Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi
Þorsteinn Bergmann,
Vesturgötu 35,
Keflavík,
Börn, tengdabörn og afabörnin.
✞
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, föstudaginn
22. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
29. ágúst kl. 14.
ÍVíkurfréttum sem komu útí síðustu viku eru sláandimyndir af fiskúrgangi sem
hent hefur verið í sjóinn við
bryggjusporðinn í Garði.
Bergur Sigurðsson heilbrigðis-
fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Suður-
nesja segir að þarna sé greinilega
um ólöglega losun að ræða og að
þetta athæfi brjóti í bága við að
minnsta kosti þrjá lagabálka.
„Við höfum sent öllum fiskverk-
endum í Garðinum bréf þar sem
við vekjum athygli þeirra á því
að verknaður sem þessi er ólög-
legur. Flestir f iskverkenda í
Garðinum fara eftir öllum regl-
um, en greinilegt er að þar innan
um eru svartir sauðir,“ sagði
Bergur og aðspurður um hvort
Helbrigðiseftirlitið muni hefja
rannsókn á þessari losun svaraði
Bergur því til að það væri vitað
um hvaða fyrirtæki væri að ræða,
en hann vildi ekki gefa upplýs-
ingar um hvaða fyrirtæki væri
um að ræða.
Sparisjóðurinn í Keflavíkveitti Gunnari Ásgeirs-syni torfærukappa styrk
fyrir þátttöku í Íslandsmeist-
aramótinu í torfæru. Samning-
urinn var undirritaður við
smábátahöfnina og settist
Geirmundur Kristinsson spari-
sjóðsstjóri undir stýri á tor-
færutröllinu í tilefni dagsins.
Gunnar Ásgeirsson sagði við
þetta tækifæri að styrkur Spari-
sjóðsins skipti gríðarlega miklu
máli og bætti við að ef styrktar-
aðila nyti ekki við þá myndi hann
ekki keppa.
Sparisjóðurinn styrkir torfæruna
Ólögleg losun fiskúrgangs í Garðinum
VF-ljósmynd: Sparisjóðsstjórinn kunni ágætlega við sig undir stýri á
torfærutröllinu, en með á myndinni eru aðstoðarmenn Gunnars.
Stakk sér til sunds í smábátahöfninni
Í blíðviðrinu á föstudag voru ungir krakkar við leik við smábátahöfnina í Keflavík. Krakkarnir voru að busla í sjónum
og finna hve kaldur sjórinn er hér við Íslandsstrendur þrátt fyrir að sólin hafi gælt við íbúa á Suð-vesturhorninu.
Þessi ungi maður lét hinsvegar ekki kuldann aftra sér og stakk sér til sunds. Af svipbrigðunum að ræða er sjórinn
kaldur. Það skal þó ítrekað hér að krakkar verða að vera í björgunarvestum ef þau ætla að leika sér við hafnir í
Keflavík því slys geta orðið, jafnvel þó um leik barna sé að ræða. VF-ljósmynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 13:20 Page 6