Víkurfréttir - 25.03.2004, Qupperneq 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ F E G U R Ð A R S A M K E P P N I S U Ð U R N E S J A 2 0 0 4 - U N D I R B Ú N I N G U R
Leitin að fegurðardrottn-ingu Suðurnesja nær há-marki laugardaginn 17.
apríl þegar fegurðarsamkeppni
verður haldin í Bláa Lóninu.
Að þessu sinni taka 12 stelpur
þátt í fegurðarsamkeppninni
og þessa dagana standa yfir
strangar æfingar hjá þeim.
Á bakvið stelpurnar stendur ein-
valalið í hárgreiðslu, förðun, lík-
amsrækt og framkomu. Allir
þessir þættir skipta miklu máli
fyrir stelpurnar. Víkurfréttir slógu
á þráðinn til þeirra sem sjá um
hárgreiðslu og förðun stelpnanna
sem taka þátt í fegurðarsam-
keppninni.
Kolbrún Ída Harðardóttir hár-
greiðslukona á hárgreiðslustof-
unni Edilon segir að náttúrulegir
litir séu í tísku núna. „Við ætlum
að hafa greiðslurnar náttúrulegar
og látlausar,“ segir Kolbrún og
henni líst mjög vel á hópinn.
„Þetta eru fallegar stelpur og
hópurinn mjög skemmtilegur.
Þetta verður spennandi keppni.“
Bryndís Knútsdóttir hárgreiðslu-
kona á hárgreiðslustofunni
Kamillu í Garði segir að það sé
allt í gangi í hártískunni. „Stelp-
urnar verða með fléttur, slétt hár
og það er bara allt í gangi,“ segir
Bryndís og líkt og Kolbrún líst
henni mjög vel á hópinn sem tek-
ur þátt í fegurðarsamkeppni Suð-
urnesja. „Þetta er fallegar og fín-
ar stelpur og hópurinn góður sem
tekur þátt.“
Ingveldur H. Sigurðardóttir förð-
unarfræðingur hjá Lyf og Heilsu
í Keflavík sér um að farða kepp-
endurna. Ingveldur segir að vor-
litirnir séu mikið notaðir núna.
„Það er voða mikið blátt og
bleikt sem við notum til að undir-
strika fegurð og ferskleika stelpn-
anna,“ segir Ingveldur en einung-
is eru notaðar snyrtivörur frá
Dior. Ingveldi lýst vel á hópinn.
„Þetta eru allt saman glæsilegar
stúlkur og ég get með engu móti
veðjað á hver muni vinna.“
Fegurðarsamkeppnin er haldin í
fjórða sinn í Bláa Lóninu og seg-
ir Sveinn Sveinsson forstöðu-
maður veitingasviðs Bláa Lóns-
ins að keppnin hafi ávallt farið
vel fram og verið hin besta
skemmtun. Að sögn Sveins verð-
ur boðið upp á þríréttaðan kvöld-
verð að hætti Bláa lónsins. Kalli
Bjarni mun skemmta gestum,
auk þess sem keppendur verða
með tískusýningu. „Hápunktur
kvöldsins verður keppnin sjálf
þar sem þessar glæsilegu stúlkur
ganga fram og í lokin verður sjálf
krýningin,“ sagði Sveinn í sam-
tali við Víkurfréttir. Dagskrá feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja
verður auglýst síðar.
Undirbúningur fyrir Fegurðarsamkeppnina á fullu
Lögð verður áhersla á náttúrulegt útlit stelpnanna.
Vorlitirnir verða áberandi í förðuninni.
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 15:46 Page 14