Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 9
Við vorum nokkuð vonsviknir en
vorum farnir að hlæja að þessu
öllu saman fljótlega.
Litlar eðlur og önnur kvikindi
Fyrir utan þjóðgarðinn hefur
þetta svæði ekki upp á mikið að
bjóða þannig að við fórum bara
og slöppuðum af í sólstólunum
fyrir utan herbergið okkar.
Chitwan-svæðið er með mikið af
mýflugum og því eru öll herberg-
in mjög vel varin með flugnanet-
um yfir öllum gluggum og hurð-
um. Það hangir meira að segja
flugnanet yfir rúmunum fyrir al-
gjöra vörn. Það er bara eitt sem
þeim hefur yfirsést við hönnun-
ina. Allt þetta til að halda pödd-
unum úti og svo er 10 cm breitt
gap milli hurðarinnar og þar sem
þröskuldur er venjulega settur
(þröskuldar eru óþekkt fyrirbæri
í Asíu). Ef maður sefur undir
flugnanetinu sem hangir yf ir
rúminu nær viftan ekki að kæla
mann neitt niður þannig að við
bárum bara á okkur moskitófælu
og brenndum reykelsi til að
bægja þeim frá. Þarna chilluðum
við yfir tónlist og engar moskitó
sjáanlegar. Eitthvað hlýtur þef-
skynið hjá moskitóflugunni að
vera öðruvísi heldur en hjá öðr-
um pöddum í dýraríkinu vegna
þess að í staðinn fyrir að fá
moskitóflugur inn var herbergið
skyndilega orðið krökkt af kvik-
indum sem við höfðum aldrei
nokkurn tíma á ævinni séð. Ein
paddan skreið um veggina, önnur
hoppaði um, aðrar pöddur voru
hálffleygar þannig að lendingar-
staðurinn hjá þeim gat alveg eins
verið í fanginu á manni, litlar
eðlur eru reyndar mjög algengar
hérna og þarna inni var nóg af
þeim líka.
Barátta við risakönguló
Þegar við héldum að þessi skor-
dýrasýning hafði náð hámarki
skreið risakönguló undan bak-
pokanum hans Magga og á þess-
um tímapunkti var þetta einfald-
lega hætt að vera fyndið. Maggi
tók upp vasaljósið sitt vegna þess
að eins og svo oft var ekkert raf-
magn á svæðinu og ætlaði að
fylla upp í gatið undir hurðinni.
Þegar hann beindi ljósinu í átt að
hurðinni kom í ljós eitthvað ógeð
sem við ætlum ekki einu sinni að
reyna að útskýra í hvaða flokk
padda/geimvera það tilheyrði.
Oft á maður til að ýkja svona
sögur en eftir langar umræður og
spekúleringar okkar á milli
komust við að þeirri niðurstöðu
að við værum ekki að ljúga að
ykkur þegar við segjum að
„ÞAГ var ekki mikið minna en
hnefinn á okkur með loppunum
6 meðtöldum. Við ætluðum að
láta það sleppa þó að hin kvik-
indin eyddu með okkur nóttinni
en vorum einróma sammála um
að hvorugur okkar skyldi sofa í
þessu herbergi á meðan þetta
fyrirbæri væri viðstatt. Hemmi
tók sig þá til og tók upp Lonely
Planet ferðahandbókina okkar
sem inniheldur allar nauðsynleg-
ar upplýsingar um Indland og
vegur u.þ.b. 1 kíló og henti í átt-
ina að skepnunni í þeirri von að
hræða hana til síns heima. Kastið
var framkvæmt í smá paniki og
bókin lenti hálf ofan á pöddunni.
Við vorum nú vissir um að við
hefðum drepið hana og svo var
sko aldeilis ekki. Þarna reyndi
hún að klóra sig áfram þangað til
Hemmi tók bókina ofan af henni.
Við héldum í það minnsta að hún
væri eitthvað smá slösuð en það
reyndist ekki heldur. Okkur tókst
þó að sópa henni aftur undir
hurðargatið þar sem hún lenti af-
velta og við gátum virt hana að-
eins betur fyrir okkur. Kom þá í
ljós að helvítið var með 2 eða 3
tær á hverjum fæti. Við sópuðum
henni svo alveg út af stéttinni og
fylltum í gatið með handklæði og
öðru tiltæku. Þessari nótt munum
við aldrei gleyma!
Nú var kominn tími til að kveðja
Chitwan og bara Nepal eins og
það leggur sig. Við köllum
Chitwan stundum Shitwan en
erum þó vissir um að garðurinn
hefur upp á meira að bjóða ef
maður er þarna á betri tíma og
með almennilegum leiðsögu-
manni.
