Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 27

Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Baðaðu þig í gæðunum Vandaðar vörur, gott verð og fjölbreytt úrval Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 var formaður Byggingasamvinnu- félags Kópavogs 1958-59, sat í stjórn Félags lífeyrisþega 2000- 2009 og í stjórn Ættfræðifélagsins um nokkurra ára skeið. Eftir að Ragnar hætti störfum í skattamálunum hefur hann sinnt ættfræðigrúski. Hann hefur gert nokkrar ættartölur bæði fyrir ein- staklinga og Fréttablað Ættfræði- félagsins. Síðari árin hefur hann unnið að því að skrásetja fornættir Íslendinga og á talsvert safn forn- ætta í sinni vörslu. Þess má geta að hinn mikli gagnagrunnur ORG rekur upphaf sitt til ættarskráa Ragnars í föðurætt Odds Helgason- ar, en í móðurætt til ættarskráa Jóns Símonar á Akureyri. Ragnar hefur skrifað nokkuð í blöð og tímarit og hefur m.a. ritað æviminningar sínar sem hann á í handriti. Hann mun eiga eitt af stærri bókasöfnum sem nú eru í einkaeign, en m.a. á hann nokkuð stórt safn ættfræðibóka og hand- rita. Í föðurætt er Ragnar kominn af Lunda- og Ásbjarnarstaðaætt í Borgafirði en í móðurætt af Blön- dals- og Bólstaðarhlíðarætt í Húna- vatnssýslu og Skeggjaætt í Dala- sýslu og Skildinganessætt í Reykjavík. Fjölskylda Ragnar kvæntist 31.12. 1959, Theódóru Guðmundsdóttur, f. að Skaftafelli 9.4. 1929. Hún starfaði við verslunarstörf, m.a. í Hand- prjónasambandi Íslands og var einn af stofnendum þess. Börn Ragnars og Theódóru eru: 1) Gísli, f. 1948, fyrrv. skólameistari Fjölbrautaskólans í Ármúla, kvænt- ur Kolbrúnu Karlsdóttur og eign- uðust þau tvo syni, Theódór, tölvu- fræðing og framkvæmdastjóra, og Guðmund, sem var við nám í HÍ er hann lést af slysförum árið 2004. Gísli átti son frá fyrra hjónabandi, Björgvin, sem rekur fyrirtæki í Bandaríkjunum, en Kolbrún átti tvær dætur frá fyrra hjónabandi, Friðbjörgu, bæjarstjóra í Vestur- byggð, og Maríu tölvufræðing sem er búsett í Ósló. Þær eru báðar gift- ar og eiga börn. 2) Sigríður, f. 1960, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, gift Nökkva Bragasyni, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu, en þau eiga einn son, Jökul framhaldsskóla- nema. 3) Sveinn, f. 1962, bygginga- tæknifræðingur og húsasmíðameist- ari, og á hann fimm dætur. Bræður Ragnars eru: 1) Eggert, f. 4.1.1926, bjó lengi í Kvíum, en er nú búsettur í Borgarnesi, kvæntur Auði Þorsteinsdóttur og eiga þau þrjú börn, 2) Þorgeir, f. 18.7. 1928, var lengi bóndi í Kvíum en er nú búsettur í Borgarnesi, var kvæntur Helgu Ólafsdóttur sem lést 2012 en þau eignuðust fjögur börn. Foreldrar Ragnars voru Ólafur Eggertsson, f. 28.11. 1888, d.1981, bóndi og smíður að Kvíum í Þver- árhlíð, og Sigríður Jónsdóttir, f. 20.5. 1892, d. 24.12. 