Morgunblaðið - 08.07.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
Bilbao&Baskaland
sp
ör
eh
f.
Sumar 19
Í þessari glæsilegu ferð um Baskahéruð Spánar upplifum
við í senn dásamlega náttúrufegurð, heillandi menningu og
iðandi mannlíf. Frá Madrid höldum við um Baskahéraðið og
njótum nærveru Cantabria fjallana. Í hafnarborginni Bilbao
skoðum við hið fræga Guggenheimsafn og heimsækjum
litríka sjávarbæinn San Sebastian við Biscaya flóann.
9. - 16. september
Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 194.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
130 einstaklingar sóttu um alþjóð-
lega vernd á Íslandi í júní og
heildarfjöldi umsókna á fyrstu sex
mánuðum ársins er 500 en það eru
um 80% fleiri umsóknir en bárust
á fyrri helmingi
síðasta árs (275).
Fjölgunin sam-
anborið við árið
2016, bendir því
til þess að um-
sóknir um al-
þjóðlega vernd á
árinu geti orðið
allt að 2000 tals-
ins, jafnvel
fleiri, að mati
Útlendingastofnunar.
Það mat Útlendingastofnunar
byggist m.a. á þeirri miklu fjölgun
umsækjenda sem varð á fjögurra
mánaða tímabili á seinnihluta síð-
asta árs, ens og sjá má á meðfylgj-
andi grafi.
Fram kemur í upplýsingum Út-
lendingastofnunar að flestir um-
sækjendur um vernd í júní voru
frá Albaníu, eða 44 og 40 voru frá
Georgíu.
Munum þurfa nýtt húsnæði
Þórhildur Hagalín, upplýsinga-
fulltrúi Útlendingastofnunar, segir
að þeim hælisleitendum sem
dvöldu í Víðisnesi til síðustu mán-
aðamóta hafi verið fundinn sama-
staður á öðrum stöðum, en stofn-
unin sagði upp leigunni á Víðisnesi
fyrir nokkru.
„Það er ekki skortur á húsnæði
hjá okkur eins og er, en miðað við
okkar eigin áætlanir sjáum við
fram á að þurfa að taka í gagnið
nýtt húsnæði í stað Víðisness,“
sagði Þórhildur. Hún segir að
stofnunin hafi ekki þurft að grípa
til þess ráðs sem gert var í fyrra,
að leigja hótelherbergi fyrir hæl-
isleitendur.Þórhildur bendir á að
ekki sé hægt að áætla með neinni
nákvæmni hver fjöldi hælisleit-
enda verði á þessu ári, en miðað
við þann kúf sem varð á nokkurra
mánaða tímabili á seinnihluta árs-
ins í fyrra, megi allt eins gera ráð
fyrir því að fjöldinn verði um eða
yfir 2000, verði þróunin á þessu
ári svipuð og í fyrra. „Þetta eru
ónákvæm vísindi, en við verðum að
vera undir það búin að fjöldinn
geti orðið svona mikill,“ segir Þór-
hildur.
25 fóru sjálfviljugir
Í júnímánuði voru samtals 80
hælisleitendur fluttir úr landi.
Stoðdeild Ríkislögreglustjóri flutti
42 einstaklinga úr landi, 25 yf-
irgáfu landið sjálfviljugir með
stuðningi Útlendingastofnunar og
13 með stuðningi Alþjóðafólks-
flutningastofnunarinnar (IOM). Í
júní drógu 44 umsækjendur til
baka umsóknir sínar.
Þórhildur segir að meirihluti
þeirra sem drógu umsóknir sínar
til baka, hafi farið aftur til síns
heimalands, þ.e. landanna sem
skilgreind eru sem örugg lönd,
Albanía, Makedónía og Georgía.
