Víkurfréttir - 09.01.2003, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Samkvæmt upplýsingum frá Tollgæsl-unni á Keflavíkurflugvelli var á síðastaári lagt hald á rúm 23 kg af hassi, 1.513
gr. af kókaíni, 1.190 gr. af amfetamíni, 44
grömm af marijúana og 403 steratöflur. Á
vegum tollgæslunnar voru framkvæmdar 476
fíkniefnaleitir þar sem farþegar voru teknir
afsíðis í skyndileit og í 64 tilfellum fundust
fíkniefni eða notuð áhöld til neyslu þeirra.
Flestir farþega sem reyndust vera með fíkni-
efni meðferðis voru á leið frá Kaupmanna-
höfn og Amsterdam.
Embætti Sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli af-
greiddi 37 þessara mála, en 28 mál voru send á-
fram til rannsóknar og frekari meðferðar hjá á-
vana- og fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykja-
vík.
Fíkniefna leitað hjá 476 aðilum
í Leifsstöð á síðasta ári
Á laugardaginn 11. janúareru tvö ár liðin frá fjöl-mennum borgarafundi í
Félagsheimilinu Stapa í
Reykjanesbæ, þar sem þúsund
manns voru saman komin til
að leggja sitt á vogarskál fram-
kvæmda við tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Við lok fundar-
inns var Sturlu Böðvarsyni
samgönguráðherra afhent
krómuð skófla frá áhugahóp
um örugga Reykjanesbraut
sem nú á laugardaginn mun
gegna lykilhlutverki í formlegu
upphafi framkvæmda. Okk-
ur sem þar vorum saman kom-
in er sýndur mikil heiður að
fyrsta skóflustunga að tvö-
faldri Reykjanesbraut skuli
bera upp á þennan sama dag
tveimur árum síðar. Dagurinn
11. janúar er því táknrænn að
þessu leiti auk þess sem 11
táknar á sinn hátt þau tvö strik
sem málið allt gengur út á.
Sjaldan hefur eitt verkefni haft
svo marga virka baráttumenn í
langri sögu væntinga. Allt frá
ráðherrum til þingmanna,
sveitarstjórnarmanna til einstak-
linga sem með virkri samvinnu
og þrautsegju hafa hér vissulega
skilað góðum árangri. Í dag eru
líklega á annan tug ára síðan
hugmynd um tvöfalda Reykja-
nesbraut bar fyrst á góma og hafa
margir góðir einstaklingar lagt
málinu lið frá upphafi og munu
án efa enn aðrir koma hér að til
að leiða framkvæmdina til lykta
á allra næstu árum. Það er því
ástæða í dag að þakka sam-
gönguráðherra, Sturlu Böðvar-
syni fyrir vasklega framgöngu og
skilning á málinu, starfsmönnum
Vegagerðarinnar, þingmönnum
og öðrum sem lagt hafa sitt á
vogaskálarnar.
Í mínum huga hafa þau fjöl-
mörgu hörmuleg slys haft þau
áhrif sem við eru vitni af hér í
dag. Því fylgja margblendnar til-
finningar framkvæmd þessari
– því skulum við ekki gleyma.
Á laugardaginn kemur klukkan
13:30 munu forsvarsmenn
áhugahópsins leggja blómsveig
að minnisvarða við Kúagerði
sem reist var í minningu þeirra
sem látið hafa lífið á Reykjanes-
brautinni. Síðar eða klukkan
14:00 mun síðan vígslan hefjast
þar sem fyrsta skóflustungan af
tvöfaldri Reykjanesbraut verður
tekin við Kúagerði. Í framhaldi
mun bílalest gesta taka forskot á
sæluna og keyra nokkra kíló-
metra á báðum akgreinum
Reykjanesbrautar í átt að
Reykjanesbæ. Þar ætlar áhuga-
hópurinn að hittast ásamt verk-
tökum klukkan 15:00 og fagna
þessum tímamótum með gestum
og gangandi í Félagsheimilinu
Stapa þar boðið verður uppá
kaff isopa og formköku. Við
skorum á alla Suðurnesjamenn
og sérstaklega þá sem komið
hafa að málinu frá upphafi að
mæta og gleðjast með okkur á
góðri stundu.
Hagstæð tilboð verktaka eru okk-
ur sérstakt gleðiefni og gefa
ástæðu til bjartsýni hvað fram-
hald varðar. Við forsvarsmenn
áhugahópsins fögnum þessum
áfangasigri fyrir hönd skjólstæð-
inga okkar sem skipta hundruð-
um – sigurinn er þeirra.
Fyrir hönd félaga minna í
áhugahóp um örugga
Reykjanesbraut.
Steinþór Jónsson, formaður.
Fyrsta skóflustungan
tekin á laugardaginn
Tvöföldun Reykjanesbrautar:
Klapparbraut 5, Garði.
142m2 einbýli með 40m2 bíl-
skúr. Selst fullbúið að utan en
fokhelt að innan, grófjöfnuð
lóð. Timburverönd á baklóð.
10.500.000.-
Hjallavegur 1, Njarðvík.
92m2 íbúð á 1. hæð með sér-
inngangi og 3 svefnh. Eign
sem gefur mikla möguleika.
Laus strax. 7.900.000.-
Brekkustígur 10, Sandgerði.
Gott 87m2 einbýlishús á 2
hæðum sem gefur mikla mögu-
leika. Kjallari undir húsinu.
Hagstæð lán. 5.200.000.-
Háteigur 8, Keflavík.
Glæsileg 87m2 íbúð á 2. hæð
í fjórbýli, mikið endurnýjuð
að innan. Nýtt þakjárn,
neysluvatnslagnir og gluggar
að hluta. 8.900.000.-
Skagabraut 46, Garði.
74m2 n.h. með 2 svefnher-
bergjum. Sér inngangur.
Mikið endurnýjað. Hagstæð
lán áhvílandi. 6.200.000.-
Vesturgata 11, Keflavík.
Ágæt 2ja herbergja íbúð á
neðri hæð í tvíbýli með sér
inngangi. Hagstæð lán.
4.900.000.-
Sólvallaga 14, Keflavík.
Góð 89m2 neðri hæð með 3
svefnh. og sér inngangi.
Nýlega endurbyggður bílskúr
48m2 að stærð. 9.400.000.-
Hólagata 1, Sandgerði.
Gott 125m2 einbýli með 3 til
4 svefnh. og 50m2 bílskúr.
Eign á góðum stað í góðu
ástandi. 12.500.000.-
Grænás 3b, Njarðvík.
108m2 íbúð á efri hæð 2-3
svefnh. Sólstofa og svalir.
Allar lagnir endurnýjaðar
þegar húsið var tekið í gegn
að utan. 9.700.000.-
Fífumói 5b, Njarðvík.
Góð 2ja herb. 54m2 íbúð á
1. hæð í fjölbýli. Eign í
góðu ástandi. Hagstæð lán
áhvílandi. 5.700.000.-
Hlíðarvegur 44, Njarðvík.
117m2 raðhús með 4. svefnh.
og 28m2 bílskúr. Mikið
endurnýjað að innan, nýr sól-
pallur með heitum potti.
Hagstæð lán áhvílandi.
13.600.000.-
Faxabraut 39d, Keflavík.
Glæsilegt 132m2 raðhús á
tveimur hæðum með 45m2
bílskúr. Eign sem er öll
endunýjuð að innan sem
utan. 15.700.000.-
2. tbl. 2003 - bls. 6 8.1.2003 18:12 Page 6