Fréttablaðið - 06.01.2018, Side 107

Fréttablaðið - 06.01.2018, Side 107
skemmta. Kakó og vöfflur á vægu verði. Stjörnuljós seld í afgreiðslu. Hvað? Þrettándaannáll Ástu Sido Hvenær? 17.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu Ásta Fanney Sigurðardóttir heldur þrettándaannál kl. 17.00 til 18.00 þar sem hún fremur ýmsa ljóða- og myndlistargjörninga sem hún hefur sýnt á árinu 2017. Hún hefur tileinkað sér tilraunakennda stemningu í list sinni, hljóðlist og ljóðum sem hún hefur meðal annars flutt í Nóbelsafninu í Stokkhólmi, Slóvakíu, Frakklandi, Skotlandi og Danmörku. Á gjörningadagskránni mun Ásta flytja sum þessara verka í öðrum búningi eða bæta við nýjum. Um er að ræða upplestur, hljóðlist, vídeólist, gjörninga og tónlist. Frítt er inn á viðburðinn og öll velkomin. Hvað? Þrettándasund Hvenær? 12.00 Hvar? Sauðárkrókur Frísklegt sjávarbað á þrettándanum við nýja hafnargarðinn í smá- bátahöfninni. Benedikt S. Lafleur leiðbeinir sjávarbaðagestum og þeir sem baða sig að Benedikt við- stöddum fá 25% afslátt af grilli á Kaffi Krók. Hvað? Guðrún Benedikta Elíasdóttir sýnir málverk í Spönginni Hvenær? 14.00 Hvar? Borgarbókasafnið Spönginni Í verkunum skipa náttúran og náttúruöflin stóran sess, ekki síst jöklarnir og átök elds og íss. Sunnudagur 7. janúar 2018 Tónlist Hvað? Tónaljóð Hvenær? 14.00 Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg Í dag ætla Úlfhildur Þorsteinsdóttir, víóluleikari, og Jane Ade Sutarjo, píanóleikari, að halda saman tón- leika í Hannesarholti. Á efnisskránni eru verk eftir R. Schumann, B. Brit- ten og R. Clarke. Hvað? SunnuDjass - Rögnvaldur Borgþórsson og áhöfnin Hvenær? 20.00 Hvar? Bryggjan brugghús, Granda- garði Í kvöld mun gítarleikarinn og lífs- kúnstnerinn Rögnvaldur Borgþórs- son hræra í hvíldardagstríó ásamt bryggjumublunum Magnúsi Trygva- syni Eliassen trymbli og Andra Ólafssyni bassaleikara. Leiknir verða djassstandardar með útúr- snúningum. Viðburðir Hvað? Staðsetningar | Listamanna- spjall á síðasta sýningardegi Hvenær? 15.00 Hvar? Gerðarsafn, Hamraborg Í dag fer fram listamannaspjall í tengslum við sýninguna Staðsetn- ingar sem stendur yfir í Gerðarsafni. Litið verður til verka og aðferða listamannanna Einars Garibalda Eiríkssonar og Kristjáns Steingríms Jónssonar. Viðburðurinn markar síðasta sýningardag Staðsetninga. Kvikmyndin Wild at Heart eftir meistara David Lynch verður sýnd á Svörtum sunnudegi í Paradís að þessu sinni. Myndin fjallar um þau Lulu og Sailor sem eiga í ástarsambandi – en móðir Lulu er ekki sátt við þetta samband þeirra og sendir morðingja til að ganga frá Sailor, sem endar með að Sailor verður morðingjanum að bana og endar í steininum. Þegar Sailor og Lulu sameinast aftur eftir fangavistina byrjar tryllt atburðarás sem aðeins David Lynch gæti látið sér detta í hug. Snákaskinnsjakki, ógeðslegur tanngarður, varalitur dreifður yfir heilt andlit og margt fleira einkennir þennan költ smell. Þeir Hugleikur, Sjón og Sigur- jón Kjartansson halda utan um Svarta sunnudaga en áherslan þar er á költmyndir. Sýningin á Wild at Heart er hluti Meistaraveturs Svartra sunnudaga þar sem áhersl- an er á bestu leikstjóra kvikmynda- sögunnar. David Lynch sendi frá sér í fyrra framhald af Twin Peaks þáttunum og þótti það gríðarlega vel heppn- að hjá honum. Fyrri serían átti til að mynda miklum vinsældum að fagna hér á landi og á enn, til að mynda er haldið úti áhugamanna- félagi um þættina. Lynch kom til landsins árið 2009 til að kynna innhverfa íhugun fyrir Íslendingum enda sá hann fyrir sér að það gæti bjargað landinu frá kreppunni til dæmis. Það virðist hafa virkað hjá honum, enda blúss- andi góðæri núna. Sýningin hefst klukkan 20. „Allur heimurinn er trylltur í hjartanu og skrítinn að auki“ Móðir Lulu gjörsamlega tryllist yfir sambandi dóttur sinnar og Sailors. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 55L A U g A R D A g U R 6 . j A n ú A R 2 0 1 8 0 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :1 7 F B 1 2 0 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A C -A A 2 4 1 E A C -A 8 E 8 1 E A C -A 7 A C 1 E A C -A 6 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.