Víkurfréttir - 25.03.2004, Page 8
Körfuknatt le iksdei ldKeflavíkur hefur sent frásér yfirlýsingu á heima-
síðu félagsins þar sem DV er
harðlega fordæmt fyrir frétt í
blaðinu á þriðjudag þar sem
greint er frá meintu kynferðis-
broti Fannars Ólafssonar leik-
manns í körfuknattleiksliði
Keflavíkur. Yfirlýsingin sem
ber fyrirsögnina „Fannar hafð-
ur fyrir rangri sök - vinnu-
brögð DV fordæmd“ fer hér á
eftir:
Fannar hafður fyrir rangri sök
- vinnubrögð DV fordæmd
Í sorpblaðinu DV í dag er greint
frá meintu kynferðisbroti Fannars
Ólafssonar. Um er að ræða ásak-
anir stúlku sem var vistmaður á
meðferðarheimilinu að Torfa-
stöðum, en það er rekið af for-
eldrum Fannars. Þar eru vistaðir
unglingar sem átt hafa erfitt upp-
dráttar í lífinu af ýmsum sökum.
Vegna greinar þessarar vill
körfuknattleiksdeildin taka fram
að ásakanir þær sem settar hafa
verið fram á hendur Fannari eru
skv. okkar heimildum algerlega
úr lausu lofti gripnar.
Stjórn körfuknattleiksdeildarinn-
ar fordæmir vinnubrögð DV
harðlega og vill ekkert með þann
fjölmiðil hafa að gera. DV er al-
veg sama um tilfinningar fólks
og birtir óhikað myndir og nefnir
nöfn fólks sem hefur verið ásak-
að, jafnvel þó það sé eða geti ver-
ið alsaklaust. Þess ber að geta að
Fannar hefur ekki verið kærður,
heldur er málið á rannsóknar-
stigi. Vinnubrögð DV eru afar
ósmekkleg og lýsa mikilli mann-
vonsku og tillitsleysi. Hreint
ótrúlegt að Illugi Jökulsson skuli
standa á bak við svona lagað.
Stjórn körfuknattleiksdeildarinn-
ar vill biðja stuðningsmenn
Keflavíkur að standa þétt að baki
Fannari, eftir sem áður, í þeirri
trú og vissu að hér sé um alger-
lega staðhæfulausar ásakanir að
ræða. Nú er úrslitakeppnin í
körfubolta og framundan hörku-
leikir gegn Grindavík, vonandi fá
þeir leikir að vera í aðalhlutverki.
Vonandi breytir DV um stefnu í
bráð eða verður gjaldþrota.
Stjórn körfuknattleiksdeildar
skorar á stuðningsmenn sína að
kaupa ekki þennan sorapóst og
veita ekki viðtöl, nema ýtrustu
nauðsyn krefji.
ÞAÐ ER SORGLEGT að fylgjast með því
hvernig DV fremur hvert mannorðsmorðið á fætur
öðru án þess að nokkuð fáist ráðið við. Nöfn ein-
staklinga og risastórar
myndir valda sárum sem
sum hver gróa seint eða
aldrei. Það má vera að
sumir þeirra einstaklinga
sem DV slær upp eigi skilið
þá meðferð sem þeir fá í
blaðinu en Illhugi og hans
lið verður að kunna sig.
Grunsemdir eru ekki alltaf
á rökum reistar og alþekkt
að kjaftasögum er komið í gang til að koma höggi á
fólk. Það er of seint fyrir DV-menn að grípa um
rassgatið á sér þegar skíturinn er dottinn út!
KALLINN ER HINSVEGAR fullur stolti yfir
árangri sundfólks Íþróttabandalags Reykjanesbæjar
á Innanhússmeistaramóti Íslands í sundi sem fram
fór í Eyjum um síðustu helgi. Uppskeran var 19
Íslandsmeistarartitlar af 40 mögulegum, sem
samkvæmt heimildum Kallsins innan íþróttageirans
er það mesta sem íslenskt félagslið hefur náð í
keppni. Sundfólkið á heiður skilinn fyrir þetta afrek
og bæjaryfirvöld ættu að hafa í huga að alltaf má
bæta aðstöðu sundfólksins. Myndarleg sundlaug
undir þaki er eitthvað sem löngu er kominn tími á í
Reykjanesbæ.
