Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 25
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Atvinnuauglýsingar
Vantar meiraprófsbílstjóra í sumarafleysingar
og fastar stöður.
Íslenska er skilyrði og hreint
sakavottorð.
Sendið umsóknir ásamt ferilskrá
á sendibilarrvk@simnet.is
Bílstjórar óskast
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Austurvegur 18, Þórshöfn, Langanesbyggð, fnr. 216-7714, þingl. eig.
Stefán Þorgeir Halldórsson og Paulina Dudko, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður, fimmtudaginn 8. júní nk. kl. 11:40.
Hvammur, Hrísey, Akureyri, fnr. 215-6376, þingl. eig. Kristján Ingimar
Ragnarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Akureyrarkaup-
staður og Landsbankinn hf., þriðjudaginn 6. júní nk. kl. 12:00.
Hafnarstræti 29, Akureyri, fnr. 214-6885, þingl. eig. Eyrún Huld
Ásvaldsdóttir og Baldur Bergmann Jónasson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður og Akureyrarkaupstaður, miðvikudaginn 7. júní nk. kl.
10:00.
Hafnartún 30, Fjallabyggð, fnr. 213-0316, þingl. eig. Karl Hersteinsson,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 6. júní nk. kl. 14:20.
Hrafnagil lóð, Eyjafjarðarsveit, fnr. 215-8891, þingl. eig. Jón Elvar
Hjörleifsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 7. júní nk.
kl. 11:00.
Aðalbraut 24, Norðurþing, fnr. 216-7217, þingl. eig. Maritza Esther P
Ospino, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 8. júní nk. kl.
10:15.
Austurvegur 16, Langanesbyggð, fnr. 216-7713, þingl. eig. Aðalheiður
Daníelsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vörður tryggingar
hf., fimmtudaginn 8. júní nk. kl. 11:30.
Gunnarsstaðir lóð 2, Svalbarðshreppur, fnr. 216-7422, þingl. eig. Árni
Davíð Haraldsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 8. júní nk. kl. 12:50.
KÓSÝ, EA, Eyjafjarðarsýsla og Akureyri, (FISKISKIP), fnr. 7337, þingl.
eig. Drafnarvík ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Íslandsbanki
hf., þriðjudaginn 6. júní nk. kl. 09:30.
Sunnuhlíð 12, Akureyri, fnr. 215-1109, þingl. eig. Vörur ehf., gerðar-
beiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Akureyrarkaupstaður,
miðvikudaginn 7. júní nk. kl. 10:15.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
1. júní 2017
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Tangavegur 7, stálbræðsla, Hvalfjarðarsveit, fnr. 233-4037 , þingl. eig.
GMR Endurvinnslan ehf., gerðarbeiðandi Hvalfjarðarsveit, miðviku-
daginn 7. júní nk. kl. 11:30.
Asparskógar 15, sumarbústaður, Hvalfjarðarsveit, fnr. 233-3766 ,
þingl. eig. Heiðar Sigurðsson, gerðarbeiðandi Hvalfjarðarsveit,
miðvikudaginn 7. júní nk. kl. 12:00.
Hátröð 7, sumarbústaður, Hvalfjarðarsveit, fnr. 224-2073 , þingl. eig.
Eignamark ehf., gerðarbeiðandi Hvalfjarðarsveit, miðvikudaginn
7. júní nk. kl. 12:10.
Indriðastaðir 52, Skorradalshreppur, fnr. 210-6916 , þingl. eig. Sam-
lagið Fjárfestingafélag ehf, gerðarbeiðendur Félag sumarbústeig
Indriðast og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 7. júní nk. kl. 12:40.
Sólbakki 27, Borgarbyggð, fnr. 230-0085 , þingl. eig. S.Ó. húsbygg-
ingar sf., gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., miðvikudaginn 7. júní nk.
kl. 13:20.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
1. júní 2017
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Svalbarð 9, Svfél. Hornafjörður, fnr. 218-1357, þingl. eig. Guðmundur
Ágúst Böðvarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., fimmtudaginn
8. júní nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
1. júní 2017
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódelsmíði með leiðbeinanda
kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 9.30-10.30. Innipútt og útipútt kl. 9-
16. Bíómynd varpað uppá tjald kl. 13. Bókabílinn, kemur við Árskóga
6-8 kl. 16.15-17.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Gönguhópur kl. 13.30, tekinn léttur hringur um hverfið. Opið
kaffihús kl. 14.30-15.30. Verið velkomin.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Félagsvist
FEBG í Jónshúsi kl. 13, bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20 ef óskað er, frá
Hleinum kl. 12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með
leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakakaffi kl. 10-10.20. Gönguhópur um
hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl.
13-15.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía.
Gullsmári Tyffanýgler kl. 9, ganga kl. 10. Hárgreiðslustofa og fóta-
aðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir!
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðn er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir, hár-
snyrting.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl.9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga / hláturjóga saln-
um kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað laugardagskvöld 3. júní kl.
