Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 20
Sandgerðisdagar eruhaldnir um helgina og erþað í fimmta sinn sem þessi hátíð er haldin í Sand- gerði. Dagskrá Sandgerðisdaga er glæsileg að venju og hefst hátíðin í kvöld kl. 20 á Púlsin- um - ævintýrahúsi þar sem m.a. Sr. Björn Sveinn Björns- son les úr ljóðaljóðum og Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg leika fyrir gesti. Um kvöldið verður sögukvöld á veitinga- húsinu Vitanum. Á föstudaginn kl. 20 verða Sand- gerðisdagar svo formlega settir í Safnaðarheimilinu þar sem m.a. verður Gospelsöngur, harmon- ikuleikur og kirkjukórinn mun syngja. Klukkan 21:30 verður sundlaugarpartý fyrir 7.-10. bekk í sundlaug Sandgerðis og klukk- an 22 verður leiksýning í Púlsin- um þar sem verkið Ellý alltaf góð verður sýnt, en leikritið er ekki ætlað börnum. Á veitinga- stöðunum í Sandgerði verður nóg að gerast, en á Mamma Mía verður karaoke og á Vitanum leikur hljómsveitin Príma. Klukkan 10 á laugardeginum verða ýmsar knattþrautir á íþróttavellinum og kl. 11 verður boðið upp á Gókart við f isk- markaðinn. Í Fræðasetrinu verða listsýningar og kl. 13 geta þeir sem vilja farið í þyrluflug sem kostar 2.500 kr. en pantanir eru teknar í síma 898-5521. Á plan- inu fyrir utan Púlsinn verður boðið upp á götuleikhús og list- smiðjan Ný-Vídd, Jöklaljós og Lionshúsið verða með opið hús. Það verður margt um að vera á Vitatorgi en þar hefst dagskrá kl. 13:00. Þar verður púttvöllur, Tívolí sprell, Gókart, spákona, Kajakar, útimarkaður og margt fleira. Sterkustu menn landsins keppa um titilinn Suður- nesjatröllið klukkan 13:30 á Vita- torgi. Klukkan 15 mætir Latibær á svæðið, Rut Reginalds syngur fyrir börnin, kassabílarall verður haldið og ökuleikni verður á flutningabílum. Stanslaus dag- skrá er fram á kvöld þar sem meðal annars verður lyftara rallý, dorgveiðikeppni, ball á Vitatorgi, harmonikkuleikur, varðeldur og klukkan 22:45 verður glæsileg flugeldasýning í umsjón björgun- arsveitarinnar Sigurvonar. Um kvöldið verða dansleikir á Vitan- um og Mamma Mía. Fótboltaá- hugamenn eru hvattir til að kynna sér dagskrána því boðið verður upp á beinar útsendingar í Sandgerði. Á meðan Sandgerðis- dögum stendur verður frítt í sund og tjaldsvæði verða frí. Brynhildur Kristjánsdóttir for- maður ferða- og menningarráðs Sandgerðisbæjar segir að undir- búningur undir hátíðina hafi gengið mjög vel og segir hún að allir séu boðnir og búnir til að taka þátt. „Eins og sést á dag- skránni þá er hún mjög vegleg og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Það verður stans- laus dagskrá frá fimmtudegi og fram á sunnudag og við búumst við fjölda fólks. Ég vil nota tæki- færið og þakka fyrirtækjum, ein- staklingum og Sandgerðisbæ fyr- ir frábært samstarf við undirbún- ing Sandgerðisdaga.“ 20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Þessar hressu stelpur héldu tombólur til styrktar Rauða Krossinum og þær voru bara ánægðar með árangurinn. Helga Rún Jónsdóttir, 9 ára, Elva Dögg Sigurðardóttir, 8 ára og Katrín Jóhannsdóttir, 8 ára söfnuðu 540 krónum. (Myndin t.v.) Helga Eden Gísladóttir, 6 ára og Maríanna Líf Sven, 6 ára söfnuðu 950 krónum. (Myndin t.h.) Áföstudeginum áLjósanótt verðurhaldinn útimarkaður fyrir utan Sparisjóðinn í Keflavík þar sem verslanir, handverksfólk og þeir sem hafa áhuga geta sýnt og selt sínar vörur. Markaðurinn verður í gangi frá klukkan 13 til 18 og þeir sem hafa áhuga á að bjóða vörur sínar er bent á að hafa sam- band við Fjólu í síma 863 9450 eða Kristínu í síma 863 7011. Á Sandgerðisdögum fá gestir að taka þátt í listsköpun þar sem gert verður myndlistaverk sem mun þekja 60 metra lang- an húsvegg. Þeir sem vilja geta komið að gerð listaverksins með einhverjum þar sem málning verður á staðnum og penslar. Listamenn munu setja upp grunnmynd og það er síð- an þátttakenda að spinna lista- verkið áfram, ásamt listamönn- unum sjálfum. Vinnsla við verkið hefst klukkan 13 og stendur fram eftir degi og eru sem flestir hvattir til að taka þátt. Sextíu metra langt mynd- listaverk á Sandgerðisdögum Stórglæsileg dagskrá Sandgerðisdaga um helgina Héldu tombólu til styrktar Rauða Krossinum Útimarkaður á planinu við Sparisjóðinn Frá Sandgerðisdögum 2001. Sérblað Víkurfrétta Síminn er 421 0000 VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 14:18 Page 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.