„Við teljum að flestir þeirra sem
draga umsóknir sínar til baka og
hverfa úr landi, geri sér grein fyr-
ir því að þeir muni að öllum lík-
indum fá synjun. Þegar umsókn
um vernd er synjað þá getur það
haft í för með sér, ef einstaklingar
fara ekki sjálfviljugir úr landi,
brottvísun og endurkomubann. Því
er það heldur hvati fyrir þessa ein-
staklinga að draga umsóknina til
baka, því ef umsókninni er haldið
til streitu geta þeir átt á hættu að
fá á sig endurkomubann sem gildir
þá inn á allt Schengen-svæðið,“
sagði Þórhildur.
80 hælisleitendur fóru í júní
Flestir umsækjendur um vernd í júní voru frá Albaníu, eða 44 og 40 voru frá
Georgíu Útlendingatofnun telur að hælisleitendur gætu orðið allt að 2000 á árinu
Þórhildur
Hagalín
Fjöldi hælisleitenda 2015-2017
Heimild: Útlendingastofnun
250
200
150
100
50
0
2015 2016 2017
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
255
61
130
85
Bjarni Bene-
diktsson, for-
sætisráðherra,
hefur ákveðið að
skipa Salvöru
Nordal, heim-
speking, í emb-
ætti umboðs-
manns barna til
næstu fimm ára.
Tekur skipunin
gildi frá 1. júlí
2017. Hún tekur við embættinu af
Margréti Maríu Sigurðardóttur,
sem gegnt hefur því frá árinu 2007.
Salvör er með BA próf í heim-
speki frá Háskóla Íslands, M.Phil í
samfélagslegu réttlæti frá Stirling-
háskóla í Skotlandi og doktorspróf í
heimspeki frá Calgary-háskóla í
Kanada. Hún hefur verið forstöðu-
maður Siðfræðistofnunar Háskóla
Íslands og lektor í heimspeki við
sama skóla. Þá var hún formaður
stjórnlagaráðs.
46 umsóknir bárust um embætti
umboðsmanns barna, en tveir um-
sækjendur drógu umsókn sína til
baka.
Salvör skipuð um-
boðsmaður barna
Salvör Nordal
Breytt bráðalyf-
lækningadeild
Landspítalans
hefur stytt bið-
tíma sjúklinga
töluvert á stutt-
um tíma. Breyt-
ingin felst aðal-
lega í verklagi
sem búið er að
þróa erlendis en
unnið er eftir er-
lendri fyrirmynd sem nefnist
greiningardeild eða Medical
Assessment Unit (MAU). Deildin
var opnuð með nýju sniði 1. júní
og Ragnar Freyr Ingvarsson, sér-
fræðingur á lyflækningadeild spít-
alans, segir breytt verklag hafa
stytt biðtíma úr 16,6 stundum nið-
ur í 8 stundir á fyrstu þremur vik-
um júnímánaðar. Verklagið bygg-
ist á þverfaglegri samvinnu og
segir Ragnar að vegna þessa sé
það ekki háð því hvaða sérfræð-
ingur sé á vakt hverju sinni hvaða
meðferð sjúklingur fær.
olofr@mbl.is
Stytta biðtíma á
Landspítalanum
Ragnar Freyr
Ingvarsson
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Í gær greindi Morgunblaðið frá því
að áform séu um opnun 30 nýrra
veitingahúa í miðborg Reykjavíkur
á næstu miss-
erum. Þessi nýju
veitingahús munu
eðli málsins sam-
kvæmt þarfnast
faglærðra mat-
reiðslu- og fram-
reiðslumanna.
Níels Sigurður
Olgeirsson, for-
maður Matvæla-
og veitingafélags
Íslands, segir að-
sókn í nám í þessum greinum hafa
tekið við sér síðustu ár.
„Það hefur orðið fjölgun í mat-
reiðslu- og framreiðslunámi sér-
staklega. Ég held að það séu núna
um 300 nemendur í matreiðslu og
um 100 nemar í framreiðslu. Fyrir
nokkrum árum var verið að fella nið-
ur kennslu vegna þess að það vant-
aði nemendur, en það er liðin tíð.
Þetta hefði mátt fara hraðar og fyrr
af stað, en ég held að þetta sé á
réttri leið.“ segir Níels í samtali við
Morgunblaðið.
