Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 30
Reykjanesbær mun ekkigreiða kostnað vegnageymslu, flutnings eða
sýningu á verkum Árna John-
sen í Reykjanesbæ, en þetta
kemur fram í skriflegu svari
Valgerðar Guðmundsdóttur
menningarfulltrúa við fyrir-
spurn bæjarfulltrúa Samfylk-
ingar og Framsóknarflokks.
Svar Valgerðar var lagt fram á
bæjarstjórnarfundi í gær-
kvöldi, en engar umræður
urðu um málið á fundinum.
Svar menningarfulltrúa vegna
fyrirspurnar bæjarfulltrúa Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks:
„Það stendur ekki til að bæjar-
sjóður borgi leigu vegna geymslu
listaverka Árna Johnsen og bæj-
arsjóður tekur ekki þátt í kostnaði
vegna flutnings verkanna til
Reykjanesbæjar. Í október sl.
gafst menningarfulltrúa Reykja-
nesbæjar sem einnig er for-
stöðumaður Listasafnsins kost-
ur á að skoða verk Árna Johnsen
og tók í framhaldi af því ákvörð-
un um að sína verkin í Gryfj-
unni í Duushúsum
(óinnréttuðum hliðarsal) enda
hefur menningar-, íþrótta- og
tómstundaráð Reykjanesbæjar
hingað til treyst forstöðumanni til
að velja þá sýnendur sem hann
telur áhugaverða hverju sinni.
Til þessa hafa 7 sýningar verið
haldnar í sýningarsal Listasafns-
ins í Duushúsum og aðrar 7 verið
haldnar í öðru húsnæði á vegum
Listasafnsins eða með aðstoð
Listasafnsins.
Listasafn Reykjanesbæjar tók í
notkun sýningarsal í Duushúsum
í lok síðasta árs og hefur haldið
7 sýningar. Sýningarstefnan í
salnum er ákveðin, þar sýna að-
eins valdir listamenn, fagmenn
sem eru menntaðir í myndlist.
Um er að ræða nokkurs konar
boðsýningar. Listamenn hafa
samband við safnið og síðan er
valið úr þeim hópi. Sýnendum
býðst eftirfarandi: Flutningur á
verkum til og frá sýningarsal, lit-
prentaður 36 bls. bæklingur um
verkin og listamanninn á ensku
og íslensku. Í þetta hafa verið
notaðir styrkir frá velunnurum. Í
staðinn skilur listamaðurinn eftir
verk sem bætist þá við listaverka-
eign safnsins.
Listasafn Reykjanesbæjar hefur
hins vegar einnig styrkt eða stað-
ið fyrir öðrum sýningum á öðr-
um stöðum, m.a. í óinnréttuðum
hliðarsölum í Duushúsum
(Bíósalnum, boxkjallaranum,
Fischershúsinu, Svarta pakkhús-
inu o.fl.). Þar hafa ekki endilega
verið á ferðinni fagmenn heldur
fólk sem hefur verið að gera
áhugaverða hluti, heimafólk og
aðrir. Þessu fólki býðst eftirfar-
andi: Húsnæði (oft í misjöfnu
ástandi) og aðstoð við undirbún-
ing sýningar, annað er á ábyrgð
og kostnað sýnenda og/eða þeirra
styrktaraðila. Árni Johnsen er í
þessum hópi.”
Valgerður
Guðmundsdóttir
menningarfulltrúi
Reykjanesbæjar
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ L I S TA V E R K Á R N A J O H N S E N Í R E Y K J A N E S B Æ
Kostnaður vegna sýningar Árna
Johnsen ekki greiddur af Reykjanesbæ
stuttar
f r é t t i r
Dans á rósum
Saga konu sem veiktist
af MS sjúkdómnum
fyrir 40 árum.
Ingibjörg Sigfúsdóttirhefur barist við MSsjúkdóminn síðustu
fjörtíu ár og í bók sinni,
Dans á rósum lýsir hún
samskiptum sínum við
lækna og íslenskt heilbrigð-
iskerfi. Ingibjörg segir
einnig frá því hvernig henni
tókst á undraverðan hátt að
nýta sér þá ógn sem stend-
ur af MS sjúkdómi stafar
sem tækifæri í lífi sínu.
Ingibjörg hefur öll þessi ár
leitað að óhefðbundnum
leiðum til að halda sjúk-
dómnum í skefjum. Ingi-
björg fluttist til Keflavíkur
þegar hún var 12 ára gömul
og bjó á Suðurnesjum í
rúm 10 ár. Hún heldur
miklu sambandi við Suður-
nes, en eiginmaður hennar
er ættaður úr Sandgerði.
Ingibjörg segir að efni bókar-
innar eigi erindi við alla, ekki
bara þá sem berjast við MS
sjúkdóminn. „Ég hef í gegn-
um tíðina prófað mikið af
óhefðbundnum lækningum
og í bókinni lýsi ég reynslu
minni af þeim. Ég bendi fólki
á að það séu til fleiri leiðir en
í hinu hefðbundna heilbrigð-
iskerfi. Ég fjalla líka um mik-
ilvægi þess að fólki líði vel
andlega, en það er forsenda
þess að fólk geti tekist á við
erfiðan sjúkdóm og jafnvel
lífið sjálft,“ segir Ingibjörg en
bók hennar, Dans á rósum er
til sölu í Pennanum í Kefla-
vík. Einnig er hægt að panta
bókina í síma 695-9910 eða
senda tölvupóst á netfangið
inba@mi.is.
Þessi litla prinsessa, Elva Rún
Davíðsdóttir er eins árs í dag
11.desember.
Kær kveðja frá Mömmu, Pabba,
Ömmu og Afa á Birkiteig og
Ömmu og Afa á Gónhóli.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Að
se
nd
ljó
sm
yn
d
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:41 Page 30