Víkurfréttir - 27.11.2003, Side 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ V I N N U M I Ð L U N Á LY K TA R
➤ M Y N D A R L E G I R K A R L A K Ó R S T Ó N L E I K A R
Stórtónleikar í íþróttahúsinu
Fjölmenni var á afmælistónleikum Karlakórs Keflavíkur sem haldnir voru um síðustu helgi, en kórinn fagnar 50 ára af-
mæli sínu um þessar mundir. Á tónleikunum komu fram, auk Karlakórs Keflavíkur, Karlakórinn Þrestir og Karlakórinn
Fóstbræður. Kórarnir sungu allir í sitthvoru lagi, en í lok tónleikanna sungu kórarnir allir saman nokkur lög. Dagskráin
var glæsileg og voru gestir ánægðir með tónleikana. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Um 100 nýnemar Fjöl-brautaskóla Suðurnesjasem sækja um skólavist
á vorönn verða teknir inn í
skólann með þeim fyrirvara að
fjárveitingar fáist frá ríkisvald-
inu til skólans. Ólafur Arn-
björnsson skólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja sagði í
samtali við Víkurfréttir að vísa
þyrfti þessum nemendum úr
skóla ef fjárveitingar fjárveit-
ing fæst ekki. „Við verðum að
taka þessa nemendur inn með
fyrirvara um að fjárveiting fá-
ist frá ríkisvaldinu. Reynslan
segir okkur að um 100 nýnem-
ar hafa verið að sækja um á
vorönn og við búumst við þeim
fjölda nú.”
Á fundi Svæðisráðs Svæðis-
vinnumiðlunar Suðurnesja sem
haldinn var 12. nóvember síðast-
liðinn var eftirfarandi ályktun
samþykkt samhljóða varðandi
aukna fjárveitingu til Fjölbrauta-
skólans.
„Í ljósi alvarlegs ástands atvinnu-
mála hér á Suðurnesjum og fyrir-
ætlana um fækkun starfa hjá
varnarliðinu þarf vart að taka það
fram hvaða afleiðingar það hefði
á vinnumarkaðinn og þar með at-
vinnuleysið ef þar á ofan 150-
200 ungmennum af Suðurnesj-
um yrði vísað frá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja vegna skorts á fjár-
veitingum til kennslu. Nú þegar
hefur nýnemum sem sótt hafa
um á vorönn verið tilkynnt að
inntaka þeirra verði háð fjárveit-
ingum til kennslu 2004.
Í ljósi þessa alvarlega ástands vill
svæðisráð ítreka fyrri yfirlýsingu
frá því í júlí 2003 og skora á
Menntamálaráðuneytið, fjárveit-
ingavaldið og Alþingi að tryggja
að framlög til skólans séu í sam-
ræmi við aðsókn,” segir í ályktun
Svæðisráðsins.
Verður nýnemum Fjölbrautaskóla
Suðurnesja vísað frá á vorönn?
Frá og með 1. desemberopnar göngudeildpsoriasis og exem sjúk-
linga á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Deildin er stað-
sett á annarri hæð (eldri
byggingu) og er opnunartími
frá kl. 08-16 alla virka daga.
Fyrr á árinu gaf Suðurnesja-
deild SPOEX nýjan ljósaskáp
sem gefur bæði A og B geisla.
Ásamt því að taka þennan skáp
í notkun er ætlunin að bjóða
upp faglega ráðgjöf hjá hjúkr-
unarfræðingi deildarinnar og í
framtíðinni er vonast til að
ljósahárgreiða og fóta- og
handtæki bætist við. Eftir þjón-
ustu þessarri hefur verið lengi
beðið og er það von okkar hér
á HSS að með þessu verði
komið til móts við þarfir psori-
asis og exem sjúklinga á Suð-
urnesjum.
Til að geta hafið meðferð þarf
viðkomandi að koma með
beiðni frá húðsjúkdómalækni.
Starfsfólk Dag- og
göngudeildar HSS
Reynslusaga Rut Regin-alds söngkonu úr Kefla-vík er komin út, en Rut
áritaði bók sína í Pennanum í
Keflavík nýverið. Í bókinni seg-
ir Rut frá lífshlaupi sínu, en
eins og flestir vita var hún ein
helsta barnastjarna landsins
um margra ára skeið. Margar
sögur úr Keflavík eru í bók-
inni. „Ég er náttúrulega alin
upp í Keflavík og í bókinni eru
margar reynslusögur héðan,
bæði góðar og svo miður góðar.
Mér þykir ofsalega vænt um
Keflvíkinga og ber miklar
taugar til svæðisins,“ sagði Rut
í samtali við Víkurfréttir.
Samhliða bókinni hefur verið
gefinn út geisladiskur með
barnalögunum sem Rut söng
hér áður fyrr og segir Rut það
vera gott tækifæri fyrir for-
eldra að gefa börnunum sínum
geisladiskinn um leið og það
kaupir bókina.
Rut áritaði í
Bókabúðinni
Göngudeild psoriasis
og exem sjúklinga
opnar á HSS
Handverkshúsið SjólistVíkurbraut 1 Grinda-vík hefur verið starf-
rækt í 2 ár um þessar mundir.
Rúmlega 30 efnilegar hand-
verkskonur eiga um 4000
vinnustundir að baki í húsinu.
Aðal viðfangsefnið hefur verið
handmótað keramik þar sem
hver og ein hefur skapað sitt
eigið form og stíl. Vegna fjölda
áskoranna hefur verið hönnuð
vönduð bjalla í fallegri
gjafaöskju og viljum við nefna
hana Grindavíkurbjallan 2003
og hefur hver og ein sitt númer.
Þar sem takmarkað upplag er
til viljum við benda fólki að
sækja ósóttar pantanir.
Opnunartímar í Sjólist eru
fimmtudaga til laugardags frá kl
2 til 6
Verið velkomin, Sjólistarkonur.
GRINDAVÍKUR-
BJALLAN Í SJÓLIST
VF 48. tbl. 2003 hbbx 26.11.2003 13:55 Page 14