Faglærðir skili meiru í kassann
Þó þurfi enn að notast við aðflutt
vinnuafl og ófaglært fólk. „Við þurf-
um að flytja inn fólk og við þurfum
að nota ófaglært fólk í sal. Eftir að
prósentukerfið var lagt af var fram-
reiðslufagið eiginlega þurrkað út, en
það er að lifna við aftur,“ segir
Níels.
Hann segir veitingamenn loksins
vera að vakna og átta sig á því að
þeir þéni mun meira með því að hafa
faglærða framreiðslumenn í vinnu.
„Þetta eru veitingamenn farnir að
sjá, sem betur fer. En það hefði
mátt byrja fyrr. Fjölgunin hefði
mátt byrja fyrr svo að við hefðum
verið betur í stakk búin að taka við
þessum erlendu gestum okkar. Það
sem þeir kvarta hvað sárast undan
er léleg þjónusta.“
Níels segir veitingamenn hafa
verið of gráðuga í lengri tíma og
sparað við sig þar sem síst skyldi, í
starfsmannamálum. „Ég er búinn að
berjast fyrir því í þrjátíu ár að auka
nýliðun í framreiðslu og matreiðslu.
Það hefur ekki verið hlustað á það.
Veitingamenn hafa verið of gráð-
ugir. Þeir vildu fá ódýrara vinnuafl,
en áttuðu sig ekki á því að þeir þén-
uðu mikið minna fyrir vikið.“
Varðandi þann fjölda veitinga-
staða sem fyrirhugað er að opna í
Reykjavík á næstunni segir Níels að
nauðsynlegt sé að flóran verði fjöl-
breytt. „Sumir ferðamenn vilja
borga lítið fyrir matinn en svo eru
aðrir sem vilja borga vel og fá fína
þjónustu. Maður heyrir allt of mikið
um það að fólk kíki inn, líti á mat-
seðil og labbi svo bara út og hristi
hausinn.“
Stórkaupmenn of gírugir
Hann telur styrkingu krónunnar
ekki hafa skilað sér að fullu til veit-
ingamanna í formi lægra innkaups-
verðs á innfluttum hráefnum.
„Kannski voru stórkaupmenn og
kaupmenn of gírugir og lækkuðu
ekki verðið til veitingahúsanna.“
Það hafi mögulega gert veitinga-
mönnum ókleift að lækka verðið og
það hafi valdið því að verðið sé svim-
andi hátt fyrir erlenda ferðamenn.
„Þegar hamborgarinn er kominn vel
á fjórða þúsund er ekki alveg rétt
gefið,“ segir Níels.
Segir veitingamenn vera
að vakna af græðginni
Aukin aðsókn í matreiðslu- og framreiðslunám
Níels Sigurður
Olgeirsson
Fram kemur í upplýsingum Út-
lendingastofnunar að um 550
einstaklingar njóti þjónustu í
verndarkerfinu á Íslandi um
þessar mundir, þar af séu um
250 manns í þjónustu hjá fé-
lagsþjónustu Reykjavíkur-
borgar, Hafnarfjarðarbæjar og Reykjanesbæjar á grundvelli þjónustu-
samninga við Útlendingastofnun.
Meðalmálsmeðferðartími 116 dagar
Móttöku- og þjónustuteymi Útlendingastofnunar veitir um 300 ein-
staklingum þjónustu í búsetuúrræðum stofnunarinnar.
Meðalmálsmeðferðartími allra afgreiddra umsókna um vernd á öðrum
ársfjórðungi 2017 hafi verið 116 dagar (162 mál). Að meðaltali hafi tekið
179 daga að afgreiða umsókn um vernd í hefðbundinni efnismeðferð (61
mál), 63 daga í forgangsmeðferð (22 mál) og 82 daga tók afgreiðslan á
grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar (79 mál).
Um 550 njóta þjónustunnar
UM 80% FLEIRI UMSÓKNIR UM ALÞJÓÐLEGA VERND
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Hælisleitendur Ahmadi fjölskyldan.