Mjóar götur
Tókum því næst lest niður til
Varanasi á Indlandi. Þessi lestar-
ferð reyndist draumur einn og við
sváfum eins og lömb alla 8 tím-
ana. Varanasi er einn heilagasti
staður Hinduismans vegna þess
að hin heilaga Gangesá rennur
þar í gegn og þangað leggja
margir ferðamenn og pílagrímar
leið sína. Fundum okkur hótel
sem er vinsælt aðallega vegna út-
sýnisins yfir Gangesána frekar
en fínna herbergja. Við höfðum
heyrt að Varanasi væri einn heit-
asti staður Indlands en það fyrsta
sem tók á móti okkur þegar við
virtum fyrir okkur ána í allri
sinni dýrð var yndislegur gustur
sem kælir mann vel niður. Gamla
borgin í Varanasi er mjög gömul
og minnir að vissu leyti á Jerúsal-
em þó að hún sé ekki alveg jafn-
falleg. Göturnar eru svona 1 - 1.5
metri á breidd og manni finnst
bókstaflega eins maður sé í völ-
undarhúsi sem að vissu leyti
þetta er.
Lík á Gangesánni
Gangesáin gegnir margvíslegum
hlutverkum fyrir Indverja. Hún
er sundlaug, þvottahús, rotþró og
svo að sjálfsögðu kirkjugarður.
400 milljónir manna búa við
bakka hennar. Við lásum í ferða-
handbókinni okkar að Alþjóða-
heilbrigðiseftirlitið telur að til
þess að vatn sé öruggt til böðunar
má það ekki innihalda meira en
500 bakteríur af ákveðinni teg-
und í hverjum 100 ml. Ganges
áin inniheldur 1.5 milljón bakter-
íur af þessari tegund í hverjum
100 ml. Í Varanasi koma á hverj-
um degi 60.000 manns til þess að
baða sig, tannbursta og hreinsa
sínar syndir. Indverjar trúa því
líka að ef maður kemur líkinu í
ánna á innan við 7 dögum frá
andláti færi það mikla lukku í
næsta lífi.
Það er svolítil kaldhæðni í þeirri
staðreynd að Varanasi sé svona
heilagur staður en samt er þetta
eini staðurinn sem við höfum
verið varaðir við að fara út á
kvöldin. Kannski er það vegna
þess hversu auðvelt það er að
losa sig við líkið af einhverju
túristagreyi hérna. Það er bara að
henda honum í ánna! Við tókum
þessu ráði og héldum okkur inni
fyrsta kvöldið. Hittum strák frá
Svíþjóð og hann sagði að heyra
okkur tala saman væri eins og að
hlusta á 2 víkinga á spjalli. Við
töluðum saman til 2 um nóttina
en skriðum þá í bælið því daginn
eftir ætluðum við að vakna
klukkan 8 og kíkja í bátsferð um
ánna. Þó að við hefðum ekki ver-
ið komnir framúr fyrr en klukkan
hálf tíu fórum við samt í báts-
ferðina. Babu hét skipstjórinn
okkar og hann sagði okkur að
öðru hvoru flytu hálfrotin lík upp
af botninum fyrir fólk að virða
fyrir sér. Það gerðist þó ekki hjá
okkur.
Við förum frá Varanasi á morgun
til Agra og þar ætlum við að
berja augun hið fræga Taj Mahal.
Við höfum því ekki frá meiru að
segja í þetta skiptið... jú, annars
það var eðla sem kúkaði í hárið á
Magga við kvöldmatinn.
En skemmtið ykkur vel um versl-
unarmannahelgina og farið var-
lega!
Kveðja frá Varanasi
(Sjáið pistilinn í heild
sinni á vf.is)
VÍKURFRÉTTIR I 35. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 28. ÁGÚST 2003 I 9
Pistill #4 \\ meira efni frá þeim félögum á www.vf.is/heimsreisa
m fyrir fólk að virða fyrir sér
„Oft á maður til að ýkja svona sögur en eftir
langar umræður og spekúleringar okkar á
milli komust við að þeirri niðurstöðu að við
værum ekki að ljúgaað ykkur þegar við segj-
um að „ÞAГ var ekki mikið minna en hnefinn
á okkur með loppunum 6 meðtöldum.“
Venjulega er bannað að taka myndir við svona
tækifæri en þarna stóðum við með mynda-
vélarnar án þess að það virtist bögga nokkra sál.
Karlaveldi?
...og fíllinn brosti til okkar!
Mynduð þið kaup ís af þessum?
Í Varanasi koma á hverjum degi 60.000 manns til þess að
baða sig, tannbursta og hreinsa sínar syndir í Ganges ánni.
Göturnar eru svona 1 - 1.5
metri á breidd og manni
finnst bókstaflega eins
maður sé í völundarhúsi
sem að vissu leyti þetta er.
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 12:29 Page 9