Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Jólatónleikar
Samkórs Kópa-
vogs í Njarðvík-
urkirkju
13. desember
Samkór Kópavogs held-ur tónleika í Njarðvík-urkirkju laugardaginn
13. desember kl. 16:00.Að-
alefni tónleikanna er Sjá
himins opnast hlið, verk fyr-
ir blandaðan kór, orgel(pí-
anó), þverflautu, óbó, lág-
fiðlu og selló eftir stjórn-
anda Samkórs Kópavogs
Julian Michael Hewlett við
texta sr. Björns Halldórsson-
ar. Kórinn hefur ekki flutt
þetta verk áður.Auk þess
verða flutt jólalög bæði á ís-
lensku og ensku.
Undirleikari á tónleikunum er
Jónas Sen, auk þess leikur
Guðrún Birgisdóttir á flautu,
Eydís Fransdóttir á óbó, Arn-
þór Jónsson á selló og Ásdís
Runólfsdóttir á lágfiðlu.
Um þessar mundir eru 50 ár frástofnun Krabbameinsfélags Kefla-víkur og nágrennis.Tildrögin að
stofnun félagsins voru þau að á sérstökum
hátíðarfundi í tilefni 400. fundar
Rotaryklúbbs Keflavíkur bar Alfreð Gísla-
son þáverandi bæjarfógeti upp þá tillögu
að Rotaryklúbburinn beitti sér fyrir stofn-
un Krabbameinsfélags í Keflavík.Tillögu
Alfreðs var vel tekið og var hún samþykkt
samhljóða. Þá þegar var skipuð undirbún-
ingsnefnd sem í áttu sæti auk Alfreðs þeir
Karl G. Magnússon héraðslæknir og
Björn Jónsson sóknarprestur.Til stofn-
fundar var síðan boðað sunnudaginn 15.
nóvember 1953. Samkv. fundargerðum frá
stofnfundi kvaddi Karl G. Magnússon hér-
aðslæknir sér hljóðs og ræddi m.a. nauð-
syn krabbameinsvarna og baráttuna við
þennan hræðilega vágest. Hann vék síðan
að því að margt væri ógert á þessu sviði í
landi okkar og fjármagn væri af skornum
skammti til tækjakaupa og byggingar
sjúkrarýmis sem gæti sinnt krabbameins-
lækningum. Félagið fékk nafnið Krabba-
meinsvörn Keflavíkur og nágrennis en
nafninu var síðar breytt í Krabbameinsfé-
lag Suðurnesja. Fyrsta stjórn félagsins var
skipuð eftirtöldum aðilum:
Formaður Karl G. Magnússon héraðslæknir
Varaformaður Alfreið Gíslason bæjarfógeti
Ritari Björn Jónsson sóknarprestur
Gjaldkeri Egill Þorfinnsson skipasmiður
Vararitari Kalvel Ögmundsson útgerðar-
maður
Meðstjórnendur Friðrik Þorsteinsson
skriftofustjóri og Þorgrímur St. Eyjólfsson
forstjóri.
Fræðsla helsta verkefnið
Í þessi 50 ár frá stofnun félagsins hefur stjórn
hvers tíma unnið að sömu markmiðum og
upphaflega var lagt upp með. Sem eru m.a.
þau að styðja í hvívetna baráttuna gegn
krabbameini, með fræðslu til almennings,
með kaupum á tækjum fyrir sjúkrahús og síð-
ast en ekki síst styðja krabbameinssjúklinga í
baráttu sinni.
Nú síðustu ár hefur Krabbameinsfélagið lagt
áherslu á forvarnarstarf með því að veita
fræðslu um skaðsemi reykinga í grunnskólum
á Suðurnesjum. Þessu hlutverki hefur
fræðslufulltrúi félagsins sinnt sem er eitt
stærsta verkefni sem félagið hefur ráðist í á
síðari árum í samvinnu við Krabbameinsfélag
Íslands.
Um þessar mundir mun ungt fólk ganga í hús
á Suðurnesjum og bjóða merki félagsins til
sölu, allur ágóði af sölunni verður nýttur til
að sinna baráttumálum félagsins, sem eru
fjölmörg og afar býn.
Vill Krabbameinsfélag Suðurnesja biðja Suð-
urnesjamenn að taka vel á móti unga fólkinu
og styðja með því móti við starf félagsins.
stuttar
f r é t t i r
Krabbameinsfélag Suðurnesja 50 ára
➤ F É L A G S M Á L
Hávaðasöm ung-
menni með bjór
og landabrugg
Skömmu fyrir kl. 21 álaugardagskvöld varkvartað til lögreglu
vegna há-
vaða í ung-
lingum
utan dyra
við Hring-
braut í
Keflavík.
Lögreglan
fór á stað-
inn, þar var
um að
ræða 10
unglinga á
aldrinum
14-16 ára.
Þeir voru með bjór og
„landabrugg“ sem var tekið
í vörslu lögreglu. Þrír þeirra
voru undir áhrifum áfengis.
Haft var samband við for-
eldra þeirra og barnavernd-
arfulltrúa gert viðvart.
Í tilefni af 50 ára afmæli Krabbameinsfélags
Suðurnesja ákvað stjórn félagsins að færa
Hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði svo og
heimahjúkrununni við Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja gjafir. Eru þessar myndir teknar á
Garðvangi við það tækifæri.
Öryrkjar og ellilífeirisþegar!
Vantar ykkur aðstoð við jólaskreytingarnar?
Erum nokkrir vaskir drengir í jólaskapi sem viljum aðstoða við að skreyta á
erfiðum stöðum svo sem gemsum, fánastöngum, þökum, o.s.frv., ykkur að
kostnaðarlausu. Tökum á móti beiðnum á milli kl: 17:00 og 19:00
á fimmtudag og föstudag, í síma 421 8444.
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
H
ilm
ar
B
ra
gi
B
ár
ða
rs
on
Að
se
nd
ljó
sm
yn
d
Að
se
nd
ljó
sm
yn
d
Eins og kemur fram í greininni þá er
Krabbameinsfélag Suðurnesja stofnað af Rótary
félögum og á annari myndinni er heiðursfélagi í
Rótaryklúbb Keflvíkur Karvel Ögmundsson en
hann var viðstaddur þegar gjöfin var afhent.
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 12:32 Page 12