Morgunblaðið - 08.07.2017, Síða 29

Morgunblaðið - 08.07.2017, Síða 29
að sofnað var undir lestri sögunn- ar í öruggu skjóli Hjördísar. Svona mætti lengi telja stundir reynslu og gleði frá Svanavatni, en þannig stóð myndin af Öllu frænku kyrr í huga mér alla ævi, hún 37 ára, ég 8 ára. Sama hvað tímanum leið. Er nokkur furða þótt maður undrist að svona ung manneskja deyi úr elli? Blessuð sé minning hennar. Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir. Hún Alla á Svanavatni tók upp á því um daginn að deyja. Henni hefði þótt sniðugt þegar ég segi að hún hafi látist langt fyrir aldur fram. Hún var ekki nema 99 ára en í mínum huga þá var það þann- ig að hún yrði eilíf. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera í sveit hjá henni og Mara og Viðari og Bóel á sínum tíma og ekki spillti fyrir að Ingibjörg frænka var þar oft og tíðum. Þvílík for- réttindi að fá tækifæri til að vera hjá þessu yndislega fólki þar sem Alla lék aðalhlutverkið í mínum huga. Yndislegri manneskju er varla hægt að hugsa sér og í dvöl minni hjá þeim lærði ég margt og mikið sem ég bý að enn þann dag í dag. Oft minnist ég veru minnar á Svanavatni, ekki síst þegar Alla var að horfa á fréttir og veður- fréttir. Þá átti hún það til að skamma fréttamennina rækilega fyrir fréttir sem ekki hentuðu, hvað þá veðurfréttir sem ekki voru í hennar anda. Mikið óskap- lega var gaman að fylgjast með því þegar hún meira að segja steytti hnefann framan í frétta- mennina til að láta þá heyra það. Enn þann dag í dag tala ég um þetta og segi stundum við Sóley mína þegar hún er að tala við fréttamennina; Nú – bara Alla á Svanavatni mætt. Alla var þannig manneskja að hún vildi að hlutirnir gengju eitt- hvað. Hún vildi að við gerðum það sem um var beðið og að það yrði rösklega gert. Það var því ekki í hennar anda þegar einhver vinu- mannanna var óeðlilega lengi á salerninu þegar verið var að stinga út úr fjárhúsunum eða hænsnakofanum. Það gekk ekki. Hún var fylgin sér en óskaplega sanngjörn. Hún bar alltaf mikla umhyggju fyrir dýrum og mönn- um og mátti ekkert aumt sjá. Hundurinn Sámur gamli var í sér- stöku uppáhaldi hjá henni og öll- um sem voru á Svanavatni eða komu þangað í heimsókn. Hann fékk alltaf að liggja undir eldhús- borðinu og þurfti aldrei að líða skort frekar en aðrar skepnur eða mannfólk sem dvöldu á Svana- vatni. Ég skil ekki hvernig hún fór að því að galdra fram veislur í hvert skipti sem gestir komu að Svana- vatni. Flatkökurnar hennar Öllu voru náttúrulega engu líkar og í hvert skipti sem einhver kom þá varð til hlaðborð, tertur, flatkökur og alls konar góðgæti því enginn skyldi fara frá henni öðruvísi en pakk- saddur. Alla gerði engan manna- mun, hún tók jafn-vel á móti öllum sem til hennar komu. Eins og alltaf þá sér maður mikið eftir því að hafa ekki rækt- að sambandið við hana meira en raun bar vitni. En svona er lífið, það hafa allir einhver verkefni og því miður gerist það þá að maður sinnir ekki mörgum þeim sem manni þykir svo yndislega vænt um. Ég held samt og trúi, að þrátt fyrir fáar heimsóknir þá hafi hún skynjað hlýjar hugsanir frá mér og öllu mínu fólki til hennar. Elsku Alla mín – takk fyrir allt sem þú kenndir mér og gerðir fyr- ir mig. Þú átt sérstakan stað í hjarta mínu um alla eilífð. Ég sendi þér og þínu fólki öllu hlýjar kveðjur frá okkur mömmu og Sól- ey, systrum mínum og fjölskyld- um þeirra og honum bróður þín- um Ingólfi sem við vitum að biður um kveðju til þín, enda þótti hon- um svo mikið vænt um þig. Þinn vinur og frændi, Björgvin Njáll. