Víkurfréttir - 27.11.2003, Side 2
Framkvæmdir við breikk-un fyrsta áfanga Reykja-nesbrautar ganga vel og
gera verktakar ráð fyrir að
framkvæmdum verði lokið
þann 1. júní á næsta ári, sex
mánuðum fyrr en ráðgert var.
Að sögn Halldórs Ingólfssonar
staðarstjóra við breikkun
Reykjanesbrautar bera verk-
takar ábyrgð á verkinu einu ári
eftir að umferð verður hleypt á
fyrsta áfanga tvöfaldrar
Reykjanesbrautar. Samkvæmt
áætlunum sem gerðar voru í
upphafi verksins var gert ráð
fyrir að verklok yrðu þann 1.
desember 2004, en sökum þess
hve verkið hefur gengið vel
gera nýjar áætlanir ráð fyrir
að hægt verði að hleypa um-
ferð á nýja kaflann mun fyrr
eða 1. júní. Halldór segir verk-
taka hafa mikinn áhuga á því
að umferð verði hleypt á þann
1. júní og að ábyrgðartími
verktaka verði eitt ár frá þeim
tíma.
Steinþór Jónsson forsvarsmaður
áhugahóps um örugga Reykja-
nesbraut sagði í samtali við Vík-
urfréttir að verktakar hafi leitað
til hópsins og óskað eftir aðstoð
við að ná því fram að umferð
verði hleypt á þann 1. júní. Stein-
þór segir það mjög mikilvægt að
umferð verði hleypt á eins fljótt
og kostur er. „Hópurinn fagnar
að sjálfsögðu hve verkið hefur
gengið vel og við munum að-
stoða við að ná því fram að um-
ferð verði hleypt á fyrr en áætlað
var. Í ljósi þeirra slysa sem orðið
hafa á brautinni á þessu ári er
gríðarlega mikilvægt að nýi kafl-
inn verði sem fyrst opnaður um-
ferð. Við hörmum slysin sem
orðið hafa á brautinni og munum
áfram vinna í því að fram-
kvæmdum verði flýtt,” segir
Steinþór.
Í byrjun nóvember áttu forsvars-
menn áhugahóps um örugga
Reykjanesbraut fund með Sturlu
Böðvarssyni samgönguráðherra,
en ráðherra hefur sýnt verkefninu
mikinn skilning og áhuga og átt
frumkvæði í þeim áföngum sem
þegar hefur verið náð. Sam-
gönguráðherra leggur áherslu á
vilja sinn til að klára verkefnið á
sem stystum tíma og vill sam-
starf við hópinn í því sambandi.
Til að markmið áhugahópsins
um að ljúka tvöföldun Reykja-
nesbrautar á árinu 2005 náist þarf
viðbótarfjármagn að koma til.
Samkvæmt upplýsingum frá ráð-
herra verður endurskoðun fjár-
laga á dagskrá Alþingis um
næstu mánaðarmót. Telja for-
svarsmenn áhugahópsins mikil-
vægt að þingmenn og aðrir ráða-
menn svæðisins snúi bökum
saman og komi þessu mikilvæga
verkefni á framfæri við stjórn-
völd á næstu dögum.
Sá Sturla Böðvarsson sérstaka
ástæðu til að þakka gott samstarf
við áhugahópinn og sagði að
með tilkomu hans hefði vinnu-
umhverfi verkefnis tekið nýja og
farsæla stefnu sem skilað hefði
þeim árangri sem þegar liggur
fyrir. Ástæða væri til að halda
þessu jákvæða samstarfi áfram
og klára verkið.
Steinþór Jónsson segir að í ljósi
þess að verktakar séu að ljúka
verkinu 6 mánuðum á undan
áætlun sé ástæða til að skoða
hvort það hafi áhrif á vinnu við
annan áfanga brautarinnar. „Eins
og ég hef sagt fögnum við flýt-
ingu verksins, en spyrjum um
leið hvert framhaldið verður og
hvenær hafist verði handa við
annan áfanga við breikkun
Reykjanesbrautar. Mjög mikil-
vægt er að þessar framkvæmdir
stöðvist ekki og að annar áfangi
komi í beinu framhaldi af þeim
fyrr.”
stuttar
f r é t t i r
➤ V E R K TA K A R V I Ð T V Ö F Ö L D U R R E Y K J A N E S B R A U TA R L A N G T Á U N D A N Á Æ T L U N
Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum!
Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 30-31 í Víkurfréttum í dag
Fasteignasalan Ásberg,
sími 421 1420
Eignamiðlun Suðurnesja
Sími 421 1700
Fasteignasala G.Ó.
sími 421 8111
Fasteignasalan Stuðlaberg
sími 420 4000
Menningar-
verðlaun
Reykjanesbæjar
afhent í dag
M enningarverðlaunReykjanesbæjarárið 2003 verða af-
hent við formlega athöfn í
Duus-húsum í dag kl. 17.30.
Veitt eru tvenn verðlaun, ann-
ars vegar til hóps eða einstak-
lings sem unnið hefur vel að
menningarmálum í bæjarfé-
laginu og hins vegar til fyrir-
tækis sem styrkt hefur við
menningarlíf bæjarins með
fjárstyrk eða öðru. Verðlauna-
hafar fá afhentan grip, Súluna,
eftir Karl Olsen ásamt viður-
kenningarskjali. Við sama
tækifæri mun formaður
menningar-, íþrótta- og tóm-
stundarráðs gera grein fyrir
menningarstyrkjum og undir-
ritaðir verða þjónustusamn-
ingar við nokkra menningar-
hópa í bænum. Athöfnin fer
fram á Listasafni Reykjanes-
bæjar í Duus-húsum. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Umferð hleypt á tvöfalda
Reykjanesbraut eftir 6 mánuði?
- Viðbótarfjármagn þarf til að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar 2005. Þingmenn og ráðherrar svæðisins snúi bökum saman.
Sjafnarvellir 1, Keflavík.
Um 160m2 parhús á tveimur
hæðum ásamt 32m2 bílskúr.
Parket og flísar á öllum gólfum,
fallegar innréttingar, baðherb.
flísalagt í hólf og gólf. Mjög
falleg eign. 18.900.000.-
Hólagata 2, Sandgerði.
Mjög gott 136m2 einbýli á
góðum stað í Sandgerði
ásamt tvöföldum bílskúr um
75m2. Snyrtileg eign í mjög
góðu ástandi.
15.700.000,-
Suðurvellir 16, Keflavík.
Mjög huggulegt 125m2 einbýli,
sem skiptist í stofu, borðstofu, sól-
stofu og 4 svefnherbergi,
bílskúr er 55m2. Nýlegt parket á
stofum og öllum herbergjum.
Gróðurhús á lóð, góður staður.
15.200.000.-
Grænás 3b, Njarðvík.
Stórgóð 125m2, 5 herbergja
endaíbúð á 2. hæð. Eignin hefur
verið mikið endurnýjuð að innan
sem utan. Gott útsýni.
10.500.000,-
VF 48. tbl. 2003 hbbx 26.11.2003 15:00 Page 2