Morgunblaðið - 08.07.2017, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.07.2017, Qupperneq 26
26 MESSURá morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 Aðventkirkjan í Reykjavík | Í dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Barnastarf. Aðventkirkjan í Vestmanna- eyjum | Í dag, laugardag: Biblíurann- sókn fyrir fullorðna og biblíuskóli fyr- ir börn kl. 11.30. Samkoma kl. 12. Ræðumaður: Gavin Anthony. Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Í dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Jan Danielsen. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Í dag, guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- maður: Stefán Rafn Stefánsson. Biblíufræðsla kl. 11.50. Skemmti- legt barna- og unglingastarf. Um- ræðuhópur á ensku. ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson flytur hugleiðingu og þjónar fyrir alt- ari sem komið verður fyrir á suð- urgafli kirkjunnar. Kórfélagar syngja. Organistinn Krisztina Kalló Szklenár og Sverrir Sveinsson leika á blokk- flautu og kornett. Kaffisopi og sam- félag eftir stundina. ÁSKIRKJA | Sumarferð safn- aðarfélags Ásprestakalls verður farin sunnudaginn 9. júlí. Ekið verður með hópferðabifreið úr Reykjavík að Landeyjahöfn og siglt til Vest- mannaeyja. Samkirkjuleg göngu- guðsþjónusta, tengd goslokahátíð, hefst í Landakirkju kl. 11, þaðan berst hún úr kirkju upp í hlíðar Eld- fells og áfram niður í stafkirkjuna á Skansinum. Sumarleyfi starfsfólks og sóknarprests Áskirkju stendur yfir frá 10. júlí til 22. ágúst og fellur helgihald niður í kirkjunni á meðan. BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Létt og sumarleg samvera með nýj- um lögum og óhefðbundnu messu- formi. Kantor Jónas Þórir og félagar úr Kór Bústaðakirkju. Messuþjónar aðstoða. Prestur er Pálmi Matthías- son. Heitt á könnunni eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Gunnar Sigurjónsson. Org- anisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Fermd verður Ást- rós Ynja Þorsteinsdóttir frá Lúx- emborg. Félagar úr Dómkórnum syngja og organisti er Kári Þormar. Minnt er á bílastæðin gegnt Þórs- hamri. EGILSSTAÐAKIRKJA | Árleg guðs- þjónusta í útileikhúsinu í Selskógi á Egilsstöðum (göngustígur frá bíla- stæði) kl. 10.30. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og prédikar. Torvald Gjerde leikur á harmoniku. Jóhanna Hlynsdóttir, sem fermdist í Egils- staðakirkju í vor, syngur einsöng. Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir. Grill- aðar pylsur og gos eftir stundina. Ef ekki viðrar til útimessu verðum við í Egilsstaðakirkju. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Jóna Hrönn Bolladóttir flytur hug- vekju og þjónar fyrir altari. Jóhann Baldvinsson organisti leikur á org- elið og stýrir almennum safn- aðarsöng. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga. Sam- skot til SÍK. Messuhópur þjónar. Fé- lagar úr kirkjukór Grensáskirkju syngja. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur er Kristín Pálsdóttir. Mola- sopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi- stund kl. 11. Orgelleikur, ritning- arlestur, bænagjörð, altarisganga. Prestur er Jón Helgi Þórarinsson. Douglas A. Brotchie leikur á orgelið. Kaffisopi á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngja. Org- anisti er Steinar Logi Helgason. Al- þjóðlegt orgelsumar, tónleikar laugard. kl. 12 og sunnud. kl. 17. Arno Hartmann organisti frá Þýska- landi leikur. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Tónleikar Schola cantorum miðvikud. kl. 12. Org- eltónleikar fimmtud. kl. 12. Ágúst Ingi Ágústsson leikur. