Víkurfréttir - 25.03.2004, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 25. MARS 2004 I 17
SNÆFELL-NJARÐVÍK
Óhætt er að segja að Njarðvíkingar hafi ekki
riðið feitum hesti frá fyrstu tveimur viður-
eignunum við deildarmeistara Snæfells.
Skemmst frá að segja töpuðu þeir báðum
leikjunum og þurfa nánast á kraftaverki að
halda ætli þeir sér áfram í úrslitin. Stóru
mennirnir þeirra, Friðrik og Páll hafa átt erfitt
uppdráttar í leikjunum og verið í skugganum
af Hlyni Bæringssyni, sem hefur verið
óstöðvandi í úrslitakeppninni og tók meðal
annars 28 fráköst í fyrri leiknum í Stykkis-
hólmi.
Fyrri leikurinn var jafn og spennandi allan
tímann þar til Snæfell sprakk út í síðasta leik-
hluta og sigldi framúr og vann að lokum 10
stiga sigur, 97-87.
Brenton Birmingham var allt í öllu í sóknar-
leik Njarðvíkinga og skoraði 45 stig, aðrir
voru langt frá sínu besta.
Í öðrum leiknum mættu Hólmarar í Ljóna-
gryfjuna ásamt fríðu föruneyti fylgismanna
sem hefur staðið þétt á bak við sína menn í
allan vetur. Heimamenn virtust þó hafa leik-
inn í hendi sér og voru með þægilega 21 stigs
forystu þegar skammt var eftir af þriðja leik-
hluta. Endaspretturinn var þó eign Snæfell-
inga þar sem Njarðvíkingar fóru að reyna að
halda í forystuna í staðinn fyrir að halda
áfram keyrslunni. Heimamenn hleyptu and-
stæðingunum aftur inn í leikinn og voru al-
gjörlega bugaðir undir lokin þar sem Snæfell
skoraði síðustu 15 stig leiksins og unnu 79-
83. Nú bíður þeirra það erfiða verkefni að
sækja sigur í Stykkishólm sem hefur sannað
sig sem einn erfiðasti völlur landsins í vetur.
Engu að síður hefur aldrei talist ráðlegt að af-
skrifa Njarðvíkinga fyrir fram og má hafa það
hugfast að þeir eru þegar búnir að vinna einn
leik þar í vetur og ef það tekst verður erfitt
fyrir Snæfell að koma aftur í Ljónagryfjuna
þar sem allt getur gerst.
Þriðji leikurinn verður í Hólminum í kvöld, sá
fjórði verður á sunnudaginn og sá fimmti á
þriðjudag, þ.e.a.s. ef þörf verður á.
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK
Eftir tvo spennandi og skemmtilega leiki er
staðan jöfn hjá Grindavík og Keflavík, sem
hafa unnið sitt hvorn heimaleikinn.
Í fyrri leiknum, sem fór fram í Röstinni í
Grindavík, höfðu heimamenn frumkvæðið til
að byrja með, en í þriðja leikhluta létu Allen,
Bradford og Arnar Freyr finna fyrir sér og
náðu góðu forskoti fyrir lokafjórðunginn. Þar
fór hins vegar öll vinnan í vaskinn þar sem
Keflvíkingar gáfust hreinlega upp og leyfðu
Grindvíkingum að vaða uppi og gera það sem
þeir vildu og því var 99-84 sigur Grindvík-
inga staðreynd.
Annar leikurinn, sem fór fram á laugardag-
inn, var taumlaus skemmtun frá upphafi til
enda. Þar voru hraðinn og baráttan í fyrirrúmi
þar sem Keflvíkingar náðu frumkvæðinu
snemma og voru skrefinu á undan Grindvík-
ingum meira og minna allan leikinn.
Arnar Freyr Jónsson átti frábæran leik fyrir
Keflavík þar sem hann stjórnaði leik sinna
manna og var hreint ekki banginn við að taka
af skarið í sókninni og taka mikilvæg skot.
Hann hefur vaxið með hverjum leik og á ef-
laust bjarta framtíð fyrir sér.
Þá var einnig ánægjulegt að sjá Helga Jónas
Guðfinnsson eiga frábæra innkomu í fyrri
hálfleik þar sem hann hitti úr öllum fimm 3ja
stiga skotum sínum, en hann hefur verið mik-
ið fjarverandi í vetur vegna meiðsla.
Grindvíkingar virtust ætla að koma sér inn í
leikinn undir lokin þar sem þeir skoruðu 7
stig í röð og minnkuðu muninn í eitt stig, en
þá sögðu Keflvíkingar hingað og ekki lengra
og settu allt í lás í vörninni og létu 3ja stiga
körfunum rigna niður þar sem Magnús Þór
Gunnarsson fór fremstur í flokki. Lokatölurn-
ar voru 116-105 og allt í járnum í einvíginu.
Næsti leikur verður í Grindavík á morgun, en
sá fjórði verður á sunnudaginn og oddaleikur
verður á þriðjudag, ef til þess kemur.
Undanúrslitin í Íslandsmóti karla í körfuknattleik hófust í vikunni þar sem Grindavík og Keflavík
áttust við annars vegar og hins vegar Snæfell og Njarðvík.
Undanúrslit karla
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK 99-84
Grindavík: Darrel Lewis 25, Jackie Rogers 21/13, Ant-
hony Jones 20/13/13, Páll Axel Vilbergsson 16.
Keflavík: Nick Bradford 28, Derrick Allen 15, Arnar
Freyr Jónsson 11, Fannar Ólafsson 9/13.
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK 116-105
Keflavík:Derrick Allen 30/11, Nick Bradford 24, Arnar
Freyr Jónsson 18, Magnús Þór Gunnarsson 17, Fannar
Ólafsson 17.
Grindavík: Jackie Rogers 24, Anthony Jones 22/14,
Darrel Lewis 21, Helgi Jónas Guðfinnsson 17, Páll
Axel Vilbergsson 16.
SNÆFELL-NJARÐVÍK 97-87
Snæfell:Corey Dickerson 23, Edmund Dotson 22, Sig-
urður Þorvaldsson 21, Hlynur Bæringsson 19/28, Haf-
þór Gunnarsson 12.
Njarðvík: Brenton Birmingham 45/11, Brandon
Woudstra 16, Friðrik Stefánsson 10.
NJARÐVÍK-SNÆFELL 79-83
Njarðvík: Brandon Woudstra 25, Will Chavis 24, Páll
Kristinsson 11, Brenton Birmingham 10/12.
Snæfell: Corey Dickerson 27, Dondrell Whitmore 23,
Edmund Dotson 17/13, Hlynur Bæringsson 10/12.
Undanúrslit kvenna
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK 66-62
Keflavík: Erla Þorsteinsdóttir 18, Anna María Sveins-
dóttir 16/15, Svava Stefánsdóttir 12.
Grindavík: Kesha Tardy 18, Ólöf Pálsdóttir 15/10, Sól-
veig Gunnlaugsdóttir12.
Ú R S L I T V I K U N N A R
U N D A N Ú R S L I T I N Í Í S L A N D S M Ó T I K A R L A
HÁSPENNA!
VF
-M
YN
D:
H
IL
M
AR
B
RA
GI
B
ÁR
ÐA
RS
O
N
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 15:31 Page 17