Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 2

Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 2
➤ S O R P E Y Ð I N G A R S T Ö Ð S U Ð U R N E S J A Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum! Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 46-47 í Víkurfréttum í dag Fasteignasalan Ásberg, sími 421 1420 Brekkustígur 33a, Njarðvík. Góð 2ja herb. 58m2 íbúð á 2. hæð í fjölbýli. Húsið var tekið í gegn að utan í sumar og málað. 6.400.000.- Eignamiðlun Suðurnesja Sími 421 1700 Greniteigur 24, Keflavík. Mjög gott 135m2 raðhús ásamt 36m2 bílskúr. Parket á gólfum, sólpallur, heitur pottur o.fl. Rúmgóð eign. 14.500.000.- Fasteignasala G.Ó. sími 421 8111 Suðurgata 17-19, Sandgerði. Mjög góð og falleg 77m2 íbúð á jarðhæð í Miðhúsum fyrir 60 ára og eldri, í húsinu er mötuneyti og félagsstarf aldraða. Laus strax. 8.300.000,- Fasteignasalan Stuðlaberg sími 420 4000 Kópubraut 7, Njarðvík. Um 156m2 einbýli ásamt 39m2 bíl- skúr. Rúmgott og vel skipulagt hús í rólegu umhverfi. Fjögur svefn- herb., forhitari á miðstöð. 18.800.000.- stuttar f r é t t i r 2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Saltfiskþjófar í Grindavík L ögreglunni í Keflavíkvar fyrir helgi til-kynnt um tvo menn sem voru að bera saltfisk í pokum út úr fyrirtækinu Stakkavík í Grindavík. Starfsmaður kom að mönn- unum þar sem þeir voru með poka í höndunum á leið út í bifreið sína. Þegar mennirnir urðu varir við starfsmanninn hlupu þeir út í myrkrið og skildu bif- reið sína eftir, en í henni mátti sjá fleiri poka af salt- fiski. Lögreglan í Keflavík lagði hald á bifreiðina. Óskað eftir umræðu um málefni ör- yrkja í bæjar- stjórn Ó skað var eftir sér-stakri umræðu ummálefni öryrkja og þeirra sem verst eru settir í Reykjanesbæ á næsta fundi bæjarstjórnar Reykjanes- bæjar, en Sveindís Valdi- marsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og full- trúi í félagsmálaráði Reykjanesbæjar óskaði eft- ir umræðunni. Í greinar- gerð með bókuninni segir að ástæðan fyrir beiðninni sé sú óvissa sem fjölmargir standi frammi fyrir á jóla- föstunni um stöðu sína á húsnæðismarkaði vegna breytinga á félagslegu hús- næðiskerfi Reykjanesbæjar. N ý gjaldskrá fyrir Sorp-eyðingarstöð Suður-nesja tekur gildi þann 1. janúar 2004, en um áramótin verða breytingar á fyrirkomu- lagi sorphirðu og eyðingu úr- gangs frá rekstraraðilum á Suðurnesjum. Breytingarnar felast í því að Sorpeyðingarstöð Suðurnesja mun hætta sorp- hirðu og eyðingu úrgangs frá rekstraraðilum. Í fréttatilkynn- ingu á heimasíðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum kemur fram að frá 1. janúar þurfi rekstraraðilar að sjá um og bera allan kostnað af sorp- hirðu, flutning úrgangs og eyð- ingu hans á viðurkenndum eyðingarstað. Jafnframt er þeim bent á að leita til þjón- ustufyrirtækja með ílát undir rekstrarúrganginn. Rekstrar- aðilar skulu jafnframt ekki greiða sorphirðugjöld frá og með 1. janúar 2004. Í tilkynn- ingunni kemur einnig fram að sorphirða frá heimilum verði áfram í höndum Sorpeyðingar- stöðvarinnar og að stöðin muni einnig sjá um eyðingu rekstr- arúrgangs frá rekstraraðilum sem þess óska samkvæmt gjaldskrá. Á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku gagnrýndi Kjartan Már Kjartansson bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins harðlega að gjaldskrá Sorpeyðingarstöðvar- innar væri ekki tilbúin. Taldi Kjartan það vera ótækt þar sem fyrirtæki eru þessa dagana að gera fjárhagsáætlanir fyrir næsta ár. „Þar sem fyrirtæki þurfa nú að greiða fullt gjald fyrir sorphirðu þurfa þau að vita hvert gjaldið verður fyrir áætlanir næsta árs. Ný gjaldskrá á að taka gildi þann 1. janúar nk. og mér finnst það ótækt að gjaldskráin sé ekki til- búin tæpum mánuði áður en hún á að taka gildi,” sagði Kjartan m.a. um málið á bæjarstjórnar- fundinum. Guðjón Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Sorpeyðingar- stöðvar Suðurnesja segist sam- mála þeirri gagnrýni sem kemur fram um að gjaldskráin sé helst til seint á ferðinni. „Við höfum verið að fara í gegnum lög og reglugerðir sem hafa flækt málin verulega í vinnunni við nýja gjaldskrá,” sagði Guðjón í sam- tali við Víkurfréttir, en hann býst við að ný gjaldskrá líti dagsins ljós innan skamms.„Það er stjórn stöðvarinnar sem tekur ákvörðun um nýju gjaldskrána og ef drögin sem við leggjum fram á morgun verða samþykkt, þá getum við hafist handa við að kynna gjald- skrána.” Ný gjaldskrá sorphirðu fyrir- tækja tekur gildi um áramót Kalka, nýja sorpeyðingarstöðin. „Við leigðum hann í sumar, keyptum hann síðan og létum lengja hann um tvo metra,“ sagði Lárus Ólafsson þegar hann var að dytta að bát sínum Baddý GK 277 við bryggjuna í Sandgerði á dögunum. Lárus á bátinn ásamt Halldóri Pét- urssyni og fóru þeir í fyrsta róðurinn á bátnum eftir lengingu fyrir um hálfum mánuði, en þeir verða á línu. „Hann kom vel út í prufukeyrslunni. Gekk 25 míl- ur í skítakalda,“ sagði Lárus en það var fyrirtækið Plastverk í Sandgerði sem sá um lengingu bátsins. Breyttur bátur í Sandgerði Lögreglan í Keflavíkfór í sérstakar eftir-litsferðir um Reykja- nesfólkvang og um Eld- varparsvæðið um helgina en nokkuð hefur borið á því að undanförnu að tilkynnt hafi verið um rjúpnaveiði- menn á svæðum þessum en sem kunnugt er nýtur sá fugl sérstakrar friðunar. Skemmst er frá því að segja að lögreglumenn urðu ekki varir við veiðimenn á svæð- um þessum. Lögreglan leitar að ólöglegum rjúpna- veiðimönnum Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 14:57 Page 2

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.