Víkurfréttir - 25.03.2004, Qupperneq 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ V E R S L U N O G V I Ð S K I P T I
Tobías Sveinbjörnsson,ljósmyndari Víkurfrétta,heldur þessa dagana ljós-
myndasýningu á Salatbarnum
við Faxafen 9 í Reykjavík. Sýn-
inguna kallar Tobías „Ferða-
lag“. Sýningin stendur til 19.
maí nk.
„Með sýningunni er ég að sýna
ykkur ferðalag mitt sem spannar
allt frá Siglufirði til Washington
DC þar sem gaman er að bera
saman mismunandi kúltur, arki-
tektúr og mannlíf. Á sýningunni
má finna a.m.k. eina yfirlits-
mynd frá þessum stöðum og svo
útvalin smáatariði frá völdum
stöðum“, segir Tobías í samtali
við Víkurfréttir.
Tobías Sveinbjörnsson er fæddur
1983 og uppalin í sjávarþorpinu
Grindavík. Hann hóf snemma að
taka ljósmyndir og þegar hann
var aðeins 14 ára átti hann sínar
fyrstu myndir í blöðunum og hef-
ur myndað af miklum krafti síð-
an. Hann dvaldist í Suður Kar-
ólínu USA ‘98 & ‘99 eða um
tveggja ára skeið í námi. Frá ár-
inu 2000 hefur hann starfað sem
tölvu, tækni & vefstjóri hjá Ljós-
myndaversluninni Beco ehf. Þeg-
ar hann kom frá USA hefur hann
myndað mikið fyrir íslensk blöð
og tímarit, og þar má nefna
Morgunblaðið,
DV, Víkurfréttir og fleiri miðla.
Tobías notar mest Canon EOS
10D fyrir digital og Cambo stór-
formats myndavél fyrir filmu.
T ískuverslunin Mangó íKeflavík hefur flutt sigum set við Hafnargötuna
og opnað nýja verslun að
Hafnargötu 54. Verslunin er
glæsilega innréttuð, björt og
falleg og vöruúrvalið er meira
en á gamla staðnum.
Rakel Ársælsdóttir, eigandi
Mangó, sagði í samtali við Vík-
urfréttir að nú væri 20% afsláttur
af öllum vörum í tilefni af opnun
nýju verslunarinnar. Afslátturinn
verður fram yfir páska. Þá styttist
í að sumarvörurnar komi í hús og
með hækkandi sól mun úrvalið í
stærri stærðum aukast. Einnig
ætlar Mangó í Keflavík að bjóða
upp á meira úrval af fatnaði sem
er saumaður sérstaklega fyrir
verslunina í Keflavík
Meðfylgjandi mynd var tekin í
Mangó í Keflavík. Afgreiðslu-
borðið hefur vakið athygli og er
án efa eitt það frumlegasta í
verslun á Suðurnesjum í dag.
Ekið á bifreið markaskorara við FS
Knattspyrnukonan og markaskorarinn Nína Ósk Kristinsdóttir úr
Sandgerði varð fyrir óskemmtilegri reynslu utan við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja sl. fimmtudag. Þegar hún kom að bifreiðinni sinni úti á
bílastæði var búið að keyra utan í bifreiðina og valda á henni skemmd-
um. Ekki er hægt að sjá lit af annarri bifreið í skemmdinni, en hins
vegar var skemmdin skítug, sem gæti verið vegna þess að grafa eða
vinnutæki hafi rekist í bílinn. Bifreiðin er blár Renault Megane Coupe.
Þeir sem geta veitt einhverjar upplýsingar um málið eru hvattir til að
hafa samband í síma 423 7746 eða 846 5078.
➤ V Í K U R F R É T TA L J Ó S M Y N D A R I N N
Tobbi með ljósmyndasýningu
Mangó opnar nýja verslun í Keflavík
Nær helmingur fólks í umferðarkönnunSlysavarnafélagsins Landsbjargar íGrindavík í síðustu viku voru án bíl-
belta. Úrtakið var 171 bíll á fjölförnum gatna-
mótum og voru 81 án belta eða 47,4% en 90
voru í beltum eða 52,6%. Könnunin stóð yfir
frá kl. 14:00 til 14:30.
Að könnuninni stóðu umferðarfulltrúi Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, Kjartan Benediktsson og
slysvarnakonur úr Slysavarnadeildinni.
Að umferðarkönnuninni lokinni fóru slysavarna-
konur með umferðarfulltrúann um bæinn og
skráðu niður athugasemdir þar sem talin var þörf á
lagfæringum. Kjartan mun vinna skýrslu úr gögn-
unum og senda viðkomandi aðilum og þrýsta á að
lagfæringar verði gerðar.
47,4% Grindvíkinga án bílbelta
VF
-M
YN
D:
H
IL
M
AR
B
RA
GI
B
ÁR
ÐA
RS
O
N
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 15:04 Page 4