Víkurfréttir - 28.08.2003, Page 20
Sandgerðisdagar eruhaldnir um helgina og erþað í fimmta sinn sem
þessi hátíð er haldin í Sand-
gerði. Dagskrá Sandgerðisdaga
er glæsileg að venju og hefst
hátíðin í kvöld kl. 20 á Púlsin-
um - ævintýrahúsi þar sem
m.a. Sr. Björn Sveinn Björns-
son les úr ljóðaljóðum og Anna
Pálína og Aðalsteinn Ásberg
leika fyrir gesti. Um kvöldið
verður sögukvöld á veitinga-
húsinu Vitanum.
Á föstudaginn kl. 20 verða Sand-
gerðisdagar svo formlega settir í
Safnaðarheimilinu þar sem m.a.
verður Gospelsöngur, harmon-
ikuleikur og kirkjukórinn mun
syngja. Klukkan 21:30 verður
sundlaugarpartý fyrir 7.-10. bekk
í sundlaug Sandgerðis og klukk-
an 22 verður leiksýning í Púlsin-
um þar sem verkið Ellý alltaf
góð verður sýnt, en leikritið er
ekki ætlað börnum. Á veitinga-
stöðunum í Sandgerði verður
nóg að gerast, en á Mamma Mía
verður karaoke og á Vitanum
leikur hljómsveitin Príma.
Klukkan 10 á laugardeginum
verða ýmsar knattþrautir á
íþróttavellinum og kl. 11 verður
boðið upp á Gókart við f isk-
markaðinn. Í Fræðasetrinu verða
listsýningar og kl. 13 geta þeir
sem vilja farið í þyrluflug sem
kostar 2.500 kr. en pantanir eru
teknar í síma 898-5521. Á plan-
inu fyrir utan Púlsinn verður
boðið upp á götuleikhús og list-
smiðjan Ný-Vídd, Jöklaljós og
Lionshúsið verða með opið hús.
Það verður margt um að vera á
Vitatorgi en þar hefst dagskrá kl.
13:00. Þar verður púttvöllur,
Tívolí sprell, Gókart, spákona,
Kajakar, útimarkaður og margt
fleira. Sterkustu menn landsins
keppa um titilinn Suður-
nesjatröllið klukkan 13:30 á Vita-
torgi. Klukkan 15 mætir Latibær
á svæðið, Rut Reginalds syngur
fyrir börnin, kassabílarall verður
haldið og ökuleikni verður á
flutningabílum. Stanslaus dag-
skrá er fram á kvöld þar sem
meðal annars verður lyftara rallý,
dorgveiðikeppni, ball á Vitatorgi,
harmonikkuleikur, varðeldur og
klukkan 22:45 verður glæsileg
flugeldasýning í umsjón björgun-
arsveitarinnar Sigurvonar. Um
kvöldið verða dansleikir á Vitan-
um og Mamma Mía. Fótboltaá-
hugamenn eru hvattir til að
kynna sér dagskrána því boðið
verður upp á beinar útsendingar í
Sandgerði. Á meðan Sandgerðis-
dögum stendur verður frítt í sund
og tjaldsvæði verða frí.
Brynhildur Kristjánsdóttir for-
maður ferða- og menningarráðs
Sandgerðisbæjar segir að undir-
búningur undir hátíðina hafi
gengið mjög vel og segir hún að
allir séu boðnir og búnir til að
taka þátt. „Eins og sést á dag-
skránni þá er hún mjög vegleg og
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Það verður stans-
laus dagskrá frá fimmtudegi og
fram á sunnudag og við búumst
við fjölda fólks. Ég vil nota tæki-
færið og þakka fyrirtækjum, ein-
staklingum og Sandgerðisbæ fyr-
ir frábært samstarf við undirbún-
ing Sandgerðisdaga.“
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þessar hressu stelpur héldu tombólur til styrktar Rauða Krossinum og þær voru bara ánægðar með árangurinn. Helga
Rún Jónsdóttir, 9 ára, Elva Dögg Sigurðardóttir, 8 ára og Katrín Jóhannsdóttir, 8 ára söfnuðu 540 krónum. (Myndin t.v.)
Helga Eden Gísladóttir, 6 ára og Maríanna Líf Sven, 6 ára söfnuðu 950 krónum. (Myndin t.h.)
Áföstudeginum áLjósanótt verðurhaldinn útimarkaður
fyrir utan Sparisjóðinn í
Keflavík þar sem verslanir,
handverksfólk og þeir sem
hafa áhuga geta sýnt og selt
sínar vörur.
Markaðurinn verður í gangi frá
klukkan 13 til 18 og þeir sem
hafa áhuga á að bjóða vörur
sínar er bent á að hafa sam-
band við Fjólu í síma 863 9450
eða Kristínu í síma 863 7011.
Á Sandgerðisdögum fá gestir
að taka þátt í listsköpun þar
sem gert verður myndlistaverk
sem mun þekja 60 metra lang-
an húsvegg. Þeir sem vilja geta
komið að gerð listaverksins
með einhverjum þar sem
málning verður á staðnum og
penslar. Listamenn munu setja
upp grunnmynd og það er síð-
an þátttakenda að spinna lista-
verkið áfram, ásamt listamönn-
unum sjálfum. Vinnsla við
verkið hefst klukkan 13 og
stendur fram eftir degi og eru
sem flestir hvattir til að taka
þátt.
Sextíu metra langt mynd-
listaverk á Sandgerðisdögum
Stórglæsileg dagskrá Sandgerðisdaga um helgina
Héldu tombólu til styrktar Rauða Krossinum
Útimarkaður á
planinu við Sparisjóðinn
Frá Sandgerðisdögum 2001.
Sérblað Víkurfrétta
Síminn er 421 0000
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 14:18 Page 20