Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2003, Síða 13

Víkurfréttir - 09.01.2003, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ I FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 I 13 Könnun ársins: Víkurfréttir höfðu rétt fyrir sér Víkurfréttir létu Gallup gera tvær skoðanakannanir í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Strax í fyrri könnuninni var ljóst hvert stefndi. Sjálfstæðis- flokkurinn var með hreinan meirihluta. Það varð einnig raun- in í seinni könnuninni nema hvað þar tapaði Framsóknarflokkur öðrum bæjarfulltrúa sínum yfir til Samfylkingar. 6-4-1 sem síðan varð niðurstaða kosningana í maí. Ekkert blaður í Víkurfrétt- um. Í næsta blaði: II. hluti ANNO 2002 Fantaskapur ársins: Ofbeldis- seggirnir eru í Reykjanesbæ Miðað við sambærileg embætti eru tiltölulega mörg ofbeldis- verk framin á umráðasvæði lögreglunnar í Keflavík. Þetta var upplýst í ársbyrjun. Kalli Hermanns, sem á þessum tíma var bara aðstoðaryfirlögreglu- þjónn, sagði að mikið væri um minni ofbeldisverk tengd skemmtanalífi fólks. Matgæðingar ársins: 1400 skammtar á dag, takk fyrir! Matarlyst/Atlanta varð til á árinu með sameiningu Matarlystar og Atlanta flugeldhúsi. Mikið hefur verið að gera hjá fyrirtækinu sem framleiðir allt að því 1400 matar- skammta á dag. Skólamáltíðir skipa stóran sess í framleiðslu fyrirtækisins, sem jafnframt er þekkt fyrir glæsilegar veislur og yfirleitt fyrir það að skilja engan eftir svangan þar sem þeir eru á annað borð. Verðlaunahafar ársins: Óperan, fræðin og Freyja Víkurfréttaverðlaunin voru afhent í janúar. Þau hlutu Norðuróp á sviði menningarmála, Fræðasetrið í Sandgerði á sviði atvinnu- og ferðamála og Freyja Sigurðardóttir fyrir framlag sitt til íþróttamála. Hótun ársins: All Americans must die! Breiðþota Virgin Atlantic lenti með látum í Keflavík á árinu. Óþokki um borð hafði skrifað hótun á spegil vélarinnar og minnugir atburðanna 11. september 2001 var ekki tekin nein áhætta. Allir voru settir í vopna- og sprengjuleit án árangurs. Fljótlega var slóðin rakin til flugþjóns um borð í vélinni. Hann játaði fyrir rest, var settur í járn og stungið í steininn. Stjörnustopp ársins: Travolta og Banderas í Leifsstöð Leikaraliðið úr henni Hollywood gerði stuttan stans í Keflavík þetta árið. Antonio Banderas kom í janúarnepjunni, keypti lopapeysu, kyssti stelpurnar í Leifsstöð og lét ljósmyndara Víkurfrétta hafa fyrir því að smella af sér mynd. Hollywood stjörnurnar, Brad Pitt, George Cloon- ey, Matt Damon, Andy Garcia og Julia Roberts kíktu í Leifsstöðina rétt fyrir áramótin 2001-2002 á meðan bætt var við eldsneytisbirgðir einkaflugvélar þeirra. John Travolta kom hins vegar til Keflavíkur á nýliðnu ári en stóð aldrei upp úr flugstjórasætinu heldur veifaði til ljós- myndara af öllu afli í nokkrar mínútur. Eins og hann hefði ekki getað komið út úr gamla flugvélarflakinu sínu og sagt eitthvað fallegt...! Sorpbrennsla ársins: Ruslið átti hvort sem er að brenna! Hurð skall nærri hælum á árinu þegar mikill eldur kom upp í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Eldur komst í móttökugryfju við stöðina og úr varð stærðar bál. Allt tiltækt slökkvilið af Keflavíkurflugvelli og úr Reykjanesbæ barðist við eld- inn. Ruslið sem átti að brenna, brann of snemma og ekki á réttum stað. Betur fór en á horfðist. Sorpbrennslustöðin, sem orðin er úrelt, verður þó starfrækt þar til ný stöð í Helguvík tekur við síðar á þessu ári. Hættir (ekki) ársins: Teitur hætti á toppnum - byrjaði aftur á botninum! Þessi flokkur, „hættir ársins“ varð tilefni blaðagreinar á síðasta ári. Tit- illinn er góður og á vel við Teit Örlygsson körfuboltakall sem hætti á toppnum með Njarðvík í vor en þegar liðinu gekk ekki sem best í haust og var allt að því á botninum byrjaði Teitur aftur. Hann hættir kannski aftur á toppnum í vor... hver veit! Er hægt að toppa það? Að hætta tvisvar á toppnum! Toppmaður, Teitur. Það er vor í lofti á Suðurnesjum... Hneyksli ársins! - Hvað ætli það sé??? 2. tbl. 2003 - bls. 18 og 19 8.1.2003 18:32 Page 13

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.