þú passaðir alltaf upp á að aldrei liði of langt á milli boða. Við erum þér ævinlega þakklát fyrir það hversu ákveðin þú varst í að ná fólkinu þínu sam- an, því án þín værum við ekki svona náin fjölskylda eins og við erum í dag. Þú smitaðir okkur öll af væntumþykju þinni og góð- mennsku. Þolinmæði þín og þrautseigja skein í gegnum allt sem þú tókst þér fyrir hendur. Hvort sem það var að sitja tímunum saman að kenna öllum barnabörnunum að spila, mæta alltaf í laugarnar og kóræfingar eða tína hvert einasta illgresi sem dirfðist að spretta upp í garðinum þínum. Enda var ekki skrítið að garðurinn þinn fékk síð- an titilinn fallegasti garður Reykjavíkurborgar. Sem er líka titillinn sem við myndum gefa þér, elsku amma, fallegasta sál Reykjavíkurborgar og þótt víðar væri leitað. Sama hversu hár aldurinn varð varstu alltaf jafnung í anda. Stutt í gleði, hlátur og sífellt að takast á við ný verkefni. Við tökum þinn mikla dugnað okkur til fyrir- myndar inn í lífið. Suma daga vildi maður að hægt væri að fara aftur í tímann, í eitt fjölskylduboðanna og fá hlýtt faðmlag þegar maður steig inn um dyrnar. En við eigum fullt af frá- bærum minningum í hjarta okkar um tímann sem þú varst með okk- ur. Við elskum þig endalaust mik- ið og erum þakklát fyrir það að þú hjálpaðir til við að móta okkur að þeim manneskjum sem við erum í dag. Rannveig Hildur og Halldór Arnar. Margrét Eyjólfsdóttir  Fleiri minningargreinar um Margréti Eyjólfsdóttur bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.