Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2003, Page 24

Víkurfréttir - 09.01.2003, Page 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Auglýsingasíminn er 421 0000 ALLTAF BJART • ALLTAF ÞURRT • FLEIRI VELLIR Fyrsti loðnufarmurinn erkominn til Grindavíkur ení gærmorgun lagði fjölveiðiskipið Vilhelm Þor- steinsson EA-11 að bryggju í Grindavík með um 2.700 tonn af loðnu sem fer til bræðslu í verksmiðju Samherja í Grindavík.Vilhelm er stærsta skip íslenska flotans, rúm 3.214 brúttótonn að stærð, tæplega 80 metra langt og 16 metra breitt með 7.500 hestafla aðal- vél.Arngrímur Brynjólfsson skipstjóri sagði í samtali við Víkurfréttir að þetta væri fyrs- ta loðnan sem Vilhelm kemur með að landi á þessari vertíð: „Þetta gekk mjög vel og ég er bjartsýnn á vertíðina.Við vor- um í 3 daga að fylla skipið og það er ekki að sjá annað en að vertíðin verði góð, allavega ef miðað er við hvernig hún fór af stað.“ Arngrímur segir að þeir hafi byrjað á að sigla til Grindavíkur til að koma verk- smiðjunni í gang: „Við eigum sjálfsagt ekki eftir að landa öll- um aflanum hér, það verður til- fallandi hjá okkur en í Grinda- vík eiga fleiri skip eftir að landa sínum afla,“ segir Arn- grímur en það er drjúgur spot- ti að sigla til Grindavíkur með aflann að austan: „Þetta er 400 mílna sigling og við vorum 31 klukkutíma á leiðinni. Þetta er ansi mikill kippur,“ segir Arn- grímur og hlær. Á næstu mán- uðum mun loðnan færa sig vestur eftir landinu með suður- ströndinni: „Ég býst við því að loðnan verði komin út af Grindavík í febrúarlok. Það er töluverð áta í henni núna, en um miðjan febrúar býst ég við að það verði hægt að byrja að frysta fyrir Japansmarkað,“ sagði Arngrímur í samtali við Víkurfréttir. Ó lafur Örn Ólafsson bæj-arstjóri í Grindavík sagð-ist í samtali við Víkur- fréttir að það væri ánægjulegt að finna peningalyktina í Grindavík, en lyktin sem kem- ur þegar loðnan er brædd hef- ur í gegnum tíðina verið kölluð því nafni: „Loðnubræðslan í Grindavík er eitt af öflugustu fyrirtækjunum hér á svæðinu og færir okkur töluverðar tekj- ur, þannig að við verðum að lifa við það að þessi lykt komi upp annað slagið. Rekstur Samherja í Grindavík er mikil lyftistöng fyrir blómlegt at- vinnulíf í Grindavík og skiptir bæjarfélagið miklu máli,“ sagði Ólafur Örn í samtali við Víkurfréttir. Fyrsta loðnan á land í Grindavík Peninga- lyktina leggur yfir Grindavík FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRIN GINN 898 2222 2. tbl. 2003 - bls. 24 8.1.2003 18:40 Page 24

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.