Morgunblaðið - 08.07.2017, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
✝ Jón Sveinssonfæddist á Reyni
í Mýrdal 2. apríl
1927. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Sel-
fossi, 1. júlí 2017.
Foreldar hans
voru hjónin Sveinn
Einarsson, bóndi
og kennari, f. 11.
mars 1895, d. 31.
júlí 1974, og Þórný
Jónsdóttir, húsfreyja á Reyni, f.
21. desember 1893, d. 13. júní
1976. Systkini Jóns eru Guðrún,
f. 7. september 1928, d. 2. ágúst
2015, Sigríður Einars, f. 28. nóv-
ember 1932, d. 12. apríl 2016, og
Guðbjörg, f. 16. maí 1931.
Jón kvæntist 17. júní 1953
Erlu Pálsdóttur, f. 9. september
Maki Valgerður Guðjónsdóttir.
Þau eiga þrjú börn og tvö
barnabörn. 7) Guðrún, f. 25. júlí
1963. Hún á þrjú börn og eitt
barnabarn. Maki Jón E. Ein-
arsson. 8) Einar, f. 28. mars
1965. Maki Ágústa Bárðar-
dóttir. Þau eiga tvö börn. 9)
Guðbjörg, f. 18. febrúar 1968.
Maki Gauti Gunnarsson, f. 1.12.
1969, d. 15. nóvember, 2013.
Þau eiga fjögur börn og eitt
barnabarn.
Jón ólst upp í foreldrahúsum
á Reyni í Mýrdal. Hann varð bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1948
og vann í fyrstu ýmis tilfallandi
störf, á Keflavíkurflugvelli, í
símavinnuflokki o.fl. Bóndi á
Reyni frá 1953 til 1995. Jón var
alla tíð virkur í félagsstarfi í
sinni heimabyggð og í félags-
kerfi landbúnaðarins.
Útför Jóns fer fram frá Reyn-
iskirkju í Mýrdal í dag, 8. júlí
2017, og hefst athöfnin kl. 14.
1929. Börn þeirra
eru 1) Páll, f. 12.
apríl 1953. Hann á
þrjá syni og sex
barnabörn. Maki M.
Sigríður Jakobs-
dóttir. 2) Þórný
Jónsdóttir, f. 7.
september 1954, d.
28. júní 2016. 3)
Margrét, f. 17.
febrúar 1956. Maki
Sigurjón Árnason.
Þau eiga þrjá syni og sex barna-
börn. 4) Sigurlaug, f. 17. júní
1957. Maki Ólafur Helgason.
Þau eiga þrjú börn og sex
barnabörn. 5) Sveinn, f. 1. nóv-
ember 1959. Maki Jóna Svava
Karlsdóttir. Þau eiga fjögur
börn og fjögur barnabörn. 6)
Jónatan Guðni, f. 27. júlí 1962.
Í dag kveðjum við hann pabba
minn, en hann var mér einstak-
lega góður faðir, traustur, hlýr og
alltaf til staðar og fyrir það er ég
þakklát. Ég segi stundum að
hann hafi fæðst sem bóndi, en
hann fór snemma að vinna við bú-
skapinn hjá foreldrum sínum og
síðar tóku hann og mamma við
búinu og voru bændur í fjörutíu
og tvö ár. Hann var af þeirri kyn-
slóð sem lifði miklar breytingar í
búskap með tilkomu bíla, véla og
tækja við heyskapinn. Eftir að
þau hefja búskap fæðast níu börn
á 15 árum og hefur það því verið
mikið átak að koma öllum þess-
um hópi upp. Allt hafðist þetta
með samheldni og dugnaði for-
eldra minna og allir hjálpuðust
að. Það að alast upp í stórum
systkinahópi eru forréttindi og
kenndi manni margt sem ég hef
tekið sem veganesti út í lífið. Þeg-
ar eitthvað bjátaði á sagði pabbi
að verkefni væru til að leysa þau
og benti manni gjarnan á það já-
kvæða í lífinu.