1988, frá Litlu- Brekku í Reykjavík. Úr frændgarði Ragnars Ólafssonar Ragnar Ólafsson Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Ferjubakka, af Skildinganesætt elstu Hall- grímur Jónsson b. á Ferju- bakka og snikkari á Smiðju- hóli Jón Jónsson sjóm. í Litlu-Brekku áGrímsstaðaholti í Rvík Jónína Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Kvíum í Þverárhlíð Sigríður Sveins- dóttir húsfr. í Skutulsey Jón Brandsson b. í Skutulsey og víðar í Borgarfirði Eggert Elís Ólafsson b. og trésmiður í Kví- um og í Borgarnesi Þorgeir Ólafsson b. í Kvíum Stefán Frið- björns- son b. í Nesjum á Miðnesi Kristjana Marta Stef- ánsdóttir hús- fr. á Akranesi Sigurlína Sig- urðardóttir húsfr. í Ási í Melasveit Guðjón Pétur Stefáns- son kaup- félagsstj. í Keflavík Þorgerður Jónsdóttir húsfr. áHafþórsstöðum Ólafur Þorbjarnarson hreppstj. á Hafþórsstöðum og Kaðalstöðum Margrét Ólafsdóttir húsfr. í Kvíum Eggert Sigurðsson b. í Kvíum Ólafur Eggertsson b. og smiður í Kvíum í Þverárhlíð Margrét Ólafsdóttir húsfr. í Kvíumog víðar Sigurður Guðmundsson b.ogsifursmiður íKvíum ogvíðar íBorgarfirði Sigríður M. Helga- dóttir húsfr. í Rvík Petrína Sveinbjörg Helga- dóttir húsfr. í Hafnarfirði Sjöfn Helgadótt- ir húsfr. í Rvík Helgi Friðrik Helgason sjóm. og bifreiðastj. á Akureyri Gísli Theódórsson kaup- félagsst. á Bíldudal Friðrik Theodórsson framkv.stj. í Rvík Þorsteinn Garðarsson framkv.stj. í Vogum Sturla Sigtryggsson b. í Keldunesi II í Kelduhverfi Sigurður Már Helgason bólstrari og hönnuður í Rvík Oddur Friðrik Helgason sjóm. og æviskrárritari hjá ORG, búsettur í Rvík Helgi Jónsson í Tungu við Lauga- veg í Rvík Odd- björg Jóns- dóttir húsfr. í Rvík Rósar Eggertsson tannlæknir í Rvík Jóna Þórdís Eggerts- dóttir húsfr. í Rvík Þorgils Björgvinsson tónlistarm. og tölvustj. ORG ættfræðiþjónustu Ragnar Helgason stýrim. og lögreglum. í Eyjum Jónína Þórdís Helgadóttir húsfr. í Hafnarfirði og í Rvík Gísli S. Hafsteinsson bifreiðastj. í Rvík Þórdís Halldóra Hallgrímsdóttir húsfr. í Litlu-Brekku Sigurður Magnússon fæddist á Reyðarfirði 2.6. 1928, sonur Magn- úsar Guðmundssonar, verslunar- manns á Reyðarfirði, og k.h., Rósu J. Sigurðardóttur húsfreyju. Föðurbróðir Sigurðar var Björn, bóndi í Felli, faðir Emils, prests og fyrrv. fréttastjóra, föður Björns, kvikmyndastjóra og dagskrár- gerðarmanns, og Guðmundar hljóm- sveitarstjóra. Magnús var sonur Guðmundar Árnasonar á Felli og Guðnýjar Rögnvaldsdóttur, en Rósa var dóttir Sigurðar Péturs Jónas- sonar, trésmiðs á Seyðisfirði, og Munnveigar Andrésdóttur. Systkini Sigurðar: Aagot, f. 1919, d. 1983, Emil Jóhann, f. 1921, d. 2001, Rannveig Torfhildur, f. 1922, d. 2002, Aðalbjörg, f. 1923, Stefanía, f. 1924, d. 2007, tvíburasystir hennar lést í fæðingu, Guðmundur, f. 1926, og Guðný Ragnheiður, f. 1927. Eiginkona Sigurðar var Sigrún sem lést 2014, dóttir Sigurðar Pálmasonar kaupmanns og k.h., Steinvarar Benónýsdóttur. Synir Sigurðar og Sigrúnar eru Sigurður Rúnar, f. 1957, og Jóhann, f. 1962. Sigurður lauk prófum frá Verzl- unarskóla Íslands. Hann hóf sinn starfsferil hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur sem fyrsti fram- kvæmdastjóri þess. Hann stundaði síðan kaupmennsku, en hann byggði og stofnaði Melabúðina og starf- rækti hana um áratuga skeið. Hann var auk þess framkvæmdastjóri og einn af eigendum Austurvers hf. Eftir að Sigurður hætti kaup- mennsku varð hann framkvæmda- stjóri og formaður Kaupmanna- samtaka Íslands um nokkurra ára skeið, síðan skrifstofu- og út- breiðslustjóri ÍSÍ, framkvæmda- stjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra um skeið en réðst aftur til ÍSÍ sem framkvæmdastjóri og gegndi því starfi þar til hann lét af störfum sökum aldurs. Hann var fyrsti formaður Íþróttasambands fatlaðra og beitti sér mjög í þeirra starfi. Sigurður lést 27.3. 