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Eiríkur Jóhannsson, org- anisti er Sólveig Anna Aradóttir. HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Messa kl. 11. Sr. Ninna Sif Svavars- dóttir þjónar. Kór Selfosskirkju syng- ur, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. KEFLAVÍKURKIRKJA | Píla- grímaganga. Gengið verður frá Út- skálakirkju og Keflavíkurkirkju kl. 12 að steinhellunni sem sr. Sigurður B. Sívertsen áði á í óveðri forðum tíð. Gönguhóparnir mætast við Golfskál- ann í Garði og fá hressingu. Gengið frá Golfskálanum kl. 13.30 að stein- hellunni (1 km), þar er hægt að koma inn í gönguna. Göngustjórar verða sr. Bára Friðriksdóttir og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Kristjana Kjartansdóttir segir frá sr. Sigurði og svaðilförum hans. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Æskulýðshópur frá Dan- mörku tekur þátt í athöfninni sem verður með dönsku ívafi. Hreiðar Örn Zoëga prédikar. Sr. Arndís G. Bern- hardsdóttir Linn þjónar fyrir altari. Organisti er Kjartan Jósefsson Ogni- bene og Bryndís Eva Erlingsdóttir leiðir safnaðarsöng. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Ef veð- ur leyfir verður hún haldin í garði kirkjunnar. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Samfélag, kaffi og spjótmyntute að hætti hússins eftir messu. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, prestur er Ása Laufey Sæ- mundsdóttir. Kór Seljakirkju syngur og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel. Kaffi að guðsþjónustu lokinni. SELTJARNARNESKIRKJA | Allt helgihald fellur niður í Seltjarnar- neskirkju í júlímánuði og fram til 8. ágúst vegna viðgerða á kirkjunni. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag 9. júlí kl. 11. Egill Hall- grímsson annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Hljóm- eyki syngur. Fluttir verðar kaflar úr Ljósbroti eftir John Speight. ÚTSKÁLAKIRKJA | Pílagrímaganga. Lagt af stað frá Útskálakirkju og Keflavíkurkirkju kl. 12 að steinhell- unni sem sr. Sigurður B. Sívertsen áði á í óveðri forðum tíð. Gönguhóp- arnir mætast við Golfskálann í Garði og fá hressingu. Kl. 13.30 verður gengið frá Golfskálanum að stein- hellunni (1 km), þar er hægt að koma inn í gönguna. Göngustjórar verða sr. Bára Friðriksdóttir og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Kristjana Kjartansdóttir segir frá sr. Sigurði og svaðilförum hans. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson. Kirkjan í Hruna í Hrunamannahreppi. ORÐ DAGSINS: Hinn týndi sauður. (Lúk. 15) Elsku Mæja mín. Þótt ég viti að þú ert komin heim og átt núna ljúfa daga, þá sakna ég þín mjög mikið, elsku systir mín. Þú varst litla systir mín og mér fannst ég bera mikla ábyrgð á þér. Ég átti að gæta þín og ég hélt því áfram þótt þú værir komin af unglingsárunum. Ég man þegar ég sótti þig á stefnu- mót þegar þú varst að hitta Þór- ólf og þú hlýddir mér og fylgdir mér heim. Ég veit ekki hvað Þórólfi fannst um þessa freku systur þína. Við systurnar vor- um mjög samrýndar og studd- um alltaf hvor aðra hvað sem á bjátaði og það var alveg sér- stakt samband á milli okkar. Við vorum Hafnfirðingar og ég var ekki beint hrifin af því þegar Mæja og Þórólfur ákváðu að setjast að í Kópavoginum. Mér fannst það ekkert skemmti- legt þegar ég óð drullugar göt- urnar á háhælaskónum mínum þegar ég var að heimsækja þig, því þá ferðuðumst við með strætó. En þú elskaðir að eiga heima í Kópavoginum og sást ekkert nema gott við hann. Þú sagðir að það gerði nú minnst til með göturnar, það væri vel hugsað um fólkið í Kópavogin- um. Og það merkilega var að við Siggi fluttum í Kópavoginn líka og höfum búið þar síðan og allt- af líkað vel þar eins og þér, Mæja mín. Þú varst alltaf til staðar og það var gott að leita til þín og fá góð ráð. Við stóðum alltaf saman, í stórum systkina- hópi. Það var okkar hlutverk að axla ábyrgð þegar eitthvað var að innan stórfjölskyldunnar. Ég sé okkur í anda þramma inn á skrifstofur til að berjast fyrir málum sem okkur fannst vera réttlætismál og þá gáfum við ekkert eftir. Ég man þegar mamma og pabbi gátu ekki lengur búið heima, þá fannst okkur ekki hægt að láta þau fara á elliheim- ili. Og það hefði ekki öllum fundist það í lagi að taka þau inn á heimilið. En Mæja mín, þið Þórólfur voruð engum lík, þið tókuð svo