Morgunblaðið - 08.07.2017, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.07.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 Alexander Gunnar Kristjánsson agunnar@mbl.is Ekki er nema tæpur mánuður í stærstu ferðahelgi sumarsins, versl- unarmannahelgina. Að venju er nóg um að vera um allt land og því ekki seinna vænna að taka saman hátíða- höld helgarinnar. Margar rótgrónar hátíðir fara fram um þessa helgi og á því verða litlar breytingar í ár. Evrópukeppnin í mýrarbolta sem haldin hefur verið á Ísafirði síðustu ár færir sig um set en þetta árið verður keppt á nýjum keppnis- völlum í Bolungarvík. Að sögn móts- haldara er það gert til að bæta þjón- ustu við keppendur en nýja svæðið er minna og tónleikastaður, sund- laug, tjaldsvæði og keppnisvellir allt á sama blettinum. Þetta sé einnig gert til að bregðast við fækkun keppenda undanfarin ár. Nýjungar í Neskaupstað Vatnaskil verða í Neskaupstað þar sem fjölskylduhátíðin Neistaflug er haldin því í fyrsta sinn í tæpa tvo áratugi munu skemmtikraftarnir Gunni og Felix ekki kynna hátíðina. Þeirra í stað munu leikararnir Rún- ar Freyr og Hallgrímur Ólafsson stýra fjöldasöng á föstudegi auk þess sem hljómsveitin Amabadama leikur fyrir dansi. Árlegt Barðsnes- hlaup verður ræst á laugardags- morgni og Golfklúbbur Norðfjarðar stendur fyrir Neistaflugsmótinu. Stærsta samkoma verslunar- mannahelgarinnar undanfarna ára- tugi hefur verið þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum en jafnan leggja um 15.000 manns leið sína til Eyja til að berja listamennina augum, skemmta sér og öðrum. Meðal þeirra sem fram koma eru Páll Óskar, Hildur og rapparinn Herra Hnetusmjör að ógleymdum Aroni Can. Tvöföld hátíð fyrir norðan Á Akureyri verða tvær hátíðir haldnar samhliða, Íslensku sumar- leikarnir og Ein með öllu. Ein með öllu er hefðbundin bæjarhátíð með útimarkaði, hoppuköstulum og hinu árlega kirkjutröppuhlaupi. Helstu tónlistarmenn láta sig að sjálfsögðu ekki vanta en Gréta Salóme, Aron Can og Páll Óskar koma fram auk þess sem norðlenska rokk- hljómsveitin 200.000 naglbítar snýr aftur á heimaslóðir með Vilhelm Anton Jónsson heimspeking í broddi fylkingar. Íslensku sumarleikarnir eru haldnir í samstarfi við Hjólreiða- félag Akureyrar en keppt verður í ýmiss konar hjólreiðagreinum svo sem fjallabruni í Hlíðarfjalli og kirkjutröppuhjólreiðum. Innipúkum fjölgar Þeim sem vilja njóta kyrrðarinnar í borginni um verslunarmannahelg- ina er bent á Innipúkann, tónlistar- hátíð sem fram fer á skemmtistöð- unum Húrra og Gauknum í miðborg Reykjavíkur. Hátíðin hefur notið vaxandi vinsælda undanfarin ár. Gatan á milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu, Naustin, verður tyrfð og lokuð fyrir bílaumferð meðan á hátíðinni stendur. Þar verður boðið upp á götuhátíð samhliða tónleika- haldinu sem fer mestmegnis fram innandyra, eins og nafn hátíðarinnar ber með sér. Fram koma Alvia Is- landia, Daði Freyr, FM Belfast, Vök og fleiri. Undanfarin 65 ár hefur Hvíta- sunnukirkjan haldið kristilegt fjöl- skyldumót undir nafninu Kotmót. Á því verður engin breyting í ár en bindindismótið verður haldið í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Bæna- stundir og samverustundir eru á dagskrá og auk þess gefst gestum kostur á að skírast í söfnuðinn. Úti er ævintýri Allt er í heiminum hverfult og þar eru bæjarhátíðir engin undantekn- ing. Ekkert síldarævintýri verður á Siglufirði þessa verslunarmanna- helgina en hátíðin hefur verið haldin síðustu 26 ár. Í samtali við Morgun- blaðið í síðasta mánuði sagði Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Fjalla- byggð, lítinn