Víkurfréttir - 24.06.2004, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MUNDI
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
421 0000
Það hefur þurft
stólpípu til að fá
þessa stálpípu...
MIKILLAR REIÐI GÆTIR hjá Suðurnesja-
mönnum með uppsagnir Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli sem greint var frá í dag. Spyrja
margir hvar forysta þingmanna og sveitar-
stjórnarmanna sé þegar verið er að segja upp
fólki í tugatali þar sem flestir eru Suðurnesja-
menn. Hvar er þetta fólk sem kosið var til star-
fa fyrir fólkið - af fólkinu? Hvað í fjandanum eru
sveitarstjórnarmennirnir að gera? Það heyrist
ekki múkk hjá þeim. Þeir eru kannski farnir í
sumarfrí blessaðir - og hafa kannski verið í
sumarfríi frá því þeir voru kosnir?
ÞETTA ER GJÖRSAMLEGA ólíðandi. Það þarf
að gera eitthvað. Það er ekki endalaust hægt
að benda á Stálpípuverksmiðju sem Kallinn er
farinn að hafa efasemdir um að komi. Og það
er ekki endalaust hægt að tala um hve mikil
uppbygging sé hér á svæðinu. Það bara verð-
ur að grípa til einhverra ráðstafana því það er
gjörsamlega verið að leggja lífið í rúst hjá
mörgu af því fólki sem sagt er upp störfum.
VITA ÞINGMENN OG SVEITARSTJÓRNAR-
MENN á Suðurnesjum hvernig það er að vera
atvinnulaus? Vita þeir í hvaða vítahring heimili
atvinnulauss fólks fer? Hafa þeir einhvern grun
um það? Kallinn hlýtur að álykta sem svo að
þeir hafi ekki hundsvit á því hvernig atvinnu-
leysi fer með fólk. Það er alveg sama hvar
menn standa í flokki og hve mikil flokksholl-
ustan er - það bara einfaldlega verður að gera
eitthvað fyrir fólkið sem er verið að segja upp
störfum.
KALLINN VILL KOMA eftirfarandi á framfæri
við þingmenn Suðurkjördæmis; forystumanna
Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og
sveitastjórnarmanna á Suðurnesjum:
ÁGÆTU FORYSTUMENN! Nú er runninn upp
tími harðra aðgerða! Nú þýðir ekki lengur að
sitja, bíða og vonast eftir því að þessari hrinu
uppsagna linni. Nú bara verður að grípa til að-
gerða.
Krafa fólksins sem, nota bene, kaus ykkur er
einföld og hún er sú að þið gerið allt sem í
ykkar valdi stendur til að snúa þessari þróun
við. Fólkið vill fá að vita hvað hefur verið gert
og hvað eigi að gera.
Hvað mynduð þið gera ef ykkur yrði sagt upp
störfum og þið stæðuð uppi atvinnulausir með
fjölskyldu fyrir að sjá? Já, hvað mynduð þið
gera? Það vilja íbúar Suðurnesja fá að vita. Það
er krafa alls fólksins á svæðinu að þið gefið frá
ykkur yfirlýsingu og berjist fyrir því að fólkið
sem atvinnulaust er á svæðinu geti farið að
vinna og séð til sólar á ný. Þetta litla bréf er
ekki ósk heldur skýlaus krafa! Ef ekkert verður
gert frá ykkar hendi og það strax - má túlka
það sem móðgun við allt það fólk sem nú
stendur uppi atvinnulaust. Setjið ykkur í spor
þessa fólks og gerið allt sem í ykkar valdi
stendur til að bæta ástandið - það á það svo
sannarlega skilið!
Fyrir hönd fólksins,
Kallinn á kassanum
Kallinn óskar svara - strax
Kallinn
á kassanum
Auglýsingasíminn er 421 0000
92% lestur á Suðurnesjum
- samkvæmt könnun Gallup fyrir Víkurfréttir
26. tbl. 2004 32 sidur umbrot 2 23.6.2004 15:11 Page 10