Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Page 14

Víkurfréttir - 11.12.2003, Page 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! A lur, álvinnsla hf. varformlega opnuð fyrirhelgi í Helguvík að við- stöddu fjölmenni. Í fréttatil- kynningu frá fyrirtækinu kem- ur fram að í verksmiðjunni sé ál endurunnið úr álgjalli og ál- ríkum efnum er falla til hjá ál- verum Alcan í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga, en þessi efni voru áður flutt til endurvinnslu í Evrópu. Verksmiðjan er búin nýjum vist- vænum tæknibúnaði sem settur var upp í húsnæði Síldarvinnsl- unnar í Helguvík og starfsmenn Síldarvinnslunnar sjá um dagleg- an rekstur. Í upphafi er gert ráð fyrir að unnið verði úr um 6 þús- und tonnum af álgjalli og brotaáli á ári og að álframleiðsla verk- smiðjunnar nemi um 3 þúsund tonnum af áli á ári. Í upphafi er einungis hluti af afkastagetu verksmiðjunnar nýttur og þarf 5 starfsmenn til vinnslunnar. Með stækkun álveranna eykst magn hráefna. Þá verður verksmiðjan keyrð á vöktum allan sólarhring- inn og mun þá þurfa allt að 15 manna starfslið. Upphafsmenn Als eru Helgi Þór Ingason og Þorsteinn I. Sigfús- son og hópur tengdur þeim ásamt Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Tæknin er þróuð af AGA, Hertwich Engineering í Austur- ríki og álframleiðandanum Corus og er hún af sama tagi og notuð hefur verið undanfarin sjö ár í verksmiðju Corus í bænum Voer- de í Þýskalandi. Að uppsetningu verksmiðjunnar komu Hertwich sem framleiddi og stjórnaði upp- setningu á vélbúnaði, Síldar- vinnslan hf sem setti búnaðinn upp og Iðntækni ehf sem annað- ist hönnun og framkvæmdaeftir- lit fyrir Al. Helgi Þór Ingason stjórnarfor- maður segist vera mjög kátur með að verksmiðjan sé tekin til starfa. „Það er mjög þægileg til- f inning að sjá hugmynd sem fæddist fyrir 8 árum síðan verða að veruleika,“ segir Helgi og hann er ánægður með aðkomu Reykjanesbæjar að verkefninu. „Aðkoma Reykjanesbæjar að verkefninu hefur verið til fyrir- myndar og forsvarsmenn bæjar- ins hafa sýnt mikið frumkvæði og áræði í verkefninu öllu. Að mínu mati er Helguvíkursvæðið einstakt svæði þar sem gríðarleg- ir möguleikar eru á sviði atvinnu- uppbyggingar.“ Að sögn Helga er verksmiðjan einungis keyrð á þriðjungsafköstum um þessar mundir og segir hann að verið sé að skoða möguleika á járn- bræðslu í verksmiðjunni. ➤ V I Ð S K I P T I O G AT V I N N U L Í F Á S U Ð U R N E S J U M Alur tekur formlega til starfa í Helguvík Helgi Þór Ingason stjórnarformaður fyrirtækisins kynnir starfsemina fyrir gestum í Helguvík. Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Að ofan: Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, ávarpar gesti úr einu steypukerjanna í Helguvík. Hann kynnti möguleika Helguvíkur sem iðnaðarsvæðis Til hægri: Helgi Þór Ingason stjórnarformaður, Þorsteinn Ingi Sigfússon og Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri í Helguvík. VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:37 Page 14

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.