Víkurfréttir - 24.06.2004, Blaðsíða 28
G eorg Brynjarsson, fyrr-verandi formaðurungra Sjálfstæðis-
manna er sár
yfir skrifum
mínum í síð-
asta tbl. Bæj-
armála. Þar
fjallaði ég um
frammistöðu
m e i r i h l u t a
Sjálfstæðis-
manna í at-
vinnumálum. Ég fjallaði m.a.
um yfirlýsingar forystu Sjálf-
stæðismanna um að ef þeir
næðu kjöri þyrftu menn ekki
að óttast samdrátt hjá hernum,
en ef þeir næðu ekki kjöri væri
voðinn vís. Ég nefndi aðgerð
ungra Sjálfstæðismanna fyrir
síðustu kosningar þegar þeir
stóðu með kröfuspjöld og hvöt-
tu starfsfólk á vellinum til að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn ann-
ars væri það að kjósa frá sér
vinnuna. Ég dró þá ályktun í
gæsku minni að þetta hafi ekki
verið illa meint hjá þeim, þeir
hafi bara ekki vitað betur. Ég
vildi trúa að þau hefðu látið
blekkjast af áróðri sinna for-
ystumanna.
Afsökunarbeiðni
Georg segir m.a. í greininni sinni
„Það er afskaplega dapurt að sjá
kennaramenntaðan oddvita Sam-
fylkingarinnar tala með svo niðr-
andi hætti um ungt fólk sem vill
taka þátt í stjórnmálum og gera
því skóna að það sé heilaþvegið
af flokksforystunni“. Þó það
komi menntun minni e.t.v. lítið
við þá er það alveg rétt hjá hon-
um að ég vildi frekar trúa því að
þessir ungliðar hefðu látið
blekkjast, frekar en að þeir hafi
vitað betur, þegar þeir stóðu
þarna. Það á að vera öllum ljóst
sem fylgst hafa með þróun mála
undanfarinn ár að það var og er
enn yfirvofandi verulegur sam-
dráttur. Georg vill ekki sam-
þykkja þá skýringu að hann hafi
ekki vitað betur og vill að ég
biðji hann afsökunar fyrir að hafa
verið með ranga skýringu. Ég tel
mér því skylt að gera það, ég bið
þig Georg minn afsökunar á
þessu. Mér þykir hins vegar
verra að þurfa að trúa því í stað-
inn að þú hafir verið að plata
kjósendur vísvitandi.
Ungliðahreyfingar.
Í grein sinni talar Georg um mik-
ilvægi ungliðahreyfinga og að
sjálfsögðu er hann hrifnastur af
þeirri hreyfingu sem hann hefur
kosið að starfa með. Hverjum
þykir sinn fugl fagur eins og þar
stendur. Ég hef hins vegar fengið
að njóta þess að fylgjast með öfl-
ugri hreyfingu ungra jafnaðar-
manna hér í bæ. Það er líka rétt
hjá Georg að við sem eldri erum
eigum að vera ungliðum okkar
flokka góð fyrirmynd. Ég hef
alla tíð lagt áherslu á að við sem
erum í stjórnmálum eigum að
segja satt, jafnvel þó sannleikur-
inn sé stundum óþægilegur. Sem
dæmi má nefna að ég hef, fyrir
nokkrar síðustu kosningar, bent á
að samdráttur væri framundan
hjá hernum. Við þyrftum því að
búa okkur undir það og nýta þau
tækifæri sem gætu skapast við
samdráttinn til að skapa ný störf.
Mörgum, einkum þeim sem unn-
ið hafa hjá hernum þótti þessi
málflutningur minn óþægilegur.
Það hefði samt verið rangt af mér
að reyna að segja fólki eitthvað
annað.
Forystumenn annarra framboða
kusu að gera lítið úr vandanum
og hlutu fylgi m.a. fyrir það.
Einmitt þess vegna erum við illa
undir það búin nú að takast á við
þann vanda sem samdrættinum
fylgir.
Georg, að lokum vil ég gefa þér
og þínum samherjum eitt ráð, ráð
sem ég hef gjarnan haldið að
ungliðum í mínum flokki og
reynt, eftir bestu samvisku að
hafa í heiðri sjálfur. Hafa skaltu
það sem sannara reynist - ekki
bara það sem betur hljómar.
Kveðja
Jóhann Geirdal
Oddviti Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ Jóhann Geirdal, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ skrifar:
Viðbrögð við afsökunarbeiðni
26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 23.6.2004 13:22 Page 28