Þrátt fyrir stórt heimili var
alltaf pláss fyrir gesti og börn í
sveit á sumrin og oft og tíðum
voru notaðir stórir pottar við
matseldina. Pabbi var mikill nátt-
úru- og dýravinur og það var
hans líf og yndi að smala upp um
fjöll og firnindi og rækta jörðina.
Þær voru líka ófáar ferðirnar
sem hann fór með sveitungum
sínum til að taka fé úr svelti, en
hann þótti einkar laginn við það.
Hann hafði mikla ánægju af
veiðiskap og kom það sér vel þeg-
ar það þurfti að metta marga
munna. Lífið er langhlaup, þessi
orð brenndi hann á fjöl fyrir
stuttu síðan. Mér finnst þessi
setning eiga vel við hans líf, en
hans ævi var löng og farsæl.
Pabbi og mamma eiga mikil auð-
æfi eins og hann sagði sjálfur, en
auðurinn felst í stórum hópi af-
komenda.
Hann var ákaflega stoltur af
sínum stóra hópi, en pabbi og
mamma eiga 60 beina afkomend-
ur og þá er eftir að telja alla maka
þeirra. Hann var mikill mannvin-
ur og naut þess að eiga samskipti
við fólk, glettinn, stundum smá
stríðinn. Hann var líka góður eig-
inmaður og umvafði mömmu alla
tíð með ást sinni og hlýju. Ég
kveð elsku pabba minn hinstu
kveðju með þökk fyrir allt og allt.
Blessuð sé minning hans.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Margrét.
Þá er hann elsku afi minn, Jón
á Reyni, genginn á vit feðra sinna
og formæðra. Honum hefur vafa-
laust verið tekið fagnandi hinu
megin. Hinsta kveðjan, eins erfið
og hún er, markast fyrst og
fremst af djúpu þakklæti fyrir
allt sem hann afi minn kenndi
mér, viljandi eða óviljandi. Ljúft
geðslag hans og viðmót, atorku-
semi, auðmýkt og virðing, hvort
sem var fyrir náunganum eða
náttúruöflunum, er allt til eftir-
breytni – og miklu meira til.
Hann var áhrifamaður langt út
fyrir ríki sitt, þó ekki væri nema
fyrir afkomendaskarann sem
hann lét sér mjög annt um og
naut þess ávallt að eiga samvistir
við hann. Afi var hamingjusamur
og þakklátur fyrir lífið og allt sem
það bauð honum, jafnvel þótt
stundum hafi á móti blásið.
Himneskt
er að vera
með vorið
vistað í sálinni,
sólina
og eilíft sumar
í hjarta.
Því hamingjan
felst í því
að vera með
himininn
í hjartanu.
Lifi lífið!
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Afi Jón var sannarlega með
vorið vistað í sálinni, sólina og ei-
líft sumar í hjarta. Megi góður
Guð varðveita þennan einstaka
mann. Minning hans mun lifa.
Árni Sigurjónsson.
Jón Sveinsson
✝ Rúnar GústafJensen (áður
Rúnar Gústafsson)
fæddist í Borgar-
nesi 13. maí 1962.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu í Memphis,
Tennessee 27. júní
2017.
Foreldrar Rún-
ars: Gústaf Óskars-
son, f. 3.7. 1933, og
Kristbjörg Ósk Árný Markús-
dóttir, f. 30.8. 1935, búsett í
Hveragerði. Foreldrar Gústafs
voru Óskar Gústaf Ingjaldur
Jensen og Hansína Einhildur
Hannibalsdóttir. Foreldrar
Kristbjargar voru Markús
Þórðarson og Auður Ólafsdóttir.
Fósturforeldrar Kristbjargar
voru Jón Guðmundsson og
Ragnheiður Ólafsdóttir, Borg-
arnesi. Rúnar var fimmta barn
Kristbjargar og Gústafs af sjö.
Systkini hans eru: Ólafur Jón, f.
18.3. 1955, Ragnheiður Helga, f.
7.4. 1956, Ósk, f. 11.11. 1957,
Hans, f. 9.6. 1960, Áróra, f.
27.12. 1966, og Óðinn, f. 4.3.
1969.
