Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er rétti tíminn til að hitta fé-
lagana og ræða sameiginleg áhugamál.
Láttu ekki hvarfla að þér að þú sért að mis-
nota eitthvað.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hagnast á hvers kyns rannsóknum
í dag, ekki síst ef viðfangsefnið er af fjár-
hagslegum toga. Einnig væri rétt að end-
urnýja í sjúkrakassanum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar í öngstræti er komið er gott
að hugsa málin alveg upp á nýtt. Ráðgát-
urnar sem blasa við þér í dag eru þeirrar
gerðar að þú leysir þær með hraði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allt í einu viltu losa þig við allt
aukadót í lífi þínu. Spjallaðu við fyndnustu
manneskju sem þú þekkir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir hitt einhvern á óvæntum
vettvangi sem verður vinur þinn eða jafnvel
nánari. Gerið gott úr því sem fyrir er og
ræktið það upp.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú nýtur þín í samskiptum við aðra í
dag og ljómar af innri gleði, sem skilar sér
til annarra. Nú er ekki rétti tíminn til þess
að liggja í leti heldur skaltu rífa þig upp á
rassinum og fara að gera eitthvað. Til að
mynda er kominn tími til að vinna í garð-
inum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú stefnir í að þú hittir fyrir þá sem
eru sama sinnis og þú og reiðubúnir að
vinna málstað ykkar brautargengi. Enginn
hefur sama álit á hlutunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér gengur vel í vinnunni og þú
munt ná miklum árangri á komandi ári. Um-
burðarlyndi þitt hefur aukist og þú finnur til
velvildar í garð annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er tímabært að huga að því
hvers konar vináttu þú býður öðrum. Vertu
hvergi smeykur því þú hefur alla burði til að
vinna verkið sem fyrir höndum er.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Virtu og treystu þeim sem þú ert
með. Umferðarreglurnar eru til að virða
þær. Reyndu að hitta á þau sem eru líkleg-
ust til að færa þér einhver skemmtilegheit.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að ganga frá smáat-
riðum sem tengjast skatta- og trygging-
armálunum. Breyting á þér breytir öllu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður að finna sköpunarþrá
þinni farveg og sinna henni sem mest þú
mátt. Gerðu það því upp við þig hvort það
er þess virði.
Mér þykir rétt að byrja á „Tím-ans tönn“ – limru Helga R.
Einarssonar:
Ég veit ei hvað þessu veldur,
Valdimar sýnist mér geldur.
Hann sem að gældi
við gellur og tældi
nú ofur- er örlögum -seldur.
Ég veit ei hver árinn því olli
að Ásdís er að þessu drolli.
Hún, sem var fús,
já, hamslaus sem lús,
er hoppaði koll af kolli.
Og síðan er „Líney“:
Líney er skondin og skrítin,
skelegg budda og nýtin.
Meinlega hlær
er öll meðlögin fær.
Heimska’ er að varast öll vítin.
Ólafur Stefánsson kvartar yfir lé-
legri póstþjónustu sem von er – fær
ekki Morgunblaðið og þar með ekki
Vísnahorn nema þrisvar í viku aðra
vikuna og tvisvar hina – og þá fimm
blöð í bunka!
Í sveitinni’er sífelldur gjóstur,
en samvinna’og lítið um róstur,
En það litar vorn hag
með leiðindabrag,
hve sjaldan sést hérna póstur.
Sigurlín Hermannsdóttir frétti af
því að Lasarus hefði fundið sálu-
félaga á Austurvelli:
Hann Lasarus var þar að lóna
og landanum deildi með Grjóna.
Í kulda og trekk
með körlum á bekk
sem kalla hann Lassa róna.
Og enn kveður hún – „þung
byrði“:
Hann Klængur var ekkert að kvarta
þótt kremdi hún Gudda hans hjarta.
En er firnaþung settist
í fang hans og glettist
var það vont fyrir viðkvæma parta.
Páll Imsland segir smásögu úr
sveitinni:
Herbjörn á Hjólbarnavöllum
hrikalegastur af öllum
var dreki einn stór.
Hann drakk ekki bjór
en skartaði þrem litlum sköllum.
Og enn yrkir Páll:
Þorvaldur víðförlı́ á Vatnsenda
vappaði kátur á hreppsenda
og rúmlega þó,
því rétt áður dó
rambaði’hann allt út á heimsenda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Orð kviknar af orði
og limra af limru
Í klípu
JÓSEP HÆTTI EKKI Á SAMFÉLAGS-
MIÐLUM FYRR EN HANN HAFÐI PÓSTAÐ
NOKKRUM SJÁLFSMYNDUM ÚR KRUFNINGU.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HALTU HANDLEGGJUNUM NIÐRI!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem setur
glit í lífið.
LÍSA SEGIR AÐ ÞÚ HAFIR
ALDREI MISBOÐIÐ HENNI
ÞÚ SKALT FÁ ÞÉR
ÞENNAN DRYKK
EFTIR MATINN! ER ÞETTA
AMARETTO?
ÉG GEYMI ALLT
SLÍKT FYRIR
ÞIG, JÓN
HVAÐ ER MÁLIÐ
MEÐ ÞAÐ?
ÞÚ ERT
EINSTAKUR
ÞETTA ER
MÓTEITUR!
Hægt væri að skrifa kennslubóköðrum til varnaðar um umferð-
arskipulagsleysið í Reykjavík, um-
ferðarómenninguna, hættuna,
mengunina, tjónið og svo framvegis í
boði meirihluta borgarstjórnar. Sér-
kafli yrði um þátt lögreglunnar.
x x x
Vegna skipulagsleysis er erfið-leikum bundið að komast á milli
staða í borginni. Þræða þarf íbúða-
hverfi með tilheyrandi ónæði fyrir
íbúana til þess að komast leiðar sinn-
ar.
x x x
Lögreglan notfærir sér þettaófremdarástand og situr fyrir
bílstjórum sem voga sér að fara
hraðar en 80 km á einu beinu braut-
inni í borginni. Það er furðulegt að
lögreglan virðist ekki hafa neitt
þarfara við tímann að gera en sekta
ökumenn sem fara aðeins of hratt
upp eða niður Ártúnsbrekku.
x x x
Víkverji er töluvert á ferðinni ogþað bregst ekki að hann fer oft á
dag fram úr ökumönnum sem eru
uppteknir við að tala í síma, senda
skilaboð, vinna á tölvu, taka myndir,
snyrta sig og þar fram eftir götun-
um. Eru með hugann við allt annað
en að hugsa um aksturinn.
x x x
Þessi háttsemi fer fram hjá lög-reglunni þó að hún falli undir
vítavert gáleysi. Ekki er langt síðan
ökutæki í eigu fjölskyldu Víkverja
var dæmt ónýtt eftir að ekið var aft-
an á það með tilheyrandi óþæg-
indum, að ekki sé minnst á kostn-
aðinn. Þessi aftanákeyrsla var
auðvitað alveg út í hött en ökumað-
urinn var upptekinn við annað en
aksturinn. Greiðsla tryggingafélags-
ins fyrir bílinn var brot upp í annan
bíl, þótt gamall og notaður væri.
x x x
Víkverji á það til að fara yfir 80 kmhraða niður og upp Ártúns-
brekku, síðast í gær. Hugsanlega
náði löggan mynd af hraðanum og
þá kemur sektin í heimabankann en
vonandi var hraðinn of mikill fyrir
hana að þessu sinni. Víkverji hefur
borgað nóg. vikverji@mbl.is
Víkverji
Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð
og trúið á mig
(Jóh. 14:1)
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
Er allt á
HREINU
fyrir...
Fatahreinsun
Dúkaþvottur
Dúkaleiga
Heimilisþvottur