Morgunblaðið - 08.07.2017, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
Ný glæsileg
heimasíða
acredo.is
Hátúni 6a Sími 577 7740
carat.is acredo.is
Trúlofunarhringir
fh
Giftingarhringir
fh
Demantsskartgripir
STUTT
● Brimgarðar juku við hlut sinn í
tveimur fasteignafélögum sem skráð
eru í Kauphöll í vikunni, samkvæmt ný-
birtum hluthafalista. Fasteignafélögin
þrjú sem skráð eru á markað hafa lækk-
að um 9-12% undanfarinn mánuð.
Fjárfestingafélagið á 5,7% hlut í Eik
eftir að hafa keypt fyrir tæplega 150
milljónir króna í vikunni. Markaðsvirði
hlutarins er 2,1 milljarður króna. Brim-
garðar keyptu sömuleiðis fyrir 47 millj-
ónir í Reitum fasteignafélagi og jókst
hlutafjáreignin í 9%. Markaðsvirði hlut-
arins er 1,3 milljarðar króna.
Brimgarðar eiga 1,7% hlut í þriðja
fasteignafélaginu sem skráð er á mark-
að, en það er Reginn. Sá hlutur er met-
inn á 712 milljónir króna. Brimgarðar
eru í eigu Guðnýjar, Eggerts, Halldórs
og Gunnars Gíslabarna.
Bættu við sig í tveimur
fasteignafélögum
Herbergjanýting Icelandair Hotels í
júní dróst saman um 4,5 prósentu-
stig miðað við sama mánuð á síðasta
ári, en nýtingin var 80%. „Þessi her-
bergjanýting er mjög góð í alþjóð-
legum samanburði. Síðasta ár var
óvenjugott og herbergjanýting í
borginni var ótrúlega góð. Það er því
alls ekki hægt að kvarta yfir þessari
nýtingu,“ segir Magnea Þórey
Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri
félagsins, í samtali við Morgunblað-
ið.
Seldum gistinóttum fjölgaði á
sama tíma um 5%, en í júní voru seld-
ar gistinætur 32.162 samanborið við
30.669 á síðasta ári.
Magnea Þórey segir að sterkt
gengi krónunnar hafi mikil áhrif.
„Það er miklu dýrara fyrir ferða-
menn að koma til okkar núna en á
sama tíma í fyrra. Við erum alveg
farin að finna fyrir því að áfanga-
staðurinn þykir dýr í samkeppni við
marga aðra áfangastaði.“
Þynnist úr hópum
Hún segir að mestu máli skipti að í
fyrra hafi allir hópar verið að skila
sér en núna sé að þynnast úr hópum.
„Gestirnir dvelja skemur en þar að
auki er mun minna um bókanir með
skömmum fyrirvara.“
Í júní voru framboðnar gistinætur
Icelandair Hotels rúmlega 40 þús-
und samanborið við rúmlega 36 þús-
und í júní á síðasta ári. Aukningin á
milli ára nemur því alls 11%. Þessa
aukningu má rekja til opnunar Ca-
nopy by Hilton-hótelsins við Smiðju-
stíg í miðbæ Reykjavíkur á síðasta
ári og fleiri opnunardaga Eddu hót-
elanna víðs vegar um landið. gislirun-
ar@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gisting Seldar gistinætur Icelandair Hotels í júní voru rúmlega 32 þúsund.
Herbergjanýting
dróst saman
Framboðnar gistinætur aukast um
11% á milli ára hjá Icelandair Hotels
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Woody Tasch, upphafsmaður Slow
Food-hreyfingarinnar, talar fyrir því
að fjármagnseigendur leggi að
minnsta 1% af auðlegð sinni í að
styðja við bakið á litlum, umhverfis-
vænum matvælafyrirtækjum sem
starfrækt eru í nágrenni hvers og
eins. Með því sé jafnframt hlúð að
menningararfleifð, heilsu neytenda
og uppbyggingu nærsamfélaga.
