Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 25

Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 25
VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 27. NÓVEMBER 2003 I 25 Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712 • sport@vf.is Hvenær byrjaðir þú að æfa körfu? -Ætli ég hafi ekki verið svona fimm ára þegar ég byrjaði að æfa með Njarðvík. Það kom ekkert annað til greina. Ég var líka að æfa fótbolta lengi, en svo kom bara að því að ég þurfti að velja á milli, en það var nú ekki erfið ákvörðun. Mér fannst bara miklu skemmtilegra í körfu og svo voru vinir mínir líka allir þar. Hvenær fórst þú að æfa með meistaraflokki? -Það var í fyrra þegar ég var eitthvað 17-18 ára. Það voru svolítil viðbrigði vegna þess að maður þarf auðvitað að styrkja sig mikið fyrir að leika á móti stóru köllunum. Hverjir eru þínir helstu styrkleikar og veik- leikar sem leikmanns? Ég held að minn sterkasti kostur sé sá að ég gefst aldrei upp, held alltaf áfram þangað til yfir líkur. Nú áttir þú frábæran leik í úrslitaleiknum gegn Keflavík,eins og frægt er orðið. Komstu öðruvísi stemmdur í þann leik en aðra? -Jú, ætli maður hafi ekki verið einbeittari en áður. Þetta var náttúrulega fyrsti úrslitaleikurinn minn og það á móti Keflavík, þannig að maður var enn staðráðnari í að standa sig vel og vinna leikinn. Hvernig leið þér svo eftir leikinn? -Þetta var bara ótrúleg tilfinning, frábært. Þetta kommbakk hefði ekki getað verið betra hjá okkur. Hefurðu leitt hugann að því að fara út í at- vinnumennsku? -Ég hef nú ekkert spáð í það af neinni alvöru. Þetta væri örugglega rosalega gaman en þetta er ekki eitthvað sem ég hef stefnt á alla tíð. Truflar boltinn ekkert námið hjá þér? Nei, nei. Þetta gengur allt upp. Ég er búinn með húsasmíði og er að klára stúdentinn af félags- fræðibraut eftir um það bil ár. Þannig að þannig að þetta er ekkert að trufla. Er það þá kannski á hinn veginn? Já námið er að tefja mig of mikið frá boltanum. Nei nei, í fullri alvöru gengur þetta bara vel sam- an. ■ Um síðastliðna helgi fór fram 2. og 3. deild karla á Íslandsmótinu innanhúss, en leikið var í Austur- bergi í Breiðholti. Grindavík og Víðir spiluðu í 2. deild, D-riðli og gekk misvel Grindavík tryggði sér sæti í 1. deild á næsta ári með topp- sætinu, en Víðir lenti í þriðja sæti. Önnur lið sem tryggðu sér sæti í 1. deild voru Leiknir F., Stjarnan og Sindri, en ÍH, Einherji, Bolungarvík og Huginn fóru upp í 2. deild. Athygli vakti að Grind- víkingar tefldu fram tveimur ung- um leikmönnum, Snorra Birgissyni og Hafsteini Rúnari Helgasyni sem hafa nýlega gengið frá félaga- skiptum sínum. ■ Hafsteinn Rúnar, sem leikur stöðu vinstri bakvarðar, flyst félagaskiptum úr Reyni úr Sandgerði. Hann er 18 ára að aldri en hefur engu að síðar verið fasta- maður hjá Reyni að undanförnu. Hann spilaði m.a. alla leiki liðsins í 3. deildinni í sumar og skoraði í þeim 4 mörk. ■ Snorri er 19 ára markmaður, borinn og barnfæddur Keflvíkingur sem hefur að undanförnu verið á mála hjá Víkingi í Reykjavík. Þar æfði hann með 2. flokki en fékk ekki að spreyta sig með meistara- flokki. Þjálfari hans þar var Zeljko Sankovic, sem nú hefur tekið við þjálfun Grindavíkur og taldi Snorra á að fylgja sér þangað. Snorri hefur leikið allmarga ungmennalands- leiki fyrir Íslands hönd og vitað var til þess að mörg erlend félög höfðu áhuga á að fá hann í sínar raðir fyrir nokkrum misserum. ■ Ljóst er að Grindvíkingar eru að hugsa til framtíðar og eiga þessir þrír leikmenn vafalaust eftir að sýna hvað í þeim býr áður en langt um líður. SPORTSPJALL G U Ð M U N D U R J Ó N S S O N • N J A R Ð V Í K ■ Íslandsmót í knattspyrnu innanhúss / 2. og 3. deild Margt smátt... Hæð: 188cm Skónúmer: 45 Uppáhaldslið í Enska: Liverpool Uppáhaldslið í NBA: Toronto. Carter er maður- inn! Hvaða bók lastu síðast? Bara skólabækurnar Besta kvikmynd allra tíma: Shawshank Redemption Uppáhalds hljómsveit: Erfitt að nefna einhverja eina, en ég hlusta nú aðallega á rapp. Helstu kostir þínir sem leikmaður: Ég held að það sé að ég gefst aldrei upp. Helstu ókostir þínir sem leikmaður: Ætli það sé ekki skapið. Ég á það til að missa mig aðeins og fá á mig óþarfa villur. TÓK KÖRFUBOLTA FRAM YFIR FÓTBOLTANN „Námið er að tefja mig of mikið frá boltanum“ Auglýsingasíminn 421 0000 VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:11 Page 25

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.