Þegar Rúnar var níu ára flutt-
ist fjölskyldan til Ísafjarðar sem
Fljótlega eftir að Rúnar sett-
ist að í Memphis fór hann í há-
skóla og útskrifaðist með BA í
sálfræðiráðgjöf og árið 2011 út-
skrifaðist hann með MS-gráðu í
endurhæfingarráðgjöf. Hann
vann sem ráðgjafi með skóla-
náminu hjá Memphis Recovery
Centers, sem þjónustar fatlaða.
Eftir útskrift frá University of
Memphis vann hann sem hand-
verksráðgjafi fyrir Tennessee-
ríki og síðar hjá Arkansas-ríki
sem yfirmaður vettvangs-
ráðgjafa fyrir fatlaða í Austur-
Arkansans. Árið 2014 fékk Rún-
ar réttindi frá Tennessee til að
veita samfélagsþjónustu og í
framhaldi stofnaði hann fyrir-
tæki sem hann kallaði National
Economy Employment Develop-
ment (NEED) og fólst starfið í
að finna störf fyrir fullorðið fólk
með fötlun. Núna í vor hafði
Rúnar tryggt styrk frá Tennes-
see-ríki til að þróa prógramm til
að undirbúa fatlaða fyrir vinnu-
markaðinn. Í samvinnu við tvo
aðra stofnaði hann fyrirtækið
Transition Workforce Partner-
ship. Átti þessi vinna hug hans
allan og hann var mjög spenntur
fyrir að hafa möguleika á að
breyta lífi nemenda með fötlun.
Minningarathöfn um Rúnar
fer fram laugardaginn 8. júlí
2017 í Memphis.
hann leit alltaf á
sem sinn heimabæ.
Sumarið sem hann
var 14 ára fór hann
í fyrsta skipti á sjó-
inn. Síðar átti hann
eftir að starfa sem
sjómaður og yfir 20
ára tímabil fór
hann til sjós á Ís-
landi og í Banda-
ríkjunum, bæði í
Alaska og Kali-
forníu. Snemma beindist áhugi
Rúnars að veitingahúsageir-
anum og hann útskrifaðist frá
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólanum 1987. Næstu tíu ár þar
á eftir starfaði hann á veitinga-
húsum í Reykjavík, Osló, La
Jolla og San Diego. Við upphaf
síðustu aldar breytti Rúnar enn
um starfsvettvang og gerðist
sölumaður, fyrst með húsgögn
og síðar seldi hann bíla. Það var
bílasölustarfið sem dró hann til
Memphis þar sem hann kynntist
Mary Ellen Warren sem hann
giftist árið 2005, og saman eign-
uðust þau soninn Óskar William.
Rúnar og Mary Ellen skildu.
Rúnar lætur eftir sig unnustu,
Rhondu Basham Clarke, og
einkasoninn Óskar William.
Andlát Rúnars bar brátt að og í
dag kveðjum við góðan vin og fé-
laga alltof skjótt. Leiðir okkar
lágu saman í gegnum barnaskóla-
árin og eins í grunnskóla. Þegar
við hittumst bekkjarsystkinin og
rifjuðum upp minningar var okkur
minnisstæðast hve músíkalskur
Rúnar var. Hann hafði mikinn
áhuga á tónlist og rifjar Heimir
Már upp þegar þeir Rúnar tróðu
upp á unglingaskemmtunum og
„mæmuðu“ undir hljómplötum.
Þeir reyndu einnig að komst að
með skemmtiatriði í Stundinni
okkar hjá Ríkissjónvarpinu, án ár-
angurs þrátt fyrir mikla trú á
sjálfum sér eins og þeirra var
háttur.
Valdimar Birgis, alltaf kallaður
Valli Bigga Vald, rifjar líka upp
tónlistarferil sinn með Rúnari en
þeir voru með „gigg“ í 12 ára bekk
og var það hugmynd Rúnars tek-
ur Valli fram. Rúnar hafði áður
verið að syngja með Heimi Má, en
þeir Valli tóku lagið Yakety Yak-
Smakety Smack af plötu Magnús-
ar og Jóhanns, Change, og slógu
þeir rækilega í gegn að eigin mati
– og okkar bekkjarsystkinanna.
