Víkurfréttir - 27.11.2003, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ J Ó L A S V E I F L A N Í K E F L A V Í K U R K I R K J U
stuttar
f r é t t i r
Fyrirkomulag sorphirðu og eyðingu úrgangs frá
rekstraraðilum (fyrirtæki/opinberar stofnanir) á
Suðurnesjum mun breytast frá áramótum
2003/2004 vegna tilkomu nýrra laga og reglugerðar
um meðhöndlun úrgangs. Í þeim er kveðið á um að
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. beri skylda til að
innheimta raunkostnað vegna förgunar úrgangs.
Jafnframt skal rekstraraðili sjá til þess að nægilega
mörg sorpílát fylgi rekstrinum, hann ber ábyrgð á
hirðu og flutning úrgangs sem til fellur í starfsem-
inni og ber allan kostnað vegna meðhöndlunar hans.
Sorphirðu, flutningi og eyðingu úrgangs frá rekstr-
araðilum á Suðurnesjum á vegum Sorpeyðingar-
stöðvar Suðurnesja sf. í núverandi mynd verður því
hætt frá og með 1. janúar 2004, en sorphirða frá
heimilum mun áfram verða á höndum fyrirtækisins.
Rekstraraðilum er bent á að leita til þjónustufyrir-
tækja vegna ofangreindra þátta frá 1. janúar 2004.
Rekstraraðilar skulu jafnframt ekki að greiða sorp-
hirðugjöld frá þeim tíma.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. mun áfram sjá um
eyðingu rekstrarúrgangs frá rekstraraðilum sem
þess óska samkvæmt nýrri gjaldskrá sem verður
kynnt von bráðar.
Eldur í
raðhúsi í
Höfnum
E ldur kom upp í for-dyri raðhúss viðDjúpavog í Höfnum
snemma á mánudagsmorg-
un. Tilkynnt var um eldinn
til Neyðarlínunnar kl. 06:08
og var slökkvilið Bruna-
varna Suðurnesja og lög-
reglan í Keflavík send á
staðinn. Að sögn Sigmundar
Eyþórssonar, slökkviliðs-
stjóra BS, er grunur um
íkveikju. Hins vegar er ekki
ljóst hvort íkveikjan er af
mannavöldum eða svoköll-
uð sjálfsíkveikja.
Ein kona var í húsinu og til-
kynnti hún um eldinn til
Neyðarlínunnar. Hún yfirgaf
húsið um svaladyr. Einnig var
íbúum annarrar íbúðar í hús-
inu gert að yfirgefa húsið til
öryggis, en eldurinn var kom-
inn í þak fordyris.
Sigmundur Eyþórsson sagði í
samtali við Víkurfréttir að
litlu hefði munað að illa færi.
Þannig voru rúður í þvotta-
húsi og anddyri sprungnar og
sekúnduspursmál að eldurinn
hafi náð inn í húsið. Útkallið
til Neyðarlínunnar barst kl.
06:08:39. Slökkvilið fékk út-
kall kl. 06:09:42 og slökkvi-
bíll fór út úr húsi kl. 06:12:14.
Hann var kominn á vettvang í
Höfnum 13 mínútum síðar.
Sigmundur sagði að vegurinn
út í Hafnir hafi verið háll.
Fyrir helgi var greint frá hug-
myndum um nýja slökkvistöð
í Reykjanesbæ, sem yrði stað-
sett ofarlega á Nikkelsvæðinu.
Stöð á nýjum stað hefði stytt
viðbragðstímann um 1-2 mín-
útur. Í þessu tilviki skall hurð
nærri hælum og viðbragðið
gott hjá slökkviliðinu.
Þegar fjallað var um áhrifkeflvískra tónlistar-manna á íslenska tónlist
19. okt. sl. þá fannst mér
ástæða til að nefna hljómsveit-
ina HLJÓMA, án þess að ég
væri með því að halla á aðra
frábæra tónlistarmenn, sem
rekja ættir sínar til Keflavíkur,
t.d. Magnús Kjartansson, sem
samdi verðlaunalag Ljósanæt-
ur í haust um Ljóssins engla og
er sungið af Rut Reginalds.
Valgeir Guðjónsson, hljómlistar-
maður, tónskáld og textahöfund-
ur, sem á keflvíska ömmu og því
1/4 Keflvíkingur, að eigin sögn,
gaf mér skýringu á því hvers
vegna hljómsveitin Hljómar
hefði náð svo skjótum vinsæld-
um fyrir fjörutíu árum. Þeir áttu
þess kost að hlusta á útvarpsstöð-
ina á Keflavíkurflugvelli og til-
einka sér nýjungar í tónlist. Þeir
fengu sína þjálfun hér suður með
sjó og þegar þeir komu á höfuð-
borgarsvæðið þá slógu þeir í
gegn.
Eins og ykkur er kunnugt koma
Hljómar nú aftur, fjörutíu árum
eftir fæðingu sveitarinnar, frægð
og frama félaganna á öðrum víg-
stöðvum, eins og segir í auglýs-
ingu, og gera öllum á óvart nýja
plötu og án efa þá bestu. Tólf
sterk lög, sem bjóða upp á það
besta úr smiðju Hljóma, þar sem
fara saman fegurstu ballöður, frá-
bærar raddsetningar og feitt rokk
og þeir eru enn að mati aðdá-
enda, - langflottastir.
