Morgunblaðið - 08.07.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
Það liðu tíu dagar frá því aðskolpdælustöð við Faxaskjól
bilaði og fór að dæla úrgangi í fjör-
una þangað til sagt var frá ástand-
inu.
Og það var ekkivegna þess að
borgarstjóri eða
fjölmenn „upplýs-
ingadeild“ borgar-
innar hefðu varað
borgarbúa við,
heldur vegna þess að fréttamenn
komust á snoðir um málið.
Þegar saurgerlamagn var mælt íjúní kom í ljós að sýnin voru yf-
ir viðmiðunarmörkum. En þau voru
innan skekkjumarka og þess vegna
var víst ekkert gert.
Borgarbúar héldu því áfram aðleika sér í fjörunni og synda í
sjónum eins og ekkert hefði í skor-
ist.
En svo gerðist það, sem þurftikannski ekki að koma á óvart
miðað við að 750 lítrar af skólpi
dældust út um neyðarlúgu á hverri
sekúndu, að sýnin fóru vel yfir
mörkin. Frá því var loks greint í
gær.
Starfsmaður borgarinnar sagðistekki myndu fara með börnin
sín í fjöru þar sem eru saurgerlar,
en hvernig stendur þá á því að
borgarbúar voru ekki varaðir við
hættunni af þessari stærstu bilun
sem komið hefur upp í dælustöðv-
um borgarinnar?!
Taldi borgin betra að fela hætt-una fyrir borgarbúum?
Hefur borgin engum skyldum aðgegna gagnvart borgarbúum
þegar svona kemur upp á?
Dagur B.
Eggertsson.
Átti borgin ekki að
vara við hættunni?
STAKSTEINAR
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Sala á áfengi gegnum ÁTVR var
meiri fyrri hluta ársins en á sama
tímabili í fyrra þótt þá hafi verið
um metár að ræða.
Sala á sígarettum heldur hins
vegar áfram að dragast saman og
nam samdrátturinn á fyrri hluta
ársins nærri 9,6% borið saman við
fyrri hluta ársins 2016.
Áfengissala meiri en í fyrra
Uppsöfnuð áfengissala frá jan-
úar til júní í ár er tæplega 600 þús-
und lítrum meiri en á sama tíma í
fyrra og er um 6,3% aukningu að
ræða. „Skýringin er kaupmáttar-
aukning, en aðrir þættir eins og
gott veður og fjölgun ferðamanna
geta líka haft áhrif til aukningar,“
segir Sveinn Víkingur Árnason,
framkvæmdastjóri hjá ÁTVR.
Hann telur þó að landsmenn eigi
sjálfir mestan þátt í þeirri sölu-
aukningu sem orðið hefur á áfengi.
Sterk fylgni sé á milli kaupmáttar
og áfengissölu en verð á áfengi hef-
ur ekki hækkað í samræmi við
kaupmáttaraukninguna sem orðið
hefur á undanförnum misserum.
Áfengisgjaldið hafi verið hækkað í
fyrra, en sé þó ekki komið upp í
það hlutfall sem lagt var upp með
1995 þegar það var sett á.
Samdráttur í tóbakssölu
Sala á sígarettum hefur minnkað
um um það bil 46.500 karton miðað
við júní í fyrra. Er það allmikill
samdráttur í sölu sem þó hefur far-
ið minnkandi ár frá ári, en tóbaks-
gjald var hækkað um sl. áramót.
Sala á sígarettum hefur farið
minnkandi undanfarin ár en
minnkunin nú er meiri en árin á
undan.
Sala á neftóbaki er heldur minni
það sem af er árinu en á sama
tímabili í fyrra.
„Talsverð hækkun varð á tóbaks-
gjaldi á neftóbak um áramótin og
virðist það hafa haft áhrif til
minnkunar á söluna á þessu ári,“
segir Sveinn Víkingur. „Við gætum
því dregið þá ályktun að verð-
hækkanir á neftóbaki hafi haft
áhrif til minnkunar á sölu.“
Fram kemur í ársskýrslu ÁTVR
fyrir árið 2016, að reksturinn hafi
aldrei gengið jafn-vel í 95 ára sögu
fyrirtækisins. Var hagnaður ársins
rúmlega 1,6 milljarðar króna.
Tóbakssala
dregst saman
Sala ÁTVR á áfengi og sígarettum 2013-17
Áfengissala, jan.-júní (milljónir lítra) Sígarettur, jan.-júní (þúsundir kartona)
10
8
6
4
2
0
2013 2014 2015 2016 2017
8,5 8,8
8,9
9,5
10
501 534 517 492
445
Sala á áfengi heldur áfram að aukast
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
umhverfis- og skipulagssviðs um
breytingar á skilmálum deiliskipu-
lags Njálsgötureits. Breytingin
felst í því að heimilað verði að hafa
gististarfsemi við Barónsstíg en
borgarráði bárust 22 athugsemdir
varðandi málið. Tillagan var sam-
þykkt með fjórum atkvæðum borg-
arráðsfulltrúa Samfylkingarinnar,
Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna
og Pírata.
Benóný Ægisson, formaður Íbúa-
samtaka Miðborgar Reykjavíkur,
segist harma ákvörðun borgarráðs
og samtökin muni mótmæla þessari
ákvörðun. ,,Of mikið af íbúðar-
húsnæði er nú þegar nýtt fyrir
ferðamannagistingu,“ segir Benóný
og bætir við að mikil þörf sé á íbúð-
um fyrir ungar fjölskyldur.
,,Íbúasamtökin kröfðust þess að
borgarráð myndi framfylgja stefnu
borgarinnar um að ekki rísi fleiri
hótel í miðborginni. Þetta er hið
versta mál að þeir skuli fara
framhjá þeirri stefnu, fólk þarf að
geta treyst því að ákvarðanir
stjórnvalds standi.“
Í bókun sem borgarráðsfulltrúar
sem greiddu atkvæði með tillögunni
sendu frá sér kemur fram að í
gildandi aðalskipulagi sé Baróns-
stígur skilgreindur sem aðalgata og
því sé erfitt að finna málefnaleg
rök fyrir því að hafna því að deili-
skipulagi á Njálsgötureit verði
breytt í samræmi við það. „Almenn
stefnumörkun borgarinnar er samt
sem áður skýr og miðar að því að
vernda íbúðabyggð í miðborginni,“
segir í bókuninni. urdur@mbl.is
Ekki tekið tillit
til athugasemda
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Veður víða um heim 7.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 10 súld
Akureyri 16 skýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 19 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 rigning
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 29 léttskýjað
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 15 alskýjað
London 26 léttskýjað
París 33 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 24 skúrir
Berlín 25 þrumuveður
Vín 30 léttskýjað
Moskva 11 skúrir
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 16 þrumuveður
Barcelona 29 heiðskírt
Mallorca 33 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 24 skýjað
New York 20 rigning
Chicago 27 skýjað
Orlando 31 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:23 23:44
ÍSAFJÖRÐUR 2:35 24:41
SIGLUFJÖRÐUR 2:15 24:27
DJÚPIVOGUR 2:42 23:24