Rúnar meira að segja lygndi aftur
augum eins og Jóhann gerði við
gríðarleg fagnaðarlæti bekkjar-
félaganna.
Eftir að Rúnar flutti til Banda-
ríkjanna hittum við hann helst
þegar hann kom til landsins í frí-
um og það var alltaf gaman því
hann hafði frá svo mörgu að segja.
Hann flutti um tíma heim og tók
þátt í að breyta AA-starfi á Ís-
landi, hafði hætt að drekka úti og
kynntist því hvernig AA-starf
væri ytra. Hann flutti þá þekkingu
með sér heim og stofnaði nýja
deild sem umbylti AA-starfi á Ís-
landi og hjálpaði fjölda fólks að ná
valdi á lífi sínu. Rúnar var frum-
kvöðull á þessu sviði og fyrirmynd
margra.
Hann flutti aftur út og lauk
prófi í sálfræði og starfaði meðal
annars við að aðstoða heimilis-
lausa og fatlaða einstaklinga við
að fóta sig í lífinu. Rúnar hafði
góða nærveru og gott skopskyn,
var mjög hugmyndaríkur og fékk
mann oft til að hlæja og það er
minnisstæðasta fólkið sem vekur
upp hjá manni hlátur. Eftir að
hann flutti til útlanda urðu endur-
fundir kannski stopulli, en það eru
minningarnar um traustan og
góðan félaga sem lifa áfram og
safn þeirra er það besta sem hver
og einn á.
Rúnar eignaðist son, sem hann
sá ekki sólina fyrir, hann Óskar,
og sendum við Óskari litla og fjöl-
skyldu þeirra Rúnars okkar inni-
legustu samúðarkveðjur og von-
um að þeim gefist styrkur á
þessum erfiðu stundum. Hvíl í
friði Rúnar.
Fyrir hönd árgangs 1962 á Ísa-
firði og skólafélaga,
Ingibjörg Snorra Hagalín.
Rúnar Gústaf Jensen
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÖRÐUR SIGFÚSSON,
Goðabraut 16, Dalvík,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 28. júní.
Útför hans verður frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 11. júlí klukkan
13.30.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar elskulega
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
HALLGRÍMS VIÐARS ÁRNASONAR
húsasmíðameistara,
Þjóðbraut 1, Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Halldórsdóttir
Halldór B. Hallgrímsson Guðrún Hróðmarsdóttir
Harpa Hallgrímsdóttir Kristinn Ólason
Steinunn Hallgrímsdóttir
Árni Þór Hallgrímsson Ingibjörg Ásgeirsdóttir
og afabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts elskulegrar móður
okkar,
JÓNU SIGURSTEINSDÓTTUR,
Lækjargötu 30,
Hafnarfirði.
Ásbjörg Magnúsdóttir Sigursteinn Magnússon
Ásberg Magnússon Hildur Magnúsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA VIGDÍS JÓNSDÓTTIR,
Hallgeirsey,
lést föstudaginn 23. júní á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug.
Jón Elías Guðjónsson
Guðjón Jónsson Bryndís Bára Bragadóttir
Sigurður Jónsson Ástdís Guðbjörnsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og tengdabörn
Elskulegi faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞÓRIR G. ÍSFELD,
frá Neskaupstað,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 25. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýju. Sérstakar þakkir til
starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða umönnun og vinarhug.
Ásgerður Ísfeld
og fjölskylda
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
HULDA MALMQUIST KRISTINSDÓTTIR
kjólameistari og klæðskeri,
lést föstudaginn 7. júlí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 12. júlí klukkan 15.
Við þökkum fjölskyldu og vinum hlýhug og
stuðning á þessum erfiðu tímum.
Sérstakar þakkir öllum þeim sem önnuðust
hana af alúð og virðingu í veikindum hennar.
Kristinn Már Gunnarsson Kirsten Gunnarsson
Gissur Örn Gunnarsson Florentina Fundateanu
Anna Lilja Gunnarsdóttir Halldór Óskarsson
Eva Björk Gunnarsdóttir Styrmir Örn Snorrason