Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti og
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
hittust í fyrsta sinn augliti til auglitis
á fundi 20 helstu iðnríkja heims, G20,
í gær. Loftslagsmál voru í fyrirrúmi
á fyrsta degi G20-fundarins, en
óeirðir vörpuðu nokkrum skugga á
daginn.
Beðið hafði verið eftir fundi þeirra
Trumps og Pútíns með nokkurri
eftirvæntingu, en nokkur spenna
hefur ríkt á milli Bandaríkjanna og
Rússlands síðustu mánuði.
Bæði Trump og Pútín óskuðu þess
engu að síður að samræður þeirra
gætu leitt til árangurs á ýmsum svið-
um og dregið úr spennu milli
ríkjanna, en þá hefur til dæmis
greint á um það hvernig leysa eigi
ástandið í Sýrlandi, sem og það
hvernig taka eigi á Norður-Kóreu.
Lögreglan óskar eftir liðsauka
Hamborg hefur verið undirlögð af
mótmælendum mestalla vikuna
vegna fundarins, og meinuðu þeir
meðal annars Melaniu Trump, for-
setafrú Bandaríkjanna, að komast á
fundinn. Þá ollu þeir nokkrum eigna-
spjöllum í nágrenni fundarstaðarins.
Lögreglan í Hamborg óskaði í gær
eftir enn frekari liðsauka, en nú þeg-
ar hafa um 20.000 lögreglumenn víðs
vegar að frá Þýskalandi og Austur-
ríki verið kallaðir til starfa. Angela
Merkel Þýskalandskanslari for-
dæmdi í gær þá mótmælendur sem
beitt hefðu ofbeldi. Skiljanlegt væri
ef fólk vildi koma skoðun sinni á
framfæri með friðsamlegum hætti,
en það væri engin afsökun fyrir of-
beldi.
Einangraður í loftslagsmálum
Í pallborðsumræðum allra þátt-
takenda á fundinum kom fram nokk-
uð skýr vilji hinna leiðtoganna 19 að
staðið yrði áfram við skilmála Par-
ísarsáttmálans, þrátt fyrir að Trump
hefði ákveðið að Bandaríkin myndu
ekki taka þátt í því.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í viðtali við breska
ríkisútvarpið BBC fyrir fundinn að
þrýst yrði á Trump um helgina að
draga ákvörðun sína til baka. Upp-
kast að ályktun fundarins, sem AFP-
fréttastofan hafði undir höndum,
benti hins vegar til að Trump hefði
setið við sinn keip.
Trump og Pútín hittast
í skugga mótmæla
AFP
Leiðtogafundur Pútín og Trump takast í hendur á þeirra fyrsta fundi.
Loftslagsmálin voru fyrirferðarmikil á fyrri degi G20-fundarins Lögreglan í
Hamborg óskar eftir liðsauka vegna mótmælanna Merkel fordæmir ofbeldið
Mótmæli hafa sett sterkan svip á fund G20-
ríkjanna í Hamborg. Um 20.000 lögregluþjónar
eru nú á vaktinni í Hamborg, en óeirðir brutust
út aðfaranótt föstudags. 45 mótmælendur voru
handteknir í róstunum, en þeir höfðu meðal ann-
ars kveikt í bílum, brotið glugga og skotið hand-
blysum að lögreglunni. Mótmæli héldu áfram í
gær og beitti lögreglan meðal annars vatns-
byssum til þess að halda aftur af fjöldanum.
AFP
Haldið aftur af mótmælendum með vatni
Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, óttast
ekki skemmdarverk á fyrirhugaðri styttu af Járn-
frúnni, Margraret Thatcher, sem var forsætisráð-
herra Bretlands á árunum 1979-1990 og leiðtogi
breska íhaldsflokksins.
„Hætta við skemmdarverk á styttunni á ekki að
koma í veg fyrir að hún verði reist,“ sagði May í sam-
tali við BBC í gær.
