Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 1
S
T
Æ
R
S
T
A
F
R
É
T
T
A
-
O
G
A
U
G
L
Ý
S
I
N
G
A
B
L
A
Ð
I
Ð
Á
S
U
Ð
U
R
N
E
S
J
U
M
6. tölublað 24. á
rgangur
Fimmtudagurinn
6. febrúar 2003
SÍMINN ER 421 0000
35. tölublað 24.
árgangur
Fimmtudagurinn
28. ágúst 2003
Sjö dagar í
Ljósanótt 2003
Tímarit VF kemur út fyrir Ljósanótt!
Hjálmar Árnason er með fætur upp í loftið í fyllstu orðsins merkingu þessa dagana. Hann fótbrotnaði þegar hann var að landa
fallegum laxi í Straumfjarðará fyrir nokkrum dögum. Hjálmar var að bakka í löndun eftir að hafa þreytt fiskinn, festi fótinn á
milli steina og datt aftur á bak. Hann „skakklappaðist“ hins vegar nokkra daga eftir veiðina á annarri löppinni þar til að hann
lét kíkja á hana á heilsugæslunni. Þá kom í ljós að hann var með brotna löpp og slitið liðband í kaupbæti. Þingmaðurinn er því í
gifsi sem hann þarf að hafa næstu tvo mánuði að minnsta kosti. „Þetta er auðvitað hrikalegt. Verst þótti mér að missa af bestu
veiðistöðunum sem ég átti eftir en ég fer í Políönnuleikinn og segi bara að þetta hefði getað verið verra“. Þingmaðurinn fékk
aðstoð frá eiginkonunni Valgerði við löndun á laxinum. Fyrstu viðbrögð hennar voru þó að grípa stöngina. Það þótti meira
atriði að koma fiskinum á land en að huga að sárum eiginmanni þegar þetta atvik átti sér stað. Eftir línuflækju og fjör náðist
laxinn á land. Daginn eftir hélt þingmaðurinn áfram að veiða á öðru fæti og setti í tvo laxa en missti. Sagðist eftir ekki hafa
athugað þá að fá aðstoð frá eiginkonunni.
Fleiri Suðurnesjamenn voru í laxastuði síðustu daga. Margfrægt Hafnagengi sem í eru 24 frændur og vinir veiddi hálft tonn af
laxi í Langá í vikunni eða rétt tæpa 200 laxa. Meira um það í tímariti Víkurfrétta sem kemur út í næstu viku.
Landaði laxi
fótbrotinn
Hjálmar á „skrifstofunni“ heima í
Keflavík í blíðunni í gærdag.
Hann var að stýra símafundi í
stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins
þegar VF leit við í myndatöku.
Hjálmar Jónsson, fyrrum þing-
maður er í stjórninni og á meðan
fundinum orti hann þessa vísu:
Heiðursmenn í hópnum finn
og húmorinn ekki þrotinn.
Nú er hlátur nývakinn
og nafni minn brotinn.
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 14:13 Page 1