Víkurfréttir - 27.11.2003, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 27. NÓVEMBER 2003 I 21
Nú í haust stóð foreldrafé-lag Holtaskóla fyrir for-varnarverkefni með
elstu nemendum skólans gegn
einelti og er verkefnið einnig
liður í að brúa bilið milli eldri
og yngri deilda skólans. Verk-
efnið kallast ÚTLIT og mark-
mið þess er: Að efla vitund
eldri bekkjardeilda á einelti, að
aðstoða eldri nemendur við að
vera ábyrgir einstaklingar
í skólaumhverfinu og gagnvart
yngri nemendum og síðast en
ekki síst að efla siðferðislega
ábyrgð eldri nemenda gagnvart
samnemendum. (Ekki bara horfa
heldur hjálpa - líta ekki í hina átt-
ina).
Það gefur auga leið að aðalvett-
vangur verksins eru útiveran og
frímínúturnar í skólanum. Nem-
endur í 10. bekk hafa nú um
nokkurt skeið fylgst með yngri
nemendum. Þetta hefur gengið
mjög vel og hefur komið á sér-
stökum tengslum eldri nemenda
við þá yngstu í skólanum og eytt
óþarfa hræðslu yngri nemenda
við þá eldri.
Hingað til hafa þeir nemendur
sem eru í gæslu á hverjum tíma
klæðst litríkum vestum en nú
hafa þau fengið úlpur að gjöf.
Regnbogabörn gefa úlpur.
Miðvikudaginn 19. nóvember af-
henti Freyja Friðbjarnardóttir
framkvændastjóri Regnboga-
barna nemendum 10. bekkjar
úlpur sem notaðar verða. Fulltrú-
ar frá foreldrafélaginu í Holta-
skóla FFH voru viðstaddir af-
hendinguna. Freyja lýsti yfir
mikilli ánægju samtakanna með
þetta framtak í Holtaskóla og í
janúar munu samtökin Regn-
bogabörn bjóða nemendunum á
kvöldvöku í húsnæði samtak-
anna í Hafnarfirði. Stjórn for-
eldrafélagsins þakkaði nemend-
um fyrir það frábæra starf sem
þau eru nú að inna af hendi og
hvatti þau til dáða. Stjórnin mun
strax eftir áramót setjast niður
með hópnum og fara yfir stöð-
una og ræða hvað betur megi
fara í útiverunni við skólann. Hér
er um einstakt framtak að ræða
sem er liður í að vinna gegn ein-
elti og bæta líðan barna í skólum.
Helga Margrét
ÍHeiðarskóla er lögð áherslaá listir og skapandi starf,íþróttir og hollar lífsvenjur.
Þar eru nemendur einnig þjálfað-
ir í sjálfstæðum vinnubrögðum,
samvinnu og beitt er jákvæðum
aga. List- og verkgreinar skipa
þar veglegan sess og á undan-
förnum árum hafa ömmur og
afar t.d. verið velkomin í sérstak-
ar kennslustundir í saumi og
smíðum.
Fastur liður í skólastarf inu í
Heiðarskóla í ár eru svokallaðar
Menningarstundir sem felast í
því að nemendur koma saman á
sal skólans og sýna ýmis menn-
ingarlega tengd atriði fyrir sam-
nemendur sína.
Í síðasta mánuði voru það nem-
endur í oddatölubekkjunum sem
sýndu skólafélögum sínum atriði
sín og í nóvember munu svo
hlutverkin snúast við. Ýmislegt
skemmtilegt kemur fram á
Menningarstundunum eins og
leikrit, stuttmyndasýningar, söng-
ur, dans og upplestur. Á Menn-
ingarstundunum fer fram sam-
þætting ýmissa námsgreina og
börnin læra að koma fram og
flytja það sem þau hafa unnið.
Sigurbjörg Róbertsdóttir, deildar-
stjóri á unglingastigi, segir að
upphafið að þessum menningar-
stundum hafi verið að nokkrir
bekkir haf i verið með svona
stundir innan bekkjanna síðast-
liðin ár.
Á þessu skólaári var ákveðið að
útfæra hugmyndina frekar og
voru starfsmenn og nemendur
skólans mjög ánægðir með
hvernig til tókst í október og
hlakka til næstu Menningar-
stundar sem verður síðustu vik-
una í nóvember.
MENNINGARSTUNDIR
Í HEIÐARSKÓLA
Forvarnarverkefnið Útlit
Fyrsta jólasýning Púlsinsævintýrahúss í Sand-gerði verður næstkom-
andi laugardag 29. nóvember
klukkan 13:00 í Samkomuhús-
inu í Sandgerði. Á sýningunni
koma allir leiklistarhópar
Púlsins fram, 35 börn á aldrin-
um 6-15 ára með frumsamin
leikrit.
Jólasýning
Púlsins á
laugardag
VF 48. tbl. 2003 hbb 26.11.2003 14:56 Page 21