Víkurfréttir - 11.12.2003, Page 34
34 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Erótískt kvöld verðurhaldið á skemmtistaðn-um Castró bar í Kefla-
vík laugardagskvöldið 13. des-
ember nk. Að sögn aðstand-
enda kvöldsins koma margir
að þessu kvöldi og má þar með-
al annars nefna tímaritið
Bleikt & Blátt, Beck’s Gold,
tískuverslanirnar Mangó og
Park ásamt hjálpartækjabúð-
inni Erotica og auðvitað
Casino Night Club í Keflavík.
Klámkóngur Íslands ásamt
RNB snillingi sjá um að þeyta
skífur og allt það nýjasta í tón-
list verður á fóninum. Erótík
og nekt er mottó kvöldsins og
fáum við til liðs við okkur
nektardansmeyjar ásamt ís-
lenskum dönsurum úr Reykja-
vík, segir einn þeirra sem
skipuleggur gleðskapinn.
Tískusýningar verða þar sem
meðal annars verður sýndur
undirfatnaður sem á eftir að
vekja athygli.
Castró bar tekur u.þ.b. 280
manns í hús en á þetta kvöld í
fyrra mættu í fyrra u.þ.b. 340
manns. Margar nýungar eru á
þessu ári og má þar nefna t.d.
GO-GO dansara sem sýna listir
sýnar í æsandi fatnaði í búrum
ásamt því sem að hjálpartæki
verða gefin á staðnum með þeim
hætti að númer á aðgangsmiðum
eru dregin upp. Frítt verður inn
fyrir konur til kl. 00:30 en að-
gangseyrir fyrir herra verður kr.
1000. „Fyrir ykkur sem: elskið
að djamma, voruð að klára próf-
in og gekk vel, voruð að klára
prófin og gekk illa, fóruð ekki í
próf, eruð að vinna og langar í frí
eða þá að þið séuð fyrir stemn-
ingu þá er þetta málið”, segja að-
standendur erótíska kvöldsins í
samtali við blaðið.
verða netagerðarmeistari -
kvæntistu inn í fagið?
„Já, ætli það ekki bara. En pabbi
var sjóari og ég er alinn upp í
saltfiskinum suður með sjó.
Þannig hef ég alltaf verið tengdur
sjávarútveginum en netagerðin er
kannski örlítið nýr flötur þar á.
Reyndar er þetta ekki mjög væn-
leg starfsgrein fyrir gítarleikara.
Kennarinn minn í Keflavík fórn-
aði höndum þegar ég sagði hon-
um að ég væri á leiðinni vestur
að fara að vinna við netagerð.
Þetta þykir ekki gott fyrir puttana
en hefur gengið ágætlega hjá
mér. Reyndar er maður bólginn
og þrútinn sum kvöld og þá er
ekkert æft. Þá verður bara að
setja hendurnar í kalt vatn og
bíða.
Reyndar er ég töluvert fjölþreif-
inn í atvinnumálum ef svo má að
orði komast. Ég starfa líka hjá
Gúmmíbátaþjónustu Vestfjarða
og verð að auki að vinna hjá
Slökkviliði Ísafjarðarbæjar í
sumar.”
- Netagerðin á kannski ágæt-
lega við músíkina sem slíka en
verr við fingurna, eða hvað?
„Það er eins með netagerðina og
fiskvinnsluna að oft er þetta
tarnavinna. Og einhvern veginn
er það þannig að ég hef aldrei
meiri þörf fyrir að spila en þegar
ég er þreyttur. Þá er eins og sköp-
unargáfan leysist öll úr læðingi.
Maður fær einhverja útrás í spila-
mennskunni.”
Kántrítónlistin lögð í einelti
- Nú starfarðu með kántrí-
hljómsveit og þetta er kannski
viðkvæmt mál. Í gegnum tíðina
hefur mörgum þótt kántríið það
allra hallærislegasta í tónlist-
inni.Verður þú var við þetta?
„Já, mér finnst menn alltaf vera
að taka kántríið fyrir. Ég vona að
Unaðsdalur eigi eftir að leggja
sitt af mörkum til að gera kántrí-
ið að viðurkenndri tónlist. Auð-
vitað er þetta viðurkennd tónlist
en allt of margir eru einhverra
hluta vegna hálffeimnir við að
hlusta á kántrí. En ef menn spá
aðeins í það, þá hefur þessi tón-
list haft gríðarleg áhrif, til dæmis
á rokkið.
- Stafar þetta kannski, eins og
oft er með fordóma, af þekking-
arleysi á kántrítónlist?
„Já, að einhverju leyti er það
skýringin. En menn verða náttúr-
lega að fá að hafa sínar skoðanir í
friði. Sumum finnst þetta ein-
faldlega kjánalegt. Auðvitað er til
gott og slæmt kántrí, alveg eins
og það er til hundleiðinlegur
djass og æðislegur djass. Þetta
ameríska iðnaðarkántrí er auðvit-
að steingelt og hundleiðinlegt,
megnið af því. Ég er alltaf að
hamra á því að Hank Williams sé
upphafið á þessu enda er hann
algjör snillingur. En svo er líka
æðislega gaman að fylgjast með
þessari vakningu sem er að verða
hjá unga fólkinu. Willie Nelson
hefur til dæmis spilað á Hró-
arskelduhátíðinni og gjörsamlega
heillað liðið. Johnny Cash hefur
líka verið að gera það gott að
undanförnu og er nánast endur-
fæddur ef svo má segja. Enda
hafa þessir menn lifað ýmislegt
og hafa margt fram að færa -
Johnny Cash var að semja fyrir
Elvis Presley á sínum tíma.”
- En hvernig lítur framtíðin út?
Á að koma börnunum á legg og
fara síðan á hljómleikaferðalag
um heiminn?
„Ég veit ekki hvað skal segja.”
- Er kannski ekki verið að
skipulegga svo langt fram í tím-
ann?
„Nei. Núna langar mig mest til
að leggja rækt við það sem ég
hef verið að gera þó ég viti ekk-
ert hvað komi út úr því. Það er
voða gaman að spila fyrir fólk og
ég hef alltaf notið mín í því. En
málið er að koma frá sér efni -
það er markmiðið. Nú er líka
ekki orðið neitt mál að koma frá
sér diski. Þannig er það engin af-
sökun lengur en var heljarinnar
mál þegar maður byrjaði í þess-
um bransa”, segir Þröstur Jó-
hannesson, tónlistar- og neta-
gerðarmaður, sem á nóg af efni í
vinnslu.
Hvenær það verður gefið út á eft-
ir að koma í ljós. Fyrr en síðar
kemur að því og þá gefst tæki-
færi til að hlýða á niðurstöðurnar
frá tónlistarleit Þrastar á Ísafirði.
Castró gerist erótískur
➤ Þ R Ö S T U R J Ó H A N N E S S O N Á Í S A F I R Ð I
Fjögurra barna faðir í rokkinu
- framhald
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
H
ilm
ar
B
ra
gi
B
ár
ða
rs
on
!"
#$%&"" ' (#$$%%& )*+ ), )-)*+ ), )./
!"#
$%
&
'
#
)/ 0123 0456 7/8
Jólablaðið í næstu viku!
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:42 Page 34