Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Page 38

Víkurfréttir - 11.12.2003, Page 38
38 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Undirbúningur jólannafer fram með ýmsumhætti hjá fjölskyldum landsins og það er mismikið sem fólk temur sér að gera fyr- ir jólin. Ertu búin að öllu? er algeng spurning og sumir svara: Öllu hverju? Oftast er átt við hreingerningar, bakstur, jólakort og gjafakaup. Enginn má fara í jólaköttinn og betra að velja sér ný föt fyrir jól- in! Við tölum líka um helgihald um jólin sem þýðir að þá teljum við okkur vera að gera eitthvað sem er okkur heilagt. Margir hafa fastar hefðir og siði sem gengið hafa mann fram af manni en svo eru aðrir sem skilja ekki alla þessa fyrirhöfn þegar hægt er að kaupa nánast allt tilbúið. Sumir eiga dýrmætar æskuminningar einmitt tengdar jólaundirbúningi. Í neyslusamfélagi nútímans þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis er þó enn til fólk sem vill gera hlutina sjálft og jafnvel upp á gamla mátann. Aðrir finna hjá sér þörf til að viðhalda siðum í jólaundirbúningnum sem haldið hafa í gegnum nokkrar kynslóðir. Stundum stangast hefðir á hjá unga nýgifta parinu og hver man ekki eftir fyrstu jólunum með maka sínum þegar við erum að- skilin frá foreldrum okkar á jól- um, jafnvel í fyrsta sinn. Þá er kannski annað á borðum en heima og stemmingin önnur. Sumir þurfa alltaf að fá rjúpur en aðrir hafa hamborgarhrygg eða svínabóg og svona mætti lengi telja. Jólaundirbúningurinn skemmtilegur og afmæli á Þorlák. Á heimili Ásdísar Friðriksdótur og Gunnars Arnar Guðmunds- sonar í Njarðvík ríkti sannkölluð jólastemming á fyrsta sunnudegi í aðventu þegar fjölskyldan kom saman til að kveikja á fyrsta að- ventukertinu og smakka jóla- smákökurnar. Sú hefð hefur skapast hjá fjölskyldunni að Ás- dís bakar margar tegundir af smákökum fyrir jólin. Hún bakar ekki einungis fyrir heimilismenn heldur einnig fyrir tengdamóður sína Lóu í Stefánshúsi og föður sinn sem býr í Kópavogi. Ásdís segist vilja vera búin að baka smákökur og lagtertur fyrir fyrsta sunnudag í aðventu því þá kemur fjölskyldan saman. Blaðamaður VF frétti af sérstakri jólastemmingu hjá Ásdísi en hún var frekar treg í viðtal og sagði að það væri nú orðið hálfgert feimnismál að gera mikið fyrir jólin, baka margar sortir og halda í gamlar hefðir. „Maður er eigin- lega ekkert að gefa þetta upp“ segir hún. Fólk talar um jóla- stress og alltof mikla fyrirhöfn. En það er stemmningin og fjöl- skyldu-nándin sem mér finnst svo mikilvæg í kringum þetta. Það er hægt að kaupa smákökur í búð en mað- ur kaupir ekki þessa s é r s t ö k u f jö l sky ldu - s temmningu. Börnin taka þátt í þessu og á jóladags- morgun höfum við haft þá hefð að drekka saman jólasúkkulaði og borða jólasmákökur. Þó börnin séu farin að heiman hefur sést til þeirra laumast hér inn á náttsloppnum til að við- halda stemmningunni sem ein- hvern veginn komast á hjá okkur og er mér mjög mikils virði. Mér f innst jólaundirbúningurinn skemmtilegur segir Ásdís. Ásdís er ein af þeim sem á af- mæli á Þorláksmessu og slær þá upp mikilli