áhuga hafa verið fyrir Síldarævintýrinu síðustu ár og því hefði verið ákveðið að leggja hátíð- ina niður en halda aðra bæjarhátíð vikuna fyrir verslunarmannahelgi. Baráttan um verslunarmanna- helgargestina er enda hörð. Hátíðarhöld um allt land  Rótgrónar bæjarhátíðir um verslunarmannahelgi  Mýrarboltinn fluttur til Bolungarvíkur  Gunni & Felix fjarri góðu gamni á Neistaflugi að þessu sinni Morgunblaðið/Styrmir Kári Umferð Verslunarmannahelgin er stærsta ferðahelgi ársins. Langar um- ferðarteppur geta myndast inn og út úr borginni og á helstu vegum. Orkustofnun og Orkudeild banda- ríska utanríkisráðuneytisins und- irrituðu í síðasta mánuði sam- komulag um samstarf á sviði alþjóðlegrar þróunar jarðhita sín á milli. Baldur Pétursson, verkefn- isstjóri alþjóðlegra verkefna og kynningar hjá Orkustofnun, og Paul Hueper, framkvæmdastjóri orkuáætlana hjá bandaríska utanríkisráðuneytinu, undirrituðu samkomulagið. Helsta markmið samkomulags- ins er að styðja og efla þróun jarðhita í þriðju löndum með sam- starfi um þjálfun og aðstoð á sviði tækni, auðlindanýtingar og reglu- verks. Samstarf við Orku- deild Bandaríkjanna Matsfyrirtækið Fitch Ratings til- kynnti í gær að það hefði hækk- að lánshæfiseinkunn íslenska rík- isins á langtímaskuldbindingum í innlendri og erlendri mynd í „A-“ úr „BBB+“. Þá eru horfur fyrir einkunnina sagðar jákvæð- ar. Drifkraftar hækkunarinnar eru einkum batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt sterkum hagvexti. Segir í tilkynningu fyrirtækis- ins að þættir sem leitt gætu til frekari hækkunar lánshæfis- einkunnarinnar séu geta þjóðar- búsins til að mæta ytri áföllum eftir afnám fjármagnshafta, áframhaldandi hagvöxtur án of mikils þjóðhagslegs ójafnvægis og áframhaldandi lækkun skuldahlutfalla hins opinbera, studd af ábyrgri ríkisfjármála- stefnu. Fitch hækkar einkunn ríkissjóðs Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Með tilkomu lyfjagagnagrunns er betur hægt að fylgjast með því hvaða lyfjum hefur verið ávísað á sjúkling,“ segir Ólafur B. Einarsson, sérfræð- ingur hjá embætti landlæknis, en á fyrri helmingi þessa árs fengu 75 þúsund einstaklingar ávísað ávana- bindandi lyfjum. „Notkun lækna á lyfjagagna- grunni kemur í veg fyrir svokallað læknaráp þar sem einstaklingar verða sér út um aukið magn ávana- bindandi lyfja með því að fara á milli lækna. Það getur engu að síður átt sér stað í dag sökum þess að ekki all- ir læknar nýta sér lyfjagagnagrunn- inn.“ Í samantekt sem Ólafur kom að fyrir hönd embættis landlæknis kemur fram að á síðustu árum hefur þeim fækkað sem eru á of stórum skömmtum af svefn- og róandi lyfj- um og einnig fækkar þeim sem fá stóra skammta af örvandi lyfjum. „Það eru jákvæðar fréttir í þessu en einnig neikvæðar. Það er fækkun í einhverjum flokkum og fjölgun í öðrum því miður,“ segir Ólafur en það er áhyggjuefni að hans mati að enn fjölgar í hópi þeirra sem fá ávís- að sterkum verkjalyfjum í of miklum mæli. Þannig eru 43 einstaklingar sem fá lyfin oxýkódon og 168 sem fá parkodin forte í stórum skömmtum. Í leiðbeiningum embættis land- læknis segir að almennt gildir um ávanabindandi lyf, eins og öll önnur lyf, að ekki ætti að ávísa þeim nema undirliggjandi vandi hafi verið greindur að fullu og að fyrir liggi skýr meðferðaráætlun. Morgunblaðið/Arnaldur Lyf Lyfjagagnagrunnur hjálpar læknum að takmarka svokallað læknaráp sjúklinga sem sækjast eftir stærri skömmtum ávanabindandi lyfjum. Stórir skammtar enn vandamál  Mikilvægt að takmarka læknaráp

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.