FERMINGAR HÓFUST á Suðurnesjum um
síðustu helgi og var Kallinum boðið í þrjár veislur.
Það er af sem áður var. Hvert fermingarbarn stendur
uppi með hundruð þúsunda í beinhörðum
peningum og ýmsa muni, sem vonandi koma að
gagni í búskapi framtíðarinnar. Sjónvörpin eru ekki
minni en 28“ eða tölvubúnaðurinn þannig að engin
leið er að skilja öll megabætin.
FJÁRMÁLASTOFNANIR ættu að halda
námskeið í kjölfar ferminga til að ráðleggja unga
fólkinu hvernig megi ávaxta peninginn, því víða eru
skammtímasjónarmið sem ráða för og jafnvel
skyndiákvarðanir sem ekki reynast vel að lokum.
Hjálpum unga fólkinu að láta féð bera enn ríkulegri
ávöxt.
KALLINN ER ORÐINN SPENNTUR að sjá
Hljómasýningu krakkanna í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Kallinn hugsar til áranna í Krossinum
með glampa í augum.
KALLINN BÍÐUR einnig forvitinn eftir Tímariti
Víkurfrétta.
Kveðja, Kallinn@vf.is
stuttar
f r é t t i r
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Kallinn á kassanum
MUNDI
➤ K Ö R F U K N AT T L E I K D E I L D K E F L A V Í K U R S V A R A R F Y R I R F A N N A R
Keflvíkingar ætla greinilega
að troða DV í rusla-körfuna!
Bifreið hafnaði
á grindverki
Nokkuð harðurárekstur varð fyrirhelgi á mótum
Hringbrautar og Faxa-
brautar í Reykjanesbæ.
Önnur bifreiðin kastaðist á
grindverk á gatnamótunum
og fór langleiðina inn í
garðinn við húsið. Bifreið-
arnar eru báðar töluvert
skemmdar.
Áhöld til fíkni-
efnaneyslu fund-
ust í bifreið
Áhöld til fíkniefna-neyslu fundust í bif-reið sem stöðvuð var
í Grindavík í síðustu viku.
Tveir aðilar sem voru í bif-
reiðinni voru handteknir og
fluttir á lögreglustöðina í
Grindavík. Engin fíkniefni
fundust við leit á mönnunum,
en við leit í bifreiðinni fannst
annað áhald til fíkniefna-
neyslu þar sem einnig fund-
ust leifar af hassi. Eftir yfir-
heyrslur var mönnunum
sleppt.
Ljóskastarar
brotnir í Reykja-
neshöll
Þrír ljóskastarar semlýsa upp Reykjanes-höll hafa verið eyði-
lagðir í þessum mánuði, en
verðmæti hvers þeirra er
um 100 þúsund krónur.
Einn ljóskastari var brot-
inn milli jóla og nýárs og er
því ljóst að samanlagt tjón
vegna skemmdarverkana
er um 400 þúsund krónur.
Lögreglan í Keflavík rann-
sakar málið.
Ofurölvi í vor-
verkunum?
Rétt fyrir hádegið dageinn í síðustu vikuvar lögreglunni í
Keflavík tilkynnt um of-
urölvi mann sem var í hús-
garði við Hátún í Reykja-
nesbæ. Lögreglumenn
héldu á staðinn og óku ölv-
aða manninum til síns
heima, en ekki er vitað
hvort maðurinn sinnti vor-
verkum í garðinum þegar
lögregluna bar að garði.
Vinnubrögð DV fordæmd
➤ Fleiri fréttir á vf.is
Fjölmenni var við útför Ómars Jóhannssonar, sem gerð var frá Útskálakirkju sl. föstudag. Það var Hjörtur Magni
Jóhannsson, fríkirkjuprestur og fyrrum sóknarprestur að Útskálum, sem jarðsöng Ómar, en þeir Ómar og Hjörtur
Magni voru góðir félagar og áttu margar stundir saman þar sem Ómar barðist við þann erfiða sjúkdóm sem
krabbameinið var honum. Ólafur Ómar Jóhannsson fæddist á Seyðisfirði 31. desember 1951. Hann lést á heim-
ili sínu í Reykjavík hinn 10. mars síðastliðinn.
Fjölmenni við útför Ómars Jóhannssonar
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 13:50 Page 8