skötuveislu. Þá kemur stjórfjölskyldan saman sem samanstendur af föður Ás- dísar og 6 systkinum hennar ásamt börnum og barnabörnum. Þeir sem ekki vilja skötu fá dýr- indis síld sem Ásdís útbýr sjálf. Ásdís og Gunnar eiga fjög- ur börn, Silju Dögg, Sigurbjörgu, Guð- mund Stefán og Gerði Rósu sem öll eru flutt að heiman en Sigur- björg sú yngsta dvelur við nám á Laugarvatni. Gömlu kókoskökurnar og kökuboxin kalla fram minningar. Viðmælandi okkar er húsmóðir í Njarðvík sem flutti hingað suður fyrir 30 árum. Hún er fædd um miðbik síðustu aldar og er ein af þeim sem heldur fast í gamlar hefðir. Hún bakar margar sortir af smákökum, gerir piparköku- hús og hefðbundnar jólalagkökur eða randalínur bæði brúna og hvíta. Hún gerir líka sérstaka rabbabarasultu og síld fyrir jólin. Í hvítu randalínunni hefur hún nýgerða rabbabarasultu en hún geymir rabbabarann frá haustinu til að geta haft ferska sultu fyrir jólin. Rabbabarinn er ekki úr bakgarðinum hjá henni í Njarð- vík heldur fær hún hann frá Eyr- arbakka þaðan sem rætur hennar liggja. Ein af æskuminningum Ásdísar er þegar hún varð veðurteppt hjá afa sínum og ömmu á Eyrar- bakka aðeins 6 ára og hélt jólin þar en pabbi hennar og mamma voru í Kópavoginum. Þessi jól kynntist Ásdís jólahefðum frá 19. öld þar sem ekki mátti spila á að- fangadag en á jóladag var spilað fram á nótt milli þess sem farið var í gegningar því einhver varð að mjólka kýrnar. Þessa sögu og ýms- ar aðrar rifjum við upp við kertaljós og ilm af jólasmákök- um í eldhús- króknum á Hólagötunni. Innan um ný kökubox sést í önnur eldri sem koma m.a. úr búi móður hennar sem nú er látin. Við ræðum al- mennt um minningar sem geta tengst kökuboxum og ýmsu í eldhúsinu sem notað er í jólaundirbúningnum. Það getur verið lykt og eða áhöld og stund- um hafa fjölskyldumeðlimir ákveðið verk með höndum í jóla- undirbúningnum. Sumir henda nú svona gömlum boxum segir Ásdís en það leynast ekki bara gömul box hjá Ásdísi. Sumar uppskriftirnar eru mjög gamlar og hefur Ásdís bakað þær áratug- um saman. Hún sýnir mér upp- skrift af ís sem er ómissandi eftir- réttur á aðfangadagskvöld. Upp- skriftin er frá Gunnu á Stað og er borinn fram með sérstakri rjómakaramellusósu. Ein smá- kökutegundin heitir Sollukökur og brúnar kókoskökur eru bakað- ar eftir uppskrift frá ömmu Ás- dísar á Eyrarbakka. „Ég rúllaði upp kökum með ömmu minni sem voru eftir þessari uppskrift“ segir hún. Blaðamanni fannst áhugaverðar gyðingakökur sem ekki þarf að fletja út. Ásdís lum- aði á ýmsum góðum ráðum varð- andi baksturinn og notar alltaf smjör í jólabaksturinn. Hún ráð- leggur að hafa hitann ekki of háan og passa vel upp á tímann svo kökurnar bakist jafnt. VF færa Ásdísi og fjölskyldu bestu þakkir fyrir uppskriftir og spjall. Ásdís er hálf feimin við að gefa upp hvað hún gerir mikið fyrir jólin! ➤ U N D I R B Ú N I N G U R J Ó L A N N A F E R F R A M M E Ð Ý M S U M H Æ T T I ER HÆGT AÐ KAUPA JÓLASTEMMNINGU? Ljó sm yn di r ú r e in ka sa fn i VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:44 Page 38

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.