20-23, Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Ferð á
Reykjanes við Ísafjarðardjúp 26.-28. júní. Gisting á Hótel Reykjanesi.
Náttúruperlur Vestfjarða skoðaðar m.a. Unaðsdalur, Skjaldfönn, Laug-
arland o.fl., leiðsögn Magnús S. Sædal. Uppl. og skráning s. 588-2111.
Smáauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Gott skrifstofuhúsnæði til leigu
Til leigu er 197 fm skrifstofuhúsnæði
við Bíldshöfða. Skiptist í móttöku,
fimm stór skrifstofuherbergi, eldhús
og geymslu. Ágæt vinnuaðstaða fyrir
allt að 12 starfsmenn. Sameiginlegar
snyrtingar eru á hæðinni. Vsk. inn-
heimtist ekki af leigunni og hentar
húsnæðið því vel aðilum sem eru í
vsk. lausri starfsemi. Beiðni um
frekari upplýsingar sendist í
tölvupósti til dogdleiga@gmail.com.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir
til sölu í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook-síðu
okkar: vaðnes-lóðir til sölu.
Til sölu
Verslun
Armbandsúr í útskriftargjöf
Frí áletrun, PL dömu-, herra- og
hjúkkuúrin eru samsett í Frakklandi
enda haldast gæði og listræn hönnun
í hendur. Verðið er frábært.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775
www.erna.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
LOKAÐ 6. til 20. júní
Ýmislegt
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
✝ Ari Sigþór Eð-valdsson fædd-
ist á Siglufirði 3.
febrúar 1943.
Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri 25. maí
2017.
Foreldrar hans
voru hjónin Lára
Gunnarsdóttir, f.
14.9. 1909, d. 2.1.
1996, og Eðvald
Eiríksson, f. 7.2. 1908, d. 26.4.
1977. Systkini Ara eru: Helga,
f. 5.2. 1931, Rósa, f. 26.5.
1934, Gunnar, f. 16.8. 1937, d.
1.8. 2010, Kári, f. 19.9. 1939,
Kristbjörg, f. 4.3. 1948, og
Sverrir, f. 8.5. 1952.
Þann 19.4.1965, eftir fjög-
urra ára sambúð, kvæntist Ari
eftirlifandi eiginkonu sinni,
Minný Kristbjörgu Eggerts-
dóttur, f. á Ólafsfirði 29.11.
1944. Foreldrar hennar voru
Eggert Reynarð Pálsson verk-
stjóri f. 1919, d. 2007, og
Björg Maggý Guðmundsdóttir
húsmóðir, f. 1920, d. 1993.
Ari og Minný eignuðust tvö
börn. Þau eru: 1) Björn Reyn-
arð, f. 31.1. 1962, forstjóri,
sambýliskona Berglind Gylfa-
dóttir, f. 11.6. 1964, hans börn
úr fyrri sambúð eru: Guðrún
Ólöf, f. 22.11. 1989, á hún þrjú
börn, sambýlismaður Birgir
Björn Hjartarson, f. 25.9.
1989. Ari Sigþór, f. 10.12.
1991, á hann tvö börn, maki
Ara Dan Pálmadóttir, f. 10.8.
1991. Jón Fannar, f. 17.1.
1996, sambýliskona Kolbrún
Helga Gunnlaugsdóttir, f.
31.10. 1997, og Fanney Björg,
f. 17.1. 1996, á hún eitt barn,
sambýlismaður Daði Guðvarð-
arson, f. 4.8. 1986. 2) Bylgja
Rúna, f. 27.12. 1964, þjón-
ustustjóri, gift Hinriki Karli
Hinrikssyni, f. 30.5. 1963, vél-
virkjameistara, þeirra börn
eru: Kristinn Ari, f. 27.3. 1986,
Hinrik Karl, f. 23.3. 1994, og
Kristbjörg Lára, f: 28.11.
1995, sambýlis-
maður Lárus
Reynir Hall-
dórsson, vélstjóri,
f. 16.10. 1992.
Ari hóf ungur
nám í Iðnskóla
Siglufjarðar en
flutti árið 1959 til
Ólafsfjarðar og
hóf nám í rafvirkj-
un hjá Raftækja-
vinnustofu Ólafs-
fjarðar samhliða námi við
Iðnskóla Ólafsfjarðar og Iðn-
skóla Akureyrar. Hann tók
sveinspróf í rafvirkjun 1964
og varð löggiltur rafvirkja-
meistari 1968. Ari var hluthafi
í Raftækjavinnustofunni í
Ólafsfirði og starfaði þar til
ársins 1985 er hann gerðist
húsvörður í Gagnfræðaskóla
Ólafsfjarðar. Ari var hús-
vörður í Gagganum alveg þar
til öll hans barnabörn höfðu
lokið þar námi.
Ari starfaði mörg ár í
Björgunarsveitinni Tindi og
var formaður hennar i tólf ár.