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 ✝ Regína Mar-grét fæddist 20. ágúst 1923 að Stóra-Sandfelli í Skriðdal. Hún lést 13. maí 2017. Faðir hennar var Jörgen, fæddur 15. júní 1876, dáinn 27. maí 1961, sonur Ei- ríks Kjerúlfs, hreppstjóra á Orm- arsstöðum í Fell- um, og Sigríðar Sigfúsdóttur. Móðir hennar var Guðrún Björg Elísabet Jónsdóttir, fædd 5. mars 1882, dáin 22. apríl 1972. Hún var dóttir Jóns Þor- steinssonar, bónda í Brekku- gerði, og Margrétar Sveins- dóttur. Börn Jörgens og Elísa- betar voru tólf talsins og var Regína þeirra yngst: 1) Eiríkur, f. 15. mars 1903 á Arnheiðar- stöðum í Fljótsdal, d. 19. júní 1995. Maki Anna Andrea Andr- ésdóttir, f. 21. júní 1911 í Bræðraborg, Seyðisfirði, d. 31. júlí 1987. Þau eignuðust fjögur börn. 2) Margrét, f. 20. febrúar 1905 í Fljótsdal, d. 30. septem- ber 1981. Maki Ragnar Magnús- son frá Dal v/ Múlaveg, f. í Reykjavík 13. nóvember 1912, d. 25. mars 2004. Þau eignuðust tvö börn. 3) Jón, f. 8. september 1906 í Brekkugerði, Fljótsdal, d. 15. maí 2002. Maki Þorbjörg Metúsalemsdóttir Kjerúlf, f. 27. október 1908 á Hrafnkels- dór Johannesen, f. 19. septem- ber 1922 í Funingi, Færeyjum, d. 7. maí 2007. Þau eignuðust fjögur börn. 11) Una, f. 10. maí 1921, d. 25. maí 1991. Maki Gunnlaugur M. Kjerúlf, f. 9. des- ember 1919 á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal, d. 6. ágúst 2012. Þau eignuðust tvö börn. 12) Regina Margrét sem hér er kvödd. Átta af systkinunum fluttu til Reykjavíkur og staðfestust þar á árunum fyrir stríð og á stríðs- árunum. Af þeim voru þrjú sem ekki giftust og áttu afkomend- ur. Þau voru: Sigurður, Guðrún og Herdís. Þau fjögur sem voru áfram fyrir austan voru: Jón á Húsum, Jóhanna í Brekkugerði, Una á Buðlungavöllum og Drop- laug í Vallholti. Eiginmaður Regínu Margrét- ar var Jóhann Guðnason, f. 23. september 1925. Hann lést 28. desember 2000. Börn Regínu og Jóhanns eru: 1) Alda Kjerúlf Jó- hannsdóttir sjúkraliði, f. 11. nóvember 1945 á Arnhólsstöð- um í Skriðdal. Maki Sveinn Kristjánsson húsasmiður, f. 23. júní 1945 á Seyðisfirði. 2) Drengur, f. 16. desember 1952, d. 7. febrúar 1953. Börn Öldu og Sveins: 1) Sif Sveinsdóttir, f. 17. ágúst 1969. Músikþerapisti frá Háskólanum í Álaborg. 2) Jó- hann Þór, rafeindavirki og kerf- isfræðingur, f. 22. desember 1972. Maki Kristjana Einars- dóttir hárgreiðslukona og sölu- maður hjá MS, f. 18. júní 1974. Börn þeirra eru Adam Birkir, f. 6. október 2000, Sveinn Andri, f. 16. september 2004, og Kristján Þór, f. 9. september 2011. Útför Regínu Margrétar fór fram í kyrrþey 18. maí 2017. stöðum í Fljótsdal, d. 13. nóvember 1975. Þau eign- uðust fjögur börn. 4) Sigurður, f. í Fljótsdal 10. októ- ber 1907, d. 23. jan- úar 1972. Ókvænt- ur og barnlaus. 5) Sigríður, f. í Fljóts- dal 2. september 1909, d. 8. febrúar 1991. Maki Ásbjörn Guðmundsson, f. 23. nóvember 1894, d. 10. júlí 1988. Þau eign- uðust eitt barn. 6) Jóhanna Sig- ríður, f. 14. september 1911 í Brekkugerði í Fljótsdal, d. 31. ágúst 2001. Maki Stefán Sveins- son, f. 1. nóvember 1911 á Glúmsstöðum í Fljótsdal, d. 15. maí 1943. Þau eignuðust fjögur börn. Seinni maki Jóhönnu Sig- ríðar var Andrés Hjörtur M. Kjerúlf, f. á Hrafnkelsstöðum 21. janúar 1921, d. 21. janúar 1979. Þau eignuðust eitt barn. 7) Guðrún Sólveig, f. 3. maí 1913 í Fljótsdal, d. 29. nóvember 1968. Ógift og barnlaus. 