Hreyfingin er rekin án hagnaðar-
sjónarmiða og tengir saman fjár-
festa og matarfrumkvöðla. „Það er
ekki hagnaðarvon sem rekur mig
áfram heldur langar mig til að skapa
langtímavirði fyrir samfélagið,“ seg-
ir hann í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að hlýnun jarðar sé al-
varlegt vandamál sem leysa þurfi
með róttækum aðgerðum. „Ein af
þeim lausnum er að hægja á ferð
fjármagns,“ segir hann og hvetur því
til þess að færa hluta af auðlegð fjár-
festa úr alþjóðlega hagkerfinu í
smærri vistvæn matvælafyrirtæki.
„Við erum ekki á móti alþjóðavæð-
ingu heldur á móti því að allt sé al-
þjóðavætt á kostnað samfélagsins,“
segir Tasch.
Að hans sögn tengja samtökin
saman einstaklinga sem hafa fé á
milli handanna, matvælafrumkvöðla
og bændur og reyni að fræða þá og
hvetja áfram í að sinna vistvænum
verkefnum.
Sex milljarða fjárfesting
Slow Food-hreyfingin starfar
einkum í Bandaríkjunum en teygir
anga sína til Kanada, Sviss, Belgíu
og Frakklands. Frá árinu 2010 hefur
hreyfingin fjárfest fyrir að jafnvirði
um sex milljarða króna í rúmlega 600
fyrirtækjum. Meðalfjárhæð sem
rennur í hvert og eitt er tæplega tíu
milljónir króna. Hann segir ekki
ljóst hver arðsemi fjárfestinganna sé
því þeim sé ekki stýrt miðlægt held-
ur ráða meðlimir hvernig þeir haga
sínum málum. Megnið af fjárfesting-
unum séu lán sem veitt séu á lágum
vöxtum. „Við munum aldrei hagnast
verulega á þessu. Annaðhvort mun-
um við tapa litlu eða græða lítið,“
segir Tasch.
Hann er á eftirlaunum en er í fullu
starfi að sinna Slow Money. Á ní-
unda áratugnum starfaði hann sem
áhættufjárfestir í New York. Fyrir
tíu árum skrifaði hann bók um mál-
efnið sem ber nafnið Inquiries into
the Nature of Slow Money: Invest-
ing as if Food, Farms, and Fertility
Mattered. „Ég var ekki að reyna að
hrinda af stað byltingu en þetta varð
að hreyfingu,“ segir hann og nefnir
að 50-100 þúsund manns teljist til
meðlima í Bandaríkjunum. „Tugir
þúsunda mæta á fundi,“ segir hann.
Tasch flutti erindi fyrir skömmu í
Sjávarklasanum og var hann á veg-
um frumkvöðlafyrirtækisins Spor í
sandinn.
Fjárfesta í umhverfisvænni
matvælaframleiðslu
Woody Tasch segir að það sé viðleitni til að draga úr hlýnun jarðar
Umhverfismál Woody Tasch, stofnandi Slow Food, segir að hagnaðar-
sjónarmið reki hann ekki áfram í umhverfisvænum fjárfestingum.
Morgublaðið/Hanna
Fjárfest fyrir
sex milljarða
» Meðlimir Slow Food hafa
fjárfest fyrir að jafnvirði sex
milljarða króna í rúmlega
600 fyrirtækjum.
» Meðalfjárhæð sem rennur
í hvert og eitt er tæplega tíu
milljónir króna.
» Fjárfestingarnar eru eink-
um lán á lágum vöxtum.
» Woody Tasch skrifaði bók
fyrir tíu árum um
fjárfestingastefnuna Slow
Food.
Í dreifibréfi til lífeyrissjóða, sem
fjármálaeftirlitið birti í frétt á
heimasíðu sinni í gær, ítrekar eftir-
litið að sjóðfélagar sem ráðstafa
hluta í séreignasjóð ráði sjálfir í
hvaða séreignasjóð það verður.
