Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 • Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 (15 línur) Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is • Blaðamenn: Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is, Sævar Sævarsson, sími 421 0003, saevar@vf.is • Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími 421 0001, jonas@vf.is • Auglýsingadeild: Kristín Gyða Njálsdóttir, sími 421 0008, kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0009, jofridur@vf.is • Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is stuttar F R É T T I R Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í sumar! Skemmdarverk voru unn-in á lóð dagvistunar-heimilis Þroskahjálpar á Suðurnesjum við Suðurvelli í Keflavík um helgina. Nokkrir blómapottar voru brotn- ir, rúða og borð í kofa sem stend- ur á lóðinni voru brotin og bátur sem graf inn er í jörð var skemmdur töluvert. Gísli Jó- hannsson framkvæmdastjóri Þroskahjálpar á Suðurnesjum sagði í samtali við Víkurfréttir að þessi skemmdarverk væru óþol- andi. „Mér finnst ótrúlegt að nokkur skuli gera þetta og tjónið er mest tilfinningalegt,“ segir Gísli. Á dagvistunarheimilinu verða um 15 þroskaheft börn á aldrinum 5 til 15 ára í vetur í heilsdagsvistun, en um 20 börn voru í vistun þar í sumar. Málið var tilkynnt til Lögreglunnar í Keflavík sem rannsakar nú mál- ið. Löggufréttir • Á sunnudagsmorgun óskaði leigubifreiðastjóri eftir aðstoð lögreglu þar sem farþegi í bíl hans hafði farið úr bílnum án þess að greiða ökugjaldið sem var rúmlega 10 þúsund krónur. • Rétt eftir klukkan níu á laugardagskvöld var tilkynnt um bílveltu á Reykjanesbraut við Vogastapa. Ökumaðurinn sem var einn í bifreiðinni missti stjórn á bílnum er hann ætlaði að taka fram úr annarri bifreið. Ökumaðurinn kenndi eymsla í hálsi og var bifreiðin fjarlægð af vettvangi með dráttarbifreið. • Skömmu eftir miðnætti að- fararnótt laugardagsins stöðv- aði Lögreglan í Keflavík öku- mann bifreiðar sem ók á 146 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. • Á laugardag voru fimm að- ilar kærðir fyrir að færa ekki bifreiðir sínar til skoðunar á réttum tíma Skemmdarverk hafa veriðunnin á gömlu ratsjár-stöðinni Rockville á Mið- nesheiði, þar sem Byrgið var síðast til húsa. Rúður eru víða brotnar og flest allar byggingar standa galopnar eftir að hafa verið brotnar upp. Ungmenni virðast venja komur sínar á svæðið og þegar blaða- maður Víkurfrétta kom að Rockville síðdegis í gær mætti hann tveimur ungum drengjum á reiðhjólum að yfirgefa staðinn. Talað mál og þrusk mátti heyra í húsum á svæðinu og nokkuð ljóst að ungmenni voru í felum í byggingum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Lögreglunni í Keflavík er það lögreglunnar á Keflavíkur- flugvelli að hafa eftirlit með svæðinu í Rockville. Guðmund- ur Jónsson í Byrginu, sem stóð fyrir mikilli uppbyggingu á svæðinu, lýsti áhyggjum sínum af ástandinu í samtali við Víkur- fréttir. Þarna væri búið að eyði- leggja allt það sem hafi verið lagað á síðustu árum og Rockville væri í raun komið í sama farið og þegar Byrgið tók við svæðinu á sínum tíma. Unnar Már Pétursson, 9 ára strákur úr Keflavík lá í makindum sínum við smábátahöfnina í Keflavík þar sem hann var að teikna. Unnar hefur mikinn áhuga á teikningum og stefnir að því að verða myndlistarmaður. „Mér finnst skemmtilegast að teikna andlit og stundum teikna ég landslagsmyndir.“ Unnar segist teikna mikið og án efa eiga Suðurnesjamenn eftir að sjá listaverk í framtíðinni eftir þennan unga listamann. Teiknað á bryggjunni VF-mynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson Meðfylgjandi mynd er úr varðskýli við hliðið inn á svæðið. Þar eru allar rúður brotnar og stórt gat hefur einnig verið gert í girðinguna við hliðið þannig að auðvelt er að komast inn á svæðið. VF-mynd: Hilmar Bragi Rockville lagt í rúst! Skemmdarverk unnin á dagvistun þroskaheftra á Suðurnesjum VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Rúða og innanstokksmunir í kofanum voru brotin. Fréttavakt Víkurfrétta er í síma 899 2225 VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 14:21 Page 2

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.