Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 40
40 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 Gísli Gíslason ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík, æfði ogkeppti í knattspyrnu og körfubolta með KR, lauk lögfræði-prófi 1981, var bæjarstjóri á Akranesi 1987-2005 og hefur síð- an verið hafnarstjóri Faxaflóahafna. Hann hlær þegar hann er spurð- ur hvort þetta sé ekki rólegt embætti: „Ó, nei! Þetta er nú bara hörkudjobb og aðalembættið, karlinn minn, og maður kemur þar víð- ar við en marga grunar. Faxaflóahafnir eiga t.d. 23% í Speli sem rek- ur Hvalfjarðargöngin en þar hef ég setið lengi í stjórn og verið stjórnarformaður frá 1995.“ Á maður að þurfa að borga endalaust í þessi Hvalfjarðargöng? „Það má nú kannski hafa það í huga að verðið hefur lækkað frá upphafi, bæði að verðgildi og raungildi. Á næsta ári hafa vegfarendur borgað göngin upp sem nú eru eign upp á 10-12 milljarða. Þá tekur ríkið við göngunum, samkvæmt samningum. Hitt er þó aðalatriðið að göngin hafa gjörbreytt aðstæðum á Vesturlandi, hvað varðar atvinnu- svæði, ferðaþjónustu og sumarbústaði.“ Verða göngin tvöfölduð á næstunni? „Það verður ríkið að segja til um. Við teljum óhjákvæmilegt að tvö- falda þau innan tíðar en ný göng munu kosta 14-15 milljarða.“ Hvort ertu nú meiri Skagamaður eða KR-ingur? „Nú er ég Skagamaður en afar þakklátur fyrir og stoltur af uppeld- inu í KR. Þetta er samt aukaatriði því þó KR og ÍA hafi oft háð harða baráttu sín á milli hafa þessir klúbbar alltaf verið nánir vinaklúbbar.“ Morgunblaðið/Ásdís Afmælisbarnið Gísli hefur verið hafnarstjóri Faxaflóahafna frá 2005. Skagamaður úr KR Gísli hafnarstjóri er 62 ára Þ órunn fæddist í Reykja- vík 9.7. 1957 og ólst þar upp, í Hassaleitinu: „Ég var tveggja ára er fjöl- skyldan flutti úr Vog- unum og vestur á Marargötu til afa og ömmu. Þar man ég fyrst eftir mér og 1961 fluttum við í nýbyggt hús í Hvassaleitinu þar sem ég ólst upp.“ Það svæði hefur víst breyst síðan? „Já. Það umhverfið var ævintýri líkast þegar ég mætti á svæðið: Allt hverfið og Háaleitið í byggingu með opnum húsgrunnum, hálfbyggðum húsum og vinnupöllum, nægu bygg- ingarefni í skúra og pramma sem við krakkarnir fleyttum á tjörnunum þar sem Kringlan kom síðar. Þar var enn opið svæði með kartöfluskúrum og görðum, mýri, skurðum, njóla, fuglalífi og gamla golfvellinum. Þarna var nóg að stússa fyrir táp- mikla krakka og þarna var ég þar til ég fór að heiman.“ Þórunn Guðmundsdóttir lögmaður – 60 ára Systkinin Þórunn með bræðrum sínum, Sigurði, prófessor og fyrrv. landlækni, og Þórði Ingva sendiráðsfulltrúa. Lífsglöð og áreiðanleg Rómantískur kvöldverður Þórunn og Guðlaugur á notarlegum veitingastað. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is MOVIE STAR hvíldarstóll Verð 398.000,- Skoðaðu úrvalið á nýju heimasíðunni okkar casa.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.