Bréfið er sent út í tilefni breyt-
inga sem urðu á lífeyriskerfinu frá
og með síðustu mánaðamótum þeg-
ar framlag atvinnurekenda hækk-
aði um 1,5% upp í 10% af launum og
launþegum bauðst að setja allt að
2% af launum í svokallaða til-
greinda séreign. „Vegna villandi
fréttaflutnings og upplýsinga á
heimasíðum lífeyrissjóða ákvað
Fjármálaeftirlitið að senda lífeyris-
sjóðum dreifibréf þar sem ítrekað
er að þeir sjóðfélagar sem ráðstafa
hluta í séreignasjóð ráði sjálfir í
hvaða séreignasjóð það verður,“
segir á heimasíðu FME.
Árni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Gildis-lífeyrissjóðs,
sagði í frétt Morgunblaðsins um
málið á sínum tíma að skýrt kæmi
fram að viðbótariðgjaldið skyldi
greiðast í þann sjóð sem skyldu-
aðildin byggðist á. Í sama streng
tók Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, en breytingin er
grundvölluð á samkomulagi ASÍ og
SA frá því í janúar 2016.
Í dreifibréfinu fer Fjármálaeft-
irlitið fram á að lífeyrissjóðir upp-
lýsi sjóðfélaga sína um rétt sinn til
að ráðstafa séreignarhluta iðgjalds
vegna lágmarkstryggingaverndar
til annars aðila. Þá fer Fjármálaeft-
irlitið fram á að lífeyrissjóðir yfir-
fari heimasíður sínar og fjarlægi
villandi upplýsingar um framan-
greint og leiðrétti fréttaflutning
sinn ef tilefni er til.
FME segir sjóð-
félaga ráða séreign
Lífeyrissjóðir fjarlægi villandi upplýsingar
Frjálsi lífeyrissjóðurinn innleysti
nýverið um 10 milljarða króna úr
sjóðum í rekstri Stefnis, að sögn
Arnaldar Loftssonar, fram-
kvæmdastjóra lífeyrissjóðsins. Á
móti innlausn fékk lífeyrissjóðurinn
reiðufé og undirliggjandi verðbréf.
Fyrir vikið rataði Frjálsi á hlut-
hafalista ýmissa skráðra félaga.
Arnaldur Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsa lífeyris-
sjóðsins, segir í samtali við Morgun-
blaðið að þetta sé gert í tengslum
við breytingar á fjárfestingarheim-
ildum lífeyrissjóða við gildistöku
nýrra laga 1. júlí sl. „Hluti af sér-
eign sjóðfélaga í Frjálsa lífeyris-
sjóðnum er bundin séreign sem er
hluti af lágmarkstryggingarvernd.
Með breyttum lögum gilda mismun-
andi fjárfestingarheimildir um lág-
markstryggingarvernd og viðbót-
artryggingarvernd en áður giltu
mismunandi fjárfestingarheimildir
um samtryggingu og séreign,“ seg-
ir Arnaldur. Með lagabreytingunni
fellur bundin séreign nú undir fjár-
festingarheimildir lífeyrissjóða sem
veita lágmarkstryggingarvernd en
þar eru þrengri skorður á há-
markshlutdeild í sjóðum sem fjár-
fest er í heldur en í fjárfestingar-
heimildum sem gilda um viðbótar-
tryggingarvernd.
Innleysti 10 milljarða
8. júlí 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.44 104.94 104.69
Sterlingspund 135.43 136.09 135.76
Kanadadalur 80.69 81.17 80.93
Dönsk króna 15.958 16.052 16.005
Norsk króna 12.473 12.547 12.51
Sænsk króna 12.331 12.403 12.367
Svissn. franki 108.19 108.79 108.49
Japanskt jen 0.9212 0.9266 0.9239
SDR 144.91 145.77 145.34
Evra 118.7 119.36 119.03
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 142.8688
Hrávöruverð
Gull 1220.4 ($/únsa)
Ál 1925.0 ($/tonn) LME
Hráolía 48.28 ($/fatið) Brent