Morgunblaðið - 08.07.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ég er bara svona hobbí-kall. Þetta byrjaði þegarég var í Ármúlaskólafyrir margt löngu. Þar
komst ég fyrst í kynni við renni-
bekk hjá smíðakennara. Í mörg ár
lá þetta niðri þar til ég fór að
kenna smíði,“ segir Kolbeinn Kon-
ráðsson.
Hann segist hafa byrjað á því
að kaupa sér lítinn rennibekk og
móta sér sérstöðu í smíðinni. „Ég
ákvað strax að gera hlutina öðru-
vísi en almennt gerist. Ég vinn
mest úr birki, það er fallegasti og
skemmtilegasti viðurinn. Með því
að fara beint ofan í viðinn í stað
þess að fara þvert á bolinn næ ég
að halda berkinum. Þannig fær
hver hlutur sitt einkenni, fær að
halda sér og njóta sín,“ segir Kol-
beinn, sem rennir mest skálar og
glös.
„Vanalega eru munir úr tré ol-
íubornir. Þá hluti sem ég renni
með berkinum lakka ég með vatns-
lakki. Það er engin olía sem
heldur berkinum. Af
því að ég nota
vatnslakk er hægt
að nýta skálarnar
undir matvæli. Glös-
in og könnurnar eru
olíubornar en ég
nota olíu sem er við-
urkennd til nota á
matarílátum,“ segir
Kolbeinn.
Konan kom öllu
af stað
Fyrstu árin notaði
Kolbeinn nánast ein-
göngu efnivið úr garð-
inum heima hjá sér. „En
svo fékk ég boð um tré úr
öðrum görðum og skógum.
Ég er núna að smíða úr
elsta birkiskógi í Skagafirði
sem er við þjóðveg eitt í
Akrahreppi.“
Kolbeinn vill ekki kaupa efni
og líma saman. „Ég vil helst kom-
ast beint í skóginn eða höggva tréð
sjálfur. Það eru tvennar svalir á
húsinu hjá mér og þar undir er
fínasta þurk- og geymslupláss fyr-
ir birkið og annan við
sem mér áskotnast.
Linda Gunnarsdóttir, eigin-
kona mín, tekur þessu vel; hún er
vön því að hafa þetta svona. Það er
eiginlega hún
sem kom
framleiðslunni
minni á fram-
færi. Þetta
vatt upp á sig
þegar Linda fór
að setja myndir
á fésbókina. Hug-
myndin í upphafi
var að renna muni fyr-
ir fjölskylduna. Linda tekur þátt í
þessu með mér og sér um að mála
Rennir listaverk úr
viði og birkiberki
Kolbeinn Konráðsson, smiður í Varmahlíð í Skagafirði, býr á 4.000 fermetra
skógivaxinni eignarlóð. Hann hefur undanfarin ár unnið alls kyns handverk úr
efniviði úr eigin garði. Kolbeinn vinnur að mestu úr birki og selur afurðir sínar,
skálar og glös, á handverkssýningum víða um land. Fyrir hver jól rennir hann
jólasveina og snjókalla sem eiginkona hans, Linda Gunnarsdóttir, málar.
Hjónakrúsir Renndar kaffikrúsir með nöfnum
hjónanna. Kolbeinn fer með krúsirnar á allar
handverkssýningar. Það er birkibragð af
kaffinu í byrjun.
Listamaður Kolbeinn
Konráðsson er með
margar hugmyndir í
kollinum.
Gestum á safni einu í London gefst
nú tækifæri til þess að setja saman
beinagrind af átta metra löngum
hval sem tveir sjómenn fengu í netið
fyrir 157 árum. Þetta kemur fram á
vef breska blaðsins Guardian.
Hvalurinn þótti mikill fengur og
vakti víða athygli.
Árið 1948 var beinum hvalsins
komið fyrir á safninu í London en
aldrei fyrr hefur fundist pláss fyrir
þau öðruvísi en að geyma þau í sér-
merktum sýningarskápum. Þangað
til núna. Framkvæmdastjóri safns-
ins, Jack Ashby, fullyrti að hvalurinn
væri stærsta dýr safnsins en sagði
þó að starfsmenn safnsins væru
ekki vissir um að öll beinin væru til
staðar, þar sem þeim hefði aldrei
verið raðað upp á réttan hátt. Því
var ákveðið að bjóða fólki að koma
og taka þátt í því að púsla bein-
unum saman til að reyna að fá
heildstæða mynd á dýrið.
Um afar fágætan hval er að ræða
þar sem þessi tegund heldur sig að
mestu djúpt neðansjávar. Árið 2006
komst þó hvalur af þessari tegund í
fréttirnar þegar til hans sást synda
upp Thames ána í hjarta Lundúna.
Ekki tókst að koma dýrinu lifandi
aftur til sjávar.
London Museum leggur í óvanalegt verkefni
REUTERS
Hvalur Gaman er að fá að setja saman beinagrind af stórum hval.
Gestir fá að púsla beinum
Breska rokkhljómsveitin
Coldplay hefur gefið út lag í
samstarfi við tónlistar-
goðsögnina Brian Eno en sá er
þekktur fyrir að hafa starfað
með tónlistarmanninum David
Bowie. Þetta kemur fram á vef
The Guardian. Markmiðið með
útgáfu lagsins er að styðja
flóttamenn sem leggja í lífs-
hættulega för yfir Miðjarðar-
hafið til þess að komast til Evr-
ópu í leit að betra lífi heldur en
heima fyrir.
Lagið Aliens er fyrsta lagið
sem birt er af væntanlegri smá-
skífu Coldplay, Kaleidoscope. Í
tilkynningu frá hljómsveitinni
kemur fram að allur ágóði af
laginu muni renna til hjálp-
arstöðvar á Möltu sem aðstoðar
flóttamenn sem þangað koma, auk þess sem hjálparsveitir eru sendar út
reglulega til þess að aðstoða flóttamenn á hafi úti.
Coldplay var stofnuð árið 1996 og hefur átt góðu gengi að fagna allar götur
síðan. Hljómsveitin hefur gefið út fjórar breiðskífur sem allar hafa slegið í
gegn og sömuleiðis hefur sveitin gefið út fjölda smáskífa. Ein þeirra, Clocks,
vann til Grammy-verðlauna árið 2004. Kaleidoscope, platan sem skartar lag-
inu Aliens, mun koma út í fullri lengd síðar í þessum mánuði, hinn 14. júlí
næstkomandi.
Hljómsveitin Coldplay lætur ekki sitt eftir liggja
Sömdu lag fyrir fólk á flótta
Coldplay Hljómsveitarmeðlimir í rokksveit-
inni reynast vera með hjarta úr gulli.
Ljósmynd/Tom Sheehan
Starfsmannafatnaðu
fyrir hótel og veitingahú
Höfðabakka 9,
110 Reykjavík
Sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is
www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið • Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina • Þvottahúsið • Sérverslunina
Rúmföt og handklæð
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjór
r
s
i
nandann 85
ÁRA