Morgunblaðið - 08.07.2017, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Meðlimir ADHD eru þeirMagnús TrygvasonEliassen (trommur), Dav-
íð Þór Jónsson (hljómborð, píanó
og hljóðgervlar) og bræðurnir
Óskar Guðjónsson (saxófónn) og
Ómar Guð-
jónsson (gítar,
bassi). Þeir
Davíð og Ómar
tilheyra ákveð-
inni kynslóð
djasstón-
listarmanna
sem hóf að
láta að sér kveða stuttu eftir
2000. Þessi kynslóð spilara, sem
tengjast allir missterkum böndum
(þetta er Ísland) er með rætur í
djassnámi en hugmyndirnar um
sköpun voru gjörsamlega gal-
opnar og óhætt að segja að þetta
fólk hafi gert skurk í þess tíma
djasslífi. Mér verður t.d. hugsað
til fyrstu plötu Davíðs Þórs, Rask
og verka Helmus og Dalla (Helgi
Svavar trymbill og Davíð Þór)
sem dæmi um þá maurasýru sem
var blessunarlega hellt yfir okk-
ur. Óskar er eldri, en hefur sömu-
leiðis lagt sig eftir tilrauna-
kenndum hlutum alla tíð á meðan
Magnús er yngri, en er í dag með
fjölsnærðustu trymblum landsins,
getur spilað hvað sem er með
Slegið í klárinn
Ljósmynd/Spessi
Hrossakaup? Tónlist djasskvartettsins ADHD ríður sjaldnast við skáldlegan einteyming.
hverjum sem er.
Eins og sést er ekki beint um
eitthvert slor að ræða í manna-
skipun ADHD og mikill galdur
hefur átt sér stað forðum daga á
Höfn. Fjórir einstaklingar sem
hafa smollið saman sem einn og
það má vel nema á þeim plötum
sem út hafa komið. Sköpunar-
þörfin rík, enda merkilegt að jafn
uppteknir hljóðfæraleikarar og
meðlimir ADHD eru hafi náð að
finna tíma til að rúlla frumsömdu
efni inn á band og það sex sinn-
um. Óskar ræddi við Morgun-
blaðið um sveitina í ársbyrjun
2014 og hafði þá þetta að segja:
„Ég fann það á fyrsta gigginu
okkar á Höfn í Hornafirði árið
2008 að ég vildi vinna með þessu
bandi það sem eftir væri ævinnar.
Við vinirnir erum eins og fjöl-
skylda, því það eru mjög djúpar
tengingar á milli okkar. Og þegar
svona sterk vinabönd myndast þá
er hægt að gera allt uppi á sviði.“
Hann orðar þá mjög fallega
um hvað tónlistarsköpun snýst í
grunninn: „Músík snýst um traust,
vináttu og vinsemd, en ekki um
það hvort þú getir spilað þetta
eða hitt. Sé traustið til staðar
þannig að maður þori að vera
maður sjálfur er allt hægt.“
Til fyrirmyndar. Hugrekkið
til að fara þangað sem hugurinn
býður hefur enda borgað sig og
ADHD fer reglulega í hljómleika-
ferðir erlendis. Hestshausinn sem
Davíð ber á nýjustu kynningar-
myndinni af sveitinni undirstrikar
auk þess að hlustendur geti búist
við hvaða flippi sem er í raun.
Á ADHD6 heldur sveitin sem
fyrr (hests)haus. Tónlistin er and-
ríkt, djassað flæði og unnið er
með spuna, tilraunakennd raf-
hljóð og jaðarrokk. Sjá t.d „Alli
Krilli“ sem hefst temmilega
„venjulega“ en er svo stöðvað um
miðbikið, við taka drungaleg
píanóslög sem eru bökkuð með
draugalegri hljóðmynd. „Tvöfald-
ur Víkingur“ og „Rebroff“ minna
á Chicago-síðrokkssenuna (Tor-
toise, Gastr Del Sol) og naum-
hyggjuleg keyrsla að hætti súr-
kálsrokkara á borð við NEU! og
Can gerir einnig vart við sig. En
hvað sem líður skilgreininga-
orgíum, í gegnum allt heyrir mað-
ur að menn eru að tala sama og
hlusta hver á annan, búa til eitt-
hvað sem er algerlega þeirra eig-
ið og engra annarra. Áfram veg-
inn og megi þeir bræður allir,
fjórir að tölu, slá í klárinn lengi
vel.
»Eins og sést erekki beint um eitt-
hvert slor að ræða í
mannaskipun ADHD og
mikill galdur hefur átt
sér stað forðum daga á
Höfn.
Tilraunadjasskvartettinn ADHD hefur nú gefið út sína sjöttu plötu. Hann
kom fyrst saman fyrir níu árum á blúshátíð á Höfn í Hornafirði og mektar-
mennirnir sem hann skipa hafa ekki litið til baka síðan.
Guðlaugur Bjarnason opnar málverkasýninguna Ástar-
landslag í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, í dag kl.
15. Þetta er fjórða sýning Guðlaugs í listhúsinu. Í verk-
um sínum á sýningunni fléttar Guðlaugur ástleitnar til-
finningar sem gerðu vart við sig á síðasta ári inn í
raunverulegt landslag sem hann málar gjarnan og dá-
ist að, eins og því er lýst í tilkynningu. „Flest mótífin
eru við Kleifarvatn og í Krýsuvík, máluð á þessu og síð-
asta ári. Stundum fara þessar fléttur yfir í hugarheima,
enda oft stutt á milli segir listamaðurinn,“ segir þar.