Ætlunin er að reisa bronsstyttu af forsætisráð-
herranum fyrrverandi fyrir framan breska þing-
húsið. Kostnaðurinn er áætlaður um 300 þúsund
pund eða rétt rúmar 40 milljónir íslenskra króna.
Styttan mun standa nærri styttunni af samflokks-
manni Thatcher og May, sjálfum Winston Churchill.
Stytta af járnfrúnni reist
við breska þinghúsið
Margaret Thatcher
Bílaframleiðand-
inn Tesla hefur
samið við ástr-
alska orkufyrir-
tækið Neoen um
smíði stærstu
liþíum-rafhlöðu í
heimi. Um er að
ræða 100 mega-
vatta rafhlöðu
en til samanburðar verður ný
Hvammsvirkjun um 90 megavatta
virkjun.
„Þessu fylgir vissulega ákveðin
áhætta, því þetta verður stærsta
rafhlaða í heimi sem við smíðum,“
sagði Elon Musk, stofnandi og
stjórnandi Tesla. Bætti hann við
að töluverður stærðarmunur yrði
á nýju rafhlöðunni og þeirri sem
er stærst í dag, en hún er 30
megavött.
Hugmyndin með rafhlöðunni er
að lágmarka rafmagnsleysi í Suð-
ur-Ástralíu en rafhlaðan verður
tengd vindmyllugarði Neoen.
ÁSTRALÍA
Tesla byggir stærstu
rafhlöðu heims
„Við vorum
svo nálægt
því,“ er haft
eftir einum af
samninga-
mönnum um
sameiningu
gríska og
tyrkneska
hluta Kýpur í
kjölfar þess
að slitnaði
upp úr viðræðum.
Samkvæmt heimild Reuters var
ekki langt á milli deiluaðila en
skortur á trausti felldi viðræð-
urnar.
Ekki liggur ljóst fyrir hvert
framhaldið verður en samkvæmt
heimildum Reuters er ekki líklegt
að samningaviðræður verði teknar
upp að nýju á næstunni.
KÝPUR
Slitnaði upp úr
samningaviðræðum
Flóttamönn-
um, sem
koma á bátum
frá Afríku til
Spánar, hefur
fjölgað tvöfalt
frá því á sama
tíma í fyrra.
Alls komu 360
þúsund flótta-
menn yfir
Miðjarðar-
hafið í fyrra
og sækja flestir til Ítalíu eða 85 þús-
und. Það sem af er þessu ári hafa 59
þúsund flóttamenn komið yfir Mið-
jarðarhafið til Ítalíu og tæp 7 þús-
und til Spánar, sem er 75 prósent
aukning frá sama tíma og í fyrra á
Spáni. Dæmi eru um að flóttamenn
komi matar- og vatnslausir og hafi
verið beittir ofbeldi á leiðinni.
SPÁNN
Flóttamönnum
fjölgar á Spáni
Spenna ríkir milli leiðtoga Kína og
Indlands á fundi G-20 í Hamburg í
Þýskalandi en Kínverjar hafa sakað
Indverja um að senda hermenn inn á
kínverskt yfirráðasvæði í Himalaya-
fjöllum.
Meint atvik á að hafa átt sér stað
þegar forsætisráðherra Indlands,
Narendra Modi, heimsótti Donald
Trump, forseta Bandaríkjanna, rétt
fyrir fund G-20-ríkjanna.
Kína og Indland hafa deilt um
landamæri og svæði í Himalaya-
fjöllunum, bæði austan og vestan
Nepal og hefur komið til átaka vegna
þess, m.a. í Kína-Indlands-stríðinu
árið 1962 og Nathu La og Cho La-
átökunum árið 1967.
Ashok Kantha, fyrrverandi sendi-
herra Indlands í Kína, segir Kín-
verja leggja það í vana sinn að halda
til streitu kröfum sínum sem oft séu
byggðar á ímyndunaraflinu einu
saman.
Spenna milli leiðtoga
Indlands og Kína
AFP
Leiðtogar Forseti Kína hittir for-
sætisráðherra Indlands á G-20.