2011. Merkir Íslendingar Sigurður Magnússon 85 ára Gísli G. Magnússon Hildur Jónsdóttir Jóhanna Stefánsdóttir Trausti S. Björnsson 80 ára Guðlaug S. Haraldsdóttir Hanna S. Ásgeirsdóttir 75 ára Auður Magnúsdóttir Hulda Valdís Þórarinsdóttir Hörður Hansson Jóhanna Hrólfsdóttir Kristín Ferdinandsdóttir 70 ára Eygló Einarsdóttir Gísli Kristófer Jónsson Gunnar S. Skarphéðinsson Gunnhildur Aðalbergsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Róbert Pálsson Þorbjörg Ágústsdóttir Þórir Jón Ásmundsson 60 ára Birgir Þór Karlsson Elena Simonzentiene Erla Haraldsdóttir Guðrún Valdimarsdóttir Gunnar Eiríkur Hauksson Gunnar T. Þorsteinsson Halldóra Grétarsdóttir Hildur Nikolína Guðnadóttir Ingibjörg Þorbjörnsdóttir Janina Roszko Jón Árni Sveinsson Kristbjörn Þorbjörnsson Ómar Bragi Stefánsson Rúnar Berg Jóhannsson Signý Guðmundsdóttir Sverrir Auðunn Meldal Þórdís Sigurgeirsdóttir 50 ára Áslaug Maack Pétursdóttir Birgir Finnsson Bjarki Ingi Karlsson Elías J. Friðriksson Elín Jóna Gunnarsdóttir Elísabet A. Guðbjörnsdóttir Erna Björnsdóttir Gunnar Sigurbjörnsson Gunnar S. Kristjánsson Gunnar Þór Haraldsson Halla Magnúsdóttir María Guðbjörg Hensley Noble Botchway Ragnheiður M. Ævarsdóttir Sigtryggur S. Þráinsson Valdas Prascienius Þóra R. Stefánsdóttir 40 ára Anna María Ingvarsdóttir Atli Þór Tryggvason Auðbjörg Björnsdóttir Ásgeir Örn Hlöðversson Elín Guðbjörg Jónsdóttir Fjóla Baldursdóttir Guðný Björk Þorvaldsdóttir Guðrún Lovísa Ólafsdóttir Guðrún Ósk Njálsdóttir Hrund Steingrímsdóttir Kristín Sigmundsdóttir Kristrún Björg Loftsdóttir Lilja Baldursdóttir Lilja Ósk Snorradóttir Maríanna Másdóttir Melanie Anne Moore Rósa Sif Jónsdóttir Vigdís Rán Einarsdóttir 30 ára Baldur Már Richter Birna Ketilsdóttir Edda Vigdís Brynjólfsdóttir Elísabet A. Sigurðardóttir Íris Hervör Sveinsdóttir Jóhanna M. Halldórsdóttir Kristófer Róbert Helgason Til hamingju með daginn 30 ára Smári ólst upp á Akureyri, býr þar, lauk sveinsprófi í húsasmíði, einkaflugmannsprófi og rekur skemmtistaði á Akureyri. Systkini: Ágústa Berg- lind Hauksdóttir, f. 1978; Þorsteinn Ólafur Sigurð- arson, f. 1979, og Fanney Sigurðardóttir, f. 1985. Foreldrar: Sigurður Egill Einarsson, f. 1955, og Guðrún Elva Stefáns- dóttir, f. 1960. Smári Sigurðarson 30 ára Sigurður ólst upp í Kópavogi, býr þar, er pípulagningameistari, véla- og orkutæknifræð- ingur og starfar hjá Olíu- dreifingu. Maki: Annika Vignisdóttir, f. 1988, markaðsstjóri hjá Artica. Sonur: Leó Sigurðsson, f. 2015. Foreldrar: Óskar Frið- björnsson, f. 1962, og Sig- urbára Sigurðardóttir, f. 1963. Sigurður Georg Óskarsson 30 ára Jónatan ólst upp í Reykjavík, býr í Hafnar- firði, lauk MIB-prófi í við- skiptafræði og starfar hjá FerroZink heildsölu og þjónustu. Maki: Sólveig Margrét Kristjánsdóttir, f. 1989, aðalbókari. Dóttir: Embla Katrín, f. 2014. Foreldrar: Sveinn Vík- ingur Árnason, f. 1959, og Lilja Sigrún Jónsdóttir, f. 1962. Þau búa í Reykjavík. Jónatan Atli Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.