Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
■ Intersport-deildin í körfuknattleik / næstu leikir
■Hópbílabikarinn / Keflavík - Njarðvík
NJARÐVÍK-HAUKAR
Í kvöld mætast Njarðvík og Haukar
í Íþróttahúsinu að Ásvöllum í Inter-
sport-deildinni. Njarðvíkingar eru
eflaust fullir sjálfstraust eftir frá-
bæra frammistöðu í Hópbílabik-
arnum um síðustu helgi, en Hauk-
arnir eru orðnir að eins konar
Grýlu hjá þeim síðustu ár eftir slakt
gengi, en nú skal víst verða breyt-
ing á samkvæmt Friðriki Ragnars-
syni, þjálfara Njarðvíkur. „Leikur-
inn leggst bara vel í mig, en hann
er svolítið óheppilega tímasettur
með tilliti til Bikarleiksins sem er
bara tveimur dögum seinna.. En
það er langt síðan við unnum þá
því þeir eru búnir að vinna okkur í
sex leikjum í röð. Við ætlum okkur
að breyta því og sættum okkur
ekki við neitt annað en sigur!“
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK
Þessi leikur fer fram á mánudaginn
og er næsta víst að bæði lið koma
til leiks einsett á sigur. Grindavík er
sem stendur í efsta sæti deildarinn-
ar og hefur unnið alla sína leiki og
Keflavík er fjórum stigum á eftir í
þriðja sæti. Bæði liðin urðu fyrir
miklum vonbrigðum eftir úrslita-
keppni hinna Fjögurra Fræknu í
Hópbílabikarnum um síðustu helgi
og vilja eflaust rétta sinn hlut.
Þrátt fyrir að Keflavík sé að berjast
á mörgum vígstöðvum segir Falur
Harðarson engu að síður að hans
menn séu tilbúnir í leikinn gegn
Grindavík. „Við ætlum okkur að
vinna þennan leik. Grindvíkingar
eru auðvitað með mjög sterkt lið
og nú er Helgi Jónas að koma aftur
upp eftir meiðsli sem styrkir þeirra
hóp mikið, en ef við náum að spila
okkar leik er ég ekki hræddur við
neitt lið.. En ef við hins vegar hætt-
um að spila eins og gegn Njarðvík í
síðasta leik verður okkur refsað.
Eitt auðveldasta sem maður gerir í
lífinu er nefnilega að vera lélegur í
íþróttum!“
NJARÐVÍK-KEFLAVÍK 90-83
Njarðvík lagði Keflavík að velli í
rafmögnuðum spennuleik með 90
stigum gegn 83 og eru því Hóp-
bílabilabikarmeistarar 2003.
Njarðvík byrjaði leikinn með mik-
lum krafti og komust yfir 10-0. Þá
var komið að Keflvíkingum sem
hrukku í gang í sókninni og skelltu
í lás í vörninni. Þeir rúlluðu yfir þá
grænu og leiddu eftir fyrsta
fjórðung 19-29. Í öðrum leikhluta
hélt lánleysi Njarðvíkur áfram þar
sem Keflavíkurvörnin stöðvaði alla
sóknartilburði ásamt því að
Bradford og Allen áttu fantagóðan
leik í sókninni. Staðan í hálfleik var
því 35-49 Keflavík í vil og útlitið
ekki bjart hjá Njarðvík.
Þriðji leikhluti var mun jafnari en
hinir fyrri, en Njarðvíkingar virtust
staðráðnir í því að hanga í leiknum.
Þegar var komið fram í fjórða
leikhluta höfðu Keflvíkingar enn
góða forystu 59-74 en þá urðu
kaflaskil í leiknum. Barátta og sig-
urvilji Njarðvíkinga bar þá
Keflvíkinga hreinlega ofurliði þar
sem Njarðvíkingar tóku 20 af 29
fráköstum í boði í síðasta leikhlu-
tanum á sama tíma og aðeins 3 af
19 skotum Keflvíkinga skiluðu sér
rétta leið ofan í körfuna. Guð-
mundur Jónsson og Halldór
Karlsson höfðu komið inná og
leiddu endurreisn Njarðvíkur og
stuttu síðar misstu Keflvíkingar
Allen og Jón Norðdal útaf með 5
villur. Þeir höfðu fram að því verið
með bestu mönnum Keflavíkur
eins og svo oft áður en án þeirra
hrundi leikur liðsfélaga þeirra og
Njarðvíkingar gegnu á lagið.. Alls
skoraði Guðmundur 15 stig í síð-
asta fjórðungi og var sannkölluð
hetja sinna manna.
Lokamínúturnar voru óbærilega
spennandi, en vendipunktur
leiksins var þó þegar Brenton varði
skot Fals og sendi boltann fram á
Guðmund sem breytti stöðunni í
87-83. Eftir mikinn baráttuleik
stóðu Njarðvíkingar uppi sem sig-
urvegarar..
Guðjón Skúlason var af augljósri
ástæðu verulega ósáttur að leiks-
lokum. „Við gáfumst bara upp. Svo
áttu dómararnir lélegan dag og það
er allt í lagi að þeir fái að vita það.
Við vorum að spila vel þangað til
að þeir tóku af okkur tvo menn, en
það var okkur að kenna að spila
ekki betur undir restina.“
Friðrik Ragnarsson var í skýjunum
að lokinni verðlaunaafhending-
unni. „Ég er eiginlega bara orðlaus!
Þetta sýnir okkur að það er alltaf
hægt að vonast það besta. Ég sagði
strákunum í hálfleik að missa þá
ekki frá okkur í þriðja leikhluta
þannig að við vorum alltaf inni í
leiknum.“ Hann jós einnig lofi yfir
strákana sem komu af bekknum
þ.e. Guðmund, Halldór og Ólaf.
„Brandon og Brenton áttu ekki
mjög góðan leik, en þá koma
strákarnir sterkir inn af bekknum.
Svo segja menn að við höfum enga
breidd!“
Stigahæstir Njarðvíkur:
Guðmundur 23 stig, Brandon 21
stig, Friðrik 17 stig og 14 fráköst
og 5 varin skot.
Stigahæstir Keflavíkur: Derrick 23
stig og 10 fráköst, Nick 20 stig og
Gunnar Einars 17 stig.
Keflavík gafst upp
fyrir Njarðvík
®
Þessi vinur
minn á af-
mæli þann
27. nóvem-
ber. Til ham-
ingju með
daginn, þín
vinkona.
Afmæliskveðja
Föstudaginn 28. nóvember verð-
ur fegurðardrottningin/mamma,
Margrét
Helga Jó-
hannsdóttir
fertug.
Til hamingju
með daginn,
pabbi og
gríslingarnir.
Afmælis-
kveðjur
VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:24 Page 26