Guðlaugur Bjarnason lauk námi við myndhöggvara-
deild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árið 1988 og
fór á steinhöggvaranámskeið í Gotlandi í Svíþjóð sama
ár. Hann tók þátt í sumarakademíunni í Salzburg í
Austurríki 1989 og um haustið hélt hann til Edinborgar
í Sculptur School og hlaut þar Diploma of Fine Art árið
1990. Sama ár lá leiðin til Þýskalands í Kunstakademie
Düsseldorf og 1993 útskrifaðist hann sem Meister-
schuler hjá Magdalenu Jetelova 1994. Frá Möncheng-
ladbach lá leiðin svo til Berlínar 1995 og bjó hann þar
til 2012 er hann flutti aftur til Íslands. Guðlaugur hélt
fjölda einkasýninga í Berlín og hefur tekið þátt í sam-
sýningum í Skotlandi, Póllandi, Svíþjóð og Þýskalandi
auk þess að hafa sýnt hér á landi.
Ástarlandslag í Listhúsi Ófeigs
Ástarlandslag Hluti af einu verka Guðlaugs á sýningunni.
Sólarhringslöngu plötuupptöku-
maraþoni tónlistarmannsins Ásgeirs
Trausta og samstarfsmanna hans
lauk í fyrradag kl. 17 í hljóðverinu
Hljóðrita í Hafnarfirði og var af-
raksturinn einkar glæsilegur, 30 sjö
tomma plötur með tveimur lögum
hver, þ.e. einu á hvorri hlið. Ásgeir
fær þó ekki langa hvíld eftir þessa
miklu törn því í dag heldur hann
tvenna tónleika í félagsheimilinu á
Hvammstanga, kl. 17 og 21.
Plötuverkefnið í Hljóðrita nefnd-
ist Beint á vínyl og voru upptök-
urnar sendar út í beinni útsendingu
á RÚV 2 og RÚV.is í sk. hægvarpi.
Ásgeir lék og söng bæði einfaldar og
öðruvísi útgáfur af eigin lögum og
lögum annarra og var þar komið
víða við, m.a. leitað í sarp ABBA og
Bob Dylan. Vinir og samstarfsmenn
Ásgeirs lögðu honum lið og þá m.a.
Guðmundur Óskar Guðmundsson
bassaleikari og söngvarinn Sigurður
Guðmundsson. Lögin voru tekin upp
beint á vínyl með vínylskurðarvél og
verða aðeins til á því formi þannig að
hvert lag eða hver útgáfa af lagi
verður aðeins til í einu eintaki, þ.e. á
vínylplötu.
ABBA, Nirvana og Dylan
María Rut Reynisdóttir, umboðs-
maður Ásgeirs, segir Ásgeir hafa
unnið „mjög stíft“ þennan sólar-
hring sem upptökurnar stóðu yfir
með örstuttum hléum. „Það þurfti
alltaf að ákveða hvaða lög ætti að
taka næst og æfa aðeins þannig að
þetta var vel af sér vikið,“ segir hún.
Ásgeir lék að mestu eigin lög en
nokkur tökulög fengu þó að flakka
með. Má af þeim nefna „Tvær
stjörnur“ Megasar, „There’s No
Leaving Now“ eftir The Tallest Man
on Earth, „Heaven’s Key“ eftir
bróður Ásgeirs, Þorstein Einarsson,
„Sound of Silence“ eftir Simon og
Garfunkel, „Make You Feel My
Love“ eftir Bob Dylan, „Heart-
Shaped Box“ eftir Nirvana, „The
Winner Takes It All“ með ABBA og
„Love$ick“, lag Mura Masa.
Fjársjóður í Ástralíu
María segir gaman frá því að
segja að síðastnefnda lagið hafi Ás-
geir flutt á útvarpsstöðinni Triple J.
í Ástralíu fyrir nokkrum vikum og að
platan sem tekin var upp með því
lagi verði send útvarpsstöðinni. Út-
varpsstöðin eigi í samstarfi við tón-
listarhátíð í Ástralíu, Splendor in the
Grass, sem haldin verður seinna í
þessum mánuði og á henni verður
gerð sérstök fjársjóðsleit og er fyrr-
nefnd plata fjársjóðurinn.
Staðið verður fyrir fleiri slíkum
viðburðum þar sem leitað verður að
plötu eftir Ásgeir. „Við ætlum að
senda plötur á alla okkar samstarfs-
aðila, útgáfufyrirtæki Ásgeirs úti
um allan heim, og verðum sjálf með
a.m.k. tvær plötur hérna heima. Á
ákveðnum degi verður búið að fela
þessar plötur úti um allan heim og
við tökum myndir af stöðunum þar
sem þær er að finna, póstum vís-
bendingum á Instagram-reikning
Ásgeirs og þá getur fólk byrjað að
leita,“ útskýrir María kímin.
helgisnaer@mbl.is
60 lög á einum
sólarhring
30 sjö tomma plötur urðu afrakstur
upptökumaraþons Ásgeirs Trausta
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Upptökutörn Ásgeir Trausti og Guðmundur Óskar í Hljóðrita í fyrradag.
SÝND KL. 2.10, 5, 8, 10. 40
SÝND KL. 10.20
SÝND KL. 8
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ÍSL.
TAL
SÝND KL. 12
ÍSL. 2D KL. 12, 2, 4, 6
ÍSL. 3D 12, 2
ENSK. 2D KL. 4, 6, 8, 10