Lítið dæmi um áhrif keflvískra
tónlistarmanna á íslenska tónlist.
Mér finnst sérstök ástæða til þess
að þakka þeim fyrir hve jákvæð
áhrif tónlist þeirra hefur haft á
uppvaxandi kynslóð. Og með
góðri endurkomu sinni nú eyða
þeir öllum aldursfordómum.
Kirkegård sagði eitt sinn að tón-
arnir næðu þangað sem sólar-
geislarnir berast ekki. Það sýnir
okkur mikilvægi tónlistarinnar,
hvort sem hún er dægurtónlist,
klassísk eða af þjóðlegum toga.
Það er engin þörf á að færa sönn-
ur á að tengsl séu milli tónlistar
og kirkju eða tónlistar og trúar.
Það liggur í augum uppi allt frá
fyrstu öldum kristninnar og fram
á þennan dag. Gunnar Þórðarson
hefur t.d. samið tónlist um
Heilaga messu og sorgina, að
mig minnir eftir snjófljóðin á
Vestfjörðum. Rúnar Júlíusson
samdi eitt sinn, texta um Krist,
“Hann fór um fjöll”, við Píla-
grímakórinn, sem var afar vin-
sælt, en bannað á sínum tíma. Í
dag dytti engum í hug að banna
það lag. Hljómsveitin HLJÓM-
AR leikur í Keflavíkurkirkju 30.
nóv. og 7. des. n.k. fyrsta og ann-
an sunnudag í jólaföstu kl. 20:30.
Þeir koma fram ásamt Kór og
Barnakór Keflavíkurkirkju sem
syngja undir stjórn Hákonar
Leifssonar, organista og kórstjóra
kirkjunnar. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir. Jólasveifl-
unni verður endurvarpað yfir í
Kirkjulund í bæði skiptin.
Ólafur Oddur Jónsson
„Hljómar á heimavelli” í Keflavíkurkirkju
Sorpeyðingarstöð Suður-nesja hefur óskað eftirtilboðum í sorphirðu frá
öllum íbúum Gerðahrepps,
Grindavíkurbæjar, Reykjanes-
bæjar, Sandgerðisbæjar og
Vatnsleysustrandarhrepps
næstu 5 árin, frá og með 1.
febrúar 2004.
Í útboðsauglýsingu í Víkurfrétt-
um í síðustu viku er óskað eftir
tilboðum í sorphirðu á 10 daga
fresti. Í dag er sorp tekið frá
heimahúsum vikulega. Þeir sem
hafa áhuga á að bjóða í verkið
geta m.a. fengið útboðsgögn á
skrifstofu Sorpeyðingarstöðvar-
innar á Fitjum. Tilboð í sorphirðu
á Suðurnesjum skulu merkt:
Sorphirða á Suðurnesjum og
skulu berast Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja, Fitjum, Njarðvík
eigi síðar en kl. 11.00 mánudag-
inn 22. desember 2003.
Óska eftir
sorphirðu á
tíu daga fresti
Sorpeyðingarstöðin hættir að taka
fyrirtækjasorp án endurgjalds
Ómar Jónsson og fjöl-skylda hafa keypt bens-ínstöð Orkunnar að
Fitjum í Njarðvík. Ómar er
Suðurnesjamönnum að góðu
kunnur, en hann var verslunar-
stjóri Samkaupa í Grindavík
um árabil, auk þess sem hann
situr í bæjarstjórn Grindavík-
ur.
Hjá Ómari að Fitjum er bensín-
stöð Orkunnar og segir Ómar að
spennandi tímar séu framundan í
bensínsölu á Íslandi. „Sam-
keppnin á eftir að harðna á bens-
ínmarkaðnum, en Orkan hefur
gefið sig út fyrir að bjóða ávallt
lægsta bensínverðið. Það þýðir
einfaldlega að lækki einhver
verðið, þá munum við lækka
verðið hjá okkur,” segir Ómar og
ljóst er að samkeppnin verður
hörð á markaðnum.
Í versluninni að Fitjum er boðið
upp á allar helstu þjónustuvörur
fyrir bifreiðar og segir Ómar að
áhersla sé lögð á góða þjónustu
við viðskiptavini. „Ég skipti um
rúðuþurrkur, perur, olíur og fleira
ef viðskiptavinir óska þess. Við
bjóðum upp á breitt vöruúrval.”
Ómar gefur bæjaryfirvöldum í
Reykjanesbæ góða einkunn fyrir
fegrun umhverfisins að Fitjum.
„Fitjasvæðið hefur verið tekið
gjörsamlega í gegn og finn ég
fyrir mikilli ánægju með fram-
kvæmdirnar. Hér hefur uppbygg-
ing verið mikil, bæði í iðnaðar-
hverfinu og íbúðarhverfum begg-
ja vegna en svæðið á mikla fram-
tíð fyrir sér. Grænáshverf ið
byggist hratt upp og Njarðvík-
urnar. Svæðið liggur einnig mjög
vel við flugvellinum,” segir
Ómar og bætir við. „Það er tven-
nt sem við lofum Suðurnesja-
mönnum. Keilir verður alltaf á
sama stað og Orkan mun alltaf
bjóða lægsta bensínverðið á
svæðinu.”
Nýir rekstraraðilar að
bensínstöðinni á Fitjum
VF 48. tbl. 2003 hbb 26.11.2003 14:30 Page 4