fallega á móti þeim og sýnduð þeim svo ynd- islegt viðmót og hlýju. Mamma og pabbi áttu mjög góðar stund- ir hjá ykkur og það var svo notalegt að heimsækja fjölskyld- una til þín og minningarnar sem ég á þaðan eru bara gleði og geislandi kátína. Við nutum þess að heyra sögurnar frá því í gamla daga sem pabbi og mamma þreyttust aldrei á að segja okkur. Elsku Mæja mín, ég var svo stolt af þér, þú hafðir svo fallega söngrödd og ég gleymi því aldr- ei þegar þú söngst dúett með skólabróður þínum á skemmtun í skólanum. Þið sunguð svo fal- lega þannig að allir dáðust að ykkur. Já, þið Þórólfur áttuð eftir að syngja mikið saman og ferðast með kórum út um heim. Ég man líka hvað þú, tveggja, þriggja ára gömul, heillaðir sér- staklega hermennina á stríðs- árunum, með fallega rauða hárið þitt. Eitt sinn komu þeir með blómakrans og settu á hárið á þér, sem þeir kunnu svo vel að meta. Já Mæja mín, þú varst ein- stök og engum lík. Guð blessi minningu þína. Mig langar líka til að þakka ykkur börnunum hennar, tengdabörnum og barnabörnum fyrir hvað þið María Einarsdóttir ✝ María Einars-dóttir fæddist 13. nóvember 1938. Hún lést 2. júlí 2017. Útför Maríu fór fram 7. júlí 2017. hugsuðuð vel um hana og gáfuð henni ástúð og kærleika í veikind- um hennar. Guð blessi ykkur. Þín systir, Sigríður. Mín kæra nafna og samstarfskona til margra ára hef- ur nú gengið lífsins leið á enda, síðustu árin heldur á brattann. Við unnum saman í Drangey á Laugaveginum í mörg ógleym- anleg ár, allt til haustsins 1995. Í versluninni störfuðu yndisleg- ar konur sem náðu vel saman og andinn var alveg einstakur. Í mörg ár var kaffistofan í Drang- ey mitt annað heimili og uppeld- isstöð og þegar við hjónin flutt- um á efstu hæðina urðu samskiptin jafnvel enn nánari. Mæja var sönn perla og sterkur persónuleiki. Afskaplega dugleg og sterk í mótlæti, eig- inlega alger nagli. Samtímis því að vera töffari var hún glæsileg kona og mikil pæja í besta skiln- ingi þess orðs. Hún var næm, umburðarlynd og trygg og hafði hjartað á réttum stað. Hún hafði góða og hlýja nærveru og gaf mikið af sér, reyndi að gera gott úr öllu og létta manni lund ef eitthvað bjátaði á. Og það gerði hún þó að hún væri sjálf slæm til heilsu á köflum og jafnvel sárþjáð. Nafna var ein skemmtilegasta kona sem ég hef kynnst, lífsglöð, sannur húmoristi og fundvís á spaugilegu hliðar tilverunnar. Hlátrinum hennar og brosinu gleymi ég aldrei né spriklandi fjörinu sem fylgdi henni. Hún var hrókur alls fagnaðar á mannamótum, söngelsk og létt í lund. Sannkallaður gleðigjafi. Þegar Drangeyjar-hópurinn kom saman brást ekki að tárin runnu af hlátri þegar rifjaðar voru upp góðar minningar og kostuleg atvik sem upp komu í búðinni, en þar var Mæja oftar en ekki í aðalhlutverkinu. Mæja hafði upplifað svo ótal margt á lífsleiðinni og var vel heima í öllu milli himins og jarð- ar. Það var alltaf gott og gefandi að spjalla við hana og við rædd- um margt, um praktíska hvers- daglega hluti eins og matargerð og geymsluþol matvæla, um uppeldi, bókmenntir, pólitík, trúmál og ýmis heimspekileg málefni. Hún var víðsýn og opin og aldeilis ekki föst í kreddum eða fordómum. Hún gat skrifað spegilskrift og hafði kannski þá sérstöku gáfu að sjá hluti frá ýmsum sjónarhornum. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Mæju, þakklát fyrir vin- áttu hennar og fyrir að hlusta jafn þolinmóð og gefandi á ung- lingsstúlkuna með örsmáu áhyggjuefnin og ungu konuna með fyrsta barnið. Þakklát fyrir fjársjóð dýrmætra minninga þar sem hún er í einu aðalhlutverk- anna. Blessuð sé minning Maríu Einarsdóttur. Börnum hennar og fjölskyldum þeirra sendum við Óli innilegar samúðarkveðj- ur. María Ammendrup. Með minningargreinum um Maríu Einarsdóttur í Morg- unblaðinu í gær var fyrir mis- tök sett inn grein um annan einstakling. Morgunblaðið biður alla hlut- aðeigandi velvirðingar á mis- tökunum. LEIÐRÉTT Grein birt fyrir mistök Minningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.