Víkurfréttir - 25.03.2004, Page 11
Það gladdi gamla sjóaraog marga fleiri þegarBátasafn Gríms var
opnað. Þar voru fluttar ræður
sem gáfu vonir um að þetta
væri aðeins byrjunin. Ellert
bæjarstjóri lofaði framtakið og
sagði að næst lægi fyrir að
ganga frá viðbótarhúsnæði í
skúrnum við hliðina á safninu.
Fyrirheit voru gefin um að
færa safninu fleiri líkön þegar
pláss yrði fyrir þau.
Efndirnar urðu þær að skúrinn
var gerður að því sem þeir köll-
uðu Listagallerí og var standsett
með ærnum kostnaði - þar dugði
ekki bert steingólf. Unnið var um
helgar og nótt með degi til að
geta tekið við röð af „listaverk-
um“ sem frægur listamaður ætl-
aði að færa bænum að gjöf
ákveðinn dag.
Sýning var opnuð með viðhöfn á
tilsettum tíma og snobbarnir
máttu vart vatni halda af aðdáun.
Almúgafólk sá ekki betur en að
þetta væru stækkuð ljósrit af
leiðarmerkjum úr dönsku herfor-
ingja-kortunum sem gefin voru
út upp úr aldamótunum 1900.
Nýlokið er sýningu Árna John-
sen á grjóti úr Grundarfirði sem
hann hafði flikkað upp á af miklu
ímyndunarafli. Þau verk hlutu
ekki náðar listasnobbaranna svo
ráðamenn bæjarins brugðust
snart við og létu útbúa annan
sýningarsal fyrir grjótið hans
Árna í skúrnum við suðurendann
á bátasafninu og nefndu það
Gryfjuna. Hvaðan nafngiftin er
komin er mér hulið. Þetta voru
skúrar sem HF-Keflavík byggði á
sínum tíma. En þar með var end-
anlega lokað fyrir frekari stækk-
un á Bátasafninu. Sýningin á
grjótinu hans Árna sló í gegn og
setti aðsóknarmet, þótt lítið væri
um hana fjallað og henni lauk
með Árnakvöldi í Gryfjunni. Þar
var húsfyllir - vel á þriðja hund-
rað manns sem skemmti sér vel.
Sýningu listaprófessorsins sem
Galleríið var útbúið fyrir lauk
með því að stórmennum bæjar-
ins, blaðamönnum og fleirum var
boðið. Þar mættu 24 og ekki bar
á að neinn hefði gaman af. Nýju
fötin Keisarans heyrðist hvíslað.
Almúginn lætur ekki að sér
hæða. Mér dettur í hug saga sem
ég heyrði fyrir löngu, hún gæti
verið úr Góða dátanum. Þar segir
frá flækingi sem var orðinn kald-
ur og hrakinn á flakki sínu í
hörku frosti, en varð að gera
þarfir sínar. Þegar hann leit á
hraukinn, sem niður af honum
hafði gengið og beinfrosið, datt
honum í hug að þetta mætti kall-
ast listaverk og hann nefndi það
Móses í hugleiðingu.
Bóndabær var í nánd. Þangað
hélt flækingurinn og knúði dyra.
Húsfreyjan, sem var snobbuð í
meira lagi, kom til dyra. Flæk-
ingurinn rétti fram „listaverkið“
og bauð það falt fyrir súpudisk.
Húsfreyjan tók boðinu fegins
hendi, færði flækingnum súpu-
disk á eldhúsborðið og setti
Móses á arinhilluna í stofunni.
Flækingurinn sötraði súpuna af
græðgi og forðaði sér við svo
búið. Skömmu seinna hróparði
húsfreyja til bónda síns. „Móses
er búinn að skíta á hilluna og far-
inn.“
Vonandi eru listaverkin hans
Garibalda geymd við hæfilegan
hita, því varla verða þau sýnd aft-
ur í bráð. Enginn mun ljá þeim
veggpláss, en mikið hafa þau
kostað. Ástæða þess að ég er að
skrifa um list án þess að hafa
nokkurt vit á slíku er sú að ég tel
listasnobb og dekur hafa komið í
veg fyrir framgang Bátasafnsins,
sem hefði getað orðið einstakt á
landsvísu. Nóg er af vannýttu
húsnæði í Reykjanesbæ sem nýta
mætti fyrir sýningar á listaverk-
um - um það tel ég mig dómbær-
ann.
Ólafur Björnsson
VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 25. MARS 2004 I 11
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
40
xx
03
/2
00
4
Samsung X600
Myndavélasími
Zoom, snúningur og ljós
Stærð myndar 640 x 480 punktar
Litaskjár 65.000 litir
Minni 9 MB
Verð 19.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28,
Skífunni Laugavegi 26, Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn.
Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti
frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda
➤ Ó L A F U R B J Ö R N S S O N S K R I F A R
Enn þrengir að Bátasafni Gríms
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 15:37 Page 11