Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 6
stuttar
f r é t t i r
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ L E S I Ð Ú R B Ó K U M
➤ L I S TA V E R K A M Á L Á R N A J O H N S E N
MUNDI
Ég hélt að Hitaveitan
læsi bara af mælum...
Vegna ómaklegrar um-ræðu í garð menningar-fulltrúa Reykjanesbæjar
í ræðu og ritum undanfarna
daga, tel ég mér skylt að segja
lítillega frá myndlistahefð í
Reykjanesbæ og um leið sam-
skiptum Félags myndlista-
manna við menningarfulltrúa
Valgerði Guðmundsdóttur.
Staða menningarfulltrúa er ung í
Reykjanesbæ og óhætt að segja
að á þeim stutta tíma sem liðinn
er frá því menningarfulltrúi tók
til starfa, hafi grettistaki verið
lyft í menningarmálum. Þar
þekki ég best þá hlið sem snýr að
myndlistafólki en ég hef verið
formaður Félags myndlista-
manna í Reykjanesbæ í þrjú ár
og haft mikil og góð samskipti
við menningarfulltrúa.
Í Reykjanesbæ er myndlistahefð
mikil. Þar hefur í gegnum árin
verið unnið mikið grasrótarstarf í
formi námskeiða undir hand-
leiðslu landsþekktra listamanna.
Margt af okkar menntaða lista-
fólki hefur þar stigið sín fyrstu
skref. Félag myndlistamanna
leggur áherslu á að halda áfram
þessu góða starfi, auk þess að
skapa vettvang til að koma al-
þýðulist á framfæri s.s. með sýn-
ingum og öðrum uppákomum.
Félagar eru á annað hundrað,
menntaðir og viðurkenndir
myndlistamenn jafnt sem byrj-
endur í myndlist. Þessi breidd
hefur gefið félaginu hvað mest
gildi og sýnir að mínu mati
þroska þeirra menntuðu til að of-
metnast ekki, heldur vera hluti af
heildinni. Sem dæmi um sam-
vinnuna má nefni að árlega, í
tengslum við Ljósanótt, heldur
félagið samsýningu félagsmanna
þar sem gestir hafa skipt þúsund-
um.
Menningarfulltrúi Reykjanesbæj-
ar hefur sýnt þessari hefð skiln-
ing og staðið við bakið á félaginu
og einstökum félögum þess eftir
því sem til hennar hefur verið
leitað. Hún hefur einnig haft
frumkvæði að ýmsum atriðum
sem í sameiningu hefur verið
hrint í framkvæmd. Þó myndlist-
arhefð í Reykjanesbæ sé gömul,
þá hefur hún að mestu hvílt á
grasrótinni, en með stuðningi
menningarfulltrúa blómstrar
myndlistastarf í Reykjanesbæ
sem aldrei fyrr.
En grettistakið sem ég nefni áðan
hefur ekki síst verið sú metnaðar-
fulla stefna menningarfulltrúa
f.h. Reykjanesbæjar að gera
menntuðum og viðurkenndum
myndlistarmönnum góð skil. Í
því augnamiði hefur verið sett á
laggirnar Listasafn Reykjanes-
bæjar, sem hefur uppá að bjóða
einn glæsilegasta sýningarsal á
landinu. Þar fá einungis að sýna
menntaðir eða viðurkenndir lista-
menn. Félag myndlistamanna er
stolt af listasafninu sem er hrein
viðbót við það myndlistaum-
hverfi sem hér hefur ríkt. Það er
ómetanlegt fyrir áhugafólk um
myndlist að geta farið á metnað-
arfullar sýningar mörgum sinn-
um á ári í sinni heimabyggð.
Einnig erum við stolt af þeim
móttökum sem safnið hefur
fengið meðal listamanna.
Blómlegt menningarstarf hlýtur
að felast í því að gera allri list
skil, hvort sem um er að ræða al-
þýðulist eða menntaða listamenn.
Í Reykjanesbæ er það gert, með
góðum stuðningi frá menningar-
fulltrúa Reykjanesbæjar.
Hjördís Árnadóttir
formaður Félags myndlista-
manna í Reykjanesbæ
Myndlist og menning í Reykjanesbæ Ölvaðir á bíl út ímóa með barn-
unga stúlku í för
Aðfaranótt sl. laugar-dags var tilkynnt umgrunsamlegan akst-
ursmáta ökumanns bifreið-
arinnar við Mánagrund.
Lögreglumenn komu
skömmu síðar að bifreið sem
var utanvegar og voru þrjú
ungmenni í næsta nágrenni
bifreiðarinar. Tvö þeirra, ölv-
aðir 18 og 20 ára menn, voru
teknir höndum og færðir í
fangaklefa þar sem þeir fengu
að sofa úr sér áfengisvímuna
auk þess sem ræða þurfti við
þá næsta dag. Með þeim í för
var 14 ára stúlka. Mennirnir
voru grunaðir um að hafa
stolið bifreiðinni fyrr um
nóttina. Einhverjar skemmdir
urðu á bifreiðinni.
Á hvolfi við
Frekjuna
Skömmu eftir mið-nætti á föstudags-kvöld var tilkynnt um
fólksbifreið á
hvolfi við
gatnamót
Flugvallar-
vegar og
Frekjunnar í
Reykjanes-
bæ. Þegar
lögreglan kom á staðinn var
ökumaður á bak og burt, en
að sögn vitna hafði hann
verið undir áhrifum áfeng-
is.
Eftir skamma leit hafði lög-
reglan uppi á ökumanninum
sem var handtekinn og færður
til lögreglustöðvar. Þar fékk
hann að sofa úr sér áfengis-
vímuna auk þess sem taka
þurfti skýrslu af honum næsta
morgun. Mildi þykir að hann
slapp án meiðsla en bifreiðin
skemmdist nokkuð.
Anna Jónsdóttir frá Hitaveitu Suðurnesja las fyrir starfsmenn Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja sl. þriðjudag í hádeginu, en hitaveitan skoraði á HSS. Anna las
upp úr bókinni Þjóðsögur við þjóðveginn í mötuneyti Heilbrigðisstofnunar-
innar, en Jón R. Hjálmarsson tók saman. Bókin var gefin út árið 2000 og las
Anna sögurnar Rauðhöfði, illhveli á Hvalfirði og söguna Marbendill sem á að
hafa gerst í Vogum á Vatnsleysuströnd. Sigríður Snæbjörnsdóttir fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja skoraði á Hlévang, dvalar-
heimili aldraðra í Keflavík.
Ríkið selji hlut
sinn í Hitaveitu
Suðurnesja
M innihluti Samfylk-ingarinnar í Fjár-laganefnd, að frum-
kvæði Jóns Gunnarsson al-
þingismanns, lagði fram á
alþingi á þriðjudag tillögu
þess efnis að ríkið fengi
heimild til að selja 15% hlut
sinn í Hitaveitu Suðurnesja,
en nafnverð hlutarins er um
1.100 milljónir króna.Tillag-
an er skilyrt þannig að verja
skuli andvirði hlutabréfanna
til atvinnuuppbyggingar á
Suðurnesjum.
Uppsagnir
ræddar á Alþingi
Jón Gunnarsson þing-maður Samfylkingar-innar í Suðurkjördæmi
hefur óskað eftir utandag-
skrárumræðu við utanríkis-
ráðherra á Alþingi vegna
uppsagna innan Varnarliðs-
ins. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær umræðan fer fram.
Hitaveitan las fyrir
Heilbrigðisstofnun!
VF 48. tbl. 2003 hbbx 26.11.2003 13:36 Page 6