8) Herdís, f. 22. janúar 1916 í Fljótsdal, d. 3. ágúst 1998. Ógift og barnlaus. 9) Droplaug, f. 29. júlí 1917, d. 23. nóvember 2011 í Brekkugerði. Maki Eiríkur M. Kjerúlf, f. 30. október 1915 á Hrafnkels- stöðum, d. 11. maí 1991. Þau eignuðust fimm börn. 10) Hulda, f. 21. mars 1919 í Fljótsdal, d. 11.desember 2006. Maki Theo- Jörgen Kjerúlf og Elísabet Jónsdóttir áttu tólf börn, yngst þeirra var Regína Margrét fædd 1923 á Stóra-Sandfelli í Skriðdal- .Foreldrar hennar reistu bú og byggðu steinhús að Húsum í Fljótsdal en höfðu stuttan stans í Sandfelli, þannig að bernska hennar og unglingsár voru í Fljótsdal með hennar stóra systk- inahópi, þar sem Regína var nú síðast orðin ein eftirlifandi. Á stríðsárunum lá leiðin úr sveitunum til Reykjavíkur. Reg- ína hóf þá störf á Kleppsspítalan- um en komin austur aftur, til heimilis á Arnhólsstöðum í Skrið- dal hjá Unu systur sinni og Gunn- laugi Kjerúlf hennar manni, eign- aðist hún dóttur, Öldu, síðla árs 1945. Regína varð fyrir því að fá Akureyrarveikina á sínum tíma en náði með elju og seiglu bærilegri heilsu. Leið hennar lá síðan aftur til Reykjavíkur og 1951 kynnist hún svo Jóhanni Guðnasyni er seinna varð eiginmaður hennar. Þau hjónin urðu fyrir þeirri sáru raun í byrjun hjúskapar að dreng- ur sem þau eignuðust lést í vöggu. Jóhann gekk Öldu í föðurstað og naut hún mannkosta hans á með- an líf entist. Regína var hress og ákveðin kona, dugnaðarforkur og vel metin hjá þeim sem hún starf- aði fyrir og því eftirsóttur starf- kraftur. Aldrei skorti neitt á höfð- ingsskapinn hjá þeim Kjerúlfssystrum og þar var hún að mér fannst, fremst á meðal jafningja, alltaf hrein og bein og var ekkert að skafa utan af hlut- unum. Regína og Jóhann ferðuð- ust víða, nutu lífsins og bjuggu vel. Hjá þeim var alltaf opið hús þegar ættingjar að austan voru í bænum og var margur snúningurinn tek- inn, til að létta gestum lífið í höf- uðborginni. Austur á Seyðisfirði voru svo börn Öldu, Sif og Jóhann. Sif er nú búsett í Danmörku en Jó- hann í Mosfellsbæ en eiginkona hans og börn voru vissulega þeir tilfinningalegu punktar sem stóðu hjarta Regínu næst. Kynni mín af Regínu hófust árið 1950 og stóðu óslitið síðan, en þegar hugsað er til baka virðist þetta ekki langur tími. Þegar við hjónin litum við hjá henni í Seljahlíð fyrir nokkrum dögum var greinlegt að hverju stefndi, en það gladdi okkur mikið að hún þekkti okkur strax, höfuðið var í lagi þótt líkaminn væri raun- ar fyrir löngu búinn að gefast upp. Ég var orðinn fullorðinn maður þegar ég gerði mér fyrst almenni- lega grein fyrir því, hvað þessar níu föðursystur mínar höfðu leikið stórt hlutverk í mínu lífi, verið allt- af góðar við mig, og hvað mér hafði þótt vænt um þær allar. Ég var nefnilega baldinn strákur í stórri ætt og þær miðluðu mér því sem mætti kalla móðurlega um- hyggju og móðurlegt uppeldi, nokkuð sem ég hafði komist hjá að taka eftir í foreldrahúsum. Hafi Regína frænka mín, allar hinar og mágkona þeirra á Húsum í Fljóts- dal, Þorbjörg M. Kjerúlf, ástar- þakkir fyrir sína móðurlegu um- hyggju, sem eflaust hefur stuðlað að því að mitt líf varð þó ekki brö- suglegra en raun varð á. Sölvi Kjerúlf. Regína M. J. Kjerúlf Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐBRANDUR ORRI VIGFÚSSON, Grænuhlíð 11, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum háskóla- sjúkrahúsi laugardaginn 1. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 10. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Unnur Kristinsdóttir Vigfús Orrason Guðrún Ósk Óskarsdóttir Hulda Orradóttir Unnur Álfrún Huldudóttir Margrét Álfdís Huldudóttir Álfhildur Iða Huldudóttir FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á GÓÐU VERÐI Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar míns elskulega eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR EINARSSONAR prentara, Rjúpnasölum 10, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Lóulundi Hrafnistu í Boðaþingi og Bjarneyjar Sigurðardóttur. Elínborg Steinunn Pálsdóttir K. Fjóla Guðmundsdóttir Sævar Jóhann Sigursteinsson Þorsteinn S. Guðmundsson Þórunn H. Gylfadóttir Ólafur Þór Guðmundsson Lilja Margrét Bergmann Páll Þórir Rúnarsson Mekkín Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðursystir okkar, MÁLFRÍÐUR ÁRNADÓTTIR frá Ísafirði, síðast til heimilis að Kleppsvegi 118, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 4. júlí. Útför hennar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 11. júlí klukkan 15. Fyrir hönd vandamanna, börn Þórunnar, Mörthu og Arndísar Árnadætra Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEINUNNAR RAGNHEIÐAR ÁRNADÓTTUR, Ránargötu 25, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grenihlíðar á dvalarheimilinu Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun. Jóhanna M. Antonsdóttir Ingibjörg Antonsdóttir Þórarinn Arinbjarnarson Ragnheiður Antonsdóttir Árni Freyr Antonsson Dóra Margrét Ólafsdóttir ömmubörn og langömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET EGGERTSDÓTTIR, Garðavegi 19, Hvammstanga, áður húsfreyja á Ytri-Ánastöðum, lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga þriðjudaginn 4. júlí. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 14. júlí klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök HVE á Hvammstanga. Þóra Jónsdóttir Eðvald Magnússon Helga Auður Jónsdóttir Hólmgeir Jónsson Sigurósk Edda Jónsdóttir Karl Otto Karlsson Eggert Jónsson Guðmundur Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓSK ÓLAFSDÓTTIR, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi 3. júlí. Útförin fer fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð St. Franciskusspítala, sjá heimasíðu: www.hve.is. Hildur Hallkelsdóttir Guðmundur Smári Valsson Þ. Heidi Johannsen Sigþór Kr. Skúlason Hrönn Johannsen Gunnar Andrésson Guðbjörg Ásmundsdóttir Birgir Andrésson og barnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og vinur, JÓN TORFASON ÁGÚSTSSON (Gusturinn), bílstjóri, Lækjarbrún 5, Hveragerði, lést á gjörgæslu LSH 5. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. júlí klukkan 13. Ágúst J. Jónsson Laufey K. Berndsen Bára Jónsdóttir Gunnar R. Hafsteinsson María Jónsdóttir Marta Jónsdóttir Ragnar Magnússon Dóróthea Jónsdóttir Helgi H. Schiöth barnabörn og barnabarnabörn systkini Guðlaug Bjarnadóttir, börn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.