Hann sat einnig í stjórn Slysa-
varnadeildar karla í Ólafsfirði
og átt sæti í ýmsum nefndum
um ævina, m.a. í Almanna-
varnanefnd Ólafsfjarðar. Ari
var félagi í Rótarýklúbbi
Ólafsfjarðar frá árinu 1973.
Hann starfaði í mörg ár við
snjóaeftirlit fyrir Veðurstofu
Íslands og átti því ófáar fjall-
gönguferðir í því starfi.
Seinni árin fóru Ari og
Minný að ferðast um á hús-
bílnum sínum, Tíbrá. Ari var í
stjórn hjá Flökkurunum í
nokkur ár.
Ari var nýlega búinn að
klára byggingu á húsi þeirra
Minnýjar á Leifsstaðabrúnum
9, sem var vígt á 50 ára brúð-
kaupsafmæli þeirra hjóna,
19.4. 2015.
Útför hans fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 2. júní
2017, og hefst athöfnin kl.
13.30.
Ari Eðvaldsson var ungur að
árum þegar hann kom til Ólafs-
fjarðar frá Siglufirði, lærði raf-
virkjun hjá Magnúsi Stefáns-
syni, mági sínum, sem kvæntur
var Helgu Eðvalds, systur Ara,
en þau systkinin áttu rætur að
rekja til Reyðarfjarðar og
minntist Ari oft samveru við
ættmenni sín þar eystra bæði til
sjós og lands.
Ari festi fljótt rætur í Ólafs-
firði, festi fljótlega ráð sitt þegar
Minný Eggertsdóttir varð þar á
vegi hans. Eftir að námi í raf-
virkjun lauk starfaði Ari lengi
með Magnúsi mági sínum á Raf-
tækjavinnustofunni ehf. í
Ólafsfirði. Þegar hann kaus að
skipta um starfsvettvang á
miðjum starfsaldri og gerast
húsvörður með meiru við Gagn-
fræðaskólann Ólafsfirði var það
mikill fengur fyrir okkur sem
þar vorum fyrir að fá fagmennt-
aðan rafvirkja sem húsvörð,
enda átti það eftir að koma sér
vel. Þar fyrir utan var maðurinn
hagur bæði á tré og járn, sann-
kallaður þúsundþjalasmiður.
Þessi fjölhæfni kom okkur sér-
staklega vel þegar við settum
upp fyrsta tölvunetkerfið fyrir
nemendur 1984 en áður höfðum
við nokkrar stakar tölvur sem
ekki voru samtengdar. Var Ari
mjög fundvís á leiðir fyrir lausa
enda sem tengjast þurftu, oftast
gegnum lagnakjallarann undir
húsinu.
Störf Ara fyrir utan húsvörslu
voru mýmörg. Hann annaðist
eftirlit með nemendum við ýmis
tækifæri, rak bóksölu fram-
haldsdeildar GÓ, annaðist far-
arstjórn í nemendaferðum inn-
anlands og utan. Var okkur
sérlega minnisstæð Danmerkur-
ferð sem við Ari fórum með hóp
nemenda gegnum Hamborg sem
ákveðið var að fara þrátt fyrir
verkföll í samgöngum í Dan-
mörku. Norrænir vinir úr FN
Norden í Hillerød mynduðu síð-
an öryggisnet ef eitthvað færi
úrskeiðis. Það var gott að hafa
Ara sér við hlið þá sem endra-
nær og allt gekk vel.
Á árunum 1986-87 buðum við
upp á aukið nám í skipstjórn-
arfræðum í framhaldsdeild, 80 t
og 200 t, auk 30 t pungaprófs í
efstu bekkjum grunnskóla og
vélavarðarnám. Þá brá Ari sér í
hlutverk kennarans og kenndi
rafmagnsfræði og einnig þætti
varðandi öryggismál sem hann
þekkti út í æsar enda hafði hann
snemma tekið þátt í starfi björg-
unarsveita í Ólafsfirði og víðar
og sótt fjölmörg námskeið og
fyrirlestra er lúta að þessu.
Ari var mikill félagsmálamað-
ur, starfaði m.a. lengi í Rótarý-
klúbbi Ólafsfjarðar, var forseti
um eins árs skeið.
Ari féll vel inn í starfslið
Gagnfræðaskólans Ólafsfirði,
varð fljótt mikill vinur okkar og
ekki síður nemenda og hafði lag
á að leggja þeim lífsreglurnar og
var virtur vel.
Við undirritaðir, fyrrum sam-
starfsmenn Ara og fulltrúar
annarra slíkra í GÓ, þökkum
Ara samfylgdina um langt árabil
og sendum Minný, Birni, Bylgju
og fjölskyldu Ara allri innilegar
samúðarkveðjur.
Óskar Þór Sigurbjörnsson,
fyrrverandi skólastjóri
Gagnfræðaskólans Ólafs-
firði, og Þórir Jónsson,
fyrrverandi kennari við
Gagnfræðaskólann
Ólafsfirði.
Ari Sigþór
Eðvaldsson