Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 FRÁ LOS ANGELES Gunnar Valgeirsson gval@mbl.is ReykjavíkurhátíðFílharmóníuhljómsveitarLos Angeles lauk á þriðju- dagskvöld í Disney Hall-hljóm- leikahöllinni með tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur. Megin- hluti hátíðarinnar fór fram um miðjan aprílmánuð og gerðum við þeim tónleikum skil á þessum síð- um þá. Tónleikum Bjarkar var bætt við eftir að hátíðin var skipulögð og fór af þeim sökum fram þess- um vikum seinna, enda tónleika- höllin bókuð langt fram í tímann. Tónleikar þessir fóru saman með Björk Digital-sýningunni sem var opnuð hér í Magic Box-lista- safninu. Við á Morgunblaðinu vor- um viðstaddir sérstaka opnunar- hátíð fyrir fjölmiðlafólk áður en sýningin hófst og þar talaði Björk bæði um sýninguna sjálfa og tón- leikana í viðtali frá New York. Á stafrænu sýningunni er mikil áhersla lögð á þrívíddar- myndbönd af lögum af nýjustu plötu Bjarkar, Vulnicura, og var maður því orðinn nokkuð kunn- ugur sumum af þessum lögum fyrir tónleikana. Uppselt á 20 mínútum Mikil eftirvænting var fyrir tónleikana af hálfu aðdáenda Bjarkar hér í bæ og seldust þessir tónleikar upp á tuttugu mínútum þegar miðar fóru í sölu. Ódýrustu miðana sem boðnir voru á endur- sölumarkaðnum dagana fyrir tón- leika var hægt að kaupa fyrir 300 dali. Þetta voru fyrstu tónleikar hennar hér í bæ síðan 2013 þegar hún lék í Hollywood Bowl vegna útgáfu plötunnar Biophilia. Að sögn Bjarkar vildi hún gera þessa tónleika sérstaka með því að hafa aðeins strengjasveit í bakgrunni í stað raftónlistartækni sem hún er þekkt fyrir. Um þrjá- tíu manna sveit kom fyrst á sviðið með Bjarna Frímanni Bjarnasyni tónleikastjóra. Þetta voru mest hljóðfæraleikarar frá Los Angeles – eða 93% „lókal“, eins og Björk hafði á orði þegar hún kynnti sveitina. Loks mætti söngkonan sjálf, klædd einni af sínum frægu tískuflíkum. Henni var ákaft fagn- að þegar hún gekk á sviðið og var stemmingin hreinlega mögnuð og eftirvæntingin mikil. „Black Lake“ í frábærri útfærslu Björk er listakona sem fer sínar eigin leiðir og ef þú ert aðdáandi á tónleikum hennar verður þú einfaldlega að vera op- inn fyrir gjörningnum. Í þessu til- viki hefðu fáir getað kvartað þótt hún hefði lagað flest af sínum frægustu lögum að möguleika strengjasveitarinnar. Þetta voru hins vegar síðustu tónleikar Bjarkar til stuðnings Vulnicura- útgáfunni og fyrsti hluti tón- leikanna var tileinkaður lögum af þeirri plötu. Björk sýndi vissulega hug- rekki í því að syngja þessi tilfinn- ingaþrungnu lög án rafrænna aukahljóða – jafn persónulegir og textarnir eru. Henni tókst samt sem áður að hrífa tónleikagesti með söng sínum og var „Black Lake“ þar frábærlega vel útfært. Þetta lag var tíu mínútna verk í upptöku, en lengra á sviðinu á þriðjudag þar sem kaflar verksins virkuðu oft sem endir þess, þar til næsti kafli fór af stað. Þetta skap- aði einstakt andrúmsloft þar sem áköfustu gestirnir gátu vart setið á sér að fagna fyrstir í salnum. Björk var sýnilega ánægð með út- komuna og hyllti Katia Popov fiðluleikara sem átti síðustu tóna verksins. Þar sem Disney Hall er sinfóníuhöll eru farsímar bann- aðir í aðalsal og fólk talar ekki né hyllir fyrr en listafólk hefur lokið sínu verki. Af þeim sökum komu oft kærkomnir kaflar í ýmsum lögum þegar strengjasveitin þagnaði að mestu – mátti þá heyra hljóðið í skóm söngkon- unnar. Svipmiklar hreyfingar Eftir hlé voru flutt lög frá ólíkum tímum á ferli hennar og tónleikunum lauk svo með tveim- ur lokalögum, „Anchor Song“ af Debut og „Pluto“ af Homogenic. Rödd Bjarkar var sterk að venju og féll söngur hennar vel inn í hljóm strengjasveitarinnar. Líkamlega lagði hún áherslu á marga texta með svipmiklum hreyfingum, en ekki var hægt að sjá andlit hennar þar sem hún var með grímu. Henni var geysivel fagnað í lokin á velheppnuðum tónleikum. Björk verður með aðra tón- leika hér í Los Angeles á FYF- tónleikahátíðinni seinnipart júlí. Björk hrífur án tækninnar Ljósmynd/Santiago Felipe Hrífandi Björk hreif gesti á tónleikum sínum í Disney Hall-tónleikahöllinni síðastliðinn þriðjudag. Ljósmynd/Santiago Felipe Grímuklædd Björk bar eina af sínum þekktu grímum í Disney Hall. »Rödd Bjarkar varsterk að venju og féll söngur hennar vel inn í hljóm strengjasveitar- innar. Bíó Paradís mun 26. ágúst næst- komandi sýna tónlistarmyndina American Valhalla, en hún er samvinnuverkefni tveggja heims- kunnra tónlistarmanna, Josh Homme úr hljómsveitinni Queens of the Stone Age og pönkafans Iggy Pop. Í myndinni er fylgst með upptökum á síðustu plötu Iggy Pop, Post Pop Depression, sem fram fóru í eyðimörkinni í Kaliforníu og hljómsveit sem sam- anstendur af Dean Fertita, Matt Helders, Iggy Pop og Josh Homme og tónleikaferðalagi þeirra sem endaði í Royal Albert Hall í London. Leikstjórar myndarinnar eru Josh Homme og Andreas Neu- mann. Verður hún aðeins sýnd einu sinni í Bíó Paradís og er miðasala á sýninguna hafin þó að tæpir þrír mánuðir séu í hana. American Valhalla sýnd í Bíó Paradís Svellkaldir Josh Homme og Iggy Pop. Kvikmyndaframleiðendurnir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson, hjá fyrirtækinu Kisa, eru meðframleið- endur finnskrar stórmyndar, Tun- tematon sotilas, eða Óþekkti her- maðurinn, sem einn þekktasti leikstjóri Finna, Aku Louhimies, leikstýrir, að því er fram kemur á kvikmyndavefnum Klapptré. Kvikmyndin verður frumsýnd í Finnlandi í október og er byggð á þekktri skáldsögu, samnefndri kvikmyndinni. Myndin gerist á tím- um seinni heimsstyrjaldarinnar og sögusviðið er stríðið milli Finnlands og Sovétríkjanna 1941-1944, að því er segir á Klapptré, og fylgst með ólíkum einstaklingum innan tiltek- innar herdeildar. Kvikmyndin er gerð í tilefni af 100 ára afmæli sjálf- stæðis Finnlands og nemur fram- leiðslukostnaður um 850 milljónum króna. Meðframleiðendur stórmyndar Morgunblaðið/Kristinn Framleiðendur Ingvar og Júlíus.  Stonemilker  Lionsong  History of Touches  Black Lake  Family  Notget Hlé  Aurora  I’ve Seen It All  Jóga  Vertebrae by Vertebrae  Quicksand  Mouth Mantra Aukalög  The Anchor Song  Pluto Fjórtán lög